Morgunblaðið - 08.04.1975, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 08.04.1975, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1975 21 Hákon Bjarnason: Stærstu tré landsins Blágrenið á Hallormsstað Horft upp eftir stofnum þriggja blágrenitrjáa á Hallormsstað. — Ljósm.: Ilmari Kalkkinen. Hinn 25. mai áriö 1905 kom ungur Dani riðandí ofan Fjarðar- heiði á leið upp að Hallormsstað. Hann hét Christian Emil Flens- borg, 32ja ára að aldri, og hafði staðið fyrir fyrstu skógræktar- tilraununum hér á landi undan- farin fimm sumur. Hann var líka með trússahesta og á einum þeirra hengu tágakörfur, en i þeim voru litlar blágreniplöntur, sendar hingað frá gróðrarstöð í Jótlandi. Eftir hret i byrjun mai hafði vorað einstaklega vel þetta ár, en þennan dag hafði brugðið til snjókomu með vægu frosti. Segir Flensborg svo frá á einum stað, að það hafi verið undrafögur og ein- kennileg sjón að sjá allaufga tré, ljósgræna slæðu birkisins yfir mjallhvitri jörðinni. Þá bjó á Hallormsstað ekkjan Elísabet Sigurðardóttir, prests Gunnarssonar, en fyrir þrem ár- um hafði hún afhent landstjórninni skóginn á Hallormsstað til friðunar. Hjá henni var i fóstri 10 ára garnall drengur, Gunnar Jónsson, sem síðar varð lögregluþjónn og spítalaráðsmaður á Akureyri. Það, sem hér fer á eftir, er haft eftir honum. Einhvern fyrstu dagana í júní kvaddi Flensborg Gunnar með sér ofan i Mörkina, sem er snertispöl suður af bænum. Þar hafði verið reist girðing tveim árum áður og hafinn undirbúningur að gróðrar- stöð. Nú skyldi Gunnar hjálpa Flensborg við gróðursetningu blá- greniplantnanna og fá fimm aura um tímann, en slikt þótti honum rausnarborgun. Þeir fóru út snemma dags þvi að Flensborg var árrisull og hófu þeir starfið með þvi að taka trjáplönturnar úr körfunum og rennbleyta þær i Kerlingaránni, sem er nú raunar ekki annað en lækur sunnan Merkurinnar. Siðan var hafist handa um að grafa holur í f jórum röðum, og þar voru plönturnar settar niður. Verkinu var lokið að afliðnu hádegi. Gunnar mundi ekki, hve plönturnar voru marg- ar, en ef marka á af tímalengd- inni, kunna þær að hafa verið millí 50 og 100, og er þó lægri talan sennilegri hafi þeir vandað plöntunina, sem varla er að efa. Á þessum stað standa nú 5 blá- grenitré, há og viðamikil. Hið hæsta er 14,8 metrar, rétt innan við 15 metra, en meðalhæð allra trjánna er 13,2 metrar. Meðal- þvermál þeirra er 35,6 sentimetrar í 1,3 metra hæð frá jörðu. Gildasta tréð er 44,5 senti- metrar. Ástæðan til þess, að hér eru ekki eftir nema 5 tré af þeim 50 eða fleirum, sem sett voru niður i upphafi, er sú, að iilu heilli voru mörg tré tekin upp og seld í ýmsar átti á árunum kring um 1920. Nokkur bót er í máli, að sum þeirra eru enn til á ýmsum stöðum á Austurlandi, frá Héraði eystra suður i Öræfi. En ekkert þeirra jafnast á við hin, sem fengu að standa kyrr. Sum hafa þó náð góðum þroska og borið köngla og þroskað fræ, en önnur hafa farið forgöróum svo sem við húsbruna og á annan hátt. Þessi tré eru ættuð vestan úr Klettafjöllum Norður-Ameriku, úr Coloradoríki, en fræinu að þeim safnað hátt í fjöllum, senni- lega í um 3.000 metra hæð yfir sjó. Siðan var fræinu sáð á Jót- lartdi á fyrsta ári aldarinnar og þaðan komu svo plönturnar hingað eins og reifastrangar í tágakörfu, svo sem áður er sagt. Of langt mál væri að segja frá þvi, hvernig unnt var að rekja feril trjánna. Frásögn af þvi likist spennandi leynilögreglusögu, þar sem leita varð upplýsinga bæði hér og i Danmörku áður en endar náðu saman. Þegar blágrenitrén voru rösklega fertug að aldri, en aldur skógar er oftast talinn frá gróður- setningarári en ekki sáningu fræs, báru þau þroskað fræ i fyrsta skipti árið 1947. Af þvi fræi komust um 3.000 plöntur á legg. Vorið 1952 voru þúsund þeirra gróðursettar í Fljótshlíðinni annað þúsund á Stálpastöðum í Skorradal og það, sem umfram var, i Hallormsstaðarskógi. Fyrir aprílhretið 1963 voru þessi tré öll að komast á legg, voru yfirleitt frá hálfum og upp i heilan metra á hæð, en þá vildi svo til, að á Tumastöðum dóu öll trén, á Stálpastöðum 9 af hverjum 10, en á Hallormsstað varð engu meint. Þessi fyrsta kynslóð íslenskra barrtrjáa, sem af lifði hretið, er nú að verða að myndarlegum trjám, bæði fyrir austan og i Skorradal. Þetta atvik sýnir mjög glöggt, að trén eru ættuð úr meginlandsveðráttu, þar sem mildir vetur þekkjast ekki ásamt því hve mjög þarf að vanda fræval plantna, ef rækta á þær til gagns á íslandi. Þetta kemur enn berar í ljós, þegar þess er gætt, að ofan við Tumastaði voru önnur blágrenitré, sem lifðu hretið af, sennilega sakir þess að þau voru af öðrum stofni sömu tegundar. Blágrenið á Hallormsstað hefur borið þroskað fræ alloft eftir 1947 og 1969 féll mjög mikið fræ af því. Því er nú til töluvert af íslenskum blágrenitrjám á ýmsum stöðum austanlands og norðan, en ekki er talið ráðlegt að planta þeim syðra sakir reynslunnar 1963. Blágrenið á Hallormsstað hefur verið mælt á nokkurra ára fresti allt frá 1935, og hæðarmælingar eru reyndar til frá 1921. Þá var hæsta tréð aðeins 1,5 metrar 16 árum eftir gróðursetningu, en 14 árum siðar, árið 1935, var sama tréð orðið 6 metrar. Af þessu má sjá, að trén voru lengi að komast i vöxt. Að vísu er það öllum greni- trjám eðlilegt að vaxa hægt fyrstu árin, en hinsvegar fer það einkum eftir frjósemi jarðvegs og skjóli, hve fljót þau eru að herða vöxt- inn. Auðséð er, að á barðinu, sem trén standa, hefur frjósemi jarðvegsins verið upp urin eftir aldalanga beit í þann mund er þeim var plantað. Að minnsta kosti var það álit Guttorms Pálss- sonar, sem var skógarvörður á Hallormsstað á fimmta tug ára. Eins og áður segir, er hæsta tréð 14,8 metrar og 37,8 sm að þvermáli i 1,3 m hæð frá jörðu. Viðarmagn þess er 0,85 tenings- metrar. Gildasta tréð er ekki nema 13,4 m á hæð en 44,5 sm í þvermál. Viðarmagn þess er rúmur 1 teningsmetri eða 34 teningsfet. Meðalhæð allra trjánna er 13,2 metrar og þvermál 35,8 senti- metrar, og samanlagt eru þau 3,5 teningsmetrar að magni eftir 69 sumra vöxt. Trén eru enn i fullum vexti og eiga eftir að bæta miklum viði á sig á næstu árum. Að litt athuguðu máli mun einhverjum kannski ekki finnast mjög til þessa vaxtar koma. En hefði Flensborg haft 5000 trjá- plöntur milli handa en ekki 50 og sett þær i einn hektara lands hefðu flestir rekið upp stór augu í dag. Eftir hæfilegar grisjanir stæðu nú 650—750 tré á hektara, og með sama þroska og þessi tré hafa nú, væri vióarmagnið á hekt- ara milli 455 og 525 tenings- metrar. Við sögun á timburstokkum er oft talið að helmingur verði að borðum og plönkum. Nýtingin getur þó orðið meiri, einkum þégar trén eru gild. Gerðum nú ráó fyrir minna viðarmagninu og tökum sem dæmi verð venjulegs mótatimburs eins og þaó er nú. Þá væri verómæti 455 teningsmetra viðar eftir sögun um átta milljónir króna, en væri gert ráð fyrir hærri tölunni, yrði verðmæt- ið röskar 9 milljónir. Nú er þetta auðvitað ekki hreinn gróði. Taka verður gróðursetningarkostnað og reikna meó vöxtum og vaxta- vöxtum i 69 ár, og yrði það auð- vitað mikil fjárhæð, en á móti kæmi verðmæti þess viðar, sem til hefði fallið við grisjun á tíma- bilinu, og það gæti einnig orðið álitleg fjárhæð. En vöxtur blágrenitrjánna hefur reynst svipaður og sibirisks lerkis á Hallormsstað. Hefur það verið mælt mörgum sinnum undanfarin 20 ár, og ræktun þess gefur 7% af þvi fé, sem til ræktunarkostnaóar hefur verið varið, eftir að ýrnsir varnaglar hafa verið slegnir við of háu mati. Við útreikninga á dæminu af lerkinu var reiknað með hægari vexti en mældur var, þannig að hagur af skógræktinni mun reynast meiri en þetta. Af þeim mælíngum, sem þ.egar liggja fyrir, um vöxt ýmissa barr- trjáa er einsætt að þau vaxa á ýmsum stöðum hér á landi álika og um niiðbik Skandinavíu. Af þvi má ráða, að viða um land eru skilyrði fyrir ræktun timbur- skóga með ágætum hagnaði. Þvi er ástæðulaust að flytja timbur yfir úthöfin um alla framtið, þegar unnt er að taka það i hagan- um heima. Nokkur hundruð trjá- plantna, sem rúmast i tágakörfu i dag, geta orðið að milljónaverð- mætum eftir mannsaldur, ef rétt er á haldið. Ef framsýni og fyrir- l'yggja væri almennari meðal þjóðarinnar og forvigismenn hennar reyndu að skyggnast inn i framtið þjóðarinnar, væri miklu rneira að gert i skógrækt en nú er. Tvö hæstu blágrenitrén á Hallormsstað. Hæð 14,8 og 14,2 metrar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.