Morgunblaðið - 27.03.1975, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 27.03.1975, Blaðsíða 48
JH«r0unhtnþib nuGivsincnR ^^22480 nUGIVSinGDR ^-«22480 FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975 Samningar - vinnufriður Björn Jónsson, Torfi Hjartarson og Jón H. Bergs. Ljósm.: ól. K. M. Loðnan sprettur upp stutt út af Reykianesi Bráðabirgðasamkomulagið, sem aðilar vinnumarkaðarins undirrituðu um miðnætti í nótt kveður á um 4.900 króna lág- launauppbót miðað við laun lægri en 69 þúsund krónur. Þetta hefur í för með sér að lægstu mánaðar- laun, 37.489 krónur, hækka um 13,1%, 40.000 króna laun hækka um 12,3%, 50.000 króna mánaðar- laun hækka um 9,8% og 60.000 króna Iaun hækka um 8,2%. Er samningar voru undirritaðir f gær ræddi Morgunblaðið stutt- lega við formann VSl og forseta ASl og fara viðbrögð þeirra hér á eftir. Björn Jónsson, forseti Alþýðu- sambands Islands, sagðist leggja á það áherzlu, að hér væri ekki um samningslok að ræða, heldur að- eins framlengingu á biðtíma, þannig að svigrúm skapaðist um gerð varanlegs kjarasamnings og sérstaklega samkomulags um verðlagsuppbót á laun. Hann sagði að aðilar myndu ekki hætta viðræðum, heldur halda áfram að tala saman og stefnt yrði að þvi að ljúka málunum fyrir 1. júní næst- komandi. Er Björn var að því spurður, hvort hann væri eftir atvikum ánægður með samkomu- lagið, svaraði hann: „Þessir samn- ingar færa okkur aðeins lítinn hluta af þeirri kjaraskerðingu, sem umbjóðendur okkar hafa orð- ið fyrir. Ég er því ekki ánægður, en til þess er að líta, að aðeins er samið fyrir næstu 2 mánuði og meiri launahækkunum var ekki unnt að ná, nema með vinnustöðv- unum, sem enginn telur æskilegt að þurfa að grípa til. Eftir atvik- ÞÓTT samkomulag milli ASt og VSl hafi tekizt f nótt eru sjó- mannasamningar ófrágengnir og berast Landssambandi íslenzkra útvegsmanna nú daglega verk- fallsboðanir frá félögum innan Sjómannasambandsins. Ákveðið hefur verið að fyrsti samningafundur um kjör sjó- um tel ég því skynsamlegt að gera þetta bráðabirgðasamkomulag, þannig að svigrúm skapist til að þrautreyna, hvort iinnt sé að ná varanlegu samkomulagi." Jón H. Bergs, formaður Vinnu- veitendasambands Islands, sagði: „Þótt þetta samkomulag sé til skamms tima, þá telja vinnuveit- endur það mikils virði að með þvf hafi tekizt að tryggja áframhald- andi vinnufrið á vetrarvertíð. Við vonum að í reynd verði þetta sam- komulag til þess að vinnufriður riki í landinu lengur en sjálft samningstímabilið gefur til kynna, ef svo færi að gildistimi samkomulagsins entist ekki til þess að ná nýju varanlegu sam- komulagi til lengri tíma. Þetta samkomulag hefur augljóslega mikla útgjaldaaukningu í för með sér fyrir atvinnuvegina og það má vera að það reynist sumum fyrir- tækjum erfitt að standa undir henni, en framleiðslustöðvun yrði afar dýrkeypt fyrir þjóðfélagið og mætti sizt bætast á aðra erfið- leika, sem nú eru í efnahagsmál- unum. Við vonum að launþegar, sem fá þessar kjarabætur meti það, að með þessu samkomulagi hafa vinnuveitendur teygt sig eins langt og auðið er til að draga úr óumflýjanlegri kjaraskerð- ingu, sem er afleiðing þess að þjóðin býr nú við verri viðskipta- kjör en við höfum þekkt um ára- tugi.“ Samningarnir eru birtir í heild á bls. 47. manna á bátaflotanum og minni skuttogurunum verði haldinn strax eftir páska, þ.e. þriðjudag- inn 1. apríl. Enn hefur ekki verið ákveðinn samningafundur um kjör sjómanna á stærri togurun- um. Meðfylgjandi mynd er tekin hjá Framhald á bls. 47 NÚ MUNU aðeins vera um 30 skip eftir á loðnuveiðum og f gær stóð til að mörg skipin hættu, en skyndilega eftir hádegið fundu einhverjir bátar loðnutorfur skammt undan Reykjanesi. Þar áhugamanna, sem haft hafa for- göngu um fjársöfnun til styrktar sambandinu. Hefur stjórn sam- bandsins einnig ákveðið að bjóða þeim er gefa f söfnunina á lands- keppni Islands og Skotlands sem háð verður á Laugardalsvellinum 19. og 20. ágúst n.k. Á blaðamannafundinum í gær, sagði örn Eiðsson, formaður sam- bandsins, að stjórn þess hefði samþykkt einróma á fundi sínum í fyrrakvöld að hætta við marg- umtalaða söfnun á tómum vindlingapökkum, þó svo að hún vissi ekki um endanlega niður- stöðu á fjársöfnun áhugamanna og velunnara sambandsins. Stjórninni litist vel á þessa söfn- un og þann skilning sem að baki lægi. Hún hefði því ákveðið að bjóða þeim er leggja fé til þess- arar söfnunar sem gestur FRl á landskeppni Islendinga og Skota í frjálsum íþróttum, sem fram fer á Laugardalsvellinum 19. og 20. ágúst n.k. Sagði örn það von sambandsins að þess- ir velunnarar gætu myndað eins konar styrktarklúbb FRl, en slíkt Týr til sýnis HIÐ nýja varðskip Týr verður til sýnis fyrir almenning í dag á milli klukkan 14 og 16. Varð- skipið Týr liggur við Ingólfs- garð. voru 6 skip á veiðum um kl. 18 og þá var Faxi búinn að tilkynna 200 tonna afla til loðnuiöndunar- nefndar. Aðrir bátar voru komnir með einhvern afla og flestir með nót úti. — Að sögn sjómanna á tíðkaðist mjög erlendis. Stjórn FRl á hverjum tíma myndi síðan bjóða klúbbfélögum á merkasta frjálsiþróttaviðburð hvers árs. Forráðamenn fjársöfnunarinn- ar, Ragnar Tómasson, Tryggvi Gunnarsson og Sveinn H. Skúla- Framhald á bls. 47. Eins og flestum mun nú kunnugt, stóð til að dansk- íslenzka nótaveiðiskipið Isafold kæmi til loðnuveiða við Island á þessari vertfð. Af þessu varð þó aldrei, vegna seinkunar á af- hendingartfma skipsins og smá- bilana, sem komu fram á fyrstu vikunum. Skipshöfnin á Isafold er nú komin heim til Islands í páskafrí, og á meðan liggur skipið f höfn i Hirtshals í Danmörku. Morgun- blaðið hafði í gær samband við Arna Gíslason skipstjóra og einn af eigendum skipsins. Aðspurður sagði hann, að fyrstu þrjár vik- þessum bátum, virðist sem þessi loðna eigi eftir að hrygna og ef hér reynist verulegt magn á ferð- inni, getur þetta lengt loðnuver- 'fðina til muna. Andrés Finnbogason hjá loðnu- löndunarnefnd sagði er við rædd- um við hann, að stærsti hluti loðnuflotans hefði í gær verið að leita við Snæfellsnes en árangur hefði enginn orðið. Bátarnir hefðu þó orðið varir við loðnu, en hún staðið djúpt. Búist var við að bátarnir myndu færa sig á miðin við Reykjanes. I fyrradag tilkynntu 11 bátar um afla og lönduðu 7 þeirra f Norglobal. Bátarnir sem til- kynntu um afla voru þessir: Vfðir NK 70, Magnús 120, Hilmir 200, Óskar Halldórsson 170, Skírnir 130, Súlan 200, Loft- ur Baldvinsson 200, Faxaborg 220, Fífill 360, Helga Guðmunds- dóttir 230, Gfsli Árni 85 og Svanur 40 lestir. urnar hefðu að miklu leyti farið í að gera við ýmislegt smávegis, sem hefði bilað, en á 5 vikum hefðu þeir á Isafold fiskað fyrir um 40 millj. ísl. króna. Þá sagði Árni, að aflinn saman- stæði af brisling, síld og makril. Hluti aflans hefði farið í vinnslu til manneldis og hluti f fiskmjöl. Gott verð hefði fengist fyrir bræðslufiskinn i upphafi eða 45—50 aurar danskir pr. kg (13.50 ísl. kr), en síðan hefði verðið farið lækkandi og verið nú sfðast 25—30 aurar danskir fyrir hvert kg eða um 8 krónur íslenzk- ar. Páskasól „NÚ, ÞAÐ eru góðar horfur á því að yfir pásk- ana muni viðra vel til úti- vistar og landsmenn jafn- vel njóta skins sólar,“ sagði Páll Bergþórsson veðurfræðingur í gær. Norðanáttin var þá geng- in niður um mikinn hluta landsins og á helztu skíðastöðunum — Isa- firði og Akureyri, var út- lit fyrir hagstætt veður. Raunar má segja hið sama um Bláfjöll en Páll kvað hins vegar vissara að draga ekki að bregða sér þangað. FRÍ fellur frá vindl- ingapakkasöfnuninni STJÖRN Frjálsíþróttasambands Islands tilkynnti á blaðamanna- fundi f gær, að hún hefði ákveðið að hætta söfnun tómra vindlinga- pakka og taka tilboði nokkurra Fyrsti samningafundur með sjómönnum 1. apríl Isafold hefur fisk- aðfyrir 40 millj. Bræðsluverð miklu hærra í Danmörku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.