Morgunblaðið - 11.04.1975, Page 25

Morgunblaðið - 11.04.1975, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRlL 1975 25 Kristín Ingvars- dóttir- Mumingarorð sem það er að horfa á eftir glæsi- legri konu hverfa okkur svo langt fyrir aldur frani. Hún var góð og elskuleg móðir, amma og tengda- móðir, sem sárt er saknað af ætt- ingjurn og vinum. En drottinn gaf og drottinn tók. Að leiðarlokum er gott að minnast góðrar konu, sem gekk sinn æviferil með glæsi- brag og þakklæti allra, scm henni kynntust. Er það mikil gæfa og guðsþakkarverl að við áttum hana og nutum samvista við hana og að lifið er okkur ríkara af þvi að hún var til. Guð styrki ástvini hennar alla og megi allt það góða, sem i henni bjó, lifa áfram i afkoni- endum hennar. Guð gefi að Island eignist marg- ar dætur henni likar. Með hinztu kveöju og miklu þakklæti. Elisabet Thors. Það er skammt stórra högga á milli á heintilinu að Viðimel 27. Fyrir rúmu ári andaðist húsbónd- inn þar, Einar Baldvin Guð- mundsson, og nú ári síðai hús- móðirin, Kristin Ingvarsdóttir, eftir langa og erfiða sjúkdóms- legu. Maður á oft erfitt með að skilja þetta lif hér á jörðu, en eflaust hefur það allt sinn tilgang. Við, sem erunt komín á efri ár, verðum að venjast þvi að sjá á bak ástvin- um og samferðamönnum fyrr en við hefðum viljað. Kristin vin- kona min hefur kvatt þennan heim og hefur nú örugglega hitt ástvin sinn handan móðunnar miklu. Kristín var dóttir hjón- anna Ingvars Pálssonar, kaup- manns, og konu hans Jóhönnu Jósafatsdóttur, sem voru hin mestu merkis- og ágætishjón. Systkinin voru tvö, Axel, sem dö i blóma lífsins, og svo Kristin. Auk þess ólu þau upp fóstudóttur, Unni Hall. sem var eins og ein af systkinunum. Kidda, eins og hún var kölluð af vinum sínum, ólst upp á elskulegu heimíli, umvafi ástríki foreldra sinna. Hún hlaut menntun sina bæði hér heinta og erlendis. Við Kidda höfum verið vinkonur frá því við vorum smá- telpur, enda var ekki langt á milli heimila okkar, hún uppalin á Hverfisgötunni og ég á Bergsstöð- um og fjarlægðir minni i Reykja- vík þá en nú. Þegar ég minnist Kristinar sækja fram i hugann svo margar minningar, að erfitt yrði að festa þær allar á blað, og fæstar þeirra mundu komast til skila, enda er það ekki ætlunin með þessum fá- tæklegu kveðjuorðum að bera þau á torg, ég minnist góðrar vin- konu með söknuði og þakklæti. Kristin var mikil gæfukona í einkalífi sínu. Hún giftist þ. 1. nóv. 1929 Einari Baldvin Guð- mundssyni, hæstaréttarlögmanni, miklurn ágætismanni, var hjóna- band þeirra alla tió sérstaklega hamingjusamt. Eg minnist þess þegar þau trúlofuðust (ég var þá við nám út í Þýzkalandi), að hún skrifaði mér og sagði, að nú væri hún trúlofuð og sagði jafnframt að Einar væri sá eini og að aldrei yrði annar maður í hennar lifi. Það voru orð að sönnu. Þau hjón eignuðust þrjú börn, Axel hæstaréttariögmann kvænt- an Unni Óskarsdóttur, Jóhönnu Jórunni, gifta Olafi B. Thors borgarráðsmanni, og Kristínu Klöru gifta Arna Indrióasyni, sem lokið hefur B.A prófi í þjóðfélags- fræði og sögu. Allt er þetta mesta efnis- og ágætisfólk, eins og þau eiga kyn til. Kristín helgaði alla starfskrafta sína heimilinu, hún breiddi með ástriki sinu yfir vel- feró eiginmanns sins og barna. Hún var meö afbrigðum myndar- leg húsmóðir, enda bar hið fagra heimili hennar og Einars vott um það. Gestrisni sat þar i fyrirrúmi alla tíð og voru þau mjög samhent i þvi að taka á móti vinum og ættingjum af mikilli rausn og elsku. Þær eru ótaldar allar þær ánægjustundir, sem maðurinn minn og ég áttum á heimili Einars og Kiddu allt frá fyrstu tið, og ég veit að ég mæli fyrir munn ótal margra vina og ættingja. Starf Einars var umsvifamikið og oft erfitt, sem að likum lætur, svo mörgurn og mikilvægum störf- um, sem hann hafði að sinna, en eitt vét ég, svo náinn sem kunn- ingsskapur okkar Kristinar var, aó hún var ómetanleg stoð og stytta fyrir mann sinn í einu og öllu, enda mat Einar hana mikils og virti alla tíó. Nú að leiðarlokum þakka ég ykkur, elskulegu vinir, Kidda og Einar, alla ykkar vináttu og tryggð. Eg sendi ykkur börnum þeirra og öðrum ættingjum inni- legar samúðarkveðjur. Megi minningin um yndislega og góða foreldra vera ykkur huggun i harmi. Sigþrúður Guðjónsdóttir. Það er efitt að sætta sig við það, að Kristín tengdamamma skuli, vera horfin frá okkur fyrir fullt og fast. Hún, sent skipaði svo mikið rúm i hugum okkar allra, sem umgengumst hana hvort heldur það voru hennar nánustu eóa aórir óskyldari. Mannkostir Kristinar og eðlisfar allt voru nteð þeim hætti, að ómögulegt er að reyna að lýsa nteð oröum. Þess háttar verður aðeins upplifað i samskiptum. Eg tel mig lánsaman aó hafa kynnst henni þekkt hana og umgengist. En það er mitt lán- leysi hvað það stóð stuttan tinia. Hún er nú horfin frá okkur. Hún, sem hugsaði svo vel urn sitt fólk og gerði svo mikið fyrir okkur öll. Það var kaldhæóni örlaganna, aö þegar Kristin veiktist skyldum vió ekkert geta l'yrir liana gert að gagni. En minningin verður ekki frá okkur tekin. Hún ntun lifa með okkur hrein og skýr alla tið. Árni. Fædd 10. febr. 1908. Dáin 4. apríl 1975. Þegar ég nú kveð Kristinu Ingvarsdóttur frænku mina hinstu kveðju þyrpast minning- arnar að og allar eru þær ijúfar. Sjö ára gömul stend ég á tröppum á stóru húsi og held i hönd móður minnar. Yfir mér hvilir mikil sorg, faðir minn er nýdáinn. Eg var eina barnió hans og hefði kannski þess vegna tengst honum sterkari böndum en ef ég hefði alist upp i stystkinahópi. I þessu húsi býr góður frændi minn. Hann hafði boðið móður minni að koma og dvelja á heimili sínu á meðan hún væri að átta sig á breyttum högum. Þessi frændi minn á líka einkadóttur. Hún stendur í dyrunum og móðir mín segir. „Þetta er hún Kidda frænka þín." Eg hafði aldrei séð svona fallega stúlku, lifsgleði hennar og gáski sviptu burt öllu angri lítillar stúlku og hún leiddi mig inn i þetta hlýja og ástúðlega hús. Það tókst með okkur sú vin- átta sem hefur haldist fölskvalaus siðan. I dag verður hún borin til grafar. Kristin var fædd i Reykjavik þann 10. febrúar 1908 dóttir þeirra sæmdarhjóna Jóhönnu Jósafatsdóttur frá Holtastöðum i Langadal og Ingvars Pálssonar frá Eyrarbakka Andréssonar frá Langholti í Hrunamannahrepp. Ingvar rak lengi umfangsmikla verslun að Hverfisgötu 49 hér i bæ og í þvi húsi bjó hann ásamt fjölskyldu sinni. Auk Kristinar eignuðust þau hjón einn son, Axel, en urðu fyrir þeirri sáru sorg að missa þann mikla efnis- mann rúmlega tvítugan. Auk barna sinna tveggja ólu þau upp frænku Jóhönnu, Unni Kristjáns- dóttur, frá 5 ára aldri. Á æskuheimili Kristínar ríkti fagurt mannlif i þess orðs fyllstu merkingu. Móðuramma hennar hún Kristín frá Holtastöðum var hússins góði andi sem gaf unga fólkinu heilræði og á þau heilræði var hlustað. Þar var ekkert kyn- slóðabil, engin unglingavanda- mál. Ekki minnist ég heldur neinnar máltíðar í stóru borðstof- unni svo að fleiri eða færri menn að austan sætu ekki þar til borðs. Þar var rætt um lifið og tilveruna af smitandi glaðværó og án allrar undirhyggju. Þetta umhverfi og þeir uppeldishættir sem Kristin naut á þessu mannkostaheimili mótuðu vióhorf hennar til lífsins og fylgdu henni alla ævi. Hún hlaut ágæta menntun á þeirra tima mælikvarða. Fór ung i Kvennaskólann i Reykjavik og siðan á hússtjórnarskóla i Dan- ntörku. Þann 1. nóvember árið 1929 giftist hún Einari Baldvin Guðmundssyni frá Hraunum i Fljótum, sem hafði þá nýlokió lög- fræöiprófi. Það var rnikill gleði- dagur. Einar var afar efnilegur ungur maður, glæsilegur i sjón og raun. Segja má að mikið jafnræði væri með þeim Einari og Kristínu og sambúð þeirra í rúm 40 ár varð sííelldur sólardagur. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í sfðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. Börn þeirra urðu þrjú, Axel, hæstaréttarlögmaður, kvæntur Unni Öskarsdóttur, Jóhanna Jór- unn kennari, gift Ölafi B, Thors og Kristín Klara meinatæknir, gift Árna Indriðasyni, sem stund- ar nám í þjóðfélagsfræði. Heimili þeirra hjóna var rómað fyrir myndar- og glæsibrag, enda fór þar saman gagnkvæm virðing þeirra hvort fyrir öðru og skiln- ingur á þvi mannlega í fari hvers einstaklings. Velgengni þessara hjóna á veraldlega visu var meiri en almennt gerist, en það var líka margt fleira sem stuðlaði að lifs- hamingju þeirra, það var heiðar- leiki og virðing fyrir starfinu bæði á heimilinu og utan þess, það var virðing fyrir lifinu sjálfu. Einstök rækt var lögð við uppeldi barnanna, enda uppskáru þau laun þeirrar umhyggju. Börn þeirra eru öll framúrskarandi mannkostafólk, sem bera foreldr- um sínum fagurt vitni. Kristin er ógleymanleg kona, hún var ákaflega glaðlynd og bar með sér hressandi blæ og lifsgleði hvar sem hún fór. Hún var með afbrigðum gestrisin og tók á móti vinum sinum með glæsibrag. Hinn stóri vinahópur þeirra hjóna minnist nú margra stunda að Víðimel 27, þar sem glaðst var á góðri stund. Það var að vísu alltaf veisla við hennar boró þvi öllum sem að garði bar var fagnað eins og langþráðum vinum. Nú að leiðarlokum minnist ég margra hugljúfra samverustunda, sem við áttum einar saman. Þá bar margt á góma. Kristín hafði mjög ákveðnar skoðanir á mönn- um og málefnum. Hún var skarp- greind og hafði rika réttlætis- kennd. Okkur greindi að visu á um margt og vorum ekki alltaf sam- mála, en það var eins og við yrð- unt betri vinir og tengdari hvor annarri eftir að hafa skipst ræki- lega á skoóunum urn vandantál liðandi stundar. Það er stundum sagt að það sé vandi að láta ekki fátæktina smækka sig, en það er sjálfsagt ekki minni vandi, i ver- aldlegri velgengni, að missa ekki sjónar á þvi sem er mikilvægasl i lifinu, þeim auðæfum sem hvorki mölur né ryð fá grandað, en það hygg ég að henni frænku minni hafi lánast öðrum betur. Fyrir rétt rúmu ári siðan lést Einar Baldvin skyndilega. Þá hafði Kristin tekið þann sjúkdóm, sem nú heíur leitt hana til dauða. Sá sálarstyrkur og kjarkur sem hún sýndi vió lát rnanns sins eins og þá var ástatt fyrir henni var að- dáunarverður og i hennar eríiðu veikindum sá ég það best, að hvar sent örlögin hefðu skipað henni sess í lifinu, hefði hún alltaf kunnað að bregðast við vandamál- unum af kjarki og manndómi. Þegar við nú vottum börnum hennar okkar innilegustu hlut- tekningu, sjáum vió i þeim þá mannkosti, sem við máturn mest í fari foreldra þeirra, sent ntunu gera þeim kleyft að mæta þessum F. 15.2. 1897. D. 28.3. 1975. Hér féll grein af góðum stofni, grisjaði dauðinn meir en nóg. Þegar ég renni huganum aftur rifjast upp allar þær ógleyman- legu stundir sem ég átti heima hjá ömmu minni Rannveigu Bjarna- dóttur, hún var dóttir Bjarna Jónssonar og konu hans Sigríðar Þorvarðardóttur frá Mörk og var hún í hópi 15 systkina. Aðeins 5 ára gömul fór hún frá foreldrum og systkinum í fóstur að Fossi á Síðu til Höllu Lárusdóttur sem þá var orðin ekkja. Oft talaði hún um þungu áföllum með sálarró og kjarki. En lífð leggur likn meó þraut. Þau eiga óþrotlegan sjóð minn- inga, minninga um elskulega for- eldra, um yndislegt heimili. I þennan sjóó minninga ntunu þau sækja styrk og huggun á ókomn- um árum. Ester Kláusdóttir. Með frál'alli Einars Baldvins Guðmundssonar, hæstaréttarlög- manns og stjórnarformanns Eim- skipafélags Islands, fyrir rúmlega einu ári og frú Kristinar Ingvars- dóttur, eiginkonu hans, sem lögð verður til hinztu hvilu i dag, eru horfin af sjónarsviðinu míkil merkishjón. Einar Baldvin, ein- stakur öðlingur, vitur og góógjarn og frú Kristín, ráðholl, greind og fyrirmyndar húsmóðir. Þeir fjöl- mörgu, sem kynntust þessum hjónum, munu ávallt minnast þeirra með virðingu og hlýhug, enda var hollt til þeirra að leita og heimilið rómað fyrir gestrisni og myndarbrag. Frú Kristin var glæsileg kona, sem vakti athygli hvar sem hún fór. Hún hafði mikinn áhuga á hinum margþættu störfum eigin- manns sins og á þjóðmálum yfir- leitt. Hún bjó nianni sínum og börnum friðsælt og fagurt heimili, sem stóð ætið opið vinum og venzlafólki. Þangað var gott heim að sækja. Elskulegt viðmót og hjartahlýja brást aldrei. Hlutverk móðurinnar og hús- móðurinnar er að viturra manna áliti vandasamast og mikilvægast allra starfa innan samfélagsins. Því hlutverki brást frú Kristín aldrei. Hún var sönn móðir og húsmóðir svo sem bezt má vera. Að leiðarlokum flyt ég frú Kristinu þakklæti mitt og fjöl- skyldu minnar fyrir órofa tryggð og einlæga vináttu. Otlarr Möller. Kristín Ingvarsdóttir, Kidda, eins og hún var kölluó af vinum sínum, andaðist þann 4. þ.m. eftir langvarandi veikindi. Við þekkt- umst i æsku og vissum hvor af annarri þólt leiðir lægju ekki beinlínis saman. En forlögin tengdu okkur siðar nýjum bönd- um, þegar sonur minn kvæntist eldri dóttur þeirra Einars Bald- vins og Kiddu. Hann var aðeins rúmlega árs gamall, þegar faðir hans lézt og alla tíð síðan átti ég þá ósk heitasta að hann mætti eignast góðan og traustan tengda- föður. Þessi ósk ntin rættist. Einar Baldvin Guðmundsson var einn þeirra manna, sem ég heí metið mest og bezt af öllum ntönn- um og hann reyndist syni minum það traust og hald, sem hann hafði farið á mis við við föður- missinn. Það lán fæ ég aldrei full- þakkað. En sonur minn fékk ekki aðeins góóan tengdaföóur heldur lika frábæra tengdamóður. Þess vegna er hugur ntinn nú fullur þakklæti fyrir aó hafa eignazt þessi yndislegu hjón að nánu tengdafólki. Kidda var mikil kona og um þaó geta allir ættingjar hennar og vinir borió vitni. Við fráfall hennar, sem, eins og máttarvöldin höguðu þvi, var í raun og veru kærkomin hvild, er mér efst i huga sá mikli söknuður, hve hún hefði verið heppin að lenda á svo góðu heimili og i eins góðum höndum og fóstra hennar reyndist henni og allt fram á þann dag er hún féll frá. Hún flyst til Reykjavíkur 17 ára að aldri. Árið 1921 þann 26. febrúar var mikill hamingjudagur í lífi henn- ar, þá giftist hún Ásmundi Svan- berg Jónssyni frá Stiflisdal 'Þing- vallasveit og reyndist hann henni góður lifsförunautur allt fram til dauðadags en hann lést i júni 1951, og tók hún það mjög nærri sér og var það skarð ekki fyllt á heimilinu. Þau eignuðust 5 mannvænlega dugnaðarsyni en þeir eru Jón Reykjalin kvæntur Sigrúnu Þórðardóttur og eiga þau einn son, Björn Reykjalin kvæntur Fannlaugu Ingimundardóttur og eiga þau tvo syni, Reynir Reykja- lín kvæntur Elisabetu Brynjólfs- dóttur og eiga þau fjögur börn, Hilmar Svanberg kvæntur Sól- veigu Einarsdóttur og eiga þau fjóra syni og Sigurður Sævar kvæntur Þorgerði Oddsdóttur og eiga þau einn son en Sigurður á tvö börn frá fyrra hjónabandi. Allir reyndust synirnir henm vel á lifsleiðinni. Ég bið ömmu að fyrirgefa mér þessi fátæklegu kveðjuorð. Hún er kornin yfir móðuna rniklu, en þar hittumst við öll þegar áfanganum hér niðri er lokið og ég veil að heimkoman er henni Ijúf. Blessuð sé minning hennar. Jóhannes Reynisson Rannveig Bjarna- dóttir—Minning

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.