Morgunblaðið - 27.03.1975, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975
I ÍMIIÍnMllflim MORCDMBlAflSimS
Enska
knattspyrnan
Nokkrir leikir fóru fram í
ensku knattspyrnunni í fyrra-
kvöld, og urðu úrslit þeirra
þessi:
1. deild:
Birmingham — Carlisle 2—0
Liverpool — Newcastle 4—0
Luton — Arsenal 2—0
2. deild:
Notts County —
Nottingham 2—2
Sunderland — Oldham 2—2
3. deild:
Crystal Palace —
Colchester 2—1
4. deild:
Northampton —
Mansfield 0—2
Þá reyndu Leeds United og
Ipswich Town með sér í þriðja
sinn í átta liða úrslitum bikar-
keppninnar, og varð enn jafn-
tefli 0—0.
Holbæk vann
Danska knattsp.vrnuvertíðin
hófst um síðustu helgi. Lið
Jóhannesar Eóvaldssonar, Hol-
bæk, vann þá góðan sigur á
útivelli, en sem kunnugt er
getur Jóhannes ekki leikið
með lióinu um nokkurn tíma, í
deildarkeppninni.
Úrslit leikja urðu sem hér
segir: 1. deild: B 93 — B 1901 i—i
Vanlöse — Fremad A 1—0
B 1909 — Esbjerg 1—2
AaB — Næstved 1—2
Slagelse — Randers 0—1
Köge — B 1903 2—1
Vejle — Holbæk 0—2
Frem — KB 1—3
HappdrættiBSI
Dregið hefur verið f happdrælti Klak-
sambands íslands. Kftirtalin númer
hlutu vinning: 5400 — 358 — 4099 —
4402 — 3312 — 219 — 4209 — 1085 —
3940 — 1110. t'pplýsingar eru veittar f
sfma 41262. Vinningsnúmerin eru hirt
án ábyrgðar.
Leikdagarnir ákveðnir
í fjögurra liða mótinu
karla- og kvennalið sitt hingað.
Leikdagarnir verða sem hér seg-
ir:
27. marz í Hafnarfirði
kl. 19.30 Helsingör — Haukar
(konur)
kl. 20.15 Helsingör — Haukar
(karlar)
kl. 21.30 FH — Víkingur
29. marz í Hafnarfirði:
kl. 14.30: Helsingör — Unglinga-
landsliðið eða Valur (konur)
kl. 15.10: Haukar — Víkingur
kl. 16.20: Helsingör — FH
31. marz f Laugardalshöll:
kl. 14.30: Helsingör — Fram
(konur)
kl. 15.10: Haukar — FH
kl. 16.20: Helsingör — Víkingur
Strax að loknum leik Helsingör
og Víkings verða svo afhent verð-
laun í mótinu, en keppt verður
um verðlaunabikar.
Stefánsmótið
FRESTA varð keppni í yngri
fiokkum Stefánsmótsins á skíðum
sem fram átti að fara f Skálafelli
um helgina. Mótsdagar áttu að
vera laugardagur og sunnudagur,
en ekki var hægt að keppa á laug-
ardaginn vegna veðurs. Skilyrði
voru hins vegar góð á sunnudag-
inn, utan þess að kalt var f veðri
og brautir voru nokkuð harðar.
(Jrslil I karlatlukki urrtu þau. aU GuðjAn
Ingf Sverrlsson. A. sigraði. en samanlagður
tfmi hans var 93,85 sek. Annar varð Þor-
steinn Geirharðsson, Á, með tfmann 98,88
sek. og IVIagni Pétursson, KR, varð þriðji á
102,36 sek.
I kvennaflokki var aðeins einn keppandi,
Guðbjörg Árnadóttir, Á, sem fékk tfmann
148,28 sek.
1 flokki drengja 15—16 ára varð Ólafur
Ciröndal, KR, sigurvegari á 102, 30 sek. óunn-
ar Ólafsson, Isafirði, annar á 106,78 sek. og
Björn Ingölfsson, A, þriðji á 109,84 sek.
Sigurvegari f flokki stúlkna 13—15 ára
varð Steinunn Sæmundsdóttir, Á, á 118,60
sek., Svava Viggósdóttir, KR, varð önnur á
142,91 sek. og IHarfa Viggósdóttir, KR, varð
þriðja á 149,60 sek.
Hrautarlengd var ámóta f öllum flokkum,
eða um 600 metrar. Hlið voru 60 og fallhæð
um 230 metrar.
Keppt verður í yngri flokkunum eftir
páska.
Búið er að ákveða leikdaga í
fjögurra liða handknattleiks-
keppninni sem fram mun fara um
páskana á vegum Hauka. Auk
þeirra taka þátt í móti þessu ís-
landsmeistarar Víkings, FH og
danska liðið Helsingör, sem hlaut
silfurverðlaunin í danska meist-
aramótinu sem lauk um fyrri
helgi. Kemur Helsingör bæði með
Flemming Lauritzen markvörður Helsingör
— sennilega hezti markvörður I)ana um þess-
ar mundir.
Thor IVIunkager — valdi fremur að leika með
Helsingörliðinu hér, en að keppa með danska
landsliðinu á móti Íslandi.
Hreinn Halldórsson, stórbætti Islandsmetin f yfirþungavigt.
ÞAÐ er ekkert nýtt að íslandsmet
séu slegin á mótum íslenzkra lyft-
ingamanna. En að met séu bætt
um rúmlega 100 kfló er ekki dag-
legt brauð.
Hreinn Halldórsson, sem til
þessa hefir einkum verið kunnur
sem íslandsmethafi í kúluvarpi,
lét sig þó ekki muna um að stór-
bæta metin í sínum flokki, yfir-
þungavigt, en þar keppa þeir sem
eru 110 kg eða þar yfir. Þessi
afrek vann Hreinn á Meistara-
móti tslands í lyftingum, tvíþraut,
en seinni hluti mitsins fór fram á
föstudaginn var í Laugardalshöll-
inni.
Yfirþungavigt:
Hreinn var eini keppandinn f þessum
flokki.
snörun jafnhöttun saml. kg.
(tsl.mel) (ísl.met) (Isl.met)
Hreinn 135 145 212,5
Halldórsson — 150 175 325
Eins og sjá má eru allar þessar
lyftur Hreins glæsileg Islands-
met. Hreinn reyndi að bæta um
betur bæði i snörun og jafnhött-
un. I snöruninni reyndi hann við
162,5 en mistókst. i jafnhöttun-
inni reyndi hann við 185 en mis-
tókst sömuleíðis. Hreinn var þó
ekki fjarri að jafnhatta 185 kíló.
Það er greinilegt að þegar Hreinn
hefir öðlazt meiri tækni í lyfting-
unum mun hann bæta sín met
stórlega.
Léttþungavigt
Hámarksþyngd keppenda f léttþungavigt
er 82,5 kg. I þeim flokki voru 5 keppendur.
bC ^ c 3 -v OD U -
§ e II c —: i, 2 E
c — —’ w- ■*. E ™ ■s>
132.5 172.5 307.5
Arni Þór Helgason KR 105 140 245
Olafur Siggeirsson KR 100 130 230
Björn Ingvarsson Á 95 122,5 217,5
Magnús Öskarsson Á 85 120 205
Snorri Agnarsson Á ógilt 112,5 112,5
Áthygli áhorfenda beindist einkum að
Arna Þór Helgasyni, núverandi unglinga-
meistara Norðurlanda. Árni keppir enn í
flokki unglinga, er tæpra tuttugu ára gamall.
Árni gerði atlögu að ungiingameti Norður-
landa f jafnhöttun, 155 kg, en misfókst naum-
lega. Það leikur vart efi á að þessi ungi
maður á eftir að ná iangt f lyftingum, ef rétt
verður á málum haldið.
Bætti metíð um
ÍS ME3STARI
lþróttafélag stúdenta tryggði sér lslandsmeistaratitilinn í
blaki í fyrrakvöld, er þeir sigruðu Þrótt 3—0 1 sfðasta leik
lslandsmótsins.
Tveir aðrir leikir fóru fram 1 fyrrakvöld. Vfkingur vann
Laugdæli 3:1 og IMA sigraði UMFB 3:0.
Lið IS tapaði ekki leik f mótinu, hlaut 10 stig. Vfkingar urðu f
öðru sæti með 6 stig, Þróttur f þriðja sæti með 6 stig, ÍMA f
f jórða sæti með 6 stig, UMFL f fimmta sæti með 2 stig og UMFB
varð f sjötta sæti, með 0 stig.
Nánar verður sagt frá sfðustu leikjum Íslandsmótsins seinna,
en meðfylgjandi er mynd af islandsmeisturum IS 1975, en þeir
eru:
Fremsta röð: Júlfus Kristinsson, Halldór Jónsson, fyrirliði,
Jóhann Sigurðsson. Önnur röð: Sigurður Harðarson og Örn
Leósson. Þriðja röð: Helgi Harðarson, Friðrik Guðmundsson og
Friðrik Vagn. Aftasta röð: Indriði Arnórsson, Jón Georgsson og*
Halldór Torfason.
Bezt glímt í unglingaflokki
LANDSFLOKKAGLÍMAN fór
fram í Íþróttahúsi Kennarahá-
skóla tslands sl. laugardag. Var
þátttaka allgóð sérstaklega í ungl-
ingaflokki, en keppni f þeim
flokki var lfka bæði bezt og
skemmtilegust.
lOOkíló
Milliþungavigt
Hámarksþyngd keppenda 90 kg. Skráðir
voru tveir keppendur, en annar þeirra,
Friðrik Jósepsson, Vestmannaeyjum, varð að
hætta keppni vegna meiðsla.
snörun jafnhöllun samlals
(juðmundur <142*5> <155> <322.5)
Sigurðsson Á 140 180 320
Guðmundur á sjálfur öll gildandi lslands-
met í þessum flokki, og gerði hann atlögur að
eigin metum. Hann reyndi að snara 145 kg en
mistókst. Þá reyndi hann að jafnhatta 187,5
kg en mistókst einnig. Guðmundur var þó
ekki fjarri þvf að takast að bæta met sfn, og
má ætla að innan skamms takist honum það.
Þungavigt
Hámarksþyngd f þungavigt er 110 kg. Þar
voru tveir skráðir til leoks, en Gústaf Ágnars-
son varð að hætta keppni vegna meiðsla.
snörun jafnhöttun samtals
Óskar (160,5) (192,5) (335)
Sigurpálsson A 130 190 320
Óskar reyndi að slá eígið met f jafnhöttun
með þvf aðgera atlögu að 200 kg. óskari tókst
þó ekki að bæta metið f þetta sinn, en litlu
munaði að svo færi. Þetta var f fyrsta sínn
sem gerð er atlaga að 200 kg á lyftingamóti á
Islandi og ef fram heldur sem horfir eru
Ifkur á að 200 kg takmarkinu verði brátt náð.
Ahorfendur voru mun fleíri að sfðari hluta
mótsins heldur en hinum fyrri og virtust
hafa hina beztu skemmtan af. Sigb. G.
Aó þessu sinni var í fyrsta
skipti dæmt eftir nýjum glímu-
reglum sem kveða á um að dómur-
um er heimilt að gefa glímumönn-
um áminningu verði þeim á glím-
um sínum. Kom nokkrum sinnum
fyrir að slíkar áminningar voru
gefnar, en verði glímumenn jafn-
ir að lotu lokinni tapar sá glím-
unni sem áminninguna hefur
fengið. Slík áminning varð til
þess að Jón Unndórsson, KR, sem
álitinn var mjög sigurstranglegur
í keppninni í þyngsta flokki hætti
þátttöku sinni í keppninni. Fékk
Jón áminningu í glímu sem hann
taldi óréttláta og ákvað þá að
hætta keppni.
Greinilegt er að þessar nýju
glímureglur kunna að breyta glím
unni töluvert en þær eru fyrst og
fremst settar til þess að „hreinsa“
glímuna af óþarfa boli, sem löng-
um hefur verið hennar aðal-
óvinur.
Úrslit í glímunni urðu annars
þau að Pétur Ingvason, Vikverja
sigraði í yfirþyngdarflokknum,
hlaut 3 vinninga. 1 öðru sæti varð
Guðmundur Ólafsson, Ármanni,
og Ingi Ingvason, HSÞ, varð
þriðji.
í milliþyngdarflokknum sigraði
Gunnar Ingvarsson, Víkverja.
Kristján Ingvason, HSÞ, varð
annar og Pétur Sigurðsson, Ár-
manni, varð þriðji.
Sigurvegari i léttþyngdarflokki
varð Guðmundur Halldórsson, A,
annar varð Rögnvaldur Ólafsson,
KR, og Halldór Konráðsson, Vík-
verja, varð þriðji.
1 unglingaflokknum röðuðu
keppendur HSÞ sér í þrjú efstu
sætin. Eyþór Pétursson sigraði,
Haukur Valtýsson varð annar og
Hjörleifur Sigurðsson varð þriðji.
Sigurvegari í drengjaflokki
varð Auðunn Gunnarsson, UÍA,
annar varð félagi hans Marinó
Marinósson og þriðji varð Kári
Þorgrímsson, HSÞ.
í sveinaflokki sigraði KR-
ingurinn Helgi Bjarnason, Skúli
Birgisson, UÍA, varð annar og
Þorvaldur Ingason, KR , varð
þriðji.______ _______
Borðtennismót
PUNKTAMÓT I borðtennis fer fram i
KR-heimilinu i dag, fimmtudaginn
27. marz, og hefst það kl. 10.00.
Júdómót
KEPPT verður i opnum flokki i Júdó-
meistaramóti íslands þriðjudaginn 1.
apríl n.k. Keppnin fer fram i íþrótta-
húsi Kennaraháskóla Islands og
hefst kl. 19.00. Flestir beztu júdó-
menn landsins munu verða þarna
meðal þátttakenda, m.a. þeir sem
sigruðu I þyngdaflokkakeppninni á
dögunum.
Leiknishlaup
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Leiknir I Breið-
holti gengst fyrir víðavangshlaupi
n.k. laugardag. Hefst hlaupið við
Hólabrekkuskóla kl. 14.00, og eru
keppendur beðnir að mæta timan-
lega til skráningar. Keppt verður um
mörg verðlaun.