Morgunblaðið - 01.05.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAl 1975
7
Maí — '75
Að leikslokum I Laxá I Kjós.
A8 þessu sinni ætlum vi8 a8
bregSa á dálitinn leik I þættinum
og gefa veiSimönnum eitthvaS til
ao hugsa og tala um þá fáu daga.
sem eftir eru þar til veiSitiminn
hefst þann 20. þessa mánaSar. A8
vísu má ekki byrja stangveiði fyrr
en 1. júnl, en segja má að vertiðin
byrji formlega, er veiðibændur
leggja net sln í fyrsta sinn aðfarar-
nótt 20. og þá fara að heyrast
auglýsingar um glænýjan lax á
boðstólum I búðum og á veitinga-
stöðum og vlst er að margir gera
sér dagamun með þvi ao leggja
sér þá kóngafæðu til munns.
Kenningarnar um hvenær og
hvernig bezt sé að renna fyrir
vatnafiskana eru örugglega jafn-
margar og veiðimenn eru, ef ekki
fleiri, því að fæstir láta sér nægja
að búa til eina kenningu, byggða á
óyggjandi staðreyndum um
hvernig þeir fengu hvern fiskinn á
fætur öðrum, meðan menn allt I
kring urðu ekki varir. Slikir hlutir
eru stór þáttur I gleði okkar veiði-
manna, að tala um reynsluna,
segja sögur og hlusta á sögur og
búa til hið pottþétta ráð til ao
fá'ann til að taka. Og hver getur
ekki unnt manni að fá að lifa i
þeirri trú að lausnin sé fundin,
aðferöin óbrig^ul.
Undirritaður hlaut sína fyrstu
eldskirn i Laxá i Aðaldal, þar sem
ég hef veitt á hverju sumri undan-
farin 10 ár og þar fæ ég mina
mestu og sönnustu ánægju út úr
veiðiskapnum.
Laxá er liklega ein erfiðasta áin
hér á landi til veiða og möguleikar
laxins til að sleppa mun meiri en
viðast annarsstaðar. Það tekur
veiðimenn mörg ár að læra á ána
og veiðistaðina og þær hættur,
sem ber að varast og þvi er að
maður gleypir gjarnan allt, sem er
sagt um hina fjölmörgu veiðistaði,
til að reyna i næsta sinn, jafnframt
þvi, sem maður vinnur að þvi að
koma sér upp sinni eigin óbrigðulu
aðferð. Til gamans ætla ég að
segja hér frá einni slikri sem ég
var búinn að finna út varðandi
veiðar i Stórafossi, sem er stærsti
fossinn i Æðarfossum i Laxá.
Stórifoss er feiknalega straum-
harður og erfitt að hemja færið i
honum og menn eru ekki á einu
máli um hvort laxinn hafi það að
ganga upp hann. Um árabil hafði
ég reynt að ná úr honum laxi, en
aldrei tekizt, þrátt fyrir miklar og
fjölbreyttar tilraunir, þar til allt i
einu, er ég slæmdi færinu með
þremur sökkum af þyngstu gerð á
ákveðinn stað i fossinum, að hann
var á. Loksins, loksins, lausnin var
fundin, þvi að ég hafði fylgzt
nákvæmlega með hvernig straum-
urinn bar færið um iðuna. f stuttu
máli, ég fékk þarna 5 laxa I beit og
þótt ég reyndi að sýna veiðifélaga
mínum nákvæmlega hvernig ég
færi að, varð hann ekki var. Upp
frá þeim tima fór ég aldrei svo í
fossinn, að hann gæfi mér ekki
1—2 fiska og ég var orðinn fjári
drjúgur með sjálfan mig. Svo rann
upp veiðitiminn sl. sumar. Ég var
búinn að renna í fossinn án afláts i
heila klukkustund, sem var alveg
krakandi af laxi, án þess að ég
fengi svo mikið sem högg. nema
þegar laxarnir skutust undan lin-
unni. Þá ákvað ég að taka mér
hvíldi og brjóta málið til mergjar
meðan félagi minn reyndi. Hann
kom sér fyrir og kastaði sökku-
lausu færi út i fossinn með smá-
maðki á og ég brosti góðlátlega
með sjálfum mér. Það bros stirðn-
aði þó fljótlega, þvi að ég held að
færið hafi ekki náð að snerta
vatnsflötinn, þegar 14 punda
fiskur var kominn á. Ég reyndi
ekki meira við fossinn þann
daginn. Ég fékk að visu fisk
seinna um haustið, en það var
ekki sami Ijóminn yfir honum, þvi
að það lá fyrir að aðferð min var
ekki lengur óbrigðul.
Þetta er nú oroinn nokkuð lang-
ur inngangur að efni þessa þáttar,
sem er dagatalið, sem hér fylgir
og tekið er upp úr bók ABU-
verksmiðjanna. Tight Lines.
Höfundur þess telur sig hafa sann-
prófað svo ekki þurfi að efast, að
veiðimöguleikarnir séu eins og
sýnt er á dagatalinu. Ekki viljum
við tryggja ao svo sé og biðjum
menn að hafa svolitinn fyrirvara á,
áður en þeir fara að skipuleggja
sumarveiðina eftir þessum
dögum, en svo er aldrei að vita
nema hér sé farið með rétt mál og
þvi ekki úr vegi að velta þessu
fyrir sér. Krossarnir á dagatalinu
sýna hvenær stórstreymi er hér á
landi. Dekkstu fiskamerkin sýna
þá daga, sem veiðivon er bezt,
grástrikuðu merkin þýða að veiði-
von er góð, en óstrikuðu merkin
að veiðivon sé sæmileg.
Um óbrigðular kenn-
ingar veiðimanna
M T w T F S s
1 2 3 4
PO ÞO ÞC=> b<z>
5 6 7 8 9 10 11
ÞO PO PO bc=» NÞ MSÞ
pt, 13 14 15 16 17 18
<£» M»
19 20 21 22 23 24 25
þo t>CZ> M=» 4 to ►KSV M»Þ
X 27 28 29 30 31
txz>
Jún í — '75
M T w T F S S
1 ÞO
2 3 4 5 6 7 8
ÞO PO DCZ> t>o KZ»
9 10 >< 12 13 14 15
M»Þ
16 17 18 19 20 21 22
KZ> cxr> ÞO PO txz> PO
23 25 26 27 28 29
ÞO
30
K=>
Júlí — '75
M T w T F S s
1 2 3 4 5 6
ÞO OO PO cx=> tK=> lx=>
7 8 9 10 X 12 13
PO M» M»Þ M»* MOÞ
14 15 16 17 18 19 20
M»Þ PO PO ÞC=> t>o ÞCZ>
21 22 23 X 25 26 27
PO
28 29 30 31
IX=> tx=> to
ágúí 5t — - '71
M T W T F S S
1 2 3
t>c=» PXZ> JO
4 5 6 7 8 »f 10
M» MB* M»Þ Þ4MÞ
11 12 13 14 15 16 17
t>o Þ<Z> PO tx=>
18 19 20 21 X 23 24
EX=» PO M«> MMÞ jMÖÍS*
25 26 27 28 29 30 31
tX3 (X=> tx=> txz> tXZ»
Sej Jterr iber 75.
M T W T F S s
1 2 3 4 5 * 7
PO M»> M8Þ*
8 9 10 11 12 13 14
M*Þ M»> M0» »»» txz> ÞO
15 16 17 18 19 20 21
t>cz> tx=> IO M» M"*
* 23 24 25 26 27 28
IX=> PCZ> KZ> ÞO
29 30
(X=> tx=>
Krossarnir merkja þá daga, sem
stórstreymt er hér á landi.
Dekkstu merkin: bezt veiðivon,
strikuðu merkin: góð veiðivon og
óstrikuðu merkin: sæmileg veiði-
von.
Eftir Ingva Hrafn Jónsson
SJA smáauglýsingar á síðu 24
Fjölbreytt úrval
af buxum
í mörgum
efnum,
sniöum
og litum
liiiia Slima Slimma Slimma Slimma Slintma
^MÐ TAKIÐ
RÉTT SPORo
c7WEÐ PVÍ
AÐ KAUPA
Slimma ívoro
Heimsfrægar glervörur, kunnar fyrir listfenga hönnun
og frumlegt útlit. littala glervörur eru ein
fallegasta tækifærisgjöf, sem hægt er að hugsa sér.
Komið og skoðið úrvalið í verzlun okkar.
HIJSGAGNAVERZLUN
, w KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Laugavegi 13 Reykiavík simi 25870