Morgunblaðið - 11.04.1975, Side 12

Morgunblaðið - 11.04.1975, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1975 Lionsklúbb- ur stofnaður á Hofsósi JOHANNES JÓHANNESSON Á LOFTINU „tsblóm 1“ ÞAÐ hefur gengið fremur mikið á að undanförnu í sýningarlífi borgarir.nar. Hver sýningin hefur rekið aðra, og ég man ekki eftir, að áður hafi það verið venjulegt, að fleiri sýningar opnuðu jafn áberandi samtímis og nú hefur átt sér stað síðustu vikur. Enn einn sýningarstaður hefur verið opn- aður, en það er híð nýja Galleri ,,LOFTIГ á Skólavörðustíg 4. Jóhannes Jóhannesson hefur rið- ið á vaðið með sýningu á þessum nýja stað og sýnir eingöngu Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON gouachmyndir (vatnslitamyndir), sem allar eru nýjar af nálinni og hafa ekki komið fyrir almenn- ingssjónir áður. Þetta er umfangsmikil sýning, þótt húsnæðið sé ekki stórt. Tæp- ar þrjátiu myndir eru á sýning- unni og fjölbreytni mikil. Jóhannes tekur fyrir viss vanda- mál, er hann siðan vinnur út frá, og árangurinn verður fjölþættur og lifandi. Það er auðkennandi fyrir þessi verk Jóhannesar, hve fersk og lifandi þau eru. Það er eins og Jóhannes hafi fundið endurnæringu í að fást við vatn og liti eftir langan vinnudag með olíu og léreft. Ég held einnig, að það hafi verið listamanninum mikil unun að vinna þessar mynd- ir. Það er eins og hann hafi fengið vissa nautn af hverju eina einasta verki, og. það andar sterkum áhrifum frá þessum verkum. Það er raunar óþarft að endurtaka það enn einu sinni hér, hve traustur listamaður Jóhannes er. Hann hefur mikla leikni i með- ferð formsins og beitir að jafnaði mjög rökvissri aðferð við upp- byggingu verka sinna, og gildir þessistaðhæfing jafnt um liti sem form. Hann hefur sérstaka til- finningu fyrir beiskleika litarins, og hann kann að spenna viddir hans eftir því, er hann ákveður hverju sinni. Þó held ég, að full- yrða megi, að honum hafi ekki tekist einmitt þetta atriði eins vel i annan tima. Svo heilleg og sann- færandi verkar þessi sýning, að unun er að. Það er eins og galsi hafi gripið listamanninn á stundum, og áhugi og ástríða er túlkuð í þessum vatnslitamyndum Jóhannesar af mikilli vinnugleði og sannfær- ingu, samt er hvergi farið út fyrir myndræn takmörk og hvergi kast- að til hendi. Ég held, að mér sé óhætt að segja um þessa sýningu. að hún hafi allt það sér til ágætis, sem einn listamaður getur krafist af verkum sínum. Og er þá mikið sagt, og vonandi eiga fleiri eftir að líta þannig á þessi nýju verk Jóhannesar Jóhannessonar. Snyrtilegur frágangur á þess- um vatnslitamyndum er ekki sið- ur til sóma fyrir listamanninn en verkin sjálf. Þarna er allt í góðum og gildum römmum, og ég man ekki eftir að hafa séð betur geng- ið frá vatnslitamyndum á sýningu i lengri tið. En það hefur viljað brenna við, að einmitt þessu atr- iði hafi stundum verið nokkuð ábótavant hjá flestum okkar, sem fengist hafa við vatnslitamyndir. Ekki meir um það, en ekki verður skilist svo við þessar fáu línur, að ekki verði minnst á sjálft húsnæð- ið „LOFTIÐ". Það er sérlega aðlaðandi staður og sæmir vel góðri myndlist. Þessi staður er að byrja sem gallerí, og nú kemur enn einu sinni sá mikli vandi að velja sæmilegar sýningar. Flest- um slíkum stofnunum hefur orðið hált einmitt á þvi að sýna gott og vont. Hvernig þetta þróast hjá ráðamönnum þessa staðar, verður ekki spáð um hér, en mikið væri það nú skemmtilegt, að upp risi galleri hér í Reykjavik, sem hefði svolítinn metnað í aó sýna aðeins það, sem sýningarhæft er. Meiru þorir maður ekki að vonast eftir. Best væri auðvitað, að aðeins um úrvalslist væri að ræða. Hver veit? Svo gæti farið einmitt á þessum stað, ef vel er á haidið og vilji er fyrir hendi. Staðurinn sjálfur er þess eðlis, að það mundi hæfa honum sérlega vel. Þessi sýning Jóhannesar Jóhannessonar er mikill listrænn sigur fyrir Jóhannes, og ég er fullviss um, að þetta er ein allra besta sýning, sem sett hefur verið saman hér í borg að undanförnu. Valtýr Pétursson. Bæ, 7. apríl. LAUGARDAGINN 5. april var i félagsheimili Hofsóss haldin mikil hátið Lionsmanna á Norðurlandi vestra. Þar var svæðamót klúbb- anna á þessu svæði að viðstöddum umdæmisstjóra séra Þorleifi Kristmundssyni á Kolfreyjustað og varaumdæmisstjóra Helga Sveinssyni, Siglufirði. Samhliða þessu svæðamóti var stofnskrár- hátíð Lionsklúbbsins Höfða á Hofsósi og nágrenni haldið með mikilli viðhöfn. Föður- og móður- klúbburinn á Sauðárkróki hefur lagt sinn mikla og nauðsynlega skerf til klúbbsins á Hofsósi, sem skipaður er 29 mönnum og virðist ætla að dafna vel enda er hann af góðu kyni borinn. Stórgjafir voru barninu færðar af öðrum nærliggjandi klúbbum, sem við Höfðamenn þökkum sér- staklega, þó mest föður- og móðurklúbbnum á Sauðarkróki. Rúmlega 200 manns voru á þessari hátið, sem að öllu leyti fór vel fram. Auk matar og ræðu- halda voru flutt ýmis skemmtiat- riði, sem menn skemmtu sér við fram undir morgun. Veizlustjóri var Gisli Kristjánsson, oddviti á Hofsósi. Hér er nú orðið hvitt á ný niður í fjöru og frost og þvi heldur vetrarlegt um að litast. Björn Byggðasafn og lista- safn í Keflavík? KEFLAVlK hefur aila jafna haft á sér miður gott orð hvað viðvíkur máttarstoðum menn- ingarinnar, en aurarnir sem fást fyrir fiskinn þaðan hafa verið brúklegir, bæði hérlendis og erlendis. Það hefur verið skrifað á skuldareikning Keflavíkur og nágrennis, að nokkra her'ra úti i heimi langaði til að fara að stríða og fundu það út að hin örfoka holt og heiðar fyrir ofan Keflavik gæti verið góður leik- ur í þeirra tafli og þorpsbúum var gert það ljóst með byssu- stingjum að þeirra nærveru væri ekki óskað, þó flestri vin- semd væri haldið við þorsk- hausana og þeim látið skiljast að Miðnesheiðin og Háleitið væri komið í stríð. Vigvélar ultu suður um hinn mjóa veg og þáverandi litla höfnin fylltist af stórum flutn- ingaskipum, svo að litlu fiski- bátarnir komust vart að og áður ókunnur flugvéladynur fyllti loftið og margur horfði agndofa á þessi furðuverk og enginn vissi hvað við mundi taka, en flestir höfðu óljósa hugmynd um að þetta bramboit væri til þess gert að berja niður þjóð- ernisstefnu annars lands úti í heimi. Það gafst þvi lítill tími til að hugsa um eða framkvæma smá- vægileg hugðarefni eins og byggðasafn og listasafn og ann- að þess háttar. Þrátt fyrir allt hefur þessum málum miðað nokkuð áleiðis. Byggðasafnið er stofnað 17. júní 1944 af nokkrum áhuga- mönnum og var fyrsta byggða- safnsnefndin kosin af Ung- mennafélaginu, en hefur síðan smátt og smátt orðið ein af fastanefndum bæjarins, en vinnur sjálfstætt að sinum mál- um svo sem áður var. Munir og minjar eru á tæt- ingi til og frá, þó nú sé að Vatnsnesvitinn. Vitinn var byggður 1903, en var síðan stækkaður og sett f hann gasljós. komast betri skipan á, þakkað veri hinni miklu og höfðinglegu gjöf, sem safninu barst fyrir nokkru, þegar Bjarnfriður Sigurðardóttir, ekkja Jóhanns Guðnasonar á Vatnsnesi, gaf safninu óðal þeirra, Vatnsnes- ið, með húsakosti öllum og um- hverfi, til þess að þar mætti í framtiðinni verða aðsetur sjó- minja- og byggðasafns Kefla- víkur og Suðurnesja. Þetta er hinn ákjósanlegasti staður, miðsvæðis i bænum og miðsvæðis í byggðum Suður- nesja og nægjanlegt rými til viðbygginga, sem vafalaust verður þörf fyrir i framtiðinni. Nú þegar hefur verið hafizt handa um að flytja safnmuni á staðinn og unnið að því að koma þeim fyrir og vonir standa til að unnt verði að opna til sýningar á 31. afmælisdaginn, 17. júní n.k. Svo er það listasafnið. Kefla- víkurbær á nú allgóðan stofn listaverka og listmuna, sem eru ýmist geymdir í skápum eða til og frá í stofnunum bæjarins. Plássleysi eða sýningarhæf geymsia hefur verulega hamlað á móti aukningu á listmunaeign bæjarins, en úr því væri auð- velt að bæta með skálabygg- ingu við Vatnsneshúsið. Þetta, sem hér er sagt, kann að vera blandið óskhyggju, en þetta kemur fyrr en varir, þvi það er vilji alls þorra fólks, sem á skaganum býr, að þessi söfn komist upp sem fyrst. Helgi S.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.