Morgunblaðið - 27.03.1975, Síða 12

Morgunblaðið - 27.03.1975, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975 Að eyða heilum degi í eina Ijósmynd Rætt við Hjálmar Bárðarson, siglingamálastjóra, um Ijósmyndun SKRIFSTOFUGLUGGINN hans í Hamarshúsinu veit mót norðri, út yfir höfnina þar sem kyrrðin er að færast yl'ir, encla áliðið dags, og dagsverki áskrifstofumlokið. I gegnum hálfrökkrið má þó sjá hvar Ksjan speglast á lygnum Sundunum og einmitt f þessum svifum þokast inn um hafnar- kjaftinn tveir sjóbarðir þegnar Siglingamálastof nunar ríkisins, sem viðmælandi okkar veitir for- stöðu; annar er einn af hinum blámáluðu Fossum Kimskips, hinn drekkhlaðinn loðnubátur og stefnir á bræðsiuna í Örfirisey. Flest var með öðrum hætti hér við höfnina fyrir liðlega fjörutfu árum, þegar hópur hafnarverka- manna gekk fram á ísfirzkan skólasvein, þar sem hann var að bjástra við að setja kassavélina sfna á þrffót til að festa á mynd höfnina í höfuðstaðnum með gamla kolakranann sem höfuð- prýði. Kitthvað mun verkamönn- unum hafa þótt allar þessar til- færingar f litlu samræmi við tækjabúnað Ijósmyndarans unga og Hjálmar R. Bárðarson minnist enn hláturs þeirra. Staðurinn er varla finnanlegur, aðstæður allar gjörbreyttar og mótffið naumast þekkjanlegt. Að vfsu er Ksjan á sfnum stað í bakgrunninum en Hegrinn er horfinn, háar bygg- ingar hafa risið af grunni við hafnarbakkann, og þar sem bryggjurnar teygja sig út f höfn- ina liggja ný og traustbyggð skip við landfestar. Sjálfur hefur Hjálmar R. Bárðarson eignast töluvert full- komnari og viðameiri Ijósmynda- búnað og enginn hlær lengur að Ijósmyndun hans. Hjálmar er f hópi kunnustu Ijósmyndara hér- lendis, þó að hann hafi hana ekki að atvinnu heldur annist dags daglega yfirstjórn íslenzkra sigl- ingamála úr skrifstofu sinni f Hamarshúsinu. Undirritaður er líka kominn á fund Hjálmars til að spjalla við hann um Ijósmynd- un en ekki skip og siglingar. Hún hefur ásamt náttúruskoðun verið hjartans mál Hjálmars frá því að hann var unglingur, og naumast verður bent á sk.vnsamlegri blöndu áhugamála. Hvenær sem Hjálmar á lausa stund er hann horfinn út í guðsgræna náttúruna og þá er Ijósmyndavélin ævinlega förunautur hans. Hjálmar segir, að eins og hjá fleirum hafi þetta, byrjað með þvi að hann fékk myndavél í fermingargjöf, kassamyndavélina sem fyrr er getið. Um svipað leyti fór að vakna hjá honum áhugi fyrir náttúruskoðun og útilífi, ekki hvað sízt eftir að hann hafði gengið í skátafélagið Einherja, en foringi þess var Gunnar Andrew, sem hvatti drengína mjög til ferðalaga og útilífs. „Ég fór þannig snemma að fara í gönguíerðir út frá ísafirði, þar sem ég er fæddur og uppalinn," sagði Hjálmar, „og auðvitað var ég alltaf með myndavélina með- ferðis. Með mér á þessum ferðum var iðulega Haraldur Olafsson, en faðir hans var Ijósmyndari. Haraldur hafði sjálfur mikinn áhuga á ljósmyndun, svo að ég lærði töluvert af honum, einkum i sambandi við framköllun og „kóperíngu'- en hins vegar fór ég ekki að stækka sjálfur fyrr en seinna.“ Leið Hjálmars lá um Mennta- skólann á Akureyri og síðar um Menntaskólann í Reykjavík, og á þessum árum endurbætti hann stöðugt vélakost sinn eftir þvi sem fjárráðin leyfðu. Hann hélt áfram aó taka myndir á ferðalög um sínum og voru landslagsmynd- ir, sérstaklega frá Vestfjörðum, þar mestar að vöxtum, og enn er íslenzk náttúra höfuðviðfangsefni hans. Að loknu stúdentsprófi ákvað Hjálmar sumarið 1939 að fara í gönguferð um Hornstrandir ásamt leikfélagasínumfrá barn æsku, Hermanni Björnssyni, reyndar í algjöru trássi við al- menningsálitið, sem þótti þetta heldur mikið ábyrgðarleysi skóla- pilta svona yfir hábjargræðistím- ann. „Við tókum fyrst bát til Grunnavíkur en gengum þaðan um Jökulfirðina, vorum að vísu ferjaðir yfir að Kvium en gengum siðan meðfram fjörðunum allt til Hesteyrar. Þaðan héldum við áfram ferðinni yfir i Aðalvík, fyrst aó Sæbóli en síðan yfir að Mióvík. Þar ætlaði félagi minn að reyna orf og Ijá en ekki tókst betur til en svo að hann hjó sig á fæti og varð þar með óferðafær. Endaði það með þvi að ég fór með hann á hesti aftur til Hesteyrar og þaðan var hann fluttur á bát yfir til ísafjarðar. Fyrir mig voru góð ráó dýr — átti ég að hætta við allt saman eða halda einn áfram. Ég valdi síðari kostinn, og varð úr að ég gekk áfram fjallleiðina yfir á Strandir. Bar ég á þeirri leið tjald, svefnpoka, matföng auk myndavélar. Vélin sem ég átti i þá daga var 6x6 sm „Reflex“-vél, sem ég hafði breytt í sparnaðarskyni þannig taka mátti 16 myndir á filmu. A þessa vél tók ég mikið af myndum í ferðinni. Töluvert af þessu landsvæði var þá enn i byggð, en eins og fyrri daginn hafói ég hugann aðallega við landslagið. Ég tók þó nokkrar myndir af fólki, samt sem áður Ljósmyndarinn, Hjálmar Bárðarson, hefur hér tillt sér við vörðubrot á fjallstindi og skyggnist um eftir mótffi. A þessari mynd má sjá hvernig góður ljósmyndari getur náð tvenns konar árangri út úr , sama mótffi. Með þvf að færa sjónarhornið lítið eitt til breytir Hjálmar hreinni landslagsmynd f töfraheim, sem er meira f ætt við mánalandslag en jarðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.