Morgunblaðið - 11.04.1975, Page 15

Morgunblaðið - 11.04.1975, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRIL 1975 15 Rækjuveið- um lokið fyr- ir vestan RÆKJUAFLINN á Vestfjörðum varð 411 lestir í marz, en var 847 lestir á sama tima f fyrra. Er heildaraflinn frá áramótum þá orðinn 1.727 lestir, en var 1.924 lestir í lok marzmánaðar á síðasta ári. Rækjuvertið lauk nú um miðjan mánuðinn bæði við tsa- fjarðardjúp og Húnaflóa, en veið- ar eru stundaðar ennþá í Arnar- firði. Frá Bíldudal reru 14 bátar, sem öfluðu 84 lestir. Er aflinn frá ára- mótum þá orðinn 216 lestir, en var 257 lestir á sama tíma í fyrra. Aflahæstu bátarnir i marz voru Helgi Magnússon með 9,1 lest, Jó- dís 9,0 lestir og Höfrungur 8,3 lestir. Rækjan í Arnarfirði var yfirléitt stór og góð, 230—240 stk. í kg. • Við Isafjarðardjúp stunduðu 55 bátar rækjuveiðar í marz, en þá höfðu borizt á land um 250 lestir. Er aflinn frá áramótum þá 1116 lestir, en var 1.064 lestir á sama tíma í fyrra. Aflahæstu bátarnir í marz voru Örn með 8,2 lestir, Heppinn 7,5 lestir og Húni 7,5 lestir. Frá Hólmavík og Drangsnesi reru 13 bátar í marz og öfluðu 77 lestir, en í fyrra bárust þar á land 266 lestir fram til 24. marz. Aflinn frá áramótum á Hólmavík og Drangsnesi er þá 395 lestir, en var 603 lestir i fyrra. „Ærsladraugurinn” sýndur á Sæluviku Sauðárkróki, 7. apríl. 1 BYRJUN sæluviku s.l. sunnu- dag frumsýndi Leikfélag Sauðár- króks gamanleikinn „Ærsla- draugurinn" eftir Noel Coward. Leikstjóri er Kári Jónsson en leikmynd gerði Jónas Þór Páls- son. Húsfyllir var og leiknum ákaft fagnað. Það dylst engum sem horfir á þennan leik, að hér er um ósvik- inn gamanleik að ræða. Það sem vakti sérstaka athygli leikhús- gesta að þessu sinni var hin prýði- lega frammistaða nýliðanna, sem voru í meirihluta meðal leikenda og eru flestir í stærstu hlut- verkunum, og vissulega lofar það góðu um þróun leiklistarmála hér I framtiðinni. 1 dag er hér kalt veður, norðan strekkingur en ungviðin í sveit- um Skagafjarðar láta það ekki á sig fá, því nú streyma fólksflutn- ingabilarnir hver af öðrum til staðarins með skólabörn úr hin- um ýmsu skólum ásamt kennur- um til að taka þátt i sæluvikunni. —Jón. Ur Ærsladraugnum. Ljósm.. Stefán Pedersen ATLAS SUMARDEKK A GÖMLU VERÐI. kr. 600 — 1 2 m/hv. hring 5.357 F 78 — 14 m/hv. hring 6.886 G 78 — 1 4 m/hv hring 7.136 H 78 — 14 m/hv. hring 7.888 Atlas jeppadekk. kr F 78 — 15 m/hv. hring 8.200 G 78 — 15 m/hv. hring 8.635 H 78 — 15 m/hv. hring 9.101 700 — 15 — 6 strigal 10.370 650 — 16 — 6 strigal. 9.436 700 — 16 — 6 strigal 1 1.636 750 — 16 — 6 strigal. 14.346 Slétt sumardekk kr. 600 — 16 — 4 strigal. 4.766 650 — 16 — 6 strigal 5.735 Véladeild HJÓLBARÐAR Sambandsins ^ SroGaasoo Stjórn SUS: Lífríki Hvalfjarðar kann- að áður en samið verður MBL. hefur borizt eftirfarandi tillaga, sem samþykkt var á fundi stjórnar Sambands ungra sjálf- stæðismanna 2. apríl s.l.: I. Því hefur margoft verið lýst yfir af islenzkum stjórnvöldum á undanförnum árum, að ekki komi til greina að leyfa neinn þann verksmiðju- eða atvinnurekstur, sem hefði i för með sér háskalega mengun eða röskun á umhverfi. Þessar yfirlýsingar hafa verið ítrekaðar vegna samninga við Union Carbide. II. Jafnframt þvi sem stjórn S.U.S. lýsir yfir fyllsta trausti á þeim rannsóknum á mengunar- hættu járnblendiverksmiðju á Grundartanga sem þegar hafa verið gerðar af íslenzkum heil- brigðisyfirvöldum, hvetur stjórn S.U.S. til þess, að fram fari ná- kvæm rannsókn á því hvort fyrir- huguð járnblendiverksmiðja á Grundartanga raski um of lífríki Hvalfjarðar. III. Ljóst er, að slik rannsókn þarf að fara fram áður en tekin verður endanleg ákvörðun um verksmiðjurekstur á þessum stað. IV. Rannsókn á lifriki Hval- fjarðar, gerð að tekinni ákvörðun um verksmiðjurekstur og eftir að framkvæmdir hefjast er haldlítið yfirklór, nánast yfirlýsing um að ekki verði tekið mark á henni ef niðurstaðan er neikvæð fyrir verksmiðjureksturinn. V. Stjórn S.U.S. skorar á Al- þingi og ríkisstjórn og þá sérstak- lega iðnaðarráðherra og heil- brigðisráðherra, að veita ekki endanlegt samþykki til reksturs járnblendiverksmiðju á Grundar- tanga, fyrr en umrædd rannsókn á lífríki Hvalfjarðar hefur farið fram. Samband ísl. náttúru- verndarfélaga stofnað SAMBAND islenzkra náttúru- verndarfélaga var stofnað að Mógilsá i Mosfellssveit 23. marz s.I. Stofnaðilar sambandsins eru náttúruverndarsamtök landshlut- anna, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN), Náttúru- verndarsamtök Austurlands (NAUST) Náttúruverndarfélag Suðurlands, Náttúruverndarfélag Suðvesturlands og Náttúru- verndarsamtök Vesturlands, en Vestfirzk náttúruverndarsamtök hafa ekki tengzt sambandinu enn sem komið er. Innan landshlutasamtakanna eru nokkuð á annað þúsund félag- ar um allt land. 1 fréttatilkynningu hins ný- stofnaða sambands segir m.a.: „Markmið félaganna er vernd- un hins náttúrulega umhverfis, varðveizla lífrænna náttúruauð- linda og skynsamleg nýting þeirra í nútíð og framtíð. Leitazt er við að byggja starfsemina á hlutlaus- um rannsóknum og vísindalegri þekkingu.“ Forseti Landssambands is- lenzkra náttúruverndarfélaga var kjörinn Helgi Hallgrímsson á Vikurbakka i Eyjafirði, en aðrir stjórnarmenn eru Ásgeir Péturs- son, Borgarnesi, Hjörleifur Gutt- ormsson, Neskaupstað, Sólmund- ur Einarsson, Ytri-Njarðvík, og Stefán Bergmann, Reykjavík. Aðalstöðvar sambandsins verða fyrst um sinn á Akureyri, og hef- ur það fengið skrifstofuaðstöðu i Náttúrugripasafninu þar. HINN kunni sænski vísna- söngvari Olle Adolphson kemur til Reykjavikur föstudaginn 11. april í boði lslensk-sænska félags- ins og Norræna hússins. Hann kemur tvfvegis fram í Norræna húsinu, laugardaginn 12. april kl. 16.00 og mánudaginn 14. april kl. 20.30. Olle Adolpson er fæddur í Stokkhólmi 1934, sonur hins kunna leikara Edvin Adolphson. — Minning Sigríður Framhald af bls. 27 framhaldið og getur falið sig almættinu. Hún óx með starfinu og hún óx með þjáningunni. Þess vildi ég óska kennarastéttinni, aó hún ætti marga hennar líka. Þá væri hvert sæti vel skipað. Ég er þakklát fyrir að hafa starfað með henni í áratugi, átt vináttu hennar og tekið þátt i gleði hennar og sorgum. Hittumst heilar aftur —. Magnea Hjálmarsdóttir. Hann er þekktur fyrir visnasöng sinn um öll Norðurlönd. Olle Adolphson hefur samið fjölda laga í þjóðlagastil við eigin texta og annarra. Hann er auk þess ljóðskáld og rithöfundur og kunn- ur af fjölda útvarps- og sjónvarps- þátta. Aðgöngumiðar að vísnastund- um Olle Adolphson eru seldir i skrifstofu Norræna hússins. (Fréttatilkynning) Þekktur sænskur vísna- söngvari í Norræna húsinu Ný hljómplata meö Stuömönnum ERU STUÐMENN HINSEGIN? Hann: Ofsalega erádeilan bitur ínýju STUÐ-lögunum. Hún: Ég diggaþá IOOO sinnum meir en þig, plebbi! Lilli: Vá! Stina: Nei, STUÐ! Lögin heita: Gjugg I Borg og Draumar okkar beggja 0 AA-hljómplötur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.