Morgunblaðið - 08.04.1975, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 1975
15
Chiang Kai-Shek
leiðtogi kfnverskra
þjóðernissinna.
Chiang
Kai-Shek
failinn irá
Síðastur hinna fjögnrra„stórn”
ÞEGAR Gerald Ford, forseti Bandarlkjanna, frétti lát Chiang Kai-Sheks,
leiðtoga kínverskra þjóðernissinna og forseta Formósu lét hann svo um
maslt, aS fráfall hans markaði þáttaskil I sögu Kina. Chiang Kai-Shek
hafði sett sér það markmið að snúa aftur heim til meginlandsins og
frelsa þjóð sína undan kommúnisma, en vonir hans um það urðu veikari
með hverju ári. Einangrun hans á alþjóðavettvangi ágerðist i sifellu
eftir því sem áhrif Mao-Tse-Tungs. leiðtoga kínverska kommúnista-
flokksins, efldust og þó þjóðernissinnaforinginn gamli hafi i yfirlýsingu
sinni til þjóðarinnar, er lesin var að honum látnum, hvatt arftaka sina
til að halda baráttumerkinu á loft, þykir einsýnt, að það verði til litils,
þjóðernissinnar snúa vart sigurvegarar til meginlands Kína. — Hins
vegar velta menn þvi nú fyrir sér, hvort Pekingstjórnin muni láta til
skarar skriða gegn Formósu og freista þess að leggja hana undir vald
sitt.
Segja má. að fráfall Chiang Kai-Sheks marki einnig þáttaskil i
alþjóðlegum stjórnmálum að þvi leyti að með honum er fallinn sá
síðasti af hinum fjórum stóru „leiðtogum bandamanna" er börðust
gegn Þýzkalandi og Japan í heimsstyrjöldinni siðari. Hann var raunar
þeirra fyrstur til að finna bragð af þeirri styrjöld, fyrir því sáu Japanir
með innrás sinni i Kina árið 1 936.
Þegar Chiang KaiðShek féll frá 87 ára að aldri, hafði hann ekki sézt
opinberlega í þrjú ár. Hann fékk slæma lungnabólgu í júli 1972.
skömmu eftir að hann hafði verið endurkjörinn forseti Formósu fyrir
fimmta sex ára kjörtimabilið i röð. Siðustu tvö árin var hann bundinn
við hjólastól.
Völdin á Formósu færðust smám saman i hendur eldri sonar hans af
fyrra hjónabandi, Chiangs Ching-Kuos. forsætisráðherra, sem nú er
hinn raunverulegi leiðtogi landsins.
Chiang Kai-Shek varð fyrir miklu áfalli árið 1971, þegar Allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna samþykkti að visa Formósu af þeim vett-
vangi og lét Pekingstjórninni eftir sæti Kína. Siðan bættust við
vonbrigði hans vegna sinnaskipta Bandarikjamanna og hinnar sögulegu
ferðar Nixons, fyrrverandi Bandarikjaforseta, til Kína árið 1972. Þegar
Bandaríkjastjórn lýsti þvi yfir opinberlega, að hún liti á Formósu sem
hluta Kinaveldis þótti fokið i flest skjól fyrir hinum gamla leiðtoga.
Chiang Kai-Shek var bóndason
ur, fæddur i Genghua i strandhér-
aðinu Cheiang, 31. október 1887.
Skirður var hann Chiang Jui-Yuan
eftir afa sínum en tók sér siðar
nafnið Kai-Shek að slð kinverskra
menntamanna. Þriðja nafnið hafði
hann einnig tekið sér, Chiang
Chung-Cheng, sem að sögn AP
þýðir „Chiang hinn réttsýni".
Móðir Chiangs vildi að hann
yrði fræðimaður, þvi þeir voru
mikils metnir i Kina á dögum
keisaraveldisins. Hann sýndi
hinsvegar fljótlega sýnu meiri
áhuga og hæfileika sem hermaður
og árið 1907 hélt hann til Japans
til framhaldsþjálfunar i hernaðar-
legum fræðum. Þar komst hann i
kynni við dr. Sun Yat Sen, sem
átti eftir að verða fyrsti forseti
Kina og stofnandi Kuomingtang
og starfaði með honum upp frá
þvi. Barátta þeirra beindist að af-
námi keisaraveldisins og eftir að
lýðveldi var komið á laggirnar
skipaði dr. Sun Chiang Kai-Shek
yfirmann herráðs landsins.
Árið 1 923 sendi dr. Sun hann til
fjögurra mánaða dvalar i Sovét-
ríkjunum, en á þessum árum voru
þó nokkur samskipti milli kín-
verskra þjóðernissinna og bol-
sjevika I Rússlandi. Chiang kom úr
þessari ferð sannfærður um, að
Sovétmönnum væri ekki treyst-
andi. Af þeirri skoðun lét hann
aldrei siðan, enda þótt hann þægi
um hrið rússneska aðstoð við upp-
byggingu og þjálfun hers þjóð-
ernissihna.
Árið 1924 varð Chiang Kai-
Shek yfirmaður herskóla lýð-
veldisins, Whampoa, þar sem
kjarni hers þjóðernissinna var
þjálfaður. Um þær mundir var
pólitisk uppfræðsla i Whampoa i
höndum manns. að nafni Chou En
lai sem átti heldur betur eftir að
koma við sögu heimsmálanna.
Árið 1927 þegar Chiang Kai-
Shek hafði tekizt að sameina
kinverja undir einni stjórn, sneri
hann endanlega baki við komm-
únistum, visaði rússneskum ráð-
gjöfum úr landi og sleit öllu sam-
starfi við kommúnista um stjórn
landsins. Á næstu árum bældi
hann niður hverja uppreisnina á
fætur annarri uns hann hrakti
kommúnista frá Kiangsi árið
1934, sem varð upphaf hinnar
löngu og frægu göngu þeirra vest-
ur og norður til fjallahéraðanna,
þar sem kjarni þeirra var hertur i
eldi margháttaðra erfiðleika.
Árið 1936 var Chiang Kai-Shek
rænt af kínverska marskálkinum
Chang Hsueh-Liang, sem hafði þá
þegar orðið fyrir barðinu á herjum
Japan og vildi neyða Chiang til að
friðmælast við kommúnista og
taka saman höndum við þá i bar-
áttunni gegn Japönum. Kona
Chiangs, Soong Mei-Ling, sem
hafði gefizt honum eftir langvar-
andi fortölur, átti verulegan þátt i
að semja við Chang Hsueh um að
sleppa Chiang. Mei-Ling, sem var
systir konu dr. Sun Yats Sen, varð
manni sinum æ siðan atkvæða-
mikill förunautur og átti stóran
þátt i að hnýta bönd hans við
Bandarikin. þvi þar hafði hún
stundað nám.
Á næstu árum börðust þjóð-
ernissinnar og kommúnistar sam-
eiginlegri baráttu gegn Japönum,
en jafnframt unnu hinir síðar-
nefndu að þvi að treysta fylgi sitt
meðal kinversku bændastéttarinn-
ar, sem Chiang hafði vanrækt að
sinna og var frá fornu fari illa
haldin. Eftir að Japanir höfðu ver-
ið sigraðir reyndu Bandarikja-
menn að koma á samvinnu milli
kommúnista og þjóðernissinna
en höfðu ekki erindi sem erfiði og
í desember flúði Chiang til
Formósu, 177 km undan strönd
landsins, ásamt leifunum af her
sinum og um tveimur milljónum
Kinverja, sem vildu fremur fylgja
honum i útlegðina en verða eftir
undir kommúniskri stjórn.
Á Formósu hafa þjóðernissinnar
siðan unnið ötullega að uppbygg-
ingu þjóðfélags og stendur efna-
hagslif þar með blóma. REUTER
hefur eftir sérfræðingum, að milli-
rikjaviðskipti Formósu. sem hefur
15 milljónir ibúa. geti fljótlega
farið fram úr milliríkjaviðskiptum
Kinverja, sem eru um 700 milljón-
ir. Eru þessar miklu framfarir i
efnahagsmálum að verulegu leyti
þakkaðar þeim manni, sem nú
tekur sjálfkrafa við embætti for-
seta landsins C.K Yen vara-
forseta. Hann hefur unnið leiðtoga
sinum dyggilega öll þessi ár i ýms-
um embættum og heitið að halda
áfram baráttu hans fyrir því, að
þjóðernissinnar geti haldið aftur
heim til Kína.
SORG
Á FORMÓSU:
Útför Chiang
Kai-Sheks 16. apríl
EKKI VÆNZT BREYTINGA A AFSTOÐU
BANDARÍKJANNA TIL FORMÓSU
Taipei, Formósu, 7. aprfl.
Reuter —AP
Tilkynnt hefur veriö, að
jarðneskar leifar Chiang
Kai-Sheks, leiðtoga kín-
verskra þjóðernissinná og
forseta Formósu, sem lézt
sl. laugardag, verði lagðar
til hinztu hvíldar í graf-
hýsi á hæð einni í fjalla-
þorpinu Tsihu, um 40 km
frá Taipei, og þar muni
þær geymdar til þess dags,
er hægt verði að flytja þær
með viðhöfn til megin-
lands Kína. Sérstök nefnd,
sem skipuð hefur verið til
að annast útförina, hefur
skýrt svo^frá, að athöfnin
muni fára fram opinber-
lega, 16. apríl. nk. Næstu
30 dagar verða sorgartími
á Formósu og hvers kon-
ar opinberar lystisemdir
bannaðar. Formaður
nefndarinnar er nýskipað-
ur forseti landsins, C.K.
Yen, sem sór embættiseið
á sunnudag.
Hundruö þúsunda syrgjandi
Kínverja söfnuöust saman viö
minnismerki dr. Sun Yats Sens,
fööur kinverska lýðveldisins, eft-
ir að sá orðrómur haföi flogið
fyrir, að liki Chiang Kai-Sheks
hefði verið komið þar fyrir. Fjöldi
syrgjenda safnaðist einnig um-
hverfis bústað hins látna.
Chiang Kai-Shek lézt á laugar-
dagskvöld kl. 23.50, að staðartima.
Banamein hans var hjartaslag, en
hann hafði verið sjúkur um langt
skeið, bundinn við hjólastól i tvö
ár og siðustu tvo mánuðina haft
litla meðvitund.
Að þvi er AP-fréttastofan segir,
eftir talsmanni bandariska utan-
ríkisráðuneytisins, er ekki búizt
við breytingum á afstöðu Banda-
rikjanna til Formósu. Stefna
þeirra hefur verið sú, frá árinu
1972, að viðurkenna, að Formósa
sé hluti Kina, en eftir sem áður er
i gildi varnarsamningur milli
Bandarikjanna og Formósu og
Formósa hefur sendiráð i Wash-
ington.
Chiang Ching-Kuo, forsætisráð-
herra Formósu, arftaki valda
Chiang Kai-Sheks hefur i raun
haft þá stöðu frá þvi 1972. Hann
er eldri sonur hins látna frá fyrra
hjónabandi, 65 ára að aldri,
kvæntur rússneskri konu. Hann
hefur beint allri athygli sinni að
stjórn innanlandsmála og eflingu
efnahagslífsins á síðustu árum en
lítt haldið á loft þeim markmiðum
föður sins að snúa aftur til Kina.
Hefur hann m.a. náð þeim árangri
að draga verulega úr ýfingum
milli hinna aðkomnu kínversku
þjóðernissinna og þeirra, sem fyr-
ir voru á Formósu, þegar Chiang
Kai-Shek flúði þangað 1949 með
lið sitt.
Getgátur hafa verið uppi um, að
Chiang Ching-Kuo verði föður
sinum fúsari til samninga við
Pekingstjórnina en sennilegt tal-
ið að hann muni a.m.k. sýna minn-
ingu hans þá virðingu, að kín-
verskri hefð, að láta tilhlýðilega
langan tíma liða, áður en í nokkru
er kvikað frá stefnu hans. Sömu-
leiðis er talið að Formósumenn
muni taka hvers konar hugmynd-
um um samvinnu við Peking-
stjórnina með talsverðri tor-
tryggni og því verði farið að þessu
máli með gát.
Vist er að fyrstu kveðjur milli
Peking og Formósu eftir lát
Chiang Kai-Sheks eru ekki bein-
línis vinsamlegar. Fréttastofan
Nýja-Kina sagði um hann, að
hann hefði verið sameiginlegur
óvinur kinversku þjóðarinnar og
hendur hans flekkaðar blóði kín-
verskrar alþýðu. Og á Formósu
sagði Yen forseti á sunnudag að
hann væri fús til hvers konar
blóðfórna til að útrýma því öng-
þveiti, sem leiddi af vonsku Mao
Tse Tungs.
Margir stjórnmálamenn hafa
minnzt Chiang Kai-Sheks með
virðingu þeirra á meðal núver-
andi og fyrrverandi forsætisráð-
herrar Japans, þeir Takeo Miki og
Eisaku Sato. 1 Moskvu var fráfalls
hans getið i tiu orða frétt frá
TASS.
Yfir 40 manns fórust
1 flóðum í Ölpunum
4y
FRETTIR
Berne, 7. april Reuter.
ÓTTAST er að meira en
fjörutiu manns hafi látió
lífió af völdum snjóflóöa sl.
þrjá daga í austurrísku,
ítölsku og svissnesku Ölp-
unum. Hafa flóóin lent á
þorpum og mikilvægum
samgönguleiöum og eyði-
lagt vegi og járnbrautar-
linur.
Svissneskir sérfræðingar segja,
að flóðin í Sviss hafi verið hin
verstu sem orðið hafi svo siðla
árs, en þau urðu 13 manns að
bana.
Á Norður-ltaliu hefur verið
versta aprílveður í 30 ár og þar
hafa a.m.k. 12 þýzkir ferðamenn
farizt.
1 Austurriki hafa a.m.k. 15—16
farizt, 12 fórust af völdum snjó-
skriðu í námunda við Tamsweg og
3—4, er flóð féll á íbúðarhús i
bænum Doebriach.
í Sviss tókst að bjarga konu og
fjórum börnum lifandi i bænum
Ada, en þau höfðu legið grafin i
snjónum i meira en sólarhring.
Brennerskarð, aðalvegurinn
milli Austurríkis og Italiu er
lokaður og ekki verið um það sagt
hvenær hægt verði að opna hann.
Mikill snjór hefur fallið á
þessum slóðum undanfarna daga
og síðan hlýnað talsvert i veðri,
sem hefur i för með sér flóða-
hættu.
Mörg ítölsk þorp einangruðust
vegna vegaskemmda og rafmagns
og simalinur hafa viða slitnað.
Bretar vilja leiðtoga-
fund NATO í maílok
London, 7. aprfl
BREZKIR embættismenn hafa
staöfest, að brezka stjórnin hafi
lagt til, að haldinn verði leiðtoga-
fundur aðildarríkja Atlants-
hafsbandalagsins undir lok mai-
mánaðar. Lagði James Callaghan,
utanrikisráðherra Bretlands,
hugmynd þessa fyrir Henry
Kissinger, utanrfkisráðherra
Bandarfkjanna, nú fyrir skömmu
að sögn embættismanna.
Helzta markmið sliks fundar
yrði að kanna afstöðu aðildarríkj-
anna til hugsanlegs leiðtogafund-
ar rikja þeirra, sem aðild eiga aó
Öryggismálaráðstefnu Kvrópu.
Sömuleiðis myndu NATO-
leiðtogarnir endurskoða ýmis
sameigkileg vandamál.
Fyrirhugað var, að utanrikis-
ráðherrar NATO-rikjanna hittust
að máli i Brussel i lok maimánað-
ar, en Callaghan er sagóur þess
fýsandi, að i hans stað verði hald-
inn leiðtogafundur.
Svo sem kunnugt er af fréttum
hafa Sovétmenn hvatt til þess að
Öryggismálaráðstefnunni verði
lokið með leiðtogafundi i Helsinki
30. júni nk., en 35 riki eiga aðild
að þeirri ráðstefnu. Stjórnir
Vesturveldanna hafa tekið þeirri
hugmynd vel, svo framarlega sem
árangur af ráðstefnunni verði það
góóur, að slikur fundur geti haft
eitthvert gildi.
Misheppn-
uðSOYUZ-
geimferð
Moskvu, 7. april. Reuter.
HAFT ER eftir visinda-
mönnum i Moskvu, að hin
misheppnaða tilraun með
tveggja manna SOYUZ-
geimfarið, sem fór af leið sl.
laugardag, muni reynast
sovézkum geimvisindum
talsvert áfall, en ólíklegt sé
þó, að það muni koma í veg
fyrir hina sameiginlegu
geimvísindatilraun Banda-
ríkjamanna og Sovétmanna
á sumri komanda.
1 Fréttatilkynningu TASS,
sem birt var sólarhring eftir
að tilraunin var gerð, sagði,
að þriðja þrep eldflaugar-
innar hefði farið af réttri
braut og sjálfstýrður tækja-
búnaður þá jafnskjótt bund-
ið enda á ferð geimfarsins
og snúiö þvi til jarðar.
Mennirnir tveir, sem i geim-
farinu voru, Vasily Lazarev
og Oleg Makarov, lentu
heilu og höldnu í fjalllendi í
Vestur-Siberíu um 300 km
frá kinversku landamærun-
um. Báðir eru þeir reyndir
geimfarar, fóru saman i ferð
Soyusar 12. árið 1973.
Gert er ráð fyrir, að sams
konar geimfari verði skotið
á loft i júlí n.k. með tveimur
mönnum innanborðs og það
verði síðan tengt þriggja
manna bandarisku
APOLLO-fari. Gert er ráð
fyrir, að sovézka geimfarinu
verði skotið á loft 7V4 klst á
undan þvi bandariska og
hafa Rússar heitið að hafa
varageimfar tilbúiö ef eitt-
hvað skyldi út af bregða og
að því megi skjóta á loft meó
innan við sólarhrings fyrir-
vara.