Morgunblaðið - 05.04.1975, Qupperneq 1
32 SIÐUR
74. tbl. 62. árg.
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
FLUGSLYSIÐ
VIÐ SAIGON:
___150 munaðarlaus börn
frá Suður-Vietnam biðu bana
A efri myndinni sjást
tvær konur bera unga,
slasaða telpu til sjúkra-
húss eftir slysið. Mörg
barnanna slösuðust svo
alvarlega að þeim er ekki
hugað líf.
Voru á leið til nýrra heimkynna í
Bandaríkjunum — Um 100 börnum
bjargað, en mörg eru stórslösuð
Saigon 4. apríl.
Reuter. AP.
í KVÖLD var vitað að 150
börn, mörg þeirra innan
við eins árs, hefðu látizt í
flugslysinu við Saigon í
morgun. Um eitt hundrað
börn komust lífs af og eru í
sjúkrahúsum, mörg þeirra
alvarlega slösuð. Þrjátíu
aðstoðarmenn hjálpar-
stofnana sem voru með í
vélinni létust, en um 20
komust af, svo og áhöfn
vélarinnar.
Börnin voru öll munaðarlaus
suður-vfetnömsk börn, sem átti að
flytja til Bandaríkjanna, þar sem
fjölskyldur höfðu óskað eftir að
fá að taka þau f fóstur til að létta
raunir þeirra og hörmungar. Vél-
in sem var af gerðinni Galaxy a5
hafði nýlega farið frá Saigon
þegar flugstjórinn varð þess var
að þrýstingurinn hafði farið af
vélinni, að Ifkindum vegna þess
að aftari hleðsludyr á vélinni
höfðu ekki læstst. Sneri hann þá
tafarlaust við og ætlaði að reyna
að komast aftur til Saigon, en
vélin hrapaði sfðan til jarðar í
aðeins rúmlega eins kflómetra
fjarlægð frá brautarenda. Slysið f
dag er f jórða mesta flugslys sem
orðið hefur f heimi f allri sögu
flugsins.
Björgunarsveitir þustu á vett-
vang og tókst þeim, ásamt ýmsum
af aðstoðarmönnum i vélinni, að
bjarga fjölda barna út úr flug-
vélarflakinu. Brak þeyttist um
stórt svæði og var unnið við björg-
unarstörf fram í myrkur.
Felmtri og skelfingu sló á menn
um allan heim, þegar fréttist að
vélin hefði farizt en hún var
fyrsta vélin, sem átti að flytja
munaðarlaus börn frá S-Víetnam
til nýrra heimkynna í Bandarikj-
unum. Ford Bandarikjaforseti
hefur lýst sérstökum harmi
sinum vegna þessa mikla slyss.
Hann hafði ætlað sér að taka á
móti vélinni sem átti að lenda i
San Fransisco. Kurt Waldheim,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, sagði að slysið „væri
ólýsanlegur harmleikur“ og í
Framhald á bls. 18
Sihanouk vill ekki
semja við núver-
andi ráðamenn
Phnom Penh 4. apr.
Reuter,NTB.
SKÆRULIÐAR Rauðu khmer-
anna hertu enn sókn sfna að
Phnom Penh í dag og haft er eftir
áreiðanlegum heimildum að
þeim hafi tekizt að rjúfa varnar-
Ifnu stjórnarhermanna á einum
SITHOLE
SLEPPT
Salisbury 4. apaReuter.
TILKYNNT var í Salisbury í
Ródesfu f dag að stjórnin þar
hefði ákveðið að láta lausan úr
haldi afrfska leiðtogann Nda-
baningi Sithole svo að hann gæti
setið fund Einingarsamtaka
Afrfkurfkja, sem hefst f Dar Es
Salaam á næstunni.
Sithole sem er leiðtogi ZANU-
samtakanna var handtekinn þann
4. marz sl. og ákærður fyrir að
hafa í undirbúningi samsæri til
að ráða af dögum ýmsa keppi-
nauta sína og fyrir aó halda áfram
stuðningi við hryðjuverk í
Ródesíu, þrátt fyrir vopnahlé við
skæruliða. Ian Smith, forsætisráð-
herra Ródesíu, sagði að hann
hefði ákveðið að láta Sithole
lausan að beiðni nokkurra
afrískra forseta, en hann skýrói
ekki frá því, hverjir þeir væru.
stað að minnsta kosti, á svæðum
norðvestur af borginni.
Hergagnabirgðum tókst að
koma flugleiðis til borgarinnar í
dag og heimildir hersins segja, að
hermenn hafi verið sendir frá
Kompong Seila sem er 110 km
suðvestur af Phnom Penh og til
vfglfnanna f norðri, norðvestri og
suðaustri. Þessi tilraun til að
styrkja varnir borgarinnar var
gerð um svipað leyti og mikill ótti
var á þvf að Rauðu khmerarnir
hygðu á stórsókn að borginni á
hverri stundu.
Sihanouk fyrrverandi þjóðhöfó-
ingi Kambódiu sagði í dag að enda
þótt Lon Nol væri farinn frá
Kambódíu myndi það ekki duga
til að hann og hans menn myndu
hefja samninga um frið við
„svikarana í Phnom Penh“.
Sihanouk sagði að hann hefði
fengið ótal fyrirspurnir þess efnis
hvort skæruliðar hans, Rauðu
khmerarnir, myndu fallast á aó
mynda þjóðstjórn i landinu með
þátttöku ýmissa fyrrverandi ráða-
manna. Þetta væri fávislega spurt
og merki um algera vanþekkingu.
I gærkvöldi hvatti Long Boret,
forsætisráðherra, sem staddur er
ásamt Lon Nol i Indónesiu, ieið-
toga skæruliðanna til að setjast að
samningaborðinu með núverandi
valdhöfum i Kambódíu.
Stjórn Sri Lanka lýsti yfir þvi í
kvöld að hún hefði viðurkennt
útlagastjórn Sihanouks sem hina
einu löglegu stjórn í Kambódíu.
A neðri myndinni sjási
nokkur ung munaðarlaus
börn í Galaxyhervélinni,
sem átti að flytja þau til
nýrra foreldra í Banda-
ríkjunum. Mörg barn-
anna voru kornung og
sum nýfædd. Um hálfri
stundu eftir að þessi
mynd var tekin hrapaði
vélin til jarðar og 150
börn af um 250 börnum
létust, en með vélinni
voru alls um 300 manns,
þar á meðal starfsmenn
hjálparstofnana, sem
áttu að annast börnin á
leiðinni til San
Fransisco.
Simamyndir — AF.
Ný stjórn í Saigon
Varnir um borgina efldar
Saigon 4. apríl Reuter. AP.
NTB.
NGUYEN Ba Can, forseti neðri
deildar suður-vletnamska þings-
ins, var ( dag falið að mynda nýja
rfkisstjórn I landinu, eftir að
fyrrverandi forsætisráðherra
landsins, Tran Thien Khiem,
hafði mistekizt að mynda stjórn
eins og honum var falið fyrir
ellefu dögum.
Thieu forseti kom fram I sjón-
varpi I dag og sagði að hann væri
fús til að hefja samningaviðræð-
ur sem grundvölluðust á Parfsar-
sáttmálanum um Vfetnam. Aftur
á móti vildi hann ekki sætta sig
við stjórn með aðild kommúnista
né heldur að uppgjöf væri fyrir
dyrum. Ymsir höfðu spáð þvf að
Thieu myndi gefa f skyn að hann
segði af sér á næstunni, en kröf-
urnar um það gerast æ háværari.
Vék forsetinn hvergi að þvf. Hann
sagði að hinar miklu ófarir hers
S-Vfetnam mætti meðal annars
rekja til ódugnaðar hersins og þá
alveg sérstaklega margra herfor-
ingja sem hefðu gersamlega
brugðizt skyldum sfnum og f engu
verið liðsmönnum sfnum þeim
fyrirmynd sem þeim bæri. Sagð-
ist Thieu mundi láta draga hana
ábyrgu fyrir rétt.
I dag var komið upp um enn eitt
samsæri til að steypa Thieu en
fréttir af þvi eru heldur óljósar,
en sagt að ýmsir háttsettir aðilar
hafi verið viðriðnir það og hand-
tökur hafi verið framkvæmdar í
Saigon í dag.
Forsetinn neitaói því í sjón-
Atvinnuleysi í
Washington 4. apr. Reuter.
ATVINNULEYSI f Bandarfkjun-
um jókst enn f sfðasta mánuði og
varð meira en nokkru sinni sfð-
ustu 34 ár. Voru átta milljónir
manna á atvinnuleysisskrá og er
varpsræðunni að eitt hundrað
þúsund hermenn hefóu verið
teknir af kommúnistum í sókn
þeirra og staðhæfði að varnarlin-
an umhverfis Saigon hefði verið
stórlega efld og skæruliðum Víet
Cong, sem sæktu fram í suðurátt,
hefði ekkert orðið ágengt i dag
vegna táplegrar framgöngu
stjórnarhersins. Thieu hvatti til
að safnað yrði liði og endurheimt
þau svæði úr höndum skæruliða
sem fallin eru.
Talsmaður hersins sagði i dag
að stjórnarhermenn sem hefðu
notið stuðnings úr lofti, hefðu
Framhald á bls. 18
USA eykst enn
það um 8,7% atvinnufærra
manna. Mesta atvinnuleysi sem
vitað er um f Bandarfkjunum var
1941, þegar það komst í 10%.
Mest er atvinnuleysi á meðal
iðnaðarmanna, svertingja og
unglinga.