Morgunblaðið - 08.04.1975, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRIL 1975
Víkings-
stúlkurnar
unnu 3:0
VÍKINGUR og Þróttur léku í ís-
landsmóti kvenna á sunnudags-
kvöld, en þetta var úrslitaleikur í
Suðurlandsriðli, því bæði þessi
lið höfðu áður unnið Breiðablik.
Víkingsstúlkurnar léku mjög vel
og uppskáru stórsigur, 3—0.
Strax í fyrstu hrinunni kom
munurinn á liðunum i Ijós er
Víkingur komst í yfirburðastöðu
10—0. Móttaka bolta úr uppgjöf
var slæm hjá Þrótti og náðu þær
aldrei að byggja upp sókn, en
Víkingsstúlkurnar voru með
góðan fleyg og ágætt uppspil sem
skellt var úr. Uppgjafir hjá Vík-
ingi voru ekki nógu nákvæmar og
fóru sex i súginn. Fyrstu tvær
hrinurnar vann Vikingur mjög
auðveldlega 1 5—3 og 1 5—1.
í annarri hrinu sáust oft
skemmtileg tilþrif af hálfu
Vikings og skelltu þær Auður
Andrésd., Anna Aradóttir og Erna
Kristjánsd. mjög skemmtilega úr
uppspili frá Ágústu og Margréti
Jónsd. Eina manneskjan sem
sýndi lit hjá Þrótti var Sigríður
Þorsteinsd, en hún fékk sjaldan
bolta til að skella. — í þriðju
hrinunni slökuðu Víkingarnir á og
var spil þeirra oft mjög
ónákvæmt og skelltu þær
sjaldan, en samt var sigurinn
aldrei i hættu. Aðeins einu sinni
komust Þróttarar yfir, 2—0, en
Víkingar jöfnuðu fljótt og tóku
örugga forystu og sigruðu
15—6. Þróttar liðið lék langt
undir getu og náðu þær aldrei að
sýna sannfærandi leik. Beztan
leik sýndi Sigriður Þorsteins-
dóttir en hinar léku allar mjög
svipau. Hjá Víkingi átti liðið allt
mjög góðan dag en Erna og Anna
áttu mjög góðan leik ásamt Auði
sem skellti oft mjög vel. Dómarar
leiksins voru Torfi Rúnar og Hall-
dór Jónsson og hefðu mátt vera
ákveðnari og strangari.
Reykjavík
vann 3:0
Fyrsti leikurinn i bæjarkeppni
milli Reykjavikur og Laugarvatns
var leikinn á sunnudagskvöldið.
Leikurinn var daufur og litt
spennandi fyrir fáa áhorfendur.
Reykjavikurúrvalið sigraði
nokkuð auðveldlega 3:1. Laugar-
vatnsúrvalið var skipað leik-
mönnum úr liðum staðarins og
voru þrir frá hverju. Liðið náði
aldrei að sýna afgerandi leik og
var ónákvæmur fleygur og slakt
uppspil sem þvi olli
Sömuleiðis var mjög illa
dekkað undir og náði hávörn R-
úrvalsins mörgum boltum sem
duttu niður fyrir aftan skellarann.
Hjá R-úrvalinu var uppspilið pott-
þétt hjá Halldóri Torfasyni og var
vel notað af Guðmundi Pálssyni
og Páli Ólafssyni, somuleiðis áttu
Halldór Jónsson og indriði góðan
leik. Fyrstu hrinuna vann
Reykjavik 15:10 og þá næstu
einnig 15:7. Laugvetningar voru
óvenju daufir en náðu þó að
skella á R.vík og var Tómas
Jónsson sterkur við netið,
sömuleiðis áttu Anton og Gunnar
Svanlaugsson þokkalegan leik.
— í þriðju hrinu breyttu Reyk-
vikingar um leikaðferð og skiptu
yfir i ,,hlauparann“ en i þeirri
leikaðferð eru allir þrir
leikmennirnir uppi við netið
notaðir sem skellarar og hleypur
þá einn af varnarmönnunum og
spilar upp. Þessi aðferð virtist
ætia að ganga því R.úrvalið hafði
forystu lengst af framanaf en
siðan sigu Laugvetningar framúr
og sigruðu sanngjarnt 1 5:8.
Siðari hrinan var með
eindæmum dauf. Reykjavikurúr-
valið komst i 12:4 og var
mótstaðan mjög lítil. Kom þá
kæruleysið í lið með Reykviking-
um og „ieyfðu þeir Laugvetn-
ingum að saxa á forskotið og
minnkaði munurinn í 1 stig, eða
12:11. Þá tóku Reykvikingar
kipp og skoruðu næstu 3 stig og
sigruðu 15:11. Helgi Harðarson
sýndi glæsileg tilþrif i lágvörninni
auk þess að spila vel upp. Annars
lék liðið mjög vel og náði vel
saman. Laugvetningar léku langt
undir getu og eiga örugglega eftir
að verma Reykvikingum undir
uggúm er þeir fara austur.
Silfurverðlaunahafi frá HM
í sovézka sýningarflokknum
EINS OG frá hefur verið skýrt mun
koma hingað til lands hópur sovézks
fimleikafólks og halda sýningu í
Laugardalshöllinni. í hópi þessa
íþróttafólks er sumt af bezta fim-
ieikafólki Sovétríkjanna, en eins og
flestum mun kunnugt standa Sovét-
menn, ásamt Japönum fremst allra
þjóða í fimleikum.
Þau sem koma hingað I sýningar-
ferðina eru eftirtalin:
Natalína Krasheninnikova, sem
varð Sovétmeistari 1974 í nútíma
fimleikum og silfurverðlaunahafi í
heimsmeistarakeppninni 1973;
Galina Krylenko, sigurvegari í hóp-
æfingum í heimsmeistarakeppninni
1 973, og á þar einnig við nútímafim-
leika; Lyudmila Builova, 19 ára nem-
andi við íþróttaskólann í Alma-Ata;
Elena Kolesnikova, 17 ára skóla-
stúlka í Tashkent; Nikolai Federenko
21 árs nemandi við Iðnaðartækni
skólann í Minsk; Marina Ostanina,
17 ára skólastúlka; Vladimir
Safrronov, 17 ára skólapiltur frá
Lvov; Edvard Mikaelyan, 19 ára
nemandi við Fjöllistaskólann í Jerev
an, en nefnd ungmenni eru öll sigur-
vegarar í staðbundnum unglinga-
keppnum. Þá eru og í hópnum tveir
loftfimleikamenn: Vladimir
Skovorodkin og Mikael Smirnov, en
þeir sigruðu í tvímenningskeppni
karla í Sovétmeistaramótinu 1974.
í frétt frá sovézku fréttastofunni
APN segir m.a., að fararstjóri liðsins
sem hingað kemur, Anatoly
Kurbanov, formaður Fimleikasam-
bands Moskvuborgar, segi að reynd-
ustu listamennirnir í hópnum sem
hingað kemur séu Natalia
Krasheninnikova og Galina
Krylenko, og séu þær báðar þekktar
fyrir góða frammistöðu í stórum
innanlandsmótum og alþjóðlegum
mótum í nútíma leikfimi. — Natalia
hefur sinn eigin glæsilega stíl i flókn-
um atriðum og missir aldrei kjarkinn
á erfiðum augnablikum, segir
Kurbanov, — hún hefur mjög mikið
keppnisskap, eins og hin heims-
fræga íþróttakona Galina Shugur-
ova, núverandi heimsmeistari, mátti
reyna á Sovétmeistaramótinu i
Minsk 1974, þar sem hún varð að
víkja úr sigurvegarasætinu fyrir
Natalíu.
— Ég hlakka mjög til sýninga
minna á íslandi, hefur APN eftir
Krasheninnikovu, — ég óska að að-
dáendur þar fái að njóta til fullnustu
þeirrar listar sem nútíma leikfimi er.
Sjálfri finnst mér þessi iþrótt dásam-
legur innblástur fyrir skapandi
árangur. Kvenleiki, tiguleiki, tón-
næmi og auk þess góð heilsa. allir
þessir kostir eru þróaðir með hjálp
nútímaleikfimi. Ég vona að sýningar
minar muni efla álit íslenzkra kvenna
á íþrótt okkar.
— Það er okkur mjög mikill
fengur að fá þetta íþróttafólk, sem
jafnframt má kalla listamenn, i heim-
sókn til okkar, sagði Ásgeir Guð-
mundsson, formaður Fimleikasam-
bandsins i viðtali við Morgunblaðið,
— og auðvitað vonum við að sýning-
arnar verði til þess að auka áhuga á
fimleikum hérlendis, auk þess sem
þær verða áhorfendum góð og senni-
lega ógleymanleg skemmtun.
Flestar gólfæfingarnar voru vel útfærðar hjá stúlkunum, en einmitt þar komu hin mis-
munandi þrep fimleikastigans hvað bezt fram.
I fyrstu þrepum stigans
en erum á leiðinni upp
— ÉG TELDI það ekki óeðlilegt
þótt það þ.vrfti áratug til þess að
þróa hér upp það fimleikakerfi
sem við hufum nú tekið upp,
sagði Ásgeir Guðmundsson, for-
maður Fimleikasambands
tslands í viðtali við Morgun-
blaðið, eftir fimlcikameistara-
mótið, sem fram fór í Iþróttahúsi
Kennaraháskólans á laugardag og
sunnudag. Kvaðst Ásgeir vera
ánægður eftir atvikum, með mót
þetta. — það er bersýnilegt að við
eigum langt í land til þess að
standa nágrannaþjóðum okkar
jafnfætis, sagði Ásgeir, — enda
höfðum við engan grunn að
byggja á þegar fimleikastiginn
var tekinn upp hérlendis. En
bæði í stúlkna- og piltakeppninni
nú um helgina mátti sjá marga
bráðefnilega einstaklinga og ef
þeir halda áfram æfingum og
dugnaði, þarf ekki að kvíða fram-
tíðinni.
Þátttakendur í Islandsmótinu
voru eingöngu af Reykjavíkur-
svæðinu. — Svo virðist sem fim-
leikastiginn hafi enn ekki náð
neinni útbreiðslu úti á landi,
þrátt fyrir að allmargir íþrótta-
kennarar þaðan hafi sótt nám-
skeið Fimleikasambandsins, sagði
Asgeir, — en við bindum vonir
við að það taki ekki mjög langan
tíma til viðbótar að vinna þessu
kerfi fylgi úti á landi.
Keppni í kvennaflokkum fór
fram á laugardaginn, en piltarnir
kepptu á sunnudaginn. Yfirleitt
voru þátttakendur i móti þessu
mjög ungir að árum, sennilega
allir innan tvítugs, nema þá einn.
Mun fleiri stúlkur tóku þátt í mót-
inu en piltar, og yfirleitt var þar
um jafnari keppni að ræða.
Fimleikameistari kvenna varð
Berglind Pétursdóttir úr hinu
unga íþróttafélagi Gerplu i Kópa-
vogi. Hún keppti í flokki 13—14
ára og hlaut flest stig allra, eða
19,0. í öðru sæti í keppninni um
fimleikameistaratitil kvenna varð
Emma Magnúsdóttir úr Hafnar-
firði sem hlaut 18,6 stig, en hún
keppti í flokki 15—16 ára.
Helztu úrslit í kvennaflokki
urðu annars þau, að í flokki
10—12 ára sigraði Jódis Péturs-
dóttir, Gerplu, hlaut 15,7 stig.
Dagbjört Bjarnadóttir, Björk í
Hafnarfirði, varð önnur með 14,8
stig, og jafnar í þriðja sæti urðu
Berglind Sigurðardóttir, Björk,
og Sigurlin Baldursdóttir, Gerplu,
sem báðar hlutu 14,7 stig.
I flokki 13—14 ára stúlkna bar
Berglind Pétursdóttir sigur úr
býtum, hlaut 19,0 stig. Karólína
Valtýsdóttir, Björk, varð önnur
með 18,0 stig, og Helga Ingjalds-
dóttir úr IR varð þriðja með 17,3
stig.
Emma Magnúsdóttir, Björk,
Enn er langt I land til að ná sömu leikni á jafnvægisslánni og Olga Korbut hefur, en allt miðar
I rétta átt, og vfst er að stúlkan sem myndin er af ber sig fagmannlega að.
varð sigurvegari í flokki 15—16
ára og hlaut hún 18,6 stig. Sólveig
Magnúsdóttir, ÍR, varð önnur með
16.5 stig og Björg Dan Róberts-
dóttir, Gerplu. varð þriðja með
15.5 stig.
Sigurvegari í flokki 17 ára og
eldri varð Kristín Ölafsdóttir IR,
með 18,1 stig. Björk Sveinsdóttir,
Björk varð önnur með 16,6 stig og
þriðja varð Anna Kr. Jóhanns-
dóttir, Björk, með 15,5 stig.
I keppni karla á sunnudaginn
mátti greinilega sjá hinn mikla
mismun á þrepum fimleika-
stigans, enda keppendur mjög
misjafnlega langt komnir á
leiðinni upp hann. Fimleika-
meistari Islands 1975 varð Sig-
urður T. Sigurðsson, KR, sem
keppti i flokki 17 ára og eldri og
hlaut hann 45,7 stig. Sýndi Sig-
urður áberandi mesta hæfni í
keppni íslandsmótsins, og gerði
flesta hluti mjög vel.
Islandsmeistari í flokki 10—12
ára varð Ingólfur Árnason, Ár-
manni, sem hlaut 24,6 stig. I öðru
sæti varð Gísli Bjarnason, Á, með
24.5 stig og þriðji Ár-
menningurinn varð í þriðja sæti:
Brynjar Sveinsson, en hann hlaut
23,9 stig.
I flokki 13—14 ára sigraði
Þiðrik Emilsson, Ármanni, sem
hlaut 30,0 stig. Hörð barátta var í
þessum flokki, þar sem aðeins
munaði 0,3 stigum á Þiðriki og
þeim er varð I öðru sæti, Davíð
Ingasyni, Á, en hann hlaut 29,7
stig. Jafnir í þriðja sæti urðu svo
Ármenningarnir j.lmundur
Ingason og Heimi G nnarsson
sem báðir hlutu 28,V ot:g.
Gunnar Richardsson, KR, varð
meistari í flokki 15—16 ára og
hlaut hann 36,3 stig. Þar varð
Jónas Tryggvason, Armanni, í
öðru sæti með 33,2 stig og Ing-
ólfur Stefánsson, Á, þriðji með
31,8 stig.
Sem fyrr greinir varð svo Sig-
urður T. Sigurðsson, KR, sigur-
vegari i flokki 17 ára og eldri.
Hann hlaut 45,7 stig. Annar varð
Sigmundur Hannesson, KR, með
18.6 stig og þriðji Helgi Ágústs-
>on, Armanni, sem hlaut 37,8 stig.