Morgunblaðið - 01.05.1975, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 01.05.1975, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAl 1975 21 Ingólfur Jónsson mælti 23. aprll s.I. fyrir áliti meirihluta iðnaðarnefndar um járnblendi- verksmiðjuna I Hvalfirði. 1 ræðu sinni gerði Ingólfur ftarlega grein fyrir samningunum við Union Carbide og fyrirhuguðum rekstri málmblendiverksmiðj- unnar. Hér á eftir verður gerð grein fyrir efni ræðunnar: Ingólfur Jónsson sagðist telja sjálfsagt, að áfram yrði haldið að virkja og nýta innlenda orku- gjafa, bæði jarðvarmann og fall- vötnin. Ekki aðeins tii þess að koma upp stóriðju í landinu heldur einnig og ekki sfður tif að efla annan iðnað og til þess að nota innlenda orkugjafa til hús- hitunar og reyna með þvf að spara olfu, sem nú væri orðin mjög dýr og tæki mikið af okkar verðmæt- um f gjaldeyri. Hann sagði, að vissulega bæri að halda áfram að efla sjávarútveginn, landbúnað- inn og smærri iðnað. En við gæt- um ekki komizt hjá þvf að breikka grundvöllinn undir at- vinnulffinu og fjölga þeim stoð- um, sem standa undir þjóðfélags- byggingunni. Það gerðum við einnig með þvf að efla stóriðju og koma upp ýmiss konar verksmiðj- um, sem keyptu orku, er við hefð- um beizlað og gæfu arð i þjóðar- búið. Járnblendiverksmiðjan i Hvalfirði myndi verða ein af þess- um stoðum og gefa f erlendum gjaldeyri allt að tvo milljarða króna á ári f okkar hlut. Meirihlutaeign þarf ekki að vera algild regla Ingólfur Jónsson sagði, að á meðan Magnús Kjartansson hefði verið iðnaðarráðherra hefði verið að því unnið að gera samkomulag við Union Carbide, fyrirtæki í Bandaríkjunum, sem væri mjög sterkt fjárhagslega og ræki verk- smiðjur í mörgum löndum, en það hefði verið í byrjun árs 1971, sem viðræðunefnd um orkufrekan iðnað hefði farið að leita eftir samkomulagi og samningum við stóriðjufyrirtæki, sem gætu tekið upp samvinnu við okkur Islendinga. Þar sem þá hefði ekki síður en nú verið áhugi fyrir að beizla fallvötnin og nýta þá orku, sem lengst af hefðu verið óbeiziuð i landinu. Ingólfur sagðist telja, að það þyrfti alls ekki að vera algild regla, að Islendingar ættu meirihluta i fyrirtækjum eins og þessu. Allt væri undir því komið, hvernig samningar tækjust hverju sinni. Sjálfsagt væri, að Islendingar ættu virkjanir, en vel væri hægt að hugsa sér, að erlend fyrirtæki fengju leyfi til þess að setja hér upp framleiðsluverk- smiðjur, er keyptu orku úr íslenzkum orkuverum. Á hinn bóginn gætu Islendingar smátt og smátt orðið eigendur að slikum verksmiðjum með þvi að láta hluta af sköttum og gjöldum, sem þessar verksmiðjur greiddu, renna til þess að auka eignarhluta þeirra í verksmiðjunni og íslendingar yrðu þannig að til- skyldum tíma liónum eigendur að meirihluta eða öllu leyti. Það væri því alls ekki vfst, að það væri bezt fyrir Islendinga að eiga frá upphafi meirihluta i slikri verk- smiðju. Ingölfur Jónsson sagði, að mið- að við það, að félagið yrói stofnað á þessu vori gæti verksmiðjan byrjað framleiðslu fyrri hluta árs 1977 eða um það leyti, sem Sigölduvirkjun yrði tilbuin. Gert væri ráð fyrir því, að íslendingar ættu 55% i verksmiðjunni, en Union Carbide 45%. Rafmagnsverðið tengt verðlags- breytingum Þá gerði þingmaðurinn grein fyrir breytingum þeim, sem orðið hefðu á frumvarpinu eins og það var á s.l. vetri. Sérstaklega væri ástæða til að minna á, aó raf- magnsverðið hefði hækkað mjög mikið frá því sem gert hefði verið ráð fyrir í fyrra frumvarpi. Nú væri gert ráð fyrir, aö á 1. og 2. ári yrði forgangsorkan 9,5 mills. og afgangsorkan 0,5 mills. Á þriðja og fjórða starfsári bræðslunnar yröi forgangsorkan 10 mills. en afgangsorkan 1,4 mills. og meóal- sem Magnús Kjartansson hefói haldið fram, að þeir sem sam- þykktu þetta frumvarp væru að kalla orkuskort yfir þjóðina. Ingólfur Jónsson: hefói verið aukin og hækkuðu tekjur Landsvirkjunar mikið við það að hafa til ráðstöfunar 20 gwst á ári. Ingólfur Jónsson Tryggir 15% lægra orkuverð til almenningsnota Miðað við þá samninga, sem hér væri um að ræða, væri reiknað með að orkuverð til almennings fyrstu árin yrði 15% lægra sökum þess að Landsvirkjun seldi raf- orku til járnblendiverksmiðjunn- ar. Og jafnframt bæri að vekja athygli á því, að byggingarkostn- aður Sigölduvirkjunar og vaxta- kostnaður hefði ekki verið lægri nú heldur en gert hefði verið ráð fyrir og raun bæri vitni um, þótt frumvarpið hefði orðið að lögum á síðasta þingi með rafmagns- verði, sem að meðaltali hefði ver- ið 4,2 mills. Ef frumvarpið hefði verið lögfest á s.l. vori með því Þurfum að breikka grundvöllinn undir atvinnulífinu verð 5,7 mills. Á fimmta og sjötta starfsári bræðslunnar 10 mills. fyrir forgangsorkuna, afgangs- orkan 9,1 mills. og meðalveróið 5,9 mills. A sjöunda og áttunda starfsári bræðslunnar 10 mills. fyrir forgangsorkuna og 2,4 mills. fyrir afgangsorku og meðalverðið yrði þá 6,2 mills. Þegar talað væri um verð á ork- unni bæri að hafa i huga ákvæði í samningunum um endurskoðun orkuverðs eftir tilsettan tíma, ef breyting yrði á verðlagi. Það verð, sem hér hefði verið nefnt væri verulega miklu hærra heldur en talað hefði verið um á s.l. vori og þá verið talið fullnægjandi, en ein helzta ástæða þess að veró á raf- orku til málmblendiverksmiðj- unnar væri nú hærra en áður hefði verið gert ráð fyrir væri sú, að nú lægi fyrir að verksmiðjan myndi taka til starfa hálfu öðru ári seinna heldur en upphaflega hafi verið áætlað, eða í árslok 1977 í stað miðs árs 1976. Þá væri þess einnig að geta, að byggingar- kostnaður við Sigöldu ásamt háspennulínubyggingum væri áætlaður hærri nú en áóur og siðast en ekki sízt væri nú reiknað með hærri vöxtum en fyrr. Þetta orkuverð væri þó hlutfallslega miklu hærra en þaó sem áður hafði verið samið um, ekki sizt þegar haft væri í huga, að bygg- ingarkostnaður Sigölduvirkjunar og vaxtagreiðslur hefðu orðið eins og nú væri gert ráð fyrir, þótt rafmagnsverðió hefði verið það sama og fyrra frumvarpið mælti fyrir um. Við hefðum þá setið uppi með lágt raforkuverð en hækkaðan byggingarkostnað eins og nú bæri raun vitni um. Orkuverðið 42,7% hœrra en í fyrstu samningsdrögum Ingólfur Jónsson lagði enn- fremur áherzlu á, að nú hefði hlutfailinu milli afgangsorku og forgangsorku verið breytt til hag- ræðis fyrir Landsvirkjun. Reikn- að hefði verið út svokallað kostn- aðarverð á raforku frá Sigöldu og Hrauneyjarfossi. Kostnaðarverð- ið væri 4,95 mills. hver kwst. og væri gert ráð fyrir, að kostnaðar- verð afgangsorkunnar yrði 0,5 mills hver kwst. Ef þetta verð væri borið saman við það sem gert hefði verið ráð fyrir i frumvarp- inu eins og það var á síðasta ári kæmi í ljós, að söluverðið sam- kvæmt samningum væri miklu hærra en það sem sýndi raun- verulegan kostnað. Þegar rætt væri um orkuverðshækkunina frá fyrri samningsdrögum væri oft talað um 35% hækkun og frá 4,2 mills frá s.l. vori i 5,7 mills. hver kwst. nú. En þetta væri ekki rétt- ur samanburður. Nauðsynlegt væri að geta þess, að i samningi þeim, sem nú væri um að ræða hefði magn forgangsorku verið minnkað úr 264 gwst. í 244 gwst. á ári en afgangsorkan aukin og væri þetta þvi orka, sem Lands- virkjun hefði til ráðstöfunar á hverju ári eða 20 gwst., þegar Sigalda væri fullnýtt. Yrði Sigölduvirkjun fullnýtt á þremur árum yrði þessi orka selj- anleg á 17 árum af samningstim- anum og væri reiknað með eining- arverðinu 10 mills hver kwst. Eins og nú væri gert í samningi þeim um orkusölu, sem um væri að ræða, gæfi þessi orkusala Landsvirkjun 170 þús. dali á ári til jafnaðar. Samkvæmt samn- ingnum sem fyrir hefði legið á s.l. vori hefði Landsvirkjun fengió fyrir orkusöluna 1.970.448 þúí und dali á ári hverju. Samkvæmt nýrri drögunum yrði þessi upp- hæð 2.911.650 þúsund dalir og ef við þessar tölur væri bætt 170 þús. dölum fengi Landsvirkjuri 3.081.650 þúsund dali á ári fyrir sama forgangsorkumagn og áður eða 56,3% meira heldur en gert hefði verió ráð fyrir í samnings- drögunum frá s.l. vori. En ef á hinn bóginn væri reiknað með sama heildarorkumagni i báðum tilvikum yrði hækkunin 42,7%. Það yrði mi'kill tekjuauki fyrir Landsvirkjun að afgangsorkan rafmagnsverói, en Landsvirkjun hefði eigi að siður orðið að taka á sig allar hækkanir á byggingar- kostnaði og vaxtahækkanir, þá hefði útkoman vitanlega oróið mjög slæm fyrir Landsvirkjun og þá hefði þessi samningur ekki orðið til þess að lækka orkuverð til almennings eins og nú væri gert ráð fyrir um 15%, þvert á móti hefði sá samningur orðió til þess að hækka orkuverð til al- menningsnota. Nœg raforka fyrir hendi Þá gerði Ingólfur Jónsson að umtalsefni þá fullyrðingu Magn- úsar Kjartanssonar að meó þvi að samþykkja þessa verksmiðju nú væri verið að dæma orkuskort yf- ir stóra landshluta um alllangt árabil. Ingólfur Jónsson sagði, að allir þingmenn vissu, að þótt orka yrði seld til járnblendiverksmiðj- unnar frá Sigöldu þá væri ekki verið að dæma orkuskort yfir þjóðina með því. Og með sam- þykkt frumvarpsins væri ekki verið að stuðla að þvi að viðhalda mikium olíuinnflutningi umfram þaó, sem annars þyrfti. Lokið yrði við Sigöldu á árinu 1976 og í síð- asta lagi 1977. Undirbúningur að Kröfuvirkjun væriveíáveg kom inn og vonir stæðu til að þeirri virkjun yrði lokið 1976. Orku- málastjóri hefði upplýst, að þótt járnblendiverksmiðjan fengi raf- magn eins og áætlað væri, þá yrði nægileg orka til ársins 1980 a.m.k., þótt ekkert yrði virkjað á þeim tima annað en Sigölduvirkj- un og Krafla. 1 iðnaðarnefnd hefði verió lögð fram skýrsla og útreikningar bæði frá Landsvirkj- un og verkfræðiskrifstofu Sigur- ar Thoroddsens, sem sýndu það, að þótt allt væri gert, sem i mann- legu valdi stæði, fjármagn væri fyrir hendi og nægur vilji, þá yrði samt nægileg orka til 1980 til hús- hitunar fyrir almenna notendur, þótt járnblendiverksmiðjan fengi orku. Það væri þess vegna rangt, Hækkun sölu- þóknunar Ingólfur Jónsson sagði síðan, að i frumvarpi um sölusamning væri gert ráð fyrir þvi, að dótturfyrir- tæki Union Carbide i Evrópu tæki að sér einkaumboð á sölu á fram- leiðsluvörum verksmiðjunnar gegn stighækkandi sölulaunum. Fyrir fyrstu 10 þús. tonn fram- leiðslunnar fengi fyrirtækió 3% sölulaun, fyrir næstu 10 þús. tonn 3,5% og fyrir þar næstu 10 þás. tonn 4% sölulaun og það sem væri umfram 30 þús. tonn 5% sölulaun. Þetta gerði 3,9% sölu- laun til jafnaðar, ef öll ársfram- leiðslan 47—50 þús. tonn yrðu seld. En afkoma verksmiðjunnar væri vitanlega undir því komin, að öll framleiðslan seldist. I samn- ingsdrögunum frá því á s.l. vori hefði verið gert ráð fyrir, að söluþóknunin yrði 3%, en fallizt hefði verið á þessa hækkun með tillit til þeirrar hækkunar, sem oróið hefði á kostnaði erlendis og meó tillili til þess, að Union Carbide hefói yfirleitt 5% sölulaun frá öðrum verksmiðjum með sams konar framleiðslu. Það sem ætlað væri til þess að greiða söluþóknun af framleiðslu verksmiðjunnar væri þess vegna langt fyrir neðan það sem gerðist erlendis. Það væri mikils virði, að Union Carbide hefði á undanförnum 20 árum byggt upp mjög öflugt sölukerfi, sem einkum byggðist á því að veita viðskiptamönnunum sem mesta þjónustu bæði í gæðum og tæknilegri þjónustu. Þetta sér- hæfða sölukerfi tryggði mjög ör- uggan markað og að jafnaði hærra verð en fengist á hinum almenna markaði. Afkomna verk- smiðjunnar byggðist á því að öll framleiðsla hennar seldist á háu verði og Union Carbide hefði heit- ið þvi að gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að uppfylla kröfur verksmiðjunnar að þessu leyti og sjá hag hennar borgið. Þar sem eignahluti Union Car- bide væri u.þ.b. helmingur verk- smiðjunnar ætti það að vera sölu- aðilunum, Union Carbide, hvatn- ing til þess að láta vel takast með sölu á allri framleiðslunni í Hval- firði og tryggja afkomu hennar sem bezt. Með tilliti til þess hagræðis, sem fengizt hefði á öðrum lióum samninganna væri það vel afsak- anlegt, þótt þessi söluþóknun hefði hækkað frá því sem áður var gert ráó fyrir, t.d. á meðan rafmagnsverðið væri enn eins lágt og gert hefði verið ráð fyrir. Og það mætti jafnvel segja, að það gæti verið hættulegt fyrir þessa verksmiðju að greiða af lág sölulaun ef sölutregða yrði á framleiðslunni. Það gæti verið, að framleiðsluvörur þeirrar verk- smiðju, sem borgaði 3% sölulaun seldust seinna heldur en hinna, sem borguðu 5%. Þá sagði Ingólf- ur Jónsson, að verksmiðjan fengi afsal á tæknikunnáttu frá Union Carbide og greiddi 3,2 millj. doll- ara í formi hlutabréfa í eitt skipti fyrir öll fyrir tæknikunnáttuna. Meó þeim samningi ætti aó vera þannig um hnútana búið, að verk- smiðjan yrði eins vel úr garði gerð og unnt væri og jafnframt, að allar nýjungar og endurbætur á þessum iðnaði kæmu verksmiðj- unni strax til góða. Meó tilliti til stöóu Union Carbide mætti ætla, að verksmiðjan myndi búa við þá beztu tækni, sem völ er á í heim- inum. Hreinn hagnaður á árunum 1978—1982 væri áætlaður 3 millj- aðrar 34 milljónir kr. til jafnaðar á ári, á árunum 1983—1987 væri hreinn hagnaður áætíaður 4,639 milljarðar til jafnaðar á ári og árunum 1988—1993 6,401 millj- arðar til jafnaðar á ári. Af þessu mætti sjá, að hlutur tslands 55% væri allmikill og gjaldeyrishagn- aður af rekstri þessarar verk- smiðju gæti orðið yfir 2 milljarð- ar á ári til jafnaðar á samnings- timanum. Gert væri ráð fyrir meóalarðsemi fjárfestingar fyrir skatta 17,4%, en þá væri ekki tekið tillit til áhrifa sjóðsmyndun- ar og vaxtatekna á arðsemina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.