Morgunblaðið - 27.03.1975, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.03.1975, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975 Útgefandi Framkvæmdastióri Ritstjórar Ritstjórnarf ulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn Augiýsingar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. rátt fyrir mikla umræðu um efnahags- mál, hafa i vetur spunnizt allmiklar umræður um lista- og menningarmál- efni. Það er í sjálfu sér fagnaðarefni, þó að menn séu vitaskuld ekki á eitt sáttir um það, er fram hefur komið, enda varpa þessar umræður ljósi á þá staðreynd, að þjóðin hefur ákaflega vakandi auga með því, sem fram fer á þessu sviði. Ugglaust verður lengi deilt um það með hverjum hætti ríkisvaldið og aðrir opinberir aðilar eigi að hafa afskipti af list- um. I frjálsu þjóðfélagi skiptir þó mestu máli, að opinberir aðilar treysti sem bezt má verða undir- stöður sjálfstæðrar list- sköpunar. Eflaust geta flestir verið á einu máli um þetta al- menna markmið, en um hitt er fremur deilt, hvernig eigi að ná því. í þessu efni er líka ógern- ingur að setja fram almenna reglu, sem átt getur við allar listgreinar. Að því er myndlistina varð- ar sýnist nokkuð ljóst, að einn áhrifamesti stuðningur opinberra aðila felst í því að kaupa lista- verk. Hér er ekki einvörð- ungu átt við kaup á lista- verkum til geymslu á söfn- um, heldur í því skyni að setja upp í opinberum byggingum og á almennum útivistarsvæðum, þar sem fólk er í daglegum tengsl- um við listina. Allt er þetta gert í nokkrum mæli, en hitt er þó ljóst að stærri átök mætti gera. 1 umræðum um þessi málefni nýlega minnti Vil- hjálmur Hjálmarsson, menntamálaráðherra, á það ákvæði í lögum um skólakostnað, sem heimilar að verja ákveðnum hundraðshluta af bygg- ingarkostnaði skóla til list- skreytingar þeirra. Þessi merka lagaheimild var sett árið 1967 og hefur í nokkrum tilvikum komið til framkvæmda. Ljóst er þó að full ástæða væri til að nýta þessa heimild í miklu ríkari mæli en gert hefur verið, og fyllilega er athug- andi, hvort ekki væri rétt að gera þessa reglu al- mennari en nú er, þar sem hún miðast einvörðungu við skóla. En það eru ekki aðeins opinberir aðilar, sem gera ættu meira að þvi að efla list í landinu með því að kaupa listaverk. Það mætti gjarnan vera miklu mun ríkari þáttur í rekstri fyrirtækja en raun ber vitni um. Einstök atvinnu- fyrirtæki hafa sýnt þessum málum mikinn skilning, en betur má, ef duga skal. Sveitarfélögin gegna einnig mikilvægu hlut- verki í þessu efni. Reykja- víkurborg hefur t.a.m. lagt allmikið af mörkum til lista- og menningarmála. I því sambandi má nefna Kjarvalsstaði, og menn hljóta að vona, að þeir gegni áfram mikilvægu hlutverki í listalífi borgar- innar, þrátt fyrir þær leiðu deilur, og að margra dómi óþörfu deilur, sem risið hafa á milli borgaryf- irvalda og myndlistar- manna. Reykjavíkurborg hefur gert talsvert að því á umliðnum árum að kaupa listaverk, bæði höggmynd- ir og málverk. Davíð Odds- son, borgarfulltrúi og fleiri hafa gert þessi mál að um- talsefni. Davíð lagði m.a. til, að tekinn yrði upp nýr háttur í þessum efnum og benti á, að rétt kynni að vera að fela þetta verk stjórn Kjarvalsstaða, er fengi þá listrænan ráðu- naut sér til fulltingis. Hér hefur borgarfulltrú- inn hreyft þarfri tillögu, enda æskilegt að mál sem þessi séu sett í ákveðinn farveg, en þar ráði ekki tilviljanir. Þá hefur borgarfulltrúinn einnig vakið athygli á nauðsyn þess, að við gerð næstu fjárhagsáætlunar verði veitt heimild til þess að ráða listrænan ráðunaut að Kjarvalsstöðum og eins að rekstrarfé hússins verði stórlega aukið, þannig að Kjarvalsstaðir geti staðið undir nokkurri listrænni starfsemi upp á eigin spýt- ur og af nokkrum myndar- skap. Engum vafa er undir- orpið að á þessu er mikil nauðsyn. Hér er um svo glæsilegt hús að ræða, að eðlilegt hlýtur að teljast að það standi fyrir og hafi frumkvæði að listrænni starfsemi bæði með inn- lendum og erlendum sýn- ingum. Fram til þessa hafa ekki verið tök á að efla starf- semi af þessu tagi á Kjar- valsstöðum, en brýnt er að úr þessu verði bætt. Myndlistarmenn hafa ein- mitt bent á mikilvægi þess að koma slíkri starfsemi á fót í þessu húsi. Það er ekki einvörðungu, að borgin þurfi að koma til móts við sjónarmið þeirra í þessu efni, heldur á hér að vera um að ræða eðlilegan þátt í starfsemi Kjarvalsstaða. Að mörgu leyti er óhætt að fullyrða, að gerð hafi verið myndarleg átök í lista- og menningarmálum af opinberri hálfu, en eigi að síður má færa f jölmargt til betri vegar og mikil- vægt er að almenningur hafi jafnan vakandi auga með þessum mikilvæga þætti í íslenzku þjóðlífi. Að efla listsköpun 1 FYRRI grein, Bók er bíó, kvaðst ég ætla að styðja rökum hvers vegna tekjur höfunda hlytu í fram- tiðinni að verða að koma að veru- legu leyti frá bókasöfnunum. Það er sýnt hvert stefnir. í nýlegu útvarpsviðtali við Eirik Hrein forstöðumann Borgarbóka safnsins kom fram að bókaeignin er u.þ.b. 360 þús. bindi og útlánin á liðnu ári námu röskri milljón eintaka. Þegar forstöðumaðurinn var spurður hvort hann héldi ekki að þessi gífurlegu útlán drægju úr bóksölu svaraði hann i véfréttar- stil: Ég held að þau auki fremur áhuga á bókum. Það er út af fyrir sig hárrétt. En þau auka ekki áhuga á bókakaup- um. Þau auka áhuga fólks á að fá enn fleiri bækur að láni, sem þýðir i raun að höfundar hér á skeri verða að öllu óbreyttu steindrepn- ir áður langt liður, þeir sem enn tóra við iðju sína, og i sömu gröf fer bókaútgáfan — uns við hvilum þar allir með kjaftinn fullan af mold, höfundar og útgefendur — í sátt og samlyndi að lokum. Meðal þjóða. þar sem bóka- safnsþjónusta er á háu stigi, þvi stigi sem hófst hér með útibúum úg bókabilum. eru heimilisbóka- söfn hreinar undantekningar. Bækur i eigu fjölskyldunnar, ef undan eru skildar orðabækur og uppsláttarrit, sjást varla á heimil- um. Nákvæmlega það sama mun gerast hér, og þegar skólabóka- söfnin taka til starfa mun fyrst taka í hnúkana. Börnin venjast bókum sem hlutum sem engin ástæða sé til að kaupa, þær eru alstaðar innan seilingar, i hillum i skólanum, í bókaútibúunum og í bókabilum við húsdyrnar. Þessi börn munu ekki þegar þau vaxa eftir JOHANNES HELGA upp, flest hver, kaupa bækur svo neinu nemi, nema þá uppsláttar- bækur, þurfa þess ekki. Kynslóðin sem er að vaxa úr grasi mun verja umframfjármunum sínum i allt annað en bækur: fatnað, skraut- muni. bingó, sólarferðir — með tilheyrandi grísaveislum til upprifj- unar ferðarinnar þegar heim er komið. Við þessari þróun er ekkert að segja, hvað þá að viturlegt sé að reyna að sporna við henni. Félags- lega og menningarlega er hún meira að segja æskileg, hún er hagkvæm, hún er framþróun, og höfundum þjóða og þjóðum höf- unda hin þarfasta, með þeim fyrir- vara þó að lifvænleg greiðsla til höfunda fyrir afnot hugverkanna komi til, svo sem tíðkast með öðrum þjóðum. Sú hliðin, hún sem vissi að rétti höfunda. gleymdist bara hjá okkur eins og venjulega þegar við öpum löggjöf frændþjóð- anna. Og það er skammgóður vermir. Bókmenntir þjóðar sem þannig hagar sér drabbast vita- skuld niður á örskömmum tima, nýjar bækur verða verri og verri, málfar og hugsun sljórri, og hlut- fall þýddra bóka, i versnandi þýð- ingum að auki, verður hættuleqa hátt i samanburði við frumsamin verk sem máli ná. Ætli menn geri sér almennt Ijóst hvert verðmæti i þéttum leir bók er i raun og veru, þetta sem menn rogast með heim til sín gratís úr söfnunum og bilunum. Maður með tiu bækur i skjóðu sinni hefur undir höndum framleiðsluverð- mæti að upphæð tíu milljónir króna hið minnsta; hann er á and- legu framfæri þessara tiu höf- unda, réttur og sléttur þurfalingur, fyrir utan að hann er þjófsnautur stjórnvalda fyrr og síðar. Það er veigalitil bók sem kostar undir einni milljón að framleiða. Sumar bækur tekur mörg ár að semja, aðrar miklu skemur. Til einföld- unar verður reiknað með ári. Bók er þá mannár og milljón. Það er ekki á færi allra að semja bækur — og aðeins á færi örfárra að setja saman góðar bækur. Fram- leiðsluverð sigarettupakka er milli tiu og tuttugu krónur. Menn láta sig hafa það að kaupa hann á hundrað og fimmtiu krónur. Fram- leiðsluverð viskíflösku er um hundrað krónur. Fólk greiðir fús- lega af hendi tvö þúsund og fimm hundruð fyrir að mega njóta hennar. Framleiðsluverð bókar sem maður hefur að láni er milljón. Fyrir að njóta hennar greiðir hann ekki neitt, fimm aura kannski; tiu aura. Aðgangskort að bókasófnunum kostar hundrað krónur og gildir i þrjú ár; mátt fá eins margar bækur á ári og þú vilt. Borgarbókasafnið lánar út röska milljón eintaka á ári. Það jafngildir milljón mannárum, og reikni maður framleiðsluverð hvers eintaks á þúsund krónur, sem er vægt áætlað, þá er það hvorki meira né minna en heill milljarður, verðmæti að upphæð þúsund milljónir króna i beinhörðum pen- ingum, sem Borgarbókasafnið er að vafstra með ófrjálsri hendi i borginni ár hvert. Það er skyni skroppinn maður sem ekki sér samhengið milli minnkandi bóksölu og vaxandi umsvifa Borgarbókasafnsins. Hvað fá svo útgefendur. óumdeilanlegir meðhöfundar bóka, ómissandi tengiliður höf- unda og þjóðar, i bætur fyrir það að söfnin taka vöru þeirra þannig traustataki hverjum og einum til lestrar sér að kostnaðarlausu. Svar: Ekkert. Væri ekki nema sanngjarnt að þeir fengju sem stofngjald fimmfalt andvirði ein- taksins. Og rithöfundar. Hvað fá þeir i þóknun fyrir ótakmörkuð afnot þjóðarinnar af verkum þeirra. Við og við forsmán sem heitir listamannalaun, sjaldnast i tengslum við útgáfur bókanna, ein til tvenn mánaðarlaun — og beint frá söfnunum að meðaltali tvö til þrjú þúsund krónur á ári, eina milljón allir til samans, innifaldir eigendur höfundaréttar látinna höfunda. Og forsvarsmenn rithöfunda eru að reyna að mjaka þinginu til að sletta einhverri nánös ofan á þessa milljón, nuddandi i þing- mönnum ár eftir ár rétt eins og betlarar. Það vantar engan slatta ofan á milljónina. Það þarf ekki að tvöfalda hana, ekki tífalda hana, það þarf að hundraðfalda hana á einu bretti — og væri þjóðþrifa- verk, því *yrr þvi betra fyrir alla, og þetta er hlutur sem ekki verður samið um. Þennan rétt taka menn sér aðeins með allsherjarbanni innlendra og erlendra höfunda og eigenda höfundaréttar á útlánum. Og ég trúi þvi ekki fyrr en ég tek á því að islenska þjóðin unni ekki höfundum sinum launa til jafns við hana sjálfa, að hún kæri sig um að vera um aldur og ævi sníkjudýr á rithöfundum sinum — fyrir tilstilli skammsýnna vald- hafa. Hundrað milljónir á ári fyrir út- lánin, árslaun rúmlega hundrað manna, nema ekki lögboðnum bankavöxtum af milljarðinum fyrr- nefnda, þær eru tíundi hluti þess sem við borgum Norðmönnum fyrir að éta lambakjötið okkar, þritugasti og fimmti hluti þess sem þjóðin ver til áfengiskaupa, ekki nema þreföld sú upphæð sem þingið gefur dagblöðunum árlega o.s.frv. o.s.frv. Milljón útlán, milljón mannár, milljón milljónir, ef mannárið er reiknað á milljón. Hundrað milljónir á ári fyrir það, það er gjafverð, spotprís, ekki tiltökumál, ekki nema einn tlu þúsundasti hluti af umsetningu Borgarbóka- safnsins, reiknað I mannárum á milljón krónur hvert. Hundrað milljónir gera ekki meira en að setja okkur við sama borð og Danir sitja við. Þegar Guðmundur Hagalín útlánahæstur hérlendra höfunda fékk I hitteð- fyrra krónur átján þúsund fyrir útlán sln það árið hlaut útlána- hæsti höfundur Dana eina milljón og átta hundruð þúsundir. Sum sé hundraðfalt. Við erum kotríki, raunar að mannfjölda óralangt fyrir neðan þau mörk að geta kallast riki, samt borgum við öll- um starfsstéttum áþekk laun og tíðkast I nágrannalöndunum, alveg án tillitis til mannfæðar — öllum nema rithöfundum, nokkr- um tugum manna. Gagnvart þeim erum við alltaf fátækir og smáir — sem er kenning öllu viti firrt — af þvi að höfundar eru ekki loft- andar, þeir hafa sömu þarfir sér til viðurværis og þú og þínir. Hér er ekki verið að krefjast þess að höfundar verði settir á launalista, þessa venjulegu, og greitt hið sama, hvort heldur þeir eru lesnir eða ekki lesnir, góðir eða lélegir og allt þar á milli, þótt t.d. læknar, verkfræðingar og lög- fræðingar fái raunar innbyrðis sömu laun hvort heldur þeir klúðra mál eða leysa þau. Nema þetta fólk, að því ólöstuðu, er Framhald á bls. 19. Bók er milljón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.