Morgunblaðið - 11.04.1975, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1975
Sigfiús
Jónsson
SIGFÚS Jónsson, hlaupari úr ÍR,
sem dvelur við nám í Durham-
háskólanum i Bretlandi, tók þátt í
10 mílna götuhlaupi á annan dag
páska, og var hlaupið milli borg-
anna Billingham og Hartlepool,
sem eru í næsta nágrenni Dur-
ham. Varð Sigfús sjötti í hlaupinu
á 53,20 mín., og svarar sá tími til
18 kílómetra í klukkustundar
hlaupi og 66,40 mínútna í 20 km
hlaupi. Er þetta prýðilegur árang-
ur hjá Sigfúsi og ætti hann að
geta ráðið við met Halldórs Guð-
björnssonar í klukkustundar-
hlaupi (17,3 km.) og i 20 km
hlaupi (1 klst og 10 min ), ef
hann gerði atlögu að þeim.
Nokkrir íslenzkir frjálsíþrótta-
menn dvelja um þessar mundir
við æfingar í Durham og hafa þeir
verið einstaklega óheppnir með
veður, þar sem megin hluta tíma
þess er þeir hafa verið ytra hefur
verið kuldi og snjókoma. Eigi að
síður hafa þeir verið mjög dugleg-
ir við æfingarnar og æft tvisvar til
þrisvar á hverjum degi. Nýlega
tóku þeir Sigfús Jónsson, Jón
Diðriksson og Gunnar Snorrason
þátt i 4x4 km götuboðhlaupi í
nágrenni Durham og fengu þeir
til liðs við sig Norðmann frá fé-
laginu Gular i Bergen. Sá er ekki
langhlaupari, og var sveitin þvi
ekki í fremstu röð. Sigfús hljóp
fyrsta sprettinn fyrir sveitina og
kom inn í fjórða sæti. Jón Dið-
riksson tók siðan við og þegar
hann skilaði til Norðmannsins var
sveitin i sjötta sæti. Þegar Norð-
maðurinn hafði lokið sínum
spretti var sveitin hins vegar
komin niður i 17. sæti, en Gunn-
ari Snorrasyni tókst að þoka
henni svolítið upp á við á loka-
sprettinum, eða í 13. sæti.
Eins og Mbl. skýrði frá i gær,
meiddist Ágúst Ásgeirsson ný-
lega á æfingu. Þegar haft var
samband við hann í gær, sagðist
hann vera á batavegi — farinn að
hlaupa svolítið aftur, og kvaðst
hann mundu koma heim og taka
þátt í Viðavangshlaupi ÍR, þótt
ekki gerði hann sér miklar vonir
um að verða þar fyrstur. Ágúst
var á förum í námsferð til Möltu,
er við ræddum við hann.
Foremann
BANDARÍSKI hnefaleikarinn George
Foremann, sem tapaði heimsmeist-
aratitlinum i þungavigtarhnefaleik-
um til Muhammads Ali í hinum sögu-
fræga leik sem fram fór í Zaire,
heldur því nú fram, að sér hafi verið
byrlað eitur fyrir leikinn, og það sé
skýringin á því hvernig fór fyrir hon-
um. Foremann segir að Ali muni
hvergi hafa komið þarna nærri, en
vist sé að einhver ólyfjan hafi verið i
matnum er hann neytti fyrir keppn-
ina, og hann hafi verið gjörsamlega
búinn eftir tvær lotur. Framvegis
muni hann hafa með sér lífverði er
bragði allan mat áður en hann neyti
hans.
Þrír nýir
í 2. flokk
UM HELGINA fór fram punktamót í
borðtennis og á því náðu þrír borð-
tennismenn þvi marki að færast upp
í 2. flokk, en eins og áður hefur verið
frá sagt í Morgunblaðinu hafði einn
borðtennismaður, Gunnar Finn-
björnsson, áður náð því takmarki.
Þeir sem nú eru i öðrum flokki eru
Jón Sigurðsson, UMFK sem hefur
hlotið samtals 42 punkta, Gunnar
Finnbjörnsson, sem er með 36
punkta, og Björgvin Jóhannesson,
Gerplu, sem er með 33 punkta og
Ragnar Ragnarsson, Erninum, sem
hlotið hefur 30 punkta, en til þess að
vera gjaldgengur í 2. flokki þurfa
borðtennismenn að hafa hlotið
a.m.k. 30 stig í punktamótum Borð-
tennissambandsins.
Bikarkeppni SR
Á LAUGARDAG fer fram síðasta keppnin í
bikarkeppni Skíðafélags Reykjavíkur fyrir
unglinga á þessum vetri. A keppni að hefjast
kl. 14.00, en keppnisstaður verður auglýstur í
útvarpi á föstudagskvöld. Mótsstjóri verður
Jónas Ásgeirsson en Haraldur Pálsson
verður brautarstjóri.
Keppendur í mótinu verða um 100 talsins
frá Val, Vfking, (R, KR og Ármanni og er
keppt um veglega silfurbikara sem Verzl-
unin Sportval gaf til keppninnar.
Upplýsingar um mótið er að fá hjá Ellen
Sighvatsson fsíma 12371.
Slfk tök sem þessi eiga betur heima f fjölbragðagffmu en f handknattleik. Það er Ölafur Einarsson sem
stöðvar Sigurgeir Marteinsson á svo grófan hátt f leik FH og Hauka f bikarkeppninni f fyrrakvöid.
Sigurgeir slapp við meiðsli og Ölafur við útafrekstur, en FH fékk hins vegar dæmt á sig vítakast. Geir,
Arnór og Kristján horfa á átökin.
FH í úrslit bikarkeppni HSÍ
eftir 23-20 sigur yfír Haukum
ÞAÐ VERÐA FH-ingar sem mæta
Fram í úrslitaleik bikarkeppni
HSl í handknattleik. t fyrrakvöld
léku í undanúrslitunum FH og
Haukar og lauk þeim leik með
sigri FH 23—20, eftir mikla
baráttu. Ekki er ákveðið hvenær
úrslitaleikurinn fer fram, en það
mun verða alveg á næstunni.
Leikur FH og Hauka í fyrra-
kvöld var hinn skemmtilegasti og
mikill baráttuleikur, eins og jafn
an þegar þessi nágrannalið
mætast. Öðru hverju sýndu liðin
ágætan handknattleik — jafnvel
það bezta sem þessi vertíð hefur
boðið upp á, og var þar fyrst og
fremst um að ræða fyrsta stundar-
fjórðung leiksins. Miklar svipt-
ingar urðu i leiknum, og um tima
virtist svo sem FH-ingar myndu
vinna yfirburðasigur, er staðan
var orðin 18—10 þeim i vil, og
voru áhangendur liðsins þá farnir
að heimta 10 marka sigur. En
Haukunum tókst heldur betur að
snúa leiknum sér i hag, og undir
iokin var komin gífurleg spenna
— spenna sem hvorugt liðið virt-
ist þola, og fóru þá mörg(jafnvel
opin tækifæri i súginn.
Leikurinn hélzt í jafnvægi
fyrstu 15 mínúturnar, og var bar-
áttan þá i hámarki. Varnirnar
léku nokkuð og voru á mikilli
hreyfingu, þannig að tækifærin
sem sóknarleíkmennirnir fengu
voru ekki mörg. Eftir þennan
fyrsta hluta leiksins var staðan
5—4 fyrir FH, en þá var sem
nokkurt los kæmist á Haukaiiðið
og Ölafur Einarsson fékk næöi til
þess að stökkva þrivegis upp og
skora. Þar með var örugg FH-
forysta komin i leikinn og var
staðan 13—10 í hálfleik. FH-ingar
skoruðu síðan fimm fyrstu mörk-
in i seinni hálfleik og virtust vera
með gjörunninn leik á hendinni.
Allan leikinn höfðu Haukarnir
tekið Geir Hallsteinsson stíft úr
umferð, og þegar staðan var orðin
18—10 brugðu þeir á það ráð að
taka Ólaf Einarsson einnig úr um-
ferð, með þeim árangri, að fljót-
lega tóku þeir að saxa verulega á
forskot FH-inganna, og þegar tíu
mínútur voru til leiksloka var
staðan orðin 21—18 fyrir FH og
allt orðið á suðumarki meðal
áhorfenda í Iþróttahúsinu í Hafn-
arfirði. En Haukarnir náðu ekki
að fylgja þessum góða kafla sin-
um eftir. Þeim tókst að visu að
gera FH-inga algjörlega óvirka í
sóknarleik sinum, en tækifærin
sem þeir fengu á móti nýttust
ekki, og meira að segja ekki
hraðaupphlaup sem þeir fengu.
Atti Birgir Finnbogason, mark-
vörður FH, ekki litinn þátt i að
stöðva sókn Haukanna, en seinni
hluta hálfleiksins sýndi Birgir
það bezta sem hann hefur sýnt i
langan tíma og varði oft með
miklum ágætum.
Þegar skammt var til leiksloka
skoraði Kristján Stefánsson 22.
mark FH-inga, en Hörður Sig-
marsson svaraði fljótlega með
tveimur mörkum, þannig að
staðan varð 22—20. Geir
Hallsteinsson skoraði svo síðasta
mark þessa spennandi leiks og
innsiglaði FH-sigurinn.
Sem fyrr greinir sýndu liðin á
köflum ágætan handknattleik,
þar sem knötturinn var látinn
ganga vel án niðurstungna og
mikil ógnun var í sóknarleiknum.
A þetta þó fremur við um FH
liðið, en furðulegt var hversu
liðið brotnaði eftir að Ólafur og
Geir voru báðir teknir úr umferð.
Var augljóst, að FH-ingar áttu
von á þvi að Geir yrði tekinn, og
átti Ólafur þar með að taka við
aóalhlutverkinu, svo sem hann
gerði, þangað til Haukar sendu
mann á hann.
Beztu menn FH-liðsins í þessum
leik voru þeir Birgir Finnbogason
sem varði markið mjög vel, Geir
Hallsteinsson sem greinilega er í
sínu bezta formi og sýndi hann oft
gifurlega leikni með knöttinn i
leiknum, þótt tækifærin sem
hann fékk væru ekki mörg vegna
hinnár ströngu gæzlu. Ólafur
Einarsson átti einnig góðan leik,
meðan hann fékk að leika lausum
hala og Kristján Stefánsson kom
vel út bæði i vörn og sókn.
Bezti maður Haukaliðsins i
leiknum var Elias Jónasson.
Sennilega hefur enginn hand-
knattleiksmaður blómstrað jafn-
mikið i vetur og Elias hefur gert.
Hann hefur góðan hraóa og skilar
knettinum mjög vel frá sér, hvort
sem um er að ræða sendingar
fyrir utan eða inn á linuna, sem
hann horfir jafnan vel á, og nýtir
möguleika sem þar gefast. Stefán
Jónsson sýndi einnig mikið harð-
fylgi í þessum leik, en marka-
kóngurinn, Hörður Sigmarsson,
var hins vegar með daufasta móti,
enda oftast gengið í hann í tíma.
Mörk FH: Ólafur Einarsson 7,
Geir Hallsteinsson 4, Árni Guð-
jónsson 4, Kristján Stefánsson 3,
Gunnar Einarsson 3, Gils Stefáns-
son 1, Guðmundur Árni Stefáns-
son 1.
Mörk Hauka: Elías Jónasson 7,
Hörður Sigmarsson 5, Stefán
Jónsson 4, Svavar Geirsson 2,
Hilmar Knútsson 1, Ólafur Ólafs-
son 1.
— stjl.
Stjarnan og
Haukar unnu
1 FYRRAKVÖLD fóru fram tveir
leikir í bikarkeppni 2, flokks i
handknattleik i Iþróttahúsinu i
Hafnarfirði. I fyrri leiknum
mættust FH og Stjarnan og var
þar um jafna baráttu að ræða.
Var staðan 12—12 að venjulegum
leiktima loknum, og þurfti þvi að
framlengja leikinn í 2x5
mínútur. I framlengingunni var
Stjarnan sterkari aðilinn og sigr-
aði í leiknum 15—13.
Síðan léku Haukar og Fylkir og
sigruðu Haukarnir í þeim leik
24—16. Sýndi Haukaliðið ágætan
handknattleik og eru margir
efnispiltar þar á ferðinni, en liðið
er í úrslitum íslandsmótsins, og
fer sú keppni fram á Akureyri um
næstu helgi.
Ut af með þig... Hannes Þ. Sigurðsson, visar markakóngnum Herði
Sigmarssyni af velli í leiknum i fyrrakvöld, og er engu líkara en
Gunnar Einarsson markvörður Haukanna ætli að fylgja félaga sfnum.
(Ljósm. Mbl. Friðþjófur.)