Morgunblaðið - 11.04.1975, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 11.04.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRIL 1975 3 Frá aðalfundi Vinnuveitenda- sambands Is- lands, sem hófst i húsakynnum sambandsins við Garðastræti sfð- degis I gær. fjórum sinnum og vió útreikning vísitölunnar yrði tekið tillit til breytinga á viðskiptakjörum þjóð- arinnar. Jón H. Bergs sagði, aó með þessu yrði dregið úr verð- bólguáhrifum vísitölukerfisins og afskiptum ríkisvaldsins af kjara- Jón H. Bergs á £1 • | /i 1 aemja part um breytt form vísitöluuppbótar á laun Aðaifundur Vinnuveitenda- sambands tslands hófst í gærdag. 1 upphafi fundarins fiutti Jón H. Bergs formaður sambandsins ræðu en sfðan talaði Geir Hallgrímsson forsætisráðherra um framvindu efnahags- og kjaramála og verður ræða hans birt í heild síðar. I ræðu sinni við setningu fundarins sagði Jón H. Bergs m.a., að framundan væru samningaviðræður um kjara- samninga til langs tíma eftir 1. júnf, en tif þess að slfkt sam- komulag tækist yrði líklega ekki hjá þvf komizt að taka upp ein- hvers konar verðtryggingu launa, enda myndu viðræðurnar á næst- unni fyrst og fremst snúast um það atriði, þar eð þegar hefðu verið veittar miklar kauphækkan- ir, sem hlytu að teljast liður í langtímasamningi þeim, sem fyrir dyrum stæði að gera. Jón H. Bergs sagði, að i sam- bandi við breytingar á visitölunni væri i hópi vinnuveitenda helzt rætt um, að kaupgreiðsluvísitalan yrði aðeins látin mæla hækkun framfærslukostnaðar að hluta eins og tíðkast í nágrannalöndum okkar. Visitalan yrði aðeins endurskoðuð tvisvar á ári í stað samningum, þegar viðskiptakjör versnuðu. Þá ræddi formaðurinn þróun kjaramálanna sl. ár. Hann sagði m.a., að þegar samkomulag hefði náðst 26. febrúar 1974 hefði alls- herjarverkfall staðið i fjóra sólar- hringa ogviðþæraðstæður hefðu verið knúðar fram kjarabætur umfram gjaldþol atvinnuveganna eins og vinnuveitendur hefðu var- að við og síðar hefði sannazt í raun. Formaðurinn tók sérstak- lega • fram, að augljósir kostir væru þvi samfara að ljúka sem mestu af samningsgerð við sem flest launþegafélög á sama tima. Með þvi móti ætti að vera unnt að gæta meira samræmis. Hins vegar hefðu komið í ljós ýmsir ann- markar á að valda svo stóru verk- efni, þar sem stéttarfélögin hefðu svo miklu fleiri starfsmenn en vinnuveitendur til þess að vinna að samningsgerð. Jón H. Bergs sagði ennfremur, að flest aðildarfélög Vinnu- veitendasambandsins hefðu þeg- ar samþykkt samkomulag það, sem gert var við Alþýðusamband- ið 26. fyrra mánaðar. Þau félög, sem það hefðu gert gætu reitt sig á stuðning Vinnuveitendasam- bandsins, ef svo færi, að stað- bundnar vinnudeilur héldu áfram vegna þess að einstök verkalýðs- félög kynnu að hafna samkomu- laginu og vera mætti, aó á einstök- um sviðum atvinnulifsins kynni Vinnuveitendasambandið að þurfa að grípa til verksviptingar- aðgerðar til aðstoðar félagsmönn- um sínum, sem vildu standa við heildarsamkomulagið. Til sliks myndi vinnuveitendasambandið þó aðeins gripa í nauðvörn. Ráðgert er, að aðalfundinum ljúki á morgun, en i gær lagði framkvæmdastjóri sambandsins fram skýrslu um starfsemi sam bandsins á liðnu ári og endur- skoðaða reikninga þess. A morg- un verða lagðar fram tillögur nefnda og kjörin stjórn Vinnu- veitendasambandsins fyrir næsta starfsár. Fisksölur erlendis Siglufiröi, fimmtudag. VÉLSKIPIÐ Dagný héðan frá Siglufirói fór að þessu sinni í söluferð með afla sinn, 103 tonn, til Belgíu, og þar var aflinn seldur fyrir um 7,8 milljónir króna, þ.e.a.s. ísfiskaflinn. Síðan fer tog- arinn með 70—80 tonn af heil- frystum fiski á markaðinn i Grimsby og selur þar væntanlega á föstudaginn. mj. Mikil aösókn að endurmennt- unarnámskeiðum rafvirkja UM þessar mundir eru að hefj- ast námskeið til endurmennt- unar rafvirkja. Rafiðnaðarsam- band Islands og Landssamband rafverktaka hafa forgöngu um námskeiðahaldið og er tilgang- urinn sá að gefa rafvirkjum kost á endurmenntun í fagi sfnu. Á fjölmörgum sviðum raf- magnstækni hafa á undanförn- um árum orðið svo miklar fram- farir, að til þess aó hægt sé að hagnýta þær hér á landi er nauðsynlegt að kennsia fari fram á þessu sviði umfram þá, sem rafvirkjar fá i skóla. i nágrannalöndunum hefur verið stofnað til slikra endur- menntunarnámskeiða fyrir raf- virkja og rafverktaka með ýms- um hætti, en einna lengst mun sú starfsemi vera á veg komin hjá Dönum. Fyrir um það bil ári var skip- Guðmundur Gunnarsson, Gunnar Bergman og Arne Nielsen með nokkur tæki, sem notuð eru við kennsluna. uð nefnd rafvirkja og rafverk- taka til að vinna að undirbún- ingi endurmenntunarnám- skeiða fyrir rafvirkja. I nefnd- inni eru Gunnar Bergmann og Magnús Geirsson frá Raf- iðnaðarsambandi islands og Reynir Ásberg og Árni Brynj ólfsson frá Landssambandi rafverktaka, og loks Guðmund- ur Gunnarsson, sem ráðinn var til að hafa umsjón með nám- skeiðunum. Guðmundur hefur kynnt sér námskeióahald í Dan- mörku og mun hann annast kennslu á námskeiðunum. Hér á landi er nú staddur danskur kennari, Arne Nielsen, en námskeiðin eru sniðin eftir endurmenntunarnámskeiðum í Danmörku. Þar hafa fengizt leigð tæki til notkunar við kennsluna. Hér í Reykjavik er nú að ljúka fyrsta námskeiðinu þar sem fyrst og fremst hefur farið fram kennsla í lestri tengi- mynda og kynning á tengi- myndakerfum, svo og tengingu stýritækja. Á morgun hefst sams konar námskeið á Akur- eyri, en síðar verður sama nám- skeið haldið viðar um land. Endurmenntunarnámskeiðin eru á mörgum sviðum raf- magnstækni. Næsta námskeið, sem efnt verður til er á svið rafeindatækni, er á þvi svið verða námskeiðin fimm flokki. Til námskeiðahaldsins veitti Alþingi 3.5 millj. króna á fjár- lögum þessa árs, en námsgjald á hverju námskeiði er 4.500 krónur. Námskeiðin taka fimm daga, eða 40 stundir. Meðal rafvirkja hefur mjög mikill áhugi verið á þessu starfi og eru námskeiðin fullskipuð fram í júní, en kennsla fellur niður þá. Siðan verður þráður- inn tekinn upp að nýju í haust og er þegar fullbókað á nám- skeið, sem haldin verða i september og október. Þjófarnir sluppu MAÐUR nokkur sem býr við Kirkjuteig varð var við það i fyrrinótt, að ljós Volkswagen- bíll ók upp að Teigabúðinni við sömu götu. Hlupu nokkrir menn úr bílnum og upp að dyrum búðarinnar, spenntu þær upp og létu greipar sópa. Hirtu þeir m.a. 15—20 lengjur af sigarettum, sælgæti og kass- ettur. Svo snöggir voru þjóf- arnir i snúningum, að maður- inn náði ekki einu sinni skrá- setningarnúmeri bilsins. Málið ' rannsókn. er Sígarettum stolið fyr- ir 100 þús. BROTIST var inn í strætis- vagnabiðskýlið við Bústaðaveg í fyrrinótt og þaðan stolið 65—70 lengjum af sígarettum. Lætur nærri að söluverðmæti þess magns sé um 100 þúsund krónur. Málið er I rannsókn. Hver sá bláa bílinn? EINS OG fram hefur komið Mbl. kom upp eldur í trésmiða- verkstæði i Garðahreppi sunnudaginn 6. apríl s.l. um klukkan 19. Nú hefur maður gefið sig fram, sem kveðst hafa séð ljósbláum bíl, að hann tel- ur pick up, ekið frá húsinu þann mund er reykinn byrjaði að leggja frá því. Það eru til- mæli rannsóknarlögreglunnar í Hafnarfirði, að ökumaður þessa bils hafi samband við lögregluna, svo og aðrir sem eitthvað kynnu að hafa til mál- anna að leggja. Vitni vantar FIMMTUDAGINN 10. apríl var rúða brotin í hægri hurð nýrrar Cortinu 1975, þar sem hún stóð á Strandgötu, fyrir framan pósthúsið. Gerðist þetta á tímabilinu milli 11,55 og 12,20. Bifreiðin ber ein- kennisstafina G 1935 og er hún mosagræn að lit. Þeir sem ein- hverjar upplýsingar geta gefió eru beðnir að hafa samband vió rannsóknarlögregluna i Hafnarfirði. Oánœgð- ir bíl- stjórar Siglufirði, fimmtudag. HÉR á Siglufirði er óánægja yfir snjóruðningi i Fljótunum, en þeir sem annast um það, eru á Sauðárkróki. Bilstjórar áætlunarbíla og vöruflutninga- bila hafa mest af þessu að segja. Nærtækt dæmi er, að i gærkvöldi varð áætlunarvagn- inn fastur í skafli hér fyrir sunnan og ofan við Hraun. Þetta varð til þess að vagninn sem fór frá Hofsósi um kl. 6.30 komst ekki hingað fyrr en um kl. 9.30 og hafði þá verið send- ur trukkur til þess að brjótast yfir urn 100 m langan skafl með áætlunarbilinn. Að öðru leyti var skotfæri um Fljótín. — mj

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.