Morgunblaðið - 11.04.1975, Qupperneq 1
36 SIÐUR
79. tbl. 62. árg.
FÖSTUDAGUR 11. APRlL 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Stjórnar-
kreppa í
Finnlandi?
Helsingfors, 10. april. NTB
STJÖRNARKREPPA getur veriö
í vændum i Finnlandi að sögn
blaða í Helsingfors í dag.
Astæðan er ágreiningur
sósialdemókrata og Miðflokksins
um byggðastefnu en hann hefur
reynzt meiri en talið var í fyrstu.
Auk þess mun Urho Kekkonen
forseti hafa sent ráðherrum bréf
þar sem hann lét i ljós óánægju
með stjórnina.
Forsetinn mun vera óánægður
með ágreininginn í stjórninni,
tiðar utanferðir ráðherra og 20%
launahækkun ráðherra, sem
nýlega var samþykkt.
Völd Wilsons í hættu vegna
klofnings út af EBE-aðild
stjórnmálahæfileikum sfnum á
næstu tveimur mánuðum til að
varðveita einingu flokksins áð-
ur en þjóðaratkvæðagreiðslan
fer fram.
Talið er að Wilson muni eiga
fullt f fangi með að halda and-
stæðingum sfnum f skefjum.
Samkvæmt óopinberum tölum
greiddu 144 þingmenn flokks-
ins atkvæði með úrsögn úr EBE
en aðeins 128 studdu stjórnina.
Flestir stjórnmálasérfræð-
ingar telja að aðildin verði
samþ.vkkt f þjóðaratkvæða-
greiðslunni eins og stjórnin
leggur til, en þar sem andstað-
an gegn aðildinni er vfðtæk f
Verkamannaflokknum geta úr-
slitin orðið tvfsýn. Samkvæmt
skoðanakönnun f Daily Tele-
graph f dag styðja 57% aðild-
Framhald á bls. 20
50 mílna krafa
frá eiginkonum
afhent Wilson
London, 10. apríl. AP.
EIGINKONUR brezkra fiski-
manna skoruðu f dag á Harold
Wilson forsætisráðherra að færa
brezku landhelgina út í 50 mflur.
Nefnd 20 eiginkvenna fór að
embættisbústað forsætisráðherra
í Downing-stræti 10 og afhenti
bænaskjal með 13.000 undir-
skriftum þar sem skorað er á
stjórnina að aðstoða brezka sjó-
menn sem stunda veiðar á heima-
miðum.
„Við viljum 50 mílna Iandhelgi
og aðstoð i freðfiskmálinu," sagði
Framhald á bls. 20
Ógna lífæð í
2 km fjarlægð
Phnom Penh, 10. apríl. AP.
UPPREISNARMENN brutust
gegnum glufu f varnarlínu stjórn-
arhersins umhverfis Phnom Penh
f dag og eru nú aðeins rúma þrjá
kílómetra frá flugvelli borgar-
innar. Þeir hafa aldrei áður kom-
Þúsundir flóttamanna streyma
frá þorpum sem eru í hættu tæpa
10 km fyrir norðan og norðvestan
höfuðborgina og flugvélar stjórn-
arhersins héldu uppi hörðum
árásum á uppreisnarmenn til að
Framhald á bls. 20
flokknum og eining flokksins
hefur sjaldan verið f alvarlegri
hættu.
Vinstrisinnar f flokknum
hafa harðlega gagnrýnt Harold
Wilson forsætisráðherra fyrir
að reka Eric Heffer aðstoðar-
ráðherra sem lagðist gegn til-
lögu stjórnarinnar um aðild að
EBE f umræðum Neðri málstof-
unnar og óhlýðnaðist þar með
ströngum fyrirmælum forsætis
ráðherra.
Nú er Wilson f minnihluta f
þessu máli í þingflokknum og
sennilega einnig f flokknum f
heild. Hann hefur beðið per-
sónulegan álitshnekki og völd
hans hafa sennilega aldrei ver-
ið f eins mikilli hættu sfðan
hann varð foringi flokksins fyr-
ir 12 árum.
Stjórnmálafréttaritarar telja •
að Wilson verði að beita öllum
FIMMTlU MlLUR — Eiginkonur brezkra fiskimanna undir forystu frú Margaret Jean Mainprize fyrir
utan embættisbústað brezka forsætisráðherrans, Downing-stræti 10, þar sem þær afhentu áskorun með
13.000 undirskriftum um útfærslu brezku landhelginnar f 50 mílur.
ERIC HEFFER: Rekinn úr
stjórninni.
aðild Bretlands að Efnahags-
bandalaginu færi fram 5. júnf.
Jafnframt hefur ágreiningur
um málið aukið klofninginn f
Wilson.
London, 10. apríl.
Reuter.
BREZKA stjórnin ákvað f dag
að þjóðaratkvæðagreiðslan um
vill 722 milljón
aðstoð við Thieu
izt eins nálægt flugvellinum.
Hrisgrjónaflutningar banda-
rískra flugvéla frá Saigon lögðust
niður i fimm klukkutíma vegna
harðrar skothríðar uppreisnar-
manna. 42 sprengikúlur féllu á
fiugvöllinn, þrir biðu bana og 11
særðust og tjón varð á banda-
riskri flutningavél.
Mistök ollu þvi í bardögunum
við norðvesturvarnarlinu Phnom
Penh og flugvallarins að stór-
skotalið stjórnarhersins skaut á
sveit stjórnarhermanna. 30 féllu
og enn fleiri særðust.
Sex bandariskir landgönguliðar
voru fluttir frá Bangkok til að
gæta bandariska sendiráðsins í
Phnom Penh. Starfsmaður sendi-
ráðsins sagði, að verið gæti að
fleiri landgönguliðar yrðu sendir
frá bandarisku flugvélamóður-
skipi á Siamsflóa ef öngþveiti
skapaðist i Phnom Penh.
Ford
dala
Washington,
10. apríl. Reuter.
FORD FORSETI bað þingið f nótt
að samþykkja 722 milljón dollara
hernaðaraðstoð við Suður-
Víetnam, rúmlega helmingi
hærri upphæð en hann bað um
fyrir hálfum mánuði, og tilkynnti
að æðstu menn NATO mundu
halda fund með sér á næstunni
um ástandið í heimsmálunum.
Þetta kom fram f yfirlitsræðu
sem Ford flutti þinginu um
ástand heimsmálanna. Hann bað
þingið að endurskoða þær hömlur
sem það hefði lagt á beitingu
bandarlska herliðsins f Suðaust-
ur-Asfu svo að nota mætti það ef
nauðsynlegt reyndist til að flytja
á brott Bandaríkjamenn f Vfet-
nam og vfetnamska borgara sem
gætu komizt f lífshættu vegna
sóknar kommúnista.
Hann kvaðst vilja skjóta endur-
skoðun á beitingu þessa liðsafla
svo að hann hefói svigrúm til að-
gerða „ef það versta gerðist".
Hann bað um að 250 milljónum
dollara yrði þegar veitt til efna-
hagsaóstoðar vió Suður-Vietnam.
, Ford kvaðst biðja þingið um 722
milljón dollara aukaaðstoð við
Suður-Víetnam samkvæmt ráð-
leggingum Frederick Weyands
hershöfðingja sem hefur kynnt
sér ástandið i Víetnam. Hann
sagði að Weyand teldi að ástandið
væri alvarlegt og hefði tjáð sér, að
Suður-Vietnamar verðust með öll-
um tiltækum ráðum. Astandið i
Kambódiu kallaði hann hörmu-
legt og kvaðst harma að þingið
hefði ekki samþykkt beiðni sina
um 222 milljón dollara aðstoð við
stjórnina þar.
Forsetinn tók ekki þann kost að
biðja þingið um umboð til að
framfylgja friðarsamningunum
um Vietnam með hervaldi en
skoraði á Hanoistjórnina að hætta
öllum hernaðaraðgerðum þegar i
stað og virða Parisarsamningana.
Framhald á bls. 20