Morgunblaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 3
Úrslit í verðlaunasamkeppni Álafoss. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAl 1975 3 Rúmlega 600 munir bárust SL. föstudag voru kunngerð úrslit I hugmyndasamkeppni, sem Ála- foss h.f. efndi til nýlega. Fyrstu verðlaun, að upphæð 100 þús. krónur, hlaut Margrét Jakobs- dóttir, Reykjavík, fyrir hettu- jakka, Svava Finnbogadóttir, Akranesi, hlaut önnur verðlaun, 50 þús., fyrir buxnasett, og þriðju verðlaun, 25 þús. krónur, hlaut Margrét Jóhannsdóttir á Hvammstanga fyrir lopapeysu. Þess má geta, að þær Margrét Jóhannsdóttir og Margrét Jakobs- dóttir eru mæðgur. Sex aukaverðlaun að upphæð 10 þús. kr. hver voru veitt Birnu G. Ágústsdóttur, Kópavogi, Helgu Aspelund, Bolungarvík, Hólm- frfði Stefánsdóttur, Reykjavík, Jósefínu Guðmundsdóttur, Reykjavík, Katrínu Arnadóttur, Hlíð, Gnúpverjahreppi, og Stein- gerði Guðmundadóttur, Akureyri. Alls bárust yfir 600 hlutir í sam keppni þessa frá rúmlega 200 manns. Álafoss mun á næstunni gefa út uppskriftir að verðlauna- mununum. Auk þess verða gefnar út uppskriftir að munum, sem ekki hlutu verðlaun, og hefur Álafoss þegar tryggt sér réttinn hjá viðkomandi hönnuðum. Dómnefnd skipuðu Haukur Gunnarsson, Jón Sigurðsson, Gerd Poulsen og Pálina Jón- mundsdóttir. Stúlkan lengst til vinstri á myndinni er klædd hettupeysunni, sem fékk fyrstu verðlaun í samkeppninni, en Margrét Jakobsdóttir, sem hannaði hana og prjónaði, er lengst til hægri. Peysan er prjónuð 1 einu lagi, þannig að hún er hvergi saumuð saman. Hjá Margréti stendur Svava Finnbogadóttir, sem gerði alklæði úr lopa, sem hlaut önnur verðlaun. Fjölbreytt skáta- starf að Úlfljóts- vatni í sumar AÐ VENJU mun Bandalag ísl. skáta bjóða upp á fjölbreytt starf að (Jlfljótsvatni f sumar. Þar verður rekinn Kvenskáta- skóli fyrir stúlkur á aldrinum 7—11 ára og eitt námskeið fyrir stúlkur 11—14 ára. Stúlkurnar dvelja á fallegum stað við göngu- ferðir, leiki, föndur og ýmiss konar skátastörf í 12 daga. Mikil þátttaka hefur verið i skólanum undanfarin ár og færri komist að en vildu. Nú í sumar er ákveðið að bjóða upp á útilegu fyrir unglinga á aldrinum 11—14 ára. Er þar um að ræða námskeið í alls konar útilífi og tjaldbúðastörfum, gönguferðir, náttúruskoðun, átta- vitakennsla o.fl. sem skátar vilja gjarnan koma á framfæri. , Þátttakendur fá bæklinga og blöð varðandi slík efni Námskeiðin eru ætluð öllun unglingum, hvort sem um skáta er að ræða eða ekki. Námskeiðin verða frá 20.—27. júní og 28. júní—5.júlí. Bætt verður við einu námskeiði ef þátttaka leyfir. I sambandi við Landsmótið sl sumar var stórbætt öll útilegu aðstaða á Úlfljótsvatni. Góð hrein lætisaðstaða fyrir tjaldbúa er ni til staðar. Getur hver sem er not fært sér þessa aðstöðu. Hugsan lega geta börn tekið þátt í hlut.. útilífsnámskeiðanna ef þau koma og dvelja með foreldrum sínum í tjaldbúðum á Ulfljótsvatni. Bæðs útilífsnámskeiðið og tjaldbúðirn- ar eru nýjungar i starfi Bandalags ísl. skáta. Frá skátastarfi að Ulfljótsvatni. . )AMA*lNví5? Ferðaskrifstofan Grikkland Vika I sögufrægri Aþanu og vika á baðströnd við Korintu- flóann. Heillandi sumarleyfi. Brottför um Kaupmannahöfn. 20. ágúst. 2. og 16. september. kr. 89.900.- vikuferðir. * Brottför 14. júní, 5. júlí, 9 23. ágúst, 6, sept. Verð frá kr. 59.900. Júní: 1 ., 8 , 1 5., 22,-og 29 Júlí: 6 , 1 3., 20. og 26. Verð með vikugistingu og morgunverði frá kr. 43.000.- Dvöl á góðum hótelum eða íbúðum á skemmtileg- asta sumarleyfisstað Spánar — LLORET DE MAR — Ódýrar ferðir við hæfi unga fólksins. Fyrsta brottför: 2. júní. Uppselt. Verðfrá 27.500,- TORREMOLIIMOS BENALMADEIMA FUENGIROLA Næsta brottför 1. júní, uppselt. Verð með 1 flokks gistingu i 2 vikur frá kr. 32.500.- Allir mæla með Útsýnarferðum Þyzkaland Vika i Kaupmannahöfn. í hugum flestra leikur sér- stakur rómantiskur töfra- Ijómi um Rinarbyggðir, nátengdur söngvum og riddarasögum. Brottför: 10. júli. Verð i 15 daga með gistingu og fullu fæði l. kr. 59.900.- v Gullna ströndin Lignano Bezta baðströnd ítaliu. Fyrsta flokks aðbúnaður og fagurt, friðsælt um- hverfi. Einróma álit far- þeganna frá í fyrra „PARADÍS Á JÖRÐ' Næsta brottför 4. júní, uppselt. Verð með fyrsta flokks gistingu frá kr. 33.800,- Ítalía Gardavatnið 2ja vikna dvöl í heillandi umhverfi Gardavatnsins. Brottför 1 9. júní Verð með gistingu og fullu fa-ði kr. 61.900. FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN AUSTURSTRÆTI 17 SIMAR 26611 OG 20100 AMERICAN EXPRESS OG TJÆREBORG EINKAUMBOÐ A ISLANDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.