Morgunblaðið - 08.04.1975, Qupperneq 1
36 SIÐUR
76. tbl. 62. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Óttast ný átök í
Miðausturlöndum
Ford Bandaríkjaforseti ber munaðarlaust barn frá S-Víetnam út úr einni af
þotunum, sem fluttu um 1700 börn frá Saigon til Bandaríkjanna.
Washington, 7. apríl. Reuter.
JAMES Schlesinger, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
sjónvarpsviðtali við bandarísku
CBS-fréttastofunna, að menn
hefðu miklar áhvggjur af hætt-
unni á nýjum átókum í Mið-
austurlöndum í sumar. Hins veg-
ar bentu leyniþjónustuupplýsing-
ar til þess að ástandið í þessum
löndum væri nú rólegra en það
hefði verið undanfarið.
í viðtalinu sagði varnarmála-
ráðherrann einnig að öryggi
Israels væri sem áður eitt af
markmiðum Bandarikjastjórnar,
en Bandarikjamenn myndu þó
ekki senda vopn til ísraels meóan
Ford forseti væri að endurskoða
stefnuna á þessum svæðum. Taldi
ráðherrann að þessari endurskoð-
un yrði lokið eftir 3—4 vikur.
Hafist var handa um hana eftir að
frióartilraunir Kissingers utan-
rikisráðherra fóru út um þúfur í
sl. mánuði.
Sadat Egyptalandsforseti sagði
í viðtali við bandariska vikuritið
Time, sem kom út i dag, að Egypt-
ar væru tilbúnir til aó fallast á
vopnvæðingartakmörkun við
israela, sem hluta af heildar-
friðarsamkomulagi i Miðaustur-
löndum. Þá sagði Sadat einnig, að
hann teldi að Bandarikjamenn
ynnu af bezta mætti að þvi að
koma á friði á þessu svæói.
Bin Long-hérað fallið
í hendur kommúnista
Stöðug átök í Mekongósum
Saigon og Washington,
7. april. AP.
HERNAÐARYFIRVÖLD f
Saigon skýróu frá þvf f dag, að
stjórnarhermenn hefðu flúið frá
hinni geysimikilvægu héraðsborg
Chon Thanh f Bin Long héraði í
dag og hún faliið f hendur árásar-
sveita kommúnista. Þetta var
sfðasta virki stjórnarhermanna f
þessu héraði og hafa kommúnist-
ar nú rutt úr vegi enn einni
hindruninni í sókninni f átt til
Saigon. Borgin er í um 70 km
fjarlægð norður af Saigon. Með
falli Binh Long héraðs hefur
Saigonstjórnin nú misst yfirráð
yfir nær 20 af 44 héruðum lands-
ins.
Hersveitir Viet Cong og N-
Vietnama gerðu í dag stórskota-
iiðsárásir á 10 héraðshöfuðborgir
á Mekongósasvæðinu svo og á
stærstu eldsneytisbirgðastöð S-
Vietnam skammt sunnan við
Saigon. Mikið mannfall er sagt
hafa orðið á þessum svæðum.
Stjórnarhermenn náðu hins veg-
ar aftur á sitt vald mikilvægu
svæði f útjaðri Tay Ninhborgar,
sem féll f hendur kommúnista 17.
marz. Borgin er um 60 km NV af
Saigon.
I dag, lauk flutningi munaðar-
lausra barna frá S-Vietnam til
Bandarikjanna, er tvær banda-
riskar þotur fóru með um 200
börn. Hafa þá alls verið flutt um
1700 börn til nýrra heimkynna
erlendis. Verður nú aðeins leyft
að flytja litla hópa munaðar-
leysingja úr landi.
F’réttamenn segja að fremur
rólegt ástand ríki nú í S-Vietnam
eftir atburði siðustu vikna, meðan
Saigonstjórnin sé að yfirfara mál
sín og endurskipuleggja varnirn-
ar eftir hin gifurlegu áföll, sem
hún hefur orðið fyrir og kommún-
istar á sama hátt átti sig á hinum
óvæntu sigrum. A einum mánuði
öngþveitis og ofsahræðslu hefur
Saigonstjórnin misst úr höndum
sér um 3/4 hluta landsins, án þess
að til meiriháttar hernaóarátaka
kæmi. Um 100 þúsund manns eru
taldir fallnir, hundruð þúsunda
særðir og gifurlegt magn hernað-
artækja, milljarða dollara verð-
mæti, hefur fallið i hendur
kommúnista. Hundruð flótta-
manna deyja daglega af sárum,
vanhirðu og hungri.
N-Vietnamar eru hins vegar
með hersveitir sínar í fullum
styrkleika og vinna nú að því að
tryggja enn stöðu sina i S-
Vietnam með þvi að flytja flug-
vélar og þyriur til yfirgefinna
flugvalla i Pleiku, Danang, Phu
Bai og Hue og flytja aðalstöðvar
herforingjanna lengra inn í S-
Vietnam. Undirbúa kommúnistar
nú hersveitir sínar undir mikil
átök á Mekongósasvæðinu i til-
raunum sínum til að eignast
Saigon og loka öllum aðflutnings-
leiðum.
Bandarikjamenn halda áfram
að auka styrk 7. flotans undan
ströndum S-Vietnams, en banda-
rískir embættismenn hafa neitað
því að hér sé um að ræða undir-
búning að þvi að flytja alla
Bandarikjamenn á brott frá S-
Vietnam. Um 20 skip 7. flotans
eru nú á þessu svæói.
Bandarikjaþing kom í dag á ný
saman til fundar, að loknu páska-
leyfi, og skoraði Mike Mansfield,
Framhald á bls. 22
Allsherjar-
fundi frestað
Genf, 7. apríl.
Frá Þór Vilhjálmssyni.
ALLSHERJARFUNDl á Haf-
réttarráðstefnunni hefur verið
frestað f annað sinn. Atti þar að
fjalla um viðhorfin og gera áætl-
un um starfið næstu vikur. Aftur
á móti hefur verið ákveðið að
stofna starfshópa til að fjalla um
þrjá málaflokka í 2. nefnd og eiga
þeir að vinna samhliða Evensen-
nefndinni. Allt starf hér fer nú
fram á lokuðum fundum, en
menn eru álfka bjartsýnir og áður
um árangur.
Þá segir í fréttaskeyti til Mbl.
frá AP-fréttastofunni, að ráð-
stefnufulltrúar liti á samkomulag
um leiðir til aó skera úr um haf-
réttardeilur sem mikilvægasta
verkefni ráðstefnunnar, þar eð án
sliks samkomulags væri samning-
ur um nýja stjórnarskrá fyrir höf-
in einskis nýtur. Hins vegar eru
fulltrúar ekki ásáttir um hvernig
fjailað skuli um slik mái og hafa
sum lönd, þ.á m. Sovétrikin verið
sökuð um að vinna að stofnun
alþjóðanefnda til að fjalla um
ágreiningsefni, sem myndu i raun
sjá þeim fyrir leiðum til að kom-
ast hjá þvi að hlita úrskurói
þeirra.
BLOÐBAÐA
N-ÍRLANDI:
Óttast að IRA
afturkalli vopnahléið
Belfast, 7. april, AP — Reuter.
TVEGGJA ára gamal) kaþólskur
drengur var skotinn til bana f
Belfast í dag, að öllum líkindum
vegna þess að morðinginn hitti
ekki hið raunverulega skotmark
sitt. Með láti drengsins hækkaði
tala fallinna I átökum á N-lrlandi
um helgina upp i 11 og óttast
menn nú mjög, að vopnahléi
Irska lýðveldishersins IRA sé nú
lokið eftir tæpa tvo mánuði.
Undirbúa lokaárás á Phnom Penh
Phnom Penh, 7. april.
Reuter — AP.
HERMENN Kambódfustjórnar
brutu á bak aftur nýja sókn
skæruliða Khmer Rouge um 6 km
fyrir norðan hinn mikilvæga flug-
völl höfuðborgarinnar Phnom
Penh og þrátt fyrir að eldsneytis-
tankur á flugvellinum yrði fyrir
eldflaug og spryngi f loft upp,
héldu flutningar um loftbrúna til
borgarinnar áfram.
Búist hafði verið við að Long
Boret, forsætisráðherra landsins,
sem fylgdi Lon Nol forseta á
flóttanum til Bali, kæmi aftur til
Phnom Penh í dag, en það dróst
af einhverjum ástæðum sem ekki
var greint frá. Boret kom til
Bangkok f gær og sagði þá við
fréttamenn á flugvellinum að
Phnom Penh myndi aldrei faila i
hendur kommúnista. Fréttamenn
segja að ekki sé gott að gera sér
grein fyrir hver staða Borets sé,
þvi að Khoy, starfandi forseti, er
sagður hafa byrjað undirbúnings-
viðræður við ráðamenn í Phnom
Penh um hugsanlega uppgjöf fyr-
ir skæruliðum.
Khoy sagði í viðtali við franska
blaðið Le Monde, að uppgjöf fyrir
skæruliðum með skilyróum væri
óhjákvæmileg ef það væri það
sem meirihluti þjóðarinnar vildi.
Hins vegar sagði hann aó timinn
til viðræðna við skæruliða væri
ekki enn kominn, þótt hann
persónulega væri fylgjandi aó
vopnahléi yrði komið á hið allra
fyrsta. „Framtióin er þó ekki
björt, við erum ekki sterkir hern-
aðarlega og ef Khmer Rouge-
skæruliðarnir fá ótakmarkaða aó-
stoó utan frá, en við enga, þá
munum við ásamt S-Vietnömum
falla i hendur kommúnista," sagói
Khoy.
Fréttamenn i Kambódiu segja
að stjórnarhermenn séu orðnir
ákaflega þreyttir og hættir aó
berjast nema að skjóta úr skot-
gröfum og virkjum, sem þeir haf-
ist við i fyrir utan Phnom Penh.
Telja sérfræóingar að skærulíðar
undirbúi nú árás úr norðri tif
suðurs, til að ná flugvellinum á
sitt vald og þar með Phnom Penh,
sem með því myndi missa siðustu
aðflutningsleið sina.
Blóðbaðið um helgina er hið
mesta á sl. 12 mánuðum á N-
lrlandi.
7 manns biðu bana og 74 særð-
ust af völdum sprengjutilræða í
tveimur krám. Var önnur kráin i
eigu mótmælenda, en hin f eigu
kaþólskra. Þá voru þrír kaþólskir
menn skotnir til bana á þremur
stöðum f Belfast.
Vitað er að yfirstjórn IRA
hefur verið á stöðugum fundum
um helgina, en i kvöld var ekki
vitað hver niðurstaðan yrði, en
Melvin Rees, fríandsmála-
ráðherra brezku stjórnarinnar,
sagði við fréttamenn að hann
teldi aó vopnahléið myndi standa
ögn lengur. Morðin um hefgina
eru að dómi yfirvalda þáttur i
innbyrðisbaráttu öfgahópa á N-
frlandi, sem hefur haldið áfram
þrátt fyrir vopnahlé IRA. Hins
vegar eru ýmsir þeirrar skoðun
ar að ÍRA muni afturkalla vopna
hléió fljótlega, þar sem ýmsir af
Framhald á bls. 22