Morgunblaðið - 05.04.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1975
21
Urslitalaust
íslandsþing
ÞA er skákþingi Islands 1975 lok-
ið og urðu úrslit þau, ef úrslit
skyldi kalla, að fjórir urðu efstir
og jafnir í landsliðsflokki. Þeir
eru: Björn Þorsteinsson, Haukur
Angantýsson, Júlíus Friðjónsson
og Margeir Pétursson, allir með
7,5 v. í 5. sæti varð Helgi Ölafsson
með 7 v., 6. Ömar Jónsson 6,5 v., 7.
Jónas Þorvaldsson 5,5 v., 8. — 9.
Bragi Halldórsson og Ásgeir P.
Ásbjörnsson 4 v., 10. — 11. Gunn-
ar Finnlaugsson og Jón Þ. Þór 3,5
v. og 12. Frank Herlufsen 2 v.
Þessi úrslít komu vafalaust
mörgum á óvart. Fyrirfram munu
flestir hafa spáð því að þeir Hauk-
ur og Björn berðust um efsta sæt-
ið, en fáir munu hafa reiknað með
svo glæsilegri frammistöðu hjá
þeim Júlíusi og Margeiri. Þeir
tefldu þó báðir ágæta vel og verð-
skulda fyllilega efsta sætið. Mar-
geir er tvímælalaust mesta skák-
mannsefni, sem hér hefur komið
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
fram um áraraðir og Július er
einn af okkar beztu mönnum þeg-
ar honum tekst upp. Er þar
skemmst að minnast frammistöðu
hans í íslandsþinginu 1973. Þessir
fjórir munu tefla til úrslita um
titilinn skákmeistari islands 1975,
en ekki mun enn ákveðið, hvenær
sú keppni fer fram.
Mótið var á margan hátt
skemmtilegt og fjörugt, en hins
vegar var talmennskan oft fyrir
neðan allar hellur. Grófir fingur-
brjótar sáust i hverri umferð og
jafnvel margir i hverri skák. Þar
áttu allir keppendur hlut að máli
og er erfitt að dæma, hver tefldi
bezt. Þó hygg ég að Haukur
Angantýsson hafi einna heil-
steyptasta taflmennsku. Við skul-
um nú líta á eina fjöruga skák frá
mótinu, hún var tefld í næstsið-
ustu umferð og ef til vill er hún
dæmigerð fyrir taflmennsku
flestra þátttakenda.
Hvítt: Björn Þorteinsson
Svart: Gunnar Finnlaugsson
Sikileyjarvörn
I. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — d6,
6. Bc4 — e6, 7. Be3 — Be7, 8. De2
(Þessi leikur er kenndur við
júgóslavneska stórmeistarann D.
Velimirovic og hefur notið mik-
illa vinsælda að undanförnu).
8. — Dc7, 9. Bb3 — a6, 10. 0-0-0 —
0-0, 11. g4
(Það er nánast smekksatriði,
hvort menn leika þessum leik eða
II. Hhgl og siðan g4. Byrjana-
fræðingar munu þó flestir mæla
með síðarnefnda leiknum, þar
sem hvítur getur þá drepið með
biskup á d4).
11. — Rxd4, 12. Hxd4
(Ekki 12. Bxd4 vegna 12. —
e5).
12. — b5, 13. g5 — Rd7, 14. Hgl
— Rc5, 15. e5 — d5!
(Sterkara en 15. — dxe5, sem
hvitur hefði svarað með 16. Hh4).
16. f4 — g6, 17. Bxd5??!
(Björn teflir stift til vinnings,
en þessi fórn hefði þó að réttu
lagi átt að leiða til glötunar).
17. — exd5, 18. Rxd5 — Db7, 19.
Rf6+ — Bxf6, 20. gxf6 — Bf5, 21.
Dh5 — Kh8, 22. Dh6 — Hg8, 23.
Hd2
(Nú er sókn hvíts runnin út í
sandinn).
23. — Hac8, 24. Bxc5 — Hxc5, 25.
Hgdl
(Síðasta hálmstráið!)
25. — De4???
(Oskiljanlegur afleikur. Eftir
25. — Dc7 gat hvítur gefizt upp).
26. Dg7 + !! og svartur gafst upp,
þar sem mát er óumflýjaniegt.
1 meistaraflokki urðu hvorki
fleiri né færri en fimm efstir og
jafnir, Þórir Ólafsson, Helgi Þor-
leifsson. Ögmundur Kristinsson,
Björn Halldórsson og Haraldur
Haraldsson, hlutu allir 7 v. Þeir
verða að tefla til úrslita um tvö
efstu sætin, sem veita landsliðs-
réttindi að ári. Skákþingi Islands
1975 er því alls ekki lokið enn.
H0B6VHBLU1B
fyrir 50 árum
Tilefnið með þessum línum er að forða frá gleymsku
hetjuverkum, sem unnin voru hjer á Norðfirði siðastliðið
sumar. Maður er nefndur Jón Sigurðsson, rúmlega 69 ára að
aldri, og á heima hjer á Norðfirði. Hann er í daglegu tali
nefndur Jón „fótalausi", því hann varð fyrir því hörmulega
slysi fyrir mörgum árum, að missa báða fætur sína fyrir neðan
hnjen. Gerðist það með þeim hætti, að hann lenti í sjóhrakn-
ingum á opnum báti í Seyðisfjarðarflóa. Varð hann að hafast
við undir Skálanesbjargi í fjóra sólarhringa i grimmdarfrosti
og snjóbyl, og kólu þá af honum fæturnir.
Jón stundar sjó hjer á opnum bát, og rær oftast einn á.
Hann sótti sjóinn af svo miklu kappi siðastliðið sumar, að jeg
þekki ekkert dæmi því líkt, og aflaði afbragðs vel. Sótti hann
mestan aflann suður í Sandvik, en sjóleið þangað er 7—8
sjómilur, og ekkert góð, þvi fyrir „Norðfjarðarhorn" er að
fara. Undraðist jeg oft áræði hans að leggja einn á báti i svona
langa sjóferð á gamalsaldri. Jeg held það hljóti að vera fremur
vandasamt verk að róa tveim árum og leggja lóðina jöfnum
höndum, jafnvel i logni hvað þá i vindi, öldum og straumsjó,
eins og oft vill verða. En ekki bar á að þetta færi illa úr hendi
fyrir Jóni. Man ég ekki eftir að aðrir bæru hærri hlut frá borði
en hann, þó yngri væru og ófatlaðir.
Svona framúrskarandi hetjuskap, sem Jón hefir sýnt með
sjómennsku sinni er skylt að halda á lofti. Það er ennfremur
skylda þjóðfélagsins að launa honum i ellinni þegar kraftarnir
taka að þverra, þann óvænta skerf sem hann á gamalsaldri
leggur til þjóðarbúsins.
Allt sem vel er gert, ber að launa vel.
VIKUNNAR
Umsjón
Hanna Guttormsdóttir
MÁNUDAGliH
Lifrarbul'f (sjá uppskrift),
hvítkái í jafningi,
mysuostasúpa.
ÞRIÐJUDAGUR
Bakaóur fiskur mcö ostasósu (sjá upp-
skrift),
skyr meó saft.
MIÐVIKUDAGUR
Glóóarsteiktur fiskur,
hrátt salat
brauósúpa meó rúsfnum.
FIMMTUDAGUR
Kjötfars meö grænum baunum (sjá upp-
skrift),
júlfönnusúpa.
FÖSTUDAGUR
Soóió kjöt og kjötsúpa.
LAUGARDAGUR
Soóin ýsa,
hrátt salat,
súrmjólk meó eplabitum.
SUNNUDAGUR
Kjúklingapottur (sjá uppskrift),
gúrkusalat,
epli í sykurlegi (sjá uppskrift).
Lifrarbuif
3 laukar
75 g smjörlíki
200 g lifur
200 g hráar, flysjaðar
kartöflur
1 laukur
1 cgg
1 tsk salt
G tsk pipar
Skerió laukana i sneiðar, og brúnió þá i
helmingi smjörlíkisins. llreinsið lifrina, og
flysjió laukinn. Ilakkió iifur, kartöflur og
lauk i hakkavél. Hrærió egginu saman við
og kryddió. Brúnió hinn helming smjör-
likisins, og látió lifrardeigió á pönnuna meó
matskeió eins og lummur. Steikió bulfió i
nokkrar minútur á hvorri hlió. Kaóió síóan
buffinu á fat, og leggió laukinn yfir.
Bakaöur fiskur með oslasósu
700 g íiskflök
50 g smjörliki
50 g hveiti
5U dl mjólk
2 tsk sinnep
2 tsk salt
200 g rifinn ostur
Smyrjió eldfast mót og raóió fiskflök-
unum þar í. Stráió salti yfir. Búið til upp-
bakaóan jafning, þannig: bræóió smjör-
likió, hrærið hveitinu saman vió og þynnió
smátt og smátt meó mjólkinni. Bragöbætiö
með sinnepi,salti og pipar. Hellió jafningn-
um yfir fiskflökin og bakió i 20 mín. í 200°
9
C heitum ofni. Stráiö þá rifnum osti yfir og
bakiö áfram í 5 min.
Kjötfars með grænum baununi
500 g kjöl
1 rifin laukur
2 egg
sall
pipar
2 dl tómatsafi
Steikió laukinn i smjörliki. Hakkió kjötiö
tvisvar sinnum og hræriö siöan meó eggjun-
um, kryddinu og tómatsafanum. Sett í
smurt eldfast mót, steikt i ofni í 25 min vió
225° C. Breiöió siðan úr lauknum yfir kjöt-
deigiö og steikió þaó áfram i 15 min. Þegar
kjötdeigió er tilbúiö, er soóinu hellt i pott
og rjóma, tómatkrafti og smjöri bætt í.
Jafnió. Borió fram meö sósunni og grænum
baunum.
Kjúklingapotlur
2 litlir kjúklingar,
40 g hveiti
1 '/■! tsk salt
'-4 tsk paprika
75 g smjörlíki
3 dl vatn
1 dl tómatkraflur
1 dl rjómi
Skiptió hvorum kjúklingi i fjóra hluta.
Veltió þeim upp úr hveiti og kryddt, og
brúnió þá. Stráió afganginum af hveilinu
yfir. Helliö sjóðandi vatni og tómatkrafti
viö. Steikingartimi um 1/2 klst. Bætió
rjóma og hvitvini, ef vill, út i.
Epli í sykurlegi
4 epli
sykur og kanij!
•Snjókökudeig:
2 eggjahvitur
100 g sykur
2 tsk edtk
rúsinur
Afhýöiö eplin, og hoiió kjarnahúsin úl.
Stráið kanilsykri innan i. Raóió sióan eplun-
um i eldfast mót. Þeytiö eggjahviturnar
mjög vel, og bætió ediki og helmingnum af
sykrinum út i. Þeytið þetta mjiig vel þar til
snjókökudeigió ei' oróið mjög stifl, bætió þá
aíganginum af sykrinum út í og hrærió
varlega i meó skeió. Jai'nió deiginu yfir
eplin og stráió rúsínum yfir. Bakaö i oíni
vió 150‘—175 C i 15 mín. eóa þar til eplin
eru meyr og hviturnar Ijósbrúnar.
Ostabi auð nieð eplurn
Þennan rétt má hafa meó á kaffiboróiö
eóa bera fram einan sér þegar gest ber aö
garói.
Smyrjió brauósneióar, og leggió nokkrar
eplasneiöar á þaö. Leggió síöan skinku eóa
hangikjöt þar yfir og sióan ost ofan á. Bakiö
brauðiö í ofni. Skreytiö gjarnan með tómat-
sneióum, klipplum karsa, hreókum, eóa
stráiö yfir það papriku.
Kunnugur.