Morgunblaðið - 27.03.1975, Page 7

Morgunblaðið - 27.03.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975 7 AÐ SYNGJA í KIIIKJUK ÓR Sigurbjórg Hjörleifsdóttir, Ármúla- skóla, sem var í starfsfræðslu hjá Morgunblaðinu fyrir nokkru, skrifar eftirfarandi grein: Þegar ég var í starfsfræðslu hjá Morgunblaðinu og fékk að fylgjast með starfi blaðamanna þar, fannst mér upplagt að skrifa um kórinn, sem ég er í og segja svolítið frá starfsemi hans. Ég fékk Ijósmyndara frá blaðinu með mér eitt kvöldið á æfingu Þegar við komum heyrðum við dynjandi kór- söng, en svo var stoppað og Jón söngstjóri var að skipa fyrir: ..Bassar syngið sterkar, þið getið það vel, og sópraninn má draga betur úr þar sem við syngjum. altinn má gefa í á 75 takti Svona er nú að stiórna kór. bað verður alltaf að hafa eyrað opið fyrir öllu. — Síðan var gert hlé og ég fékk að tala við nokkra meðlimi kórsins, en fyrst er hér samtal, sem ég átti við Jón Stefánsson, organista og söngstjóra kórs Langholtskirkju. — Hvað er langt síðan kórinn tók til starfa, Jón? — Hann er búinn að starfa síðan 1953. Helgi Þorláksson stofnaði kór- inn. en Máni Sigurjónsson var einnig með hann, en svo tók ég við vorið 1964 Jón Stefánsson söngstjóri. — Hefur hann alltaf starfað ein- ungis sem kirkjukór? — Helgi byrjaði strax á þvl að halda tónleika um páskaleytið, sem svo varð fastur liður og nefndust páskavökur. Þegar ég tók við hélt ég þessum sið áfram, en svo kom að því að þetta nægði ekki og haldnir voru fleiri tón- leikar og þá ekkert frekar bundnir við páskana — Hefurðu alltaf haft nóg fólk? — Þróunin varð sú að verkefni kórs-. ins urðu stærri og þá nægði þessi fjöldi ekki. Þá fór ég að velta fyrir mér, hvernig ég ætti að fá fleiri. Það var auglýst eftir fólki, en það bar lítinn árangur. Ég komst að þvi að kirkjukór- ar stæðust ekki samanburð við aðra kóra, starfið var of bindandi. — Þegar kórinn átti 20 ára afmæli var haldið upp á það með tónleikum, þar sem m.a. var flutt kantata eftir Bach, og þá fengum við hóp af aðstoðarfólki Það kom i Ijós að þetta fólk hafði áhuga á að starfa áfram, en fannst of mikið að vera bundið allar helgar við að syngja I messum. — Og hvað tókstu til ráða? — Sumarið eftir lagði ég hausinn i bleyti ásamt stjórn kórsins, og við komumst að þeirri niðurstöðu að það þyrfti að breyta starfsháttum. Við sett- um fram okkar hugmyndir, bárum þær undir sóknarnefnd og presta og árangurinn var sá. að haustið 1974 breyttum við starfi kórsins á þá leið, að við hættum að láta allan kórinn syngja við messur, en skiptum honum þess i stað i hópa, sem mættu til skiptis og leiddu þá einraddaðan safnaðarsöng. Þetta fækkaði sunnudagsmætingum niður í eina til tvær i mánuði. — En var þetta nóg? — Þetta hjálpaði mikið, en þó var önnur breyting, sem var jafnvel enn róttækari. Kirkjukórar við stærri söfnuði hafa fengið laun, sem skipt er á milli félaganna. i fljótu bragði mætti álita, að þetta drægi fólk að kórnum. en reynsla undanfarinna ára sýndi, að þetta var ekki það, sem fólk sóttist eftir, heldur að fá að takast á við spennandí verkefní. Þess vegna hætt- um við að skipta þessari fjárhæð á milli félaganna en notuðum það sem rekstrarfé fyrir kórinn t.d. til nótna- kaupa og til þess að greiða aðstoðar- fólki eins og hljóðfæraleikurum og ein- söngvurum. — Er það einungis i sambandi við tónleika kórsins? — Nei, eftir breytinguna haustið 1974 hætti kórinn að syngja raddað i messum nema einn sunnudag í mánuði og á stórhátiðum, þar sem kórinn flytur þá einhver stærri verk. Nú er það mitt álit að stór hluti kirkjugesta komi ekki einungis til þess að hlusta á boðskapinn fluttan í orðum heldur lika i tónum. Þess vegna höfum við reynt að bæta kirkjugestum það upp. Þegar ekkert er sungið i röddum reynum við að fá einleikara eða einsöngvara I messurnar, og það borgar kórinn sjálf- ur. — Varð þessi breyting til þess að það fjölgaði f kórnum? — Já, strax eftir breytinguna fjölgaði úr 17 í 36 og hefur farið vaxandi síðan. Nú erum við yfir 50 og er svo komið að við getum ekki bætt fleiri við, þar sem við komum ekki fleiri fyrir i þvi plássi, sem okkur er ætlað í kirkjunni. — Og hvernig varð svo starf kórs- ins? — Haldið var áfram að æfa tvisvar i viku, og kórinn kom fram i fyrsta skipti á fyrsta sunnudegi i aðventu 1974, eftir eins mánaðar æfingu. Siðan æfð- um við kantötu eftir Buxtehude, sem flutt var 'ásamt hljóðfæraleik á jólun- um. Svo fengum við óvænt verkefni fyrir þessi jól, en það var að syngja í jólamessu i sjónvarpssal. Það var kær- komin kynning fyrir kórinn, enda bætt- ust margir við eftir áramótin. Svo var farið að hugsa fyrir vortónleikum, en þá var okkur boðið að taka þátt i norræna kirkjutónlistarmótinu i Lundí i Sviþjóð Þetta virtist I fljótu bragði óframkvæmanlegt vegna mikils ferða- kostnaðar, en með bjartsýni og hjálp góðra manna tókst þetta. Éinn af þeim, sem hvatti mig mest til þess að láta verða af þessu, var minn góði kennari og velunnari dr. Róbert A Ottósson söngmálastjóri Þegar hann svo lést i Lundi í fyrravetur, langaði mig til að sýna þakklæti mitt við hann i verki, svo að við æfðum undir konsert, þar sem við fluttum eingöngu lög úr 22 helgi- söngvum útsettum af honum. Þessir tónleikar voru svo fluttir bæði i Lang- holtskirkju og Háteigskirkju og siðan voru þeir fluttír í messuformi á hvíta- sunnudag i sjónvarpí. Þetta kom okkur einnig til góða í Lundi, þar sem sung- inn var hluti af þessu á tónleikum. Þar fluttum við líka verk eftir Gunnar R. Sveinsson og Þorkel Sigurbjörnsson, sem valin voru af samnorrænni undir- búningsnefnd mótsins. — Og að hverju stefnið þið núna? — Nú erum við að æfa krýningar- messuna eftir Mozart, sem áætlað er að flytja 13. og 14. apríl í Háteigs- kirkju — Er bað okki mikið fvrirtæki? — Jú, við þurfum nærri 30 manna hljómsveit auk fjögurra einsöngvara, svo þetta er stærsta fyrirtæki kórsins hingað til, kostar hátt á fjórða hundrað þúsund. — Hverjir verða einsöngvarar? — Þeir verða Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir, Sigríður E. Magnúsdóttir, Garð- ar Cortes og John Speight. — Og hvað svo? — Ekkert ákveðið ennþá, en það hefur komið fram sú hugmynd að fara í tónleikaferð um landið i vor. XXX Eins og segir i upphafi ræddi ég við nokkra kórfélaga Ólöf K. Harðardóttir er raddþjálfari kórsins. i — Hvernig vifdi til að þú fórst að syngja í kirkjukór? — Ég byrjaði i kórnum 14 ára, i .febrúar 1964 Innan æskulýðsfélags kirkjunnar var kór og fórum við þrjár úr honum i kirkjukórinn. | — Var ekki litið um að unglingar færu í kirkjukórinn? — Jú, jafnöldrum okkar fannst þetta Skóla- fólk hjá Morgun- blaÖinu Ólöf K. Harðardóttir. einungis hæfa fullorðnum og hlógu, svo að við lá í fyrstu að við færum með leynd á æfingar. En svo kom að við undum vel okkar hag og höfðum mikla ánægju af þessu. — Seinna ferð þú að læra að syngja, hvað kom þér til þess? — Haustið 1968 kom Elísabet Erl- ingsdóttir heim frá námi i Þýzkalandi og söngstjóri kirkjukórsins, Jón Stefánsson, hvatti mig til þess að fara að læra söng hjá henni. Fyrsta veturinn sótti ég tima heím til hennar, en haust- ið 1969 hóf Elísabet einsöngkennslu við Tónlistarskóla Kópavogs og hélt ég áfram þar Ég lauk siðan námi frá skólanum vorið 1973. Rúnar Matthíasson — En hvenær fórstu að raddþjálfa kórinn? — Elísabet Erlingsdóttir sá um radd- þjálfun þar til i fyrrahaust og þá tók ég við. Rúnar Matthiasson syngur bassa i kórnum. — Hvað fékk þig til þess að fara að syngja i kirkjukór? — Ég var búinn að syngja i kórum áður, hef gaman af kórsöng Þegar ég hætti i Kennaraskólanum fannst mér ég verða að finna mér annan kór til þess að syngja í, og um leið og tækifærið gafst smellti ég mér i það. — Nú býrð þú ekki i sókninni, en sækir alltaf æfingar hingað níðureftir eins og við stelpurnar. Er það áhuginn, sem er svona mikill? — Já, það gerir áhuginn. Asdfs Sigfúsdóttir. Stelpurnar, sem komu úr Arbæjarskóla, með söngstjóranum. Talið frá vinstri Anna Rósa Njálsdóttir, Hólmfrfður Eggertsdóttir, Dagbjórt N. Jónsdóttir, Björk Jónsdóttir, Bryndis Guðjónsdóttir, Jón Söngstjóri, Elfa B. gurðardóttir og Sigurbjörg Hjórleifsdóttir. Ásdis Sigfúsdóttir er búin að syngja i niu ár i kór Langholtskirkju. — Mér finnst skemmtilegasta tómstundaiðja mín að vera í kór, segir hún, þar sem svo góður andi ríkir. Eg hlakka alltaf til að fara á æfingar Og að lokum er hér álit nokkurra skólasystra, sem allar syngja i kórnum: — Vlð stelpurnar vorum einu sinni Framhald á bls.47. Óska eftir þýðanda sem getur þýtt úr ensku yfir i islenzku. Einnig er óskað eftir vélritara. Hringið strax í síma 21 1 84, Rvík., eða í síma 41271 Hveragerði. Til sölu bílkrani teg. Hiab 550, 3.2 tonn, 1 Vi árs. Lítið notaður. Allar nánari uppl. í síma 95-4662 eftir kl. 1 9 á kvöld- in. Areiðanlegur maður óskast. Þarf að hafa viðskiptaþekk- ingu og gott vald á ensku. Spxjnskukunnátta æskileg. Tilb., sem farið verður með sem trúnað- armál sendist Mbl. merkt: Heimar & erlendis — 6667. Til sölu Buick La Sabre árg. '69 til 70. Innfluttur góður bil. Skipti mögu- leg. Uppl. i síma 1 9378. RAPP kraftblökk Erum kaupendur að notaðri RAPP kraftblökk, gerð 1 9 eða 24 R. Upplýsingar i Hafnarfirði í sima 53148 (á vinnutíma) eða 41773 (utan vinnutíma). Trilla til sölu 3,5 tonna, Lister vél. Simrad dýpt- armælir. Verð 400 þús. Upplýsingar í sima 52486. Til leigu 4ra herb., íbúð í Fossvogi með sima til leigu frá 1. mai. Fyrirframgreiðsla Lysthafendur leggi nöfn sín á afgr. Mbl. fyrir 5. apríl merkt: „H-97 1 1" Dömur — herrar Stytti, síkka og þrengi kápur og dragtir. Margs konar breytingar fyrir herra. Tekið á móti fötum mánud. og fimmtudagskvöld frá 7—9 s. 37683. Skuldabréf Til sölu er vel tryggt skuldabréf kr. 1 millj. og 200 þús. til 10 ára með 1 0% vöxtum. Selst á hálfvirði. Tilboðs endist Mbl. merkt: Skuldabréf — 9-714". Dömur — herrar Sauma skinn á olnboga á peysur og jakka. Tekið á móti fötum mánud. og fimmtudagskvöld frá 7—9. s. 37683. Hilmar Magnússon garðyrkjukennari sýnir og kynnir val vorlauka kl. 2—5 í dag. GOÐIR ÍSLENDINGAR Vegna fjölda bréfa sem Handknattleikssarflband- inu hafa borist vegna íbúðarhappdrættisins, vilj- um við einfalda ykkur bréfaskriftirnar með pöntunarseðli þessum. Vonumst við til að sem flestir sjái sér fært að kaupa miða í happdrættinu og styrkja þar með handknattleiksíþróttina. Kær kveðja, Stjórn H.S.Í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.