Morgunblaðið - 15.03.1975, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1975
15
UMSJÓN: Bergljót Halldórsdóttir, Björg Einarsdóttir, Erna Ragnarsdóttir,
Lilja Ólafsdóttir.
Hver
ég eóa þeir?
FRUMVARP til laga um
„kynferðisfræðslu og fóstur-
eyðingar" — er það sérmál
einstakra stjórnmálaflokka,
t.d. Framsóknarflokksins
eða Alþýðubandalagsins eða
samtaka á borð við rauð-
sokkahreyfinguna?
Eftir umræðum meðal
fólks að dæma, mætti ætla
að svo væri. Erna og Björg
hittu nýverið hóp ungra
kvenna í húsakynnum
Félagsstofnunar stúdenta.
Rætt var um frumvarp til
laga um ráðgjöf og fræðslu
varðandi barneignir og kyn-
líf og um fóstureyðingar og
ófrjósemisaðgerðir, ásamt
framkomnum breytingum á
því.
Hópurinn var á einu máli
um, að efni frumvarpsins
væri svo afdrifaríkt fyrir
konur, að engin þeirra gæti
látið hjá líða að gera upp
hug sinn um það.
Stuðla bæri að.því að færa
umræðuna á víðara svið og
forða málinu þannig frá að
verða innlyksa sem sérmál
einhvers afmarkaðs hóps.
Viðurkennt var að fræðsla
um kynferðismál væri veiga-
mesti þáttur frumvarpsins,
en líta bæri á fóstureyðingu
sem neyðarúrræði.
Álfheiður Ingadóttir háskólanemi.
Álfheiður Ingadóttir og
Linda Rós Michaelsdóttir,
sem báðar hafa tekið mikinn
þátt í félagsmálum
stúdenta, svöruðu einni
spurningu hvor viðvíkjandi
frumvarpinu.
Álfheiður Ingadóttir:
Hvert er viðhorf þitt til
meðferðar Alþingis á frum-
varpinu um kynlifsfræðslu
og fóstureyðingar?"
Ég tel í sjálfu sér mjög
gott að stefnt skuli að því að
afgreiða þetta brýna málefni
endanlega nú á þessu þingi.
Hinsvegar gera alltof fáir
sér grein fyrir því, að frum-
varpið hefur tekið stórfelld-
um breytingum i meðferð
þingsins, en á opinberum
vettvangi hafa engar um-
ræður farið fram um þær
breytingar.
Veigamesta breytingin er,
að rétti kvenna til sjálfs-
ákvörðunar varðandi barn-
eignir er hafnað, og
ákvarðanataka um fóstur-
eyðingu er flutt á hendur
lækna og félagsráðgjafa.
Þessi breyting er verk
þingskipaðrar nefndar, sem
fékk það verkefni að endur-
skoða upphaflega frumvarp-
ið og framkomnar athuga-
semdir við það.
Hið furðulega er, að
nefndin var eingöngu skip-
uð körlum, og ég lít svo á,
áð með þeirri dæmalausu
ráðstöfun, hafi Alþingi ger-
samlega sniðgengið tilvist
íslenskra kvenna.
Ég vil skora á þingmenn
að bæta fyrir þessi afglöp
sín og skipa nýja endur-
skoðunarnefnd þriggja
kvenna, og leggja niður-
stöðu þeirrar nefndar til
jafns við niðurstöðu hinnar.
Linda Rós Michaelsdóttir:
Hvað vilt þú segja um
viðhorf þitt til frumvarpsins
um „kynlífsfræðslu og fóst-
ureyðingar?"
Ég tel það grundvallar-
atriði að hver einstaklingur
hafi frelsi til að marka sína
eigin lífsstefnu, en sjálfs-
ákvörðunarréttur kvenna um
fóstureyðingar er liður i því.
Mér virðist gæta mis-
skilnings í umræðu um þessi
mál. Talað er um „frjálsar
fóstureyðingar", en hér er
eingöngu um að ræða sjálfs-
ákvörðun konu innan
ákveðinna tímamarka, þ.e.
áður en 1 2 vikur eru liðnar
frá getnaði.
Fóstureyðing er ekki tak-
mark í sjálfu sér, heldur
nauðvörn, sem konan sjálf
metur hvenær hún þarf a&
grípa til. Fráleitt er að
ákvöðrunarvald um jafn ör-
lagaríkt atriði og barnsfæð-
ing er i lífi konu sé i höndum
utanaðkomandi aðila. Sam-
kvæmt núgildandi löggjöf
getur konu verið fóstur-
eyðing heimil að undan-
gengnu mati annarra á að-
stæðum hennar. Fóstur-
eyðingar hafa verið
heimilar hér á landi lögum
samkvæmt í nær 40 ár.
Umræðan nú snýst því um
endurmat á skilyrðum og
hvar ákvarðanatakan eigi að
i'ggja.
Linda Rós Michaelsdóttir, kennari og háskólanemi
Innleg í „debat“ dagsins:
Fóstureyðingarfrumvarpið var til umræðu
á ráðstefnu hér í borg.
Kona, sem kvaddi sér hljóðs, taldi, að ef
frumvarpið yrði að lögum, myndi það leiða
til þess, að konur tækju upp frjálst kynlíf,
eins og karlar!
DD
Samkvæmt skýrslu Al-
þjóða heilbrigðismála-
stofnunarinnar, hafa
eftirtalin lönd lög um
frjálsar fóstureyðingar
eða mjög frjálsleg
ákvæði, þ.e. félagslegar
ástæður eða ósk konu er
nægilegt tilefni.
Danmörk,
Finnland,
Bretland,
Svíþjóð,
Austur-Þýskaland,
Sovétríkin,
Búlgaría
Tékkóslóvakía,
Rúmenía,
Júgóslavía
Pólland,
Austurríki,
Holland,
Kína,
Indland,
Japan,
Singapore,
Túnis,
fjögur ríki Bandaríkj-
anna:
Alaska,
Hawai,
New York
Washington
(Úr „Forvitin rauð“ í
janúar1974)
Eins og kunnugt er af
fréttum, hefur Frakk-
land nú bæst í hópinn.