Morgunblaðið - 27.03.1975, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975
47
Paradísar missir í út-
varpsleikgerð um páska
• UTVARPSLEIKGERÐ
Hrafns Gunnlaugssonar á Para-
dfsarmissi )ohn Miltons f þýð-
ingu Jóns frá Bægisá verður
flutt f tveimur hlutum á páska-
dagskrá útvarpsins. Verður
fyrri hlutinn fluttur á laugar-
dag og sá sfðari á páskadag.
Þýðing Jóns á þessu verki var
sfðast prentuð f Kaupmanna-
höfn árið 1828, og æ sfðan hef-
ur hún verið talin með merkari
bókmenntaafrekum Islend-
inga. Hins vegar er hún sjald-
séð og hefur ekki verið vfðlesin
af almenningi. Þessari útvarps-
leikgerð er ætlað að bæta hér
nokkuð úr.
Hrafn Gunnlaugsson vann s.l.
tvö ár við útvarpshandritið,
enda er úr vöndu að velja þegar
umbylta á verki eins og Para-
dísar missi, þar eð verkið er í
prentuninni frá 1828 408 blað-
síður og tæki á tíunda tima að
lesa það í heild. Höfundur út-
varpsgerðarinnar hefur því
bæði stytt og umskrifað margt f
þýðingunni.
I útvarpshandritinu er að
finna tvær persónur sem ekki
eru i frumverkinu sjálfu:
Skáldið (þ.e. Milton/Jón) og
Sögumann. Skáldið er fulltrúi
Miltons, sá sem sér og lýsir því
John Milton.
sjónarspili er fram fer á Himni,
i Helvíti og á Jörð, en Sögumað-
ur er eins konar túlkur og
tengiliður atburðarásarinnar.
Með hlutverkin fara: Satan —
Róbert Arnfinnsson, Skáldið —
Helgi Skúlason, Sögumaður —
Jón Sigurðsson, Belsebúb —
Árni Tryggvason, Eva — Her-
dis Þorvaldsdóttir, Synd —
Steinunn Jóhannesdóttir, Mess-
ías — Sigurður Karlsson, Guð
— Karl Guðmundsson, Adam
— Rúrik Haraldsson. Leikstjóri
er Hrafn Gunnlaugsson.
Messa án
prédikunar
Á föstudaginn langa, kl. 11,
verður að venju messa í Dóm-
kirkjunni, en með nokkuð
óvenjulegum hætti. Presturinn,
sr. Þórir Stephensen, flytur
ekki prédikun, en lesið verður
úr píslarsögunni og síðan
skiptist á flutningur bæna og
tónlistar í formi safnaðarsöngs,
einsöngs, kórsöngs og organ-
leiks.
Dreift verður fjölritaðri
messuskrá, en fólk er hvatt til
að hafa með sér sálmabækur.
Reykjanes-
kjördæmi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins i Reykja-
neskjördæmi verður haldinn
miðvikudaginn 2. aprfl kl. 21.00
f samkomuhúsinu i Garði. Að
loknum venjulegum aðalfund-
arstörfum munu Geir Hall-
grfmsson forsætisráðherra og
Matthías A. Mathiesen fjár-
málaráðherra ræða um stjórn-
málaviðhorfið.
Ekki sérgjald í leigu-
bílumum páskana
LANDSSAMBAND leigubif-
reiðastjóra hefur samþykkt að
nú um páskana skuli ekki gilda
sértaxti á leigubifreiðum, svo
sem gildir um jól og áramót.
Þessi sértaxti hefur verið þann-
ig að 35% leggjast ofan á
venjulegan nætur- og helgi-
dagataxta.
Úlfur Markússon sagði að
þetta hefði nýlega verið ákveð-
ið og væri þar sérstaklega tekið
tillit til barnafjölskyldna, sem
þyrftu oft um páskana að kom-
ast á milli húsa í leigubifreið-
um á skemmtanir og annað.
Sértaxtinn gildir þó 17. júni.
Nú eftir að ökugjaldmælar
fóru að sýna rétta upphæð öku-
gjalds gildir sú regla, að þegar
ekið er rúmhelga daga frá
mánudegi til föstudags á tlma-
bilinu frá klukkan 08 til 17 er
gjaldið greitt samkvæmt taxta
númer 1, en helgar- og nætur-
taxti er númer 2.
Kirkjukvöld
BRÆÐRAFÉLAG Dómkirkj-
unnar heldur sitt árlega kirkju-
kvöld i Dómkirkjunni á skirdag
kl. 20.30.
í tilefni kvennaársins hefur
Bræðrafélagið að þessu sinni
fengið f jórar konur til að koma
þar fram: biskupsfrú Magnea
Þorkelsdóttir flytur frásögu,
kirkjumálaráðherrafrú Dóra
Guðbjartsdóttir flytur hug-
vekju, Elín Sigurvinsdóttir,
óperusöngkona, syngur einsöng
með undirleik Ragnars Björns-
sonar, dómorganista, og dr.
Guðrún P. Helgadóttir, skóla-
stjóri, flytur erindi.
Ennfremur flytur séra Þórir
Stephensen, dómkirkjuprestur,
ávarp og séra Öskar Þorláks-
son, dómprófastur, flytur hug-
vekju og bæn.
Kærði kvenmann
fyrir áreitni
ÞAÐ KEMUR stundum fyrir,
að konur kæra karlmenn fyrir
áreitni en það telst til undan-
tekninga ef karlmenn kæra
konur fyrir slíkt. Nú á kvenna-
árinu hefur það gerzt, að kæra
af þessum toga hefur borizt
Sakadómi Reykjavfkur.
Málavextir eru þeir, að í vet-
ur kærði maður nokkur þrituga
konu fyrir áreitni og fyrir að
spilla friði heimilisins. Kvað
hann konuna halda uppi stöð-
ugum simhringingum í sig daga
og nætur með óskum um að
hann hitti sig að máli. Maðuf-
inn, sem er nokkrum árum
yngri og giftur hafði engan
áhuga á slíkum fundum við
konuna, sem er ógift. Fór svo að
lokum að hann kærði konuna
og hlaut hún áminningu hjá
Sakadómi fyrir athæfi sitt.
Maðurinn fékk sér nú nýjan
sima og hélt númerinu leyndu.
En ekki dugði það til, þvi konan
byrjaði þá að senda manninum
bréf og símskeyti með ósk um
að þau hittust. Áhugi mannsins
fyrir konunni var engu meiri
en I fyrra skiptið og hefur hann
nú lagt fram kæru á nýjan leik
á hendur konunni fyrir áreitni
og fyrir að spilla heimilisfriðn-
um. Bendir allt til þess að þetta
ætli að verða dómsmál.
Samningarnir
ALÞVÐUSAMBAND tslands vegna félaga, er
beina aðild eiga að sambandinu, og ennfrem-
ur vegna Iðnnemasambands lslands, Verka-
mannasambands tslands, Málm- og skipa-
smiðasambands tslands, Sambands bygginga-
manna, Rafiðnaðarsambands tslands, Lands-
sambands iðnverkafólks, Landssambands
vörubifreiðastjóra. Landssambands fs-
lenzkra verzlunarmanna, Sjómannasam-
bands tslands, allt samkvæmt sérstakri skrá
yfir félög, sem veitt hafa samninganefnd ASt
umboð til samningaviðræðna.
og
Vinnuveitendasamband tslands, Vinnu-
málasamband samvinnufélaganna og
Reykjavfkurborg hafa, meðan unnið er að
endanlegri gerð nýrra kaup- og kjarasamn-
inga, gert með sér svofellt samkomulag um
breytingar á kaupgjaldsákvæðum síðast gild-
andi kaup- og kjarasamnínga og framlengj-
ast þeir þvf með þeim breytingum, sem sam-
komulag þetta felur f sér:
1. Núgildandi mánaðarkaup, sem lægra er
en kr. 69.000,- miðað við fulla dagvinnu
hækki um kr. 4.900,- á mánuði, en hlutfalls-
lega minna til þeirra, sem skemur vinna.
2. A núgildandi laun á bilinu kr. 69.000,- til
kr. 73.900,- greiðist kauphækkun þannig, að
launin verði kr. 73.900,- til þeirra, sem skila
fullri dagvinnu, og hlutfallslega til þeirra er
skemmri vinnutfma skila.
3. Hækkun á yfirvinnukaup greiðist þann-
ig, að gildandi hlutföll millí eftir-, nætur- og
helgidagskaups — og dagvinnu haldist
óbreytt.
4. Um útreikning og greiðslu framan-
greindrar kauphækkunar fari skv. sfðast
gildandi reglum um kaupbreytingar, m.a.
þannig, að með kauptaxta skuli telja hvers
konar samningsbundin álög og kaupauka,
sem ekki svara með beinum og ótvíræðum
hætti til útlagðs kostnaðar launþega vegna
öflunar launatekna.
5. Stefnt er að þvf að samið verði um
fyrirkomulag verðlagsbóta á laun fyrir 1.
júnf 1975.
6. Samkomulag þetta gildir frá 1. marz til
— Hue fallin
Framhald af bls. 1
stafanir hernum til eflingar, svo
aö hægt væri að stöðva sóknar-
þunga Þjóðfrelsisfylkingar-
manna. Hann sagði að úrslita-
orrustan væri að hefjast og hún
gæti skorið úr um örlög landsins.
Hann sagði að hermenn landsins
mættu treysta þvi að öll þjóðin
stæði að baki þeim. Ávörp Thieus
voru bersýnilega flutt til að reyna
að stappa stálinu í hermenn og
borgara, vegna vonleysis, eymdar,
hræðslu og skelfingar sem farið
hefur sem eldur í sinu um landið.
I Danang búa um fimm hundr-
uð þúsund manns. Fréttastofur
herma að á götum þar verði varla
þverfótað fyrir örvæntingarfull-
um flóttamönnum, sem þangað
hafi komið og eigi hvergi höfði
sinu að halla enda sjái þeir og
fram á að borgin kunni ef til vill
að falla i hendur andstæðinganna
á næstunni. Bandaríkjamenn
hófu að flytja fólk frá Danang i
dag með flugvélum og kom til
átaka á flugvellinum, svo mikill
var æsingur í borgurum, sem
vildu allt til vinna að forða sér frá
borginni, eftir að ljóst varð að
herir Þjóðfrelsisfylkingarmanna
nálguðust hana nánast úr öllum
áttum.
I ávarpi Thieus sem áður er að
vikið hvatti hann Bandaríkja-
menn til að bregða við skjótt og
veita herliði Suður-Vietnam þann
styrk sem þyrfti til að það gæti
staðið af sér árásirnar. Sagðist
Thieu biða I ofvæni eftir við-
brögðum Bandaríkjamanna.
Kissinger, utanrikisráðherra
Bandarikjamanna, gagnrýndi i
dag að Bandaríkjamenn þver-
skölluðust við að veita Suður-
Vietnömum hjálp og sagði hann
að slík neitun kynni að leiða til
hruns landsins og stórkostlegra
breytinga á valdahlutföllum i
þessum heimshluta. Kissinger
sagðist vilja benda á, að árið 1973
hefðu Bandarikjamenn undirrit-
að samning um að hverfa með
herlið sitt á brott frá Suður-
Vietnam, en þeir hefðu ekki und-
irskrifað neitt skjal, þar sem þeir
hefðu ákveðið að hætta allri hern-
aðar- og efnahagsaðstoð við land-
ið.
— Feisal
Framhald af bls. 1
sérstaklega við forystumenn
Arabaþjóðanna áður en þeir
héldu heimleiðis, en búizt var þó
við þvi að hann reyndi að gefa sér
tima til stuttra viðræðna við
helztu áhrifamennina sem til út-
fararinnar komu.
t fréttum frá Vinarborg segir
1. júní 1975, en fellur þá úr gildi án uppsagn-
ar.
Reykjavík,
25. marz 1975.
F.h. Alþýðusambands íslands, vegna fé-
laga, er beina aðild eiga að sambandinu,
Iðnnemasambands Islands, Verkamanna-
sambands fslands, Málm- og skipasmiðasam-
bands tslands, Sambands bvggingamanna,
Rafiðnaðarsambands tslands, Landssam-
bands iðnverkafólks, Landssambands vöru-
bifreióastjóra, Landssambands fslenzkra
verzlunarmanna, Sjómannasambands ts-
lands, f.h. aðildarfélaga sinna samkvæmt sér-
stökum félagsskrám.
Með fyrirvara um samþykki verkalýðsfé-
laganna.
F.h. Vinnuveitendasambands fslands
vegna Vinnuveitendafélags Akraness,
Vinnuveitendafélags Mýrasýslu, Vinnuveit-
endafélags Breiðafjarðar, Vinnuveitendafé-
lags Vestfjarða, Vinnuveitendafélags Siglu
fjarðar. Vinnuveitendafélags Akureyrar,
Vinnuveitendafélags Raufarhafnar, Vinnu-
veitendafélags Seyðisfjarðar, Vinnuveit-
endafélags Vestmannaeyja, Vinnuveitenda-
félags Suðurnesja, Vinnuveitendafélags
Grindavfkur, Sambands fiskvinnslustöðv-
anna, Apótekarafélags tslands, Bflgreina-
sambandsins, Sambands málm- og skipa-
smiðja, Fisksalafélags Reykjavfkur og Hafn-
arfjarðar, Félags þvottahúseigenda, Félags
skrúðgarðameistara, Meistarasambands
byggingarmanna, Félags löggiltra rafverk-
taka f Reykjavfk, Landssambands ísl. raf-
verktaka, Félags fsl. iðnrekenda, Landssam-
bands fsl. útvegsmanna, Verktakasambands
tslands og Landssambands bakarameistara
með fyrirvara um samþykki stjórnar Vinnu-
veitendasambands tslands og einstakra fé-
lagsdeilda þess.
F.h. Vinnumálasambands samvinnufélag-
anna með fyrirfara um samþykki stjórnar.
F.h. Reykjavíkurborgar með fyrirvara um
samþykki borgarráðs.
að morðið á Feisal muni að líkind-
um ekki hafa nein umtalsverð
áhrif á verð á olíu, að því er
sérfræðingar OPECs töldu í
kvöld.
Þá segja stjórnmálafræðingar
allt á huldu um, hvort Khaled
konungur muni verða sá sem fari
með völdin í Saudi Arabíu til
frambúðar eða hvort krónprins-
inn muni taka við áður en langt
um líður. Sé mjög óljóst hvernig
þeim málum verði skipað, en flest
bendi til að lítil sem engin stefnu-
breyting verði gagnvart Araba-
rikjunum, Israel og Bandarikjun-
um.
— Fyrsti
Framhald af bls. 48
sáttasemjara ríkisins i gær af for-
mönnum samninganefnda aðila í
sjómannadeilunni, Jóni Sigurðs-
syni, formanni Sjómannasam-
bandsins og Kristjáni Ragnars-
syni, formanni LlU, en báðir áttu
sæti í samninganefndum ASI og
VSI.
— FRÍ
Framhald af bls. 48
son voru á fundi þessum og lýstu
þeir yfir ánægju sinni vegna
ákvörðunar stjórnar FRl. Ekki
sögðust þeir vita enn hve mikið
hefði safnast, en unnið yrði mark-
visst að þvi að ná þvi marki sem
sett hefði verið i upphafi, 1,5
milljón króna. Verður söfnuninni
haldið áfram eftir helgina og þá
hafin lokasókn. Kváðust þeir
vona að allir legðust á eitt með að
gera söfnun þessa eins árangurs-
ríka og mögulegt væri. Þá var
einnig bent á það að fjárgjöf
hvers og eins nemur andvirði
rúmlega sex pakka af vindlingum.
— Skólafólk
Framhald af bls.7
allar i Árbæjarskóla, og þar vorum við i
kór hjá Jóni, En svo kom að þvi að við
þurftum að yfirgefa skólann vegna
þess að við vorum búnar með skylduna
og urðum að færa okkur annað, og þar
að auki þurftum við lika að yfirgefa
kórinn. Jón sá mikið eftir okkur sem
vonlegt var, þanmg að hann bauð
okkur að koma til sin niður i Langholts-
kirkju og syngja þar með kirkjukórn-
um, Við vorum allar til i að prófa, en
ekki vissar um að við svona ungar
myndum tolla I kirkjukór, þvi flestir
kirkjukórar, sem við þekktum til, voru
bara með kerlingum og körlum, sem
okkur fannst ekkert spennandi En
Þessi kór reyndist allt öðru visi en við
höfðum ímyndað okkur. Og nú er svo
komið eftir eins og hálfs árs starf, að
engin okkar getur hugsað sér að yfir-
gefa þennan skemmtilega hóp.
Sextug í dag
Margrét Kristjánsdóttir, Suður-
götu 6 f Sandgerði.er sextug I dag,
27. marz.
— Hafnbann
Framhald af bls. 1
við Tyne og i nokkrum öðrum
höfnum. Sjómenn við Tyne sögðu
þó í dag að öllum höfnum á Norð-
austur-Englandi yrði aftur lokað
ef lögregla færi um borð í skipin
sem loka höfninni i Immingham
til að framfylgja dómsúrskurðin-
um.
Áður en Peart gaf yfirlýsingu
sina í dag ákváðu skozkir togara-
menn að loka höfnum í Skotlandi
frá og með föstudegi ef ráðherr-
ann gengi ekki að þeirri kröfu að
innflutningur frystra fiskafurða
frá löndum utan Efnahagsbanda-
lagsins yrði bannaður og land-
helgin færð út í 50 milur.
Peart sagði að nýtt lágmarks-
verð Norðmanna væri „mikilvægt
framlag til markaðsjafnvægis".
Hann sagði að viðræður innan
EBE mundu bráðlega leiða til
þess að komið yrði á „viðmiðunar-
verðlagskerfi á frystum fiskstaut-
um til að stuðla að viðunnandi
markaðsjafnvægi."
— Hvað er að ...
Framhald af bls. 3
leikur sér með fyrirmyndina i
hönd sinni þegar hún mótar í
leir.
Á sýningunni eru m.a. vasar
af öllum stærðum og þeir
stærstu eru eins stórir og hin
þúsunda ára gamla tækni leir-
kerasmíðinnar leyfir, vegg-
skildir margskonar eru á
sýningunni, innbrenndar
myndir í leir, bæði samsettar og
I einum hluta, margs konar
hlutir, svo sem pottar, blóma-
pottar, smáhlutir til brúks
heima við, ljósker og margt
fleira.
I Kjarvalssal verður eftir sem
áður opin sýning á verkum
meistarans sjálfs á sama tima
og sýning Steinunnar.
Listasafn tslands: Þar stend-
ur nú yfir sýning á verkum
bandaríska grafíklistamanns-
ins Frank Stella og verður hún
opin á skírdag frá kl. 1.30—6 og
á laugardag kl. 1.30—6, en sið-
an ekki aftur fyrr en á þriðju-
dag.
Bogasalur: Sýningin á verk-
um Sigurðar málara verður op-
in í dag og á laugardag á sama
tíma og Listasafnið en sýning-
unni lýkur á laugardag.
Gallerf Súm: Þar hefur staðið
yfir ljósmyndasýning Markúsar
Jóhannssonar og sýningin verð-
ur opin alla bænadagana frá kl.
4—10. Aðsókn hefur verið góð
fram til þessa og margar ljós-
myndanna selzt.
Kvikmyndahús: Sjá bls. 16.
— Tónleikar
Framhald af bls. 31
öðrum, heldur gefur, er ekki ölm-
usumaður, heldur stolt þjóðar
sinnar og auðgar menningu henn-
ar af verðmætum, dýrari mörgu
því er mölur og ryð fær grandað.
Það er hlálegt að mörg menning-
arverðmæti hafa þjóðir eignazt án
þess að höfundar þeirra fengju
svo mikið sem fyrir jarðarförinni
sinni, á sama tima og miklum
fjármunum af almannafé var sóað
i fáfengilegt dægurdrasl.