Morgunblaðið - 05.04.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.04.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1975 Svíar bjóða aðstoð sína við að reisa byggingarverksmið ju SÆNSKT byggingarfyrirtæki hefur boðizt til að aðstoða íslend- inga við að setja hér upp verk- smiðju sem framleitt getur til- búnar húseignir en að þeirra mati gæti slík verksmiðja byggt fbúðir á 20—25% lægra verði en hinn hefðbundni byggingariðnaður. Þá hafa Svíarnir boðizt til að veita tæknilega aðstoð svo og fjárhags- lega fyrirgreiðslu bæði til verk- smiðjunnar og íbúðabygg- inganna. Heppilegast er talið að reisa verksmiðju sem byggt getur 200 fbúðir á ári. Áætlað verð slfkrar verksmiðju er um 160 milljónir króna. Erindi sænska fyrirtækisins hefur verið til at- hugunar hjá félagsmálaráðuneyt- inu. Morgunblaðið átti tal af Bene- Aðalfundur Iðnaðarbankans AÐALFUNDUR Iðnaðarbanka Is- lands verður haldinn i dag að Hótel Sögu og hefst hann klukkan 14. A dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf, en að auki verða þar ræddar tillögur um breytingar á samþykktum bankans og reglugerð. dikt Bogasyni verkfræðingi, sem hefur kynnt sér þetta mál. Hann sagði, að um væri að ræða hálf- opinbert byggingarfyrirtæki í Gautaborg, sem væri orðið mjög háþróað í byggingartækni. Það byggði íbúðareiningar í sérstakri verksmiðju, lyki t.d. alveg gerð dýrustu herbergja hverrar íbúð- ar, eldhúsi, baði og þvottahúsi og siðan væri öðrum einingum raðað í kringum þessa hluta. Mætti þannig fá fram mikla fjölbreytni í arkitektúr. Með þessari aðferð hefur náðst mikif hagkvæmni og stórsparnaður orðið bæði hvað snertir vinnuafl og efni. Fyrirtækið hefur undanfarin 15 ár byggt um 1500 íbúðir á ári og hefur í bili fullnægt þörfunum á athafnasvæði sínu. Af þeim sök- um hefur fyrirtækið leitað út fyrir landsteinana, t.d. byggt hús i Rússlandi og Póllandi. Þá fékk fyrirtækið áhuga á íslandi i fyrra og kynnti sér hér aðstæður. Hefur það boðizt til að aðstoða islenzka aðila við að reisa hér nýtizkulega verksmiðju. Býðst fyrirtækið til að veita bæði tæknilega og fjár- hagslega aðstoð. Yrði fjárhags- lega aðstoðin i formi lána til langs tima bæði til byggingu verksmiðj- unnar og einnig til ibúðabygginga á hennar vegum. Þess má geta, að verksmiðjan getur framleitt allar tegundir íbúðarhúsa, einbýlishús, raðhús og fjölbýlishús allt upp í 8 hæðir og einnig aðrar byggingar svo sem sjúkrahús og hótel. Benedikt Bogason sagði, aó í dag stæðu málin þannig. að Bygg- ingariðjan hf. á Artúnshöfða væri með i bígerð að reisa verksmiðju þeirrar tegundar sem Svíarnir hafa i huga. Er öll aðstaða þegar fyrir hendi, lóð, steypustöð og sér- hæfður vinnukraftur. Þá liggja teikningar þegar fyrir. Talið er að 1—l'/i ár taki að reisa verksmiðju sem byggt getur 200 íbúðir á ári. Kostnaður er áætlaður um 160 milljónir. Tilboð sænska bygg- ingarfyrirtækisins hefur verið til athugunar hjá félagsmálaráðu- neytinu síðan í fyrra. Sagði Bene- dikt Bogason i samtalinu við Mbl., að hann hefði orðið var við mikinn áhuga á þessu máli hjá ráðamönnum. Hann kvaóst vona að ákvörðunar væri ekki langt að bíða, því nú væri mjög heppilegur tími til að fara af stað með undir- búning. „Þetta er tilboð sem kannski kemur ekki aftur og væri vissulegá slæmt ef við misstum af þvi. Við Islendingar erum það langt á eftir í byggingartækpi að við hefðum mjög gott af því að kynnast þvi bezta á því sviði,“ sagði Benedikt Bogason að lokum. Ljósm. Magnús Björnsson. Ok á fullri ferð á ljósastaur ÞAÐ slys varð á Hverfisgötu í gær, skammt fyrir neðan Klapparstig, að stórri amerískri bifreið var ekið af miklu afli á ljósastaur. Gerðist þetta um klukkan 13. Bifreiðin kom niður Smiðjustíg og beygði inn á Hverfisgötu. Var hún rétt komin inn á götuna er hún ók utan í aðra bifreið. Við það missti ökumaðurinn vald á bíln- um og skall hann á ljósastaur af miklu afli. Bifreiðarstjórinn, sem er 17 ára gamall, var flutt- ur á slysadeild Borgarsjúkra- hússins. Meiddist hann töluvert á höfði og brjósti og var að lokinni aðgerð lagður inn á Borgarsjúkrahúsið. Bifreiðin er stórskemmd eins og myndin ber glöggt með sér. Lagarfljótsvirkjun- in stóðst kuldann LAGARFLJÓTSVIRKJUN fram- leiðir nú 4,5 megawött og hefur Séu öðrum jafn réttháir AÐALFUNDUR Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins f Reykjanes- kjördæmi, haldinn f samkomu- húsinu í Garði, 2. apríl 1975, telur Reykjaneskjördæmi bera svo skarðan hlut frá borði hvað þing- Tónleikar r í Arnesi mannafjölda áhrærir í núverandi kjördæmaskipun, að óviðunandi sé. Fundurinn væntir því þess, að þingmenn kjördæmisins og aðrir alþingismenn vinni að þvi, að það óréttlæti, er íbúar Reykjaneskjör- dæmis búa við í þessu efni, verði leiðrétt á þann hátt, að kjósendur kjördæmisins séu virtir til jafns við aðra landsmenn. framleiðslan verið aukin smám saman. Hefur gengið vel að keyra virkjunina. Verða afköstin aukin þar til fullum afköstum verður náð, en þau eru 7,5 megawött. Að sögn Erlings Garðars Jónassonar rafveitustjóra á Austurlandi er búizt við því að fullum afköstum verði náð um miðjan maí. Sagði hann að vel hefði verið fylgzt með því hvernig virkjunin kæmi út úr kuldakastinu á dögunum. Reynd- ist virkjunin standast þá raun með mikilli prýði. Þrjú býli á Fljótsdalshéraði voru tengd rafveitukerfi Austur- lands í fyrradag. Er þá aóeins eitt býli á Fljótsdalshéraði sem ekki hefur enn fengið rafmagn, Ana- staðir, og verður bráðlega byrjað á línu þangað. Þegar því verki lýkur verður aðeins eftir að tengja Njarðvík í Borgarfirði Síðari fjölskyldu- tónleikar SI í dag SlÐARI fjölskyldutónleikar Sin- fóníuhljómsveitar lslands verða f dag í Háskólabfói kl. 14.00. Stjórnandi hljómsveitarinnar verður Páll P. Pálsson og kynnir Atli Heimir Sveinsson tónskáld. Á efnisskrá eru m.a. verk eftir Karl O. Runólfsson, Wolfgang Ámadeus Mozart og föður hans Leopold. Einleikarar verða Guðný Guðmundsdóttir fiðlu- leikari og Lárus Sveinsson trompetleikari. Aðgöngumiðar eru seldir við PANKRSTWk-J innganginn frá kl. 13.00. Miðar sem keyptir voru á fyrri tónleikana, 8. marz sl. gilda einnig á þessa tónleika. í DAG,‘ 5. apríl halda þau Manuela Wiesler flautu- leikari og Halldór Haralds- son píanóleikari tónleika að Árnesi í Gnúpverja- hreppi og hefjast þeir klukkan 20. Á efnisskránni eru verk eftir Bach, Mozart, Hindemith og fleiri. Sambandsstjórn- arfundur VSÍ VINNUVEITENDASAMBAND íslands mun i dag klukkan 10.30 halda sambandsstjórnarfund, þar sem fjallað verður um bráða- birgðasamkomulagið, sem gert var milli samninganefnda ASl og vinnuveitenda rétt fyrir páska. eystri, Vattarnes i Fáskrúðsfirði og Mjóafjörð við rafveitukerfið en á þessum stöðum eru samtals 17 býli í byggð. Að sögn Erlings Garðars Jónassonar rafveitu- stjóra Austurlands er ekki ljóst hvort hægt verður að ráðast í línulagnir til þessara staða í sumar en hann kvaðst þö vona að úr því gæti orðið. Þegar þvi verki lýkur verða öll býli á Austurlandi búin að fá rafmagn. Rœtt við dr. Finn Guðmundsson: JÁ, VIÐ fundum storkinn aust- ur í Dyrhólahverfi, vestan Dyr- hólaóss. Þetta er í fyrsta skipti, sem ég hef séð stork á Islandi, því þó að þetta sé f annað skiptið, sem þessi stóri fugl slæðist hingað norður, alla leið frá Afrfku, þá sá ég ekki stork- inn sem sást árið 1969. Eitthvað á þessa leið sagðist dr. Finni Guðmundssyni frá er Mbl. átti stutt samtal við hann f gær um austanverðu, t.d. þeir, sem koma tii Danmerkur á vorin, fara þessa leiðina. Eða þeir fara um Gíbraltar, — t.d. til Spánar og Portúgal. Trúlegt þykir mér, sagði dr. Finnur, aó þessi stork- ur hafi ætlað að fara til Spánar eða Portúgal, en vegna veðra 'eða loftstrauma lent of vestar- lega og útaf farrútu sinni, út á opið hafið. Síðan hafi fuglinn þreytt flugið beint norður, ekki fita er forði hans á flugleiðinni. Þegar komið er á leiðarenda eru farfuglar stórir jafnt sem litlir að sjálfsögðu orðnir grind- horaðir. Fuglar brenna miklu þvi blóðhiti þeirra er yfir 40 stig. Storkar halda sig í vot- lendi. Við fundum hann í Dyr- hólahverfi vestan Dyrhólaóss, en með dr. Finni var Hjálmar Bárðarson siglingamálastjóri, sem fór til þess að reyna að ná Ijósmyndum af storkinum i íslenzku umhverfi. — Já, mér virtist fuglinn í alla staði eðlilegur. Hann hélt sig Hugsanlegt að storkurinn geti lifað af íslenzkt sumar storkinn, sem villzt hefur hingað til lands og sást fyrst á skírdag austur f Dyrhólahverfi. Skýringuna á hingaðkomu storksins taldi dr. Finnur lík- lega vera þessa: Enginn fugl er eins vel rannsakaður í Evrópu og storkurinn. Þegar þeir leggja leið sina milli sumar- og vetrarheimkynni sinna, sem eru í löndum sunnah Sahara- eyðimerkurinnar og í S-Afriku, fara þeir ýmist um Bosporus að haft landsýn neina fyrr en hann kom upp að suðurströnd- inni. Þannig er þessu farið með svölurnar sem hingað villast oft og iðulega er þær koma úr vetursetu í Afríku á leið sinni til Evrópulanda. Dr. Finnur sagði er við spurðum hann um flugþol storksins: Farfuglar hafa ótrúlegt þol. T.d. smá- fuglar meðal farfugla sem hingað koma, fljúga viðstöðu- laust í 24 klukkustundir, er þeir fara á milli Skotlands og íslands. Farfuglarnir eru búnir að safna á sig mikilli fitu áður en þeir leggja upp í langflugið er þeir flytja sig milli sumar- og vetrarheimkynna. Þessu er eins farið að sjálfsögóu með stork- inn. Hann leggur upp í ferðina frá Afríku til Evrópulanda seinnipart marzmánaðar eða um mánaðamót marz-apríl. Þá er þessi stóri fugl búinn að safna á sig miklu fitulagi. Þessi við skurði og læki í leit að æti. Hann hafði sézt fyrst á skírdag, er Guðjón Þorsteinsson frá Garðakoti i Mýrdal sá fuglinn á svipuðum slóðum. Hann gerði hinum þjóðkunna náttúru- skoðara, Einari á Skammadals- hóli, viðvart, en hann fór á vett- vang og staðfesti að hér væri um stork að ræða og lét Náttúrufræðistofnunina vita um þennan óvenjulega gest. Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.