Morgunblaðið - 15.03.1975, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1975
31
Genf:
Samstaða virðist
um 200 mílurnar
Genf 14. marz NTB.
FORSETI hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna, H. Shirley
Amerasinghe, sagði á blaða-
mannafundi í dag, að úr þvi
— Portúgal
Framhald af bls. 1
ur og haft var fyrir satt að flokk-
urinn myndi sveigja sig nokkuð
til vinstri til að þóknast nýju vald-
höfunum og koma í veg fyrir að
stjórnmálastarfssemi hans yrði
bönnuð.
Þrátt fyrir mikinn viðbúnað
hersins í flestum helztu borgum
og bæjum Portúgals í dag, var þó
allt með kyrrum kjörum i kvöld.
Umferð við landamæri Spánar
var takmörkuð og leitað í bifreið-
um, en flugsamgöngur voru með
eðlilegum hætti að kalla.
— Greiðslur
til flugliða
Framhald af bls. 32
indi, svo sem nauðsynlegt hefur
verið að gera ýmsar aðrar ráðstaf-
anir. Sem dæmi má nefna að
margir flugstjórar eru með 3,6
milljónir króna í árslaun og pró-
sentan er reiknuð að brúttólaun-
um. Samkvæmt þvi geta þeir
keypt gjaldeyri fyrir rúmlega 2
milljónir króna á ári og býst ég
varla við því að almenningur ætl-
ist til þess, að slíkt sé unnt á sama
tim og skorinn er niður gjaldeyr-
ir til innflutnings á vörum. Eru
engin rök, sem hníga að því að
þeir hafi svo mikil gjaldeyrisrétt-
indi. Venjulegir flugmenn hafa
upp undir 2 milljónir króna í árs-
laun og gætu því keypt gjaldeyri á
einu ári fyrir um 1,2 milljónir
króna og er það einnig fráleitt.“
Björgvin sagði að enn hefðu
reglur um gjaldeyri til handa far-
mönnum og flugliðum ekki verið
ákveðnar, en hann kvað ekki
myndu gilda sömu reglur í fram-
tfðinni um farmenn og flugliða.
Sjómenn hafa annars vegar feng-
ið gjaldeyri hjá skipafélagi sínu
og þar hafa þeir fengið 30% af
launum sínum. Síðan hafa þeir
getað keypt 29% til viðbótar í
gjaldeyrisbanka. Er þaó fyrst og
fremst sá gjaldeyrir, sem þeir
hafa fengið hjá skipafélögunum,
sem þeir hafa notað og þurft að
nota. Flugliðar hafa hins vegar
fengið allan sinn gjaldeyri af-
greiddan í banka (nema dagpen-
inga) — 59% og hafa þeir út af
fyrir sig ekki notað hann allan,
sem sýnir að þeir hafa ekki þurft
á honum öllum að halda.
Bankarnir seldu áhafnargjald-
eyri fyrir 270 milljónir króna á
síðastliðnu ári. Árið áður voru
þetta 138 milljónir- króna. 270
milijónir króna skiptust þannig á
milli flugmanna og sjómanna, að
flugmenn tóku út 131 milljónir
króna, en farmenn 138,8 milljón-
ir. Þar fyrir utan hafa farmenn
fengið gjaldeyri hjá skipafélögun-
um og er þar áætlað að þeir hafi
fengið ekki minna en 200 milljón-
ir króna. Samtals eru þetta þá hjá
farmönnum 338 milljónir króna
og 131,2 hjá flugliðum — eða sam-
tals um 470 milljónir króna.
Skiptast þessar tölur niður á 860
sjómenn og 260 flugmenn. Þar
fyrir utan fá flugliðar dagpeninga
— sagði Björgvin Guðmundsson.
Fari þeir til Bandaríkjanna fá
þeir 26 dollara á sólarhring og
herbergi þar fyrir utan greitt ef
um gistingu er að ræða. Fari þeir
hins vegar til Skandinavíu eða
annarra landa, þar sem höfð er
stutt viðdvöl fá þeir dagpeninga
miðað við stundafjölda ferðar-
innar. Taki ferðin t.d. 12 klukku-
stundir fá þeir helming dagpen-
inganna. Því hafa þeir ávallt
fengið fyrir hverja ferð einhvern
gjaldeyri frá flugfélögunum. Það
sem þeir hafa fengið og það sem
þeir munu síóan fá samkvæmt
nýju reglunum í banka er til við-
bótar því.
fengist skorið á þeirri ráðstefnu
sem nú er að hefjast, hvort sam-
staða næðist um hafréttarreglur.
Amerasinghe sagði, að hann bygg-
ist ekki við að fulltrúar hinna 150
rikja og samtaka gætu komið sér
saman og mótað neina samninga i
þessari lotu, en hún hefst á mánu-
dag og stendur til 10. maí.
Um tvö þúsund fulltrúar munu
sækja ráðstefnuna sem verður í
aðalstöðvum S.Þ í Genf.
Amerasinghe sagði, að svo virt-
ist sem eining ríkti um 200 mílna
efnahagslögsögu og 12 mílna
landhelgi, en eftir væri þó að
leysa fjöldamörg mál sem að þeim
lytu.
Kissinger:
Miðar hægt og
sígandi í áttina
Tel Aviv 14. marz
NTB. Reuter
HENRY Kissinger utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna kom til Tel
Aviv síðdegis og hóf samstundis
fundi með Yitzhak Rabin, for-
sætisráðherra Israels. Mun hann
hafa lagt fyrir Rabin þær hug-
myndir og tillögur sem fram
komu á Aswanfundinum i gær
með Sadat Egyptalandsforseta.
Að viðræðum þeirra loknum held-
ur Kissinger áfram til Sýrlands og
síðan liggur leiðin til Egyptalands
að nýju á mánudag.
Kissinger sagði eftir fundina
síðustu meó Sadat að hægt og
sígandi miðaði 1 áttina til sam-
komulags og ekki væri við þvi að
búast að það gengi fljótar fyrir
sig.
— Methalli
Framhald af bls. 1
ið, „ef þingið sýnir að það vill að
hallalaus fjárlög hafi eins mikinn
forgang og full atvinna, en stjórn-
in virðist mjög ófús til þess.“
„Mótun stefnu sem dregur úr
tilkostnaði er knýjandi nauðsyn,“
segir annað blað, „Fyns
Tidende"
— Spara
Framhald af bls. 3
mynd af ástandi kynditækja í
landinu. Viðameiri og enn
nákvæmari könnun gæfi vissu-
lega nákvæmari heildarmynd
af ástandinu í þessum málum.
Við bendum á að þær niður-
stöður sem fengust á Akranesi
gætu átt við á hvaða stað sem er
á landinu þar sem notuð er olfa
til húshitunar. Eflaust má
finna að ýmsu í þessum niður-
stöðum. Þær eru unnar jafn-
framt daglegu starfi í skólanum
og uppfylla því ekki ströngustu
kröfur sem gerðar eru i þessum
efnum. Við vonumst þó fastlega
til þess að þær komi að þeim
notum sem til var ætlast.
Þó innlendir orkugjafar séu
það sem koma skal hér á landi
er engu að síður nauðsynlegt að
fylgjast meðnýtni kynditækja
þeirra sem nú eru í notkun, því
að líklegt er að allmörg
byggðarlög muni enn um
nokkra hrið verða að nota olíu
sem orkugjafa til húshitunar.
Valdimar Kr. Jónsson
prófessor við Háskóla íslands
fór yfir niðurstöóur nemend-
anna og lýsti sig samþykkan
þeim í öllum meginatriðum.
Hann tók það fram, að til að
stilla olíukynditækin þyrfti sér-
fræðinga með nákvæm mæli-
tæki, en húseigendur mættu
ekki undir neinum kringum-
stæðum reyna stillingar sjálfir.
— Líffræðileg
Framhald af bls. 3
umhverfi verksmiójunnar, þann-
ig að fylgjast megi með áhrifum
hennar á lífrikið.
II. A eftir 11. gr. komi ný grein:
Við járnblendiverksmiðjuna
starfi samstarfsnefnd skipuð
þremur fulltrúum frá hvorum,
stjórn verksmiðjunnar- og starfs-
liði hennar, ásamt jafnmörgum
varamönnum. Hlutverk sam-
starfsnefndar er að efla samvinnu
fyrirtækisins og starfsliðs þess,
vera báðum til ráðuneytis og gera
tillögur um bættan aðbúnað, heil-
brigði og öryggi starfsliðs og hag-
kvæmni í rekstri fyrirtækisins.
Einn þingmaður stjórnarflokk-
anna, Jón G. Sólnes (S), hefur
mælt gegn frumvarpinu í núver-
andi mynd og er sjónarmiða hans
getið á öðrum stað í blaðinu í dag.
— Selja
Flugleiðir
Framhald af bls. 32
hefði þá verið rætt um það sem
hugsanlegan möguleika að skipt-
ingin yrði sú, að heimamenn ættu
þriðjunginn í félaginu, Flugleiðir
þriðjung og aðilar í Luxemburg
þriðjung.
Málið kemst ekki á ákvörðunar-
stig fyrr en siðar, en hver sem
útkoman verður er stefnt að þvi,
að félagið noti áfram það sölu-
kerfi sem byggt hefur Verið upp
samhliða sölukerfi Loftleiða.
Sagði Sigurður, að Air Bahama
hefði þegar aflað sér nafns og
uppbygging þess væri samvinna
þriggja lítilla þjóóa, Islendinga,
Luxemburgarmanna og Bahama-
búa og hefði árangurinn orðið
ótrúlega góður og mikil lyftistöng
fyrir ferðamannaiðnað Bahama-
eyja. Hefði félagið stóraukið
straum ferðamanna frá Evrópu til
Bahama.
Sigurður gat þess að lokum, að
rekstur Air Bahama gengi vel,
enda væri þar um að ræða langar
flugleiðir þar sem beita mætti
vissri hagkvæmni við reksturinn.
— Afkoma
Flugleiða
Framhald af bls. 32
Flugleiða. Þessi lán verða á und-
an ve'ði ríkissjóðs komi til ríkis-
ábyrgðar vegna fyrirhugaðra
flugvélakaupa Flugleiða hf.
Það kom fram á fundi með for-
ráðamönnum Flugleiða hf. í gær,
að tvær hækkunarbeiðnir liggja
hjá verðlagsstjóra vegna innan-
landsflugsins. Er önnur þeirra frá
síðasta hausti, en sú seinni, 20%
hækkunarbeiðni, frá febrúar s.l.
Sagði Örn O. Johnson forstjóri
Flugleiða á fundi með blaða-
mönnum, að það stefndi að 75
milljón króna tapi á innanlands-
flugi í ár ef ekkert yrði að gert.
Þá skýrði Örn frá því, aó það væri
forráðamönnum Flugleiða mikið
kappsmál að leggja niður sölu-
skatt af flugfargjöldum innan-
lands þannig að þeir sætu við
sama borð og aðrir sem flytja
farþega. Sagði Örn að útlit væri
fyrir að tekjur rikisins í formi
söluskatts af flugfarmiðum inn-
anlands yrðu 100 milljónir á ár-
inu.
Af millilandafluginu var nær
allt tapið á Ameríkufluginu en
Evrópuflugið stóð sem næst i
járnum. Þar varð gifurleg aukn-
ing reksturskostnaóar og munar
mest um eldsneytishækkunina,
sem varð 150% milli áranna 1973
og 1974, eða 560 milljónir. Þá varð
52% launahækkun hér innan-
lands i fyrra. Hækkun hefur orðið
á flugmiðum i samræmi við þess-
ar miklu kostnaðarhækkanir og
má sem dæmi nefna að ferð frá
Reykjavík til Kaupmannahafnar
og til baka kostaði 23,420 krónur í
október 1973 en mun kosta 52,166
krónur eftir 1. apríl n.k.
Það kom fram á fundinum i
gær, aö rekstur Loftleiðahótelsins
i fyrra skilaði hagnaði og rekstur
Hótel Esju stóó í járnum þann
tima sem félagið rak það. Bíla-
leiga Loftleiða skilaði hagnaði.
Afkoma dótturfyrirtækjanna Air
Bahama og Cargolux var góð, en
nákvæmar tölur liggja ekki fyrir
um afkomu þeirra.
— 360 þús. kr.
Framhald af bls. 32
gasolfu hefði olfan kostað 819
þús. kr. Þannig sparast 360
þús. kr. á þessari fyrstu veiði-
ferð, sem ' skipið notar
svartolíu.
Fleiri japanskir skuttogarar
munu taka upp svartolíu-
brennslu á næstunni og næstir
í röðinni verða Vestmannaey
og Arnar en slðan koma hinir I
röð. Gert er ráð fyrir að meðal-
sparnaður hjá hverju skipi,
verði með þvl að brenna
svartolfu, um 9 millj. kr. á ári.
— Flugleiðir
Frambald af bls. 2
verið við það miðaó, að kaupin
væru fram 1. júlf 1975 og væri það
lang hagkvæmast fyrir Flugleiðir
að kaupin færu fram núna enda
hefði við það verið miðað. Myndi
það létta greiðslubyrðar félags-
ins, en fram til þessa hefur verið
greitt í leigu á mánuði 160 þúsund
dollara af báðum vélunum en
yrði 122 þúsund dollarar ef vél-
arnar verða keyptar. Kváðust for-
ráðamenn Flugleiða bjartsýnir á,
að beiðni þeirra um ríkisábyrgð
fengi góðar undirtektir.
Flugleiðir geta fengið lán til
kaupanna hjá Export-Import
bankanum i Washington til 7 ára,
samtals 40%. Þá ábyrgist þessi
banki lán af sömu upphæð frá
einhverri annarri bankastofnun
en 20% fjárins verða Flugleiðir
að útvega á annan hátt. Lánin hjá
fyrrnefndum banka eru hagstæð,
ársvextir 8%. Aðspurðir um hvort
ríkið ætti að fá hlutdeild í stjórn
fyrirtækisins ef ríkisábyrgðin
væri veitt svöruðu þeir þvi til, að
þeir teldu eðlilegt að ríkisvaldið
fylgdist náið með rékstri fyrir-
tækisins. Hefði það reyndar verið
þannig frá því ríkisábyrgð var
veitt vegna lántöku fyrirtækisins
erlendis í fyrra, og hefði Seðla-
bankinn fengið nákvæmar upp-
lýsingar um félagið og rekstur
þess og einnig fylgdi sú kvöð, að
fyrirtækið tæki engar mikilvægar
ákvarðanir án samráðs við stjórn-
völd.
Við þetta tækifæri lét Örn O.
Johnson í ljós þá skoðun sína, að
hann teldi að einkaaðilar ættu aó
standa aó rekstri flugsins og það
væri að sinu mati slæmt ef veitt
rikisábyrgð stuðlaði að óeðlilega
miklum afskiptum rikisins.
Athygli var vakin á því á fundin-
um, að Flugleiðir hefðu sl. tvö ár
afhent ríkinu í gjaldeyri umfram
eyðslu fyrirtækisins 1696 milljón-
ir og 10 ár þar á undan hefðu
Loftleiðir afhent 5522 milljónir
samtals. Vildu forráðamenn
félagsins með þessu benda á
mikilvægi þess fyrir þjóðarbúið,
auk þess sem bent var á að 1500
manns væru þar i vinnu og launa-
greiðslur hefðu numið 1412
milljónum í fyrra.
Varðandi ríkisábyrgðina sem
félagió biður nú um var bent á, að
hún næmi 16% af brúttóveltu
félaganna, en þegar Flugfélag Is-
lands fékk rikisábyrgð vegna
þotukaupa 1967 nam upphæðin
um 70% af heildarveltu félagsins
það ár. Varðandi fyrirhuguð kaup
á þotunum tveimur tóku forráða-
menn Flugleióa fram, að búast
mætti við þvi að þoturnar yrðu í
fullri notkun a.m.k. 10 ár i viðbót.
8. Háskólatónleikar
verða haldnir í dag kl. 3 í félagsstofnun stúd-
enta Ruth L. Magnússon og Halldór Vilhelms-
son syngja við undirleik Jónasar Ingimundar-
sonar m.a. verk eftir Hugo Wolf og Jo. Brahms.
Tónleikanefnd Háskólans.
Sorpbifreið til sölu
Hafnarfjarðarbær hefur til sölu, Commer '67 diesel
bifreið með 9 rúmmetra sorpkassa frá Vélsmiðjunni
Bjarg h.f., til greina kemur sala á sorpkassanum
sérstaklega. Ennfremur Hydor loftþjöppu 250 c.f.m.
með Volvo diesel vél.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður næstu daga.
Bæjarverkfræðingur.