Morgunblaðið - 01.05.1975, Page 39

Morgunblaðið - 01.05.1975, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAl 1975 39 1. deildinni lokið Síðasti leikurinn í ensku 1. deildar keppninni i knattspyrnu fór fram í fyrrakvöld og léku þá Birmingham og Sheffield United. Varð jafntefli i leiknum, 0—0, í mjög hörðum og grófum leik, þar sem Sheffield-liðið var yfirleitt betri aðilinn. Það þurfti sigur í leiknum til þess að öðlast þátttökurétt í UEFA- bikarkeppninni að ári, en liðin sem leika munu þar fyrir Englands hönd verða Aston Villa, sigurvegarinn í deiidarbikar- keppninni, Liverpool, Ipswich Town og Stoke City. Endanleg röð liðanna í 1. deildar keppninni ensku í ár varð þessi: ' L HEIMA UTI stig Derby County 42 14 4 3 41—18 7 7 7 26—31 53 Liverpool 42 14 5 2 44—17 6 6 9 16—22 51 Ipswich Town 42 17 2 2 47—14 6 3 12 19—30 51 Everton 42 10 9 2 33—19 6 9 6 23—23 50 Stoke City 42 12 7 2 40—18 5 8 8 24—30 49 Sheffield Utd. 42 12 7 2 35—20 6 6 9 23—31 49 Middlesbrough 42 11 7 3 33—14 7 5 9 21—26 48 Manch. City 42 16 3 2 40—15 2 7 12 14—39 46 Leeds United 42 10 8 3 34—20 6 5 10 23—29 45 Burnley 42 11 6 4 40—29 6 5 10 28—38 45 QPR 42 10 4 7 25—17 6 6 9 29—37 42 Wolverhampton 42 12 5 4 43—21 2 6 13 14—33 39 West Ham Utd. 42 10 6 5 38—22 3 7 11 20—37 39 Coventry City 42 8 9 4 31—27 4 6 11 20—35 39 Newcastle Utd. 42 12 4 5 39—23 3 5 13 20—49 39 Arsenal 42 10 6 5 31—16 3 5 13 16—33 37 Birmingham City 42 10 4 7 34—28 4 5 12 19—33 37 Leicester City 42 8 7 6 25—17 4 5 12 21—43 36 Tottenham H. 42 8 4 9 29—27 5 4 12 23—36 34 Luton Town 42 8 6 7 27—26 3 5 13 20—39 33 Chelsea 42 4 9 8 22—31 5 6 10 20—41 33 Carlisle Utd. 42 8 2 11 22—21 4 3 14 21—38 29 Lundúnaliðið Tottenham bjargaðist frá falli f 2. deild á sfðustu stundu. Myndin var tekin f næst síðasta leik liðsins f deildinni, er það mætti Arsenal og sýnir Alf Conn, Tottenhamleikmann stökkva yfir Geoff Barnett markvörð Arsenal, sem gómað hefur knöttinn. Geir Hallsteinsson þjálfar KR-inga KR-INGAR hafa nú ráðið hand- knattleiksþjálfara fyrir 2. deildar lið sitt. Verður Geir Hallsteinsson með liðið næsta keppnistfmabil og er það hugmyndin að hefja æfingar mjög fljótlega. — Ég tel aigjöra forsendu fyrir árangri að æfa yfir sumarmánuð- ina, sagði Geir i viðtali við Morgunblaðið í gær, — sé ekki byrjað fyrr en undir haust nær liðið sér ekki á strik fyrr en eftir áramót, og það getur orðið of seint. Fyrsta æfingin sem ég verð með KR-inga á verður 3. júní og síðan verður æft tvisvar í viku í allt sumar. Geir sagði að sér litist mjög vel á KR-Iiðið. — Kjarni liðsins eru ungir ieikmenn sem eiga framtíð- ina fyrir sér og eru mjög efnilcg- ir, sagði hann. Geir Hallsteinsson Fy rir t æk j akeppni í handknattleik A LAIJGARDAGINN fóru fram síóustu leik- irnir í undanekppni fyrirtækjakeppni HSl i handknattleik. Leikið var í Garðahreppi og urðu úrslit einstakra leikja sem hér segir: A-RIÐILL: Slippfélagið—Breiðholt 5:15 Aburðarverksmiðjan — Skýrsluvélar 8:15 Morgunblaðið—Blikk og Stál 13:6 ÍSAL — Skýrsluvélar 8:13 Aburðarverksmiðjan — Breiðholt 10:24 . Slippfélagið — Blikk og Stál 10:9^ Morgunhlaðið—ÍSAL 4:4 B-RIÐILL: Sláturfélagið — Landshankinn 4:8 Hekla — Lögreglan 8:9 Héðinn—Skattstofan 16:19 Tollgæzlan—Lögreglan 6:11 Hekla — Landsbankinn 7:9 Sláturfélagið — Skattstofan 13:11 Héðinn —Tollgæzlan 16:13 I A-riðli urðu Skýrsluvélar sigurvegari, Morgunhlaðið í öðru sæti, Breiðholt í þriðja sæti og ÍSAL í fjórða sæti. Sigurvegari í B-riðli varð Landsbankinn. Þar varð Lögregl- an í öðru sæti, Sláturfélagið i þriðja sæti og Hekla i f jórða sæti. Úrslitaleikir keppninnar fara fram i Garðahreppi á föstudagskvöld. Fyrsti leikur- inn er kl. 19.30, og leika þá Hekla og tSAL um 7.—8. sætið. Siðan leika Sláturfélagið og Breiðholt um 5.—6. sætið, siðan Lögreglan og Morgunblaðið um 3.—4. sætið og loks Landsbankinn og Skýrsluvélar um fyrsta sætið. Sá leikur mun hefjast kl. 20.30. Að lokum verða svo verðlaun afhent, en þrjú fyrstu liðin í keppninni hljóta verðlaun Athugasemd i TILEFNI af viðtali við Berg Guðrta- son, stjórnarmann í Handknattleiks- sambandi íslands, er birtist ! Morgunblaðinu I gær, hefur Stefán Kristjánsson, iþróttafulltrúi Reykja- víkurborgar, óskað að eftirfarandi komi fram: Leiga af Laugardalshöllinni var upphaflega 25% af brúttóinntekt. 1969 var þetta hlutfall lækkað niður í 20% og árið 1972 var það aftur lækkað og þá niður í 1 7%, jafnframt þvi sem leigusali tók á sig þjónustu sem ekki var áður fyrir hendi, svo sem gerð og sölu aðgöngumiða, dyravörzlu og fleira. r r Sambandsráðsfundur ISI á næstunni Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ, kynnti fréttamönnum nýlega þaó sem efst er á baugi hjá Iþrótta- sambandi Islands um þessar mundir. Skal þar fyrst nefna aö sambandsráð iSl kemur saman til fundar í Reykjavík 2. og 3. maí n.k. Sambandsráð er skipað fram- kvæmdastjórn tSÍ, formönnum allra sérsambandanna 15 að tölu og fulltrúa 8 kjördæma. A fundi þessum verða gefnar margvisleg- ar skýrslur: Frá framkvæmda- stjórn ISI, frá sérsamböndunum og frá Olympiunefnd. Þá verður greint frá aðgerðum stjórnar ISI varðandi byggingu íþróttamann- virkja á næstu árum. Eitt megin- viðfangsefni fundarins verður svo fjármál, skipting útbreiðslu- styrks til sérsambandanna og skipting á kennslustyrkjum. Samstarfsnefnd Iþróttasamband- anna: Samstarfsnefnd Iþróttasam- bandanna á Norðurlöndum kem- ur saman til fundar í Reykjavik 12.—13. júní n.k. Fundinn sitja fulltrúar úr framkvæmdastjórn- um íþróttasambandanna á Norðurlöndum. Nefndin kemur saman annað hvert ár og heldur fundinn til skiptis í aðildar- löndunum. Siðasti fundur hér á landi var fyrir 10 árum. A fundum samstarfsnefndar- innar eru gefnar gagnkvæmar skýrslur um ýmsa þætti í starf- semi íþróttasambandanna, eins og t.d. þróun félaga og sambanda, fjármál, fræóslustarfsemi, keppnisiþróttir og almennings- iþróttir, störf Olympiunefnda, æskulýðsstarf, bygging íþrótta- mannvirkja og fl. Fyrir þessum fundi liggur einn- ig aö taka afstöðu til umsókna Færeyinga um sjálfstæða aðild að samstarfsnefndinni. Norrænar unglingabúðir: Norrænar unglingabúðir, hlið- stæðar við þær sem ISI efndi til á s.l. ári að Laugarvatni, verða haldnar í Noregi, skammt frá Ösló, á komandi sumri. Þátttak- endur eru frá öllum Norðurlönd- unum. Tuttugu þátttakendur verða frá tslandi, 10 frá Iþrótta- bandalagi Vestmannaeyja og 10 frá Héraðssambandinu Skarp- héðni. Iþróttamiðstöð lSt: Iþróttamiðstöð ISl að Laugar- vatni er þegar fullskipað á kom- andi sumri. Hefur hinum ýmsu iþróttahópum fyrir nokkru verið úthlutað tima í sumar fyrir æfing- ar og námskeið. Meðal iþróttagreina sem veróa í íþróttamiðstöðinni eru: Knatt- spyrna, handknattleikur, körfu- knattleikur, frjálsar íþróttir, fim- leikar og júdó. Forstöðumaður Iþróttamiðstöðvarinnar í sumar verður Árni Njálsson, iþrótta- kennari. Sýnilega er vaxandi þörf fyrir Iþróttamiðstöðina á Laugarvatni og standa nú fyrir dyrum viðræð- ur við forráðamenn Iþrótta- kennaraskóla Islands um fram- tíðarskipan þessara mála. Fræðslustarfsemi Fræðslustarfsemi samkvæmt námsefni grunnskóla ISl er starf- rækt á þessum vetri i þremur framhaldsskólum: Menntaskólan- um i Reykjavik, Gagnfræða- skólanum í Hveragerði og Héraós- skólanum i Reykholti. Fyrsta héraðssambandið innan ÍSt, sem efnir til leiðbeinenda- námskeiðs eftir námsefni grunn- skóla, er ÍBR, og stendur það námskeið nú yfir. Héraóssam- band S-Þingeyinga áformar að efna til leiðbeinendanámskeiðs i júnimánuði n.k. Nýbyggingu ÍSÍ, ÍBR og KSI I Laugardal er nú að mestu lokið, og bætir bygging þessi mjög aðstöðu iþróttahreyfingarinnar. Svend Pri DANSKI badmintonleikmaðurinn Svend Pri, sem bar sigur úr být um i hinni óopinberu heims meistarakeppni i þessari iþrótta grein i „All England'' mótinu, mun að öllum likindum flytjast til Svíþjóðar innan tiðar, ásamt tveimur öðrum þekktum dönsk um badmintonleikmönnum. Ástæðan er sú, að nú hefur danska badmintonsambandið bannað Pri og félögum hans að taka þátt i mótum þar sem há peningaverðlaun eru i boði, en slikt gerist nú stöðugt algengara í þessari iþróttagrein. Til að byrja með lét Pri svo sem að hann hefði ekki áhuga á mótum þess- um, en hefur greinilega snúizt hugur, enda ætti hann mikla möguleika á að vinna til álitlegra upphæða. Sem dæmi um þá pen- inga sem eru i boði i badminton- mótum má nefna að framundan er mót i Las Vegas i Bandarikjun- um þar sem keppt verður um verðlaun sem nema um 66 milljónum króna. Muhammadl Ali Muhammad Ali, heimsmeistari I í hnefaleikum þungavigtar, hefur lýst því yfir að hann sé tilbúinn að mæta Joe Bugner, Evrópu- meistara í hnefaleikum, í Kuala Lumpur í Malasíu snemma í sum- Verðlaunin sem i boði er nema i milljónum dollara, en ekki hefur enn verið ákveðið hvernig þau skiptast, ef af keppninni verður. Ali er gífurlega vinsæll i Malasiu, en þar er meira en helmingur 11 milljóna íbúa múhammeðstrúar, en sem kunnugt er hefur Ali tekið þá trú og dregur ekki dul á. Jim Connors Bandaríski tennisleikarinn Jim I Connors sigraði Ástraliubúann I John Newcombe í úrslitaleik í | hinni árlegu Las-Vegas tennis- keppni sem lauk um helgina. Var I þetta í fyrsta sinn sem Connors bar sigurorð af Newcombe í keppni, en úrslitin í lotunum [ urðu: 6—3, 4—6, 6—2 og I -4. Fyrir sigurinn fékk Connors 500 þúsund dollara i verðlaun, en Newcombe fékk helmingi minna í sinn hlut, eða 250 þúsund dollara, Aðeins | 3.500 manns fylgdust með leikn- um, en honum var hins vegar sjónvarpað beint um öll Banda- ríkin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.