Morgunblaðið - 05.04.1975, Side 32
nucivsmcRR
22480
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1975
Nýr samningur
um olíukaup?
SÉRSTÖJK viðskiptasendi-
nefnd er nú stödd í
Moskvu til þess að ræða
nýjan rammasamning um
vióskipti landanna. For-
maóur nefndarinnar er
Þórhallur Ásgeirsson,
ráðuneytisstjóri í við-
skiptaráðuneytinu, og í
gær mun nefndin hafa átt
tvo fyrstu fundi sína með
hinni sovézku samninga-
nefnd. Er vart búizt við því
aö nokkuð fréttnæmt komi
frá þessum fundarhöldum í
Moskvu fyrr en á mánudag
í fyrsta lagi.
Ásamt Þórhalli eru í sendi-
nefnd ísiands forstjórar oliu-
félaganna, enda er samið um
kaup á olíum og bensíni frá Sovét-
ríkjunum. Þeir sem eru i Moskvu
nú eru Indriði Pálsson, forstjóri
Olíufélagsins Skeljungs, Vil-
hjálmur Jónsson, forstjóri Olíu-
félagsins, og Önundur Asgeirs-
son, forstjóri Olíuverzlunar is-
lands.
Verkfallinu í Eyj-
um frestað í 3 daga
VERKALÝÐSFÉLAG Vest
mannaeyja, sem hafnað hafði
bráðabirgðasamkomulaginu miili
ASÍ og vinnuveilenda, samþykkti
í gær að afioknum umræðum við
Vinnuveitendafélagið í Eyjum,
að fresta boðuðu verkfalii um
þrjá sólarhringa. Átti verkfallið
upphaflega að ganga í giidi frá og
með 7. apríl, en hefur nú verið
frestað til 10. aprfl. Nú um helg-
ina munu væntanlegir til Vest-
mannaeyja starfsmenn VSÍ, sem
fjalla munu um þessi vandamál,
sem skapazt hafa í Eyjum vegna
þessa máis.
1 Vestmannaeyjum er vertíð
Framhald á bls. 18
Yfirlitssýning úr Ásgríms-
safni í Kjarvalsstaði 1976
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
bjóða safni Ásgríms Jónssonar að
halda yfirlitssýningu á verkum
Ásgrfms f Kjarvalsstöðum í marz
1976 i tilefni aldarafmælis
Ásgrfms. Eftirfarandi tillaga var
samþykkt f borgarráði og hús-
stjórn Kjarvalsstaða falin fram-
kvæmd hennar:
„1 tiiefni af aldarafmæli Ás-
gríms Jónssonar 4. marz 1976
leggur hússtjórn til við borgarráð,
að safni Ásgríms Jónssonar verði
boðið að halda á vegum Reykja-
vfkurborgar yfirlitssýningu á
verkum hans að Kjarvalsstöðum í
marz 1976. Jafnframt teiur hús-
stjórnin eðlilegt, að í sambandi
við sýninguna verði haldið uppi
kynningu á Ásgrími og verkum
hans.“
Samkvæmt upplýsingum Al-
freðs Guðmundssonar forstöðu-
manns Kjarvalsstaða eru margar
Framhald á bls. 18
ÞOKUMISTUR. — Undanfarna sólarhringa hefur
þoka grúft yfir Reykjavík kvölds og morgna. Á
daginn hefur birt til. Myndin er tekin úr Suðurgötu
yfir Tjörnina. Fyrir ofan Fríkirkjuturninn trónar
turn Hallgrímskirkju, en hverfur að mestu í þoku-
mistrið.
Góð rækju-
veiði er á
Grímseyj-
armiðum
DÁGÓÐ rækjuveiði hefur verið á
nýju rækjumiðunum við Grfmsey
að undanförnu, að því er Þórður
Eyþórsson fulltrúi f sjávarútvegs-
ráðuneytinu tjáði Mbl. f gær.
17 bátar frá Norðurlandshöfn-
um hafa fengið leyfi til rækju-
veiða á þessu svæói. Gilda leyfin
til 15. aprfl n.k. en þá mun ráðu-
neytið að fenginni reynslu af
veiðunum taka ákvörðun um
áframhald þeirra. Þá verður
einnig tekin afstaða til 10 um-
sókna sem nú liggja fyrir um leyfi
til rækjuveiða á svæðinu. Ein-
hverjar af þeim beiðnum munu
vera frá bátum sem skráðir eru í
öðrum landshlutum en liggja að
umræddum miðum.
Að sögn Þórðar er rækjan sem
veiðist við Grímsey mjög stór og
falleg, — bezta rækjan sem nú
veiðist hér við land.
Björgunarskip
á miðvikudag
BREZKT björgunarskip er
væntanlegt til Húsavíkur á mið-
vikudag, en erindi skipsins hingað
er að kanna aóstæður til björg-
unar Hvassafellsins á strandstað í
Flatey á Skjálfanda. Að þvi búnu
kemur í ljós, hvort brezka björg-
unarfyrirtækið muni gefa Sam-
vinnutryggingum tilboð um
björgun úr Hvassafelli. Björgun
hefur einnig sýnt áhuga á að
bjarga Hvassafelli af strandstað.
Reisir Framkvæmdanefndin félags
og menningarmiðstöð 1 Breiðholti?
FRAMKVÆMDANEFND bygg-
ingaráætlunar hefur mikinn hug
á að reisa félags- og menningar-
miðstöð fyrir Breiðholtsbúa. Ef
af þessu verður er áætlað að húsið
rfsi á næstu tveimur árum. Að
Ifkindum verður húsið að mestu
fjármagnað með fyrningarsjóði
Framkvæmdanefndarinnar, og
mun það vera um 50 millj. kr.
sem hægt yrði að veita til bygg-
ingarinnar fljótlega.
Vegaáœtlun lögð fram á Alþingi:
Framkvæmdir fyrir hálf-
an fjórða milljarð króna
VEGAAÆTLUN fyrir árin 1974
tii 1977 var lögð fram á Alþingi í
gær. Niðurstöðutölur áætlunar-
innar eru lftið eitt hærri en sam-
svarandi tölur á áætluninni f
fyrra og munar þar aðeins tæpum
200 milljónum króna. Niður-
stöðutalan nú er rúmlega hálfur
fjórði milljarður. Þýðir þetta að
framkvæmdir verða allmiklu
minni nú, en ráð var fyrir gert f
fyrra, enda hefur með tölum þess-
um verið gert ráð fyrir frestun
framkvæmda til ársins 1976, sem
nema um tveimur milljörðum
króna.
Það nýmæli er nú tekið upp í
vegaáætlun, að viðhaldi þjóðvega
er nú skipt í sumarviðhald og
vetrarviðhald, svo og vegamerk-
ingar. Áður fyrr var viðhald alis
ársins undir einum lið og gat þá
ef vetur var harður og mikið
fannfergi orðið halli á viðhalds-
liðnum og var því litið um fé til
sumarvióhalds. Nú á þetta ekki að
geta oróið og i snjóléttum árum er
unnt að geyma mokstursféð til
betri tíma.
Vegaáætlun er aðeins rammi
fyrir Vegagerðina til að vinna eft-
ir. Allar einstaka framkvæmdir
koma síðan til kasta Alþingis, sem
ákveður í hvaða framkvæmdir
skuli ráðizt og hverjar ekki. Er
það fjárveitinganefnd þingsins,
sem ákveður það. Samkvæmt upp-
lýsingum Sigurðar Jóhannssonar,
vegamálastjóra, verða að öllum
líkindum þær framkvæmdir, sem
Framhald á bls. 18
Eyjólfur K. Sigurjónsson for-
maður Framkvæmdanefndar
byggingaráætlunar sagði í samtali
við Morgunblaðið i gær, að nefnd-
in hefði þegar sent inn umsókn til
skipulagsnefndar Reykjavíkur og
nú væri í athugun hvort fyrirhug-
að hús félli inn í skipulagið. Þá
hefði þetta mál verið rætt við
Birgi isleif Gunnarsson, borgar-
stjóra, og Gunnar Thoroddsen,
félagsmálaráðherra, og þeir sýnt
málinu mikinn áhuga.
Gert er ráð fyrir, samkvæmt
frumteikningum, að húsið verði
um 500 fermetrar að flatarmálí,
en ekki er ákveðið hvort það
verður ein hæð eða tvær. Annars
bendir margt til þess, að kjallari
verði i það minnsta undir hluta
hússins. Lóðin sem Framkvæmda-
nefndin hefur augastað á er við
Völvufell, skammt frá barnaheim-
ilinu, sem þar er.
Eyjólfur sagði, að bráólega yrðu
öll tæki framkvæmdanefndarinn-
ar seld, þar sem senn kæmi að því
að nefndin lyki hlutverki sínu.
Þar af leióandi myndi mikið fé
koma i fyrningarsjóð nefndarinn-
ar, og yrði það fé notað sem aðal-
uppistaða vegna þessarar bygg-
ingar, en þaó gætu orðið um 50
millj. kr. Ef af framkvæmdum
yrði, væri ráð fyrir gert, að Fram-
farafélag Breiðholtsbúa fengi
þarna aðstöðu, ennfremur kven-
félög, kristilegar barnasamkom-
ur, eldra fólk, þá yrði hægt að
nota það undir ýmiskonar veizlur
og i kjallara hefðu menn hugsað
sér aó yrði leikfimisalur, gufubað
og s.frv. Annars væri hér aðeins
um frumhugmyndir að ræða.
i ágústmánuði n.k. mun Fram-
kvæmdanefndin afhenda síðustu
blokkaríbúðirnar í bráð. Þá ætti
nefndin aðeins eftir að reisa 29
raðhús og reynt yrði að stefna að
því að félags- og menningarmið^
stöð yrði boðin út um leið og þau.
Færeyingar
fá lóð
BORGARRÁÐ hefur staðfest út-
hlutun lóðar undir nýtt færeyskt
sjómannaheimili. Verður nýja
heimilið reist á lóð við Laugaveg
milli Heklu hf. og sjónvarpshúss
ins. Gamla heimilið við Skúlagötu
verður lagt niður.