Morgunblaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 30
3(j MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAl 1975 Sigfús J. Johnsen: Hlaðgerðarkot í Mosfellssveit. í ARATUGI og jafnvel ár- hundruð hefir mannkynið barist gegn ýmsum sjúkdómum, sem herjað hafa. Hér á Islandi hefir árvökulum brautryðjendum tek- ist að skapa virka samstöðu fólks- ins í landinu í baráttunni við ýmsa þætti sjúkdóma, er herjað hafa þessa þjóð likt og flestar þjóðir aðrar. 1 þeirri baráttu ber ef til vill hæst starf S.I.B.S. og baráttu þeirra samtaka gegn berklaveikinni. Yms önnur líkn- ar- og mannúðarfélög hafa og bar- ist við hina ýmsu þætti sjúkleika, er í dag hrjá fólk um heim allan. Þar hefir í flestum tilfellum tekist að skapa þróttmiklar sveitir baráttumanna er einbeitt hafa orku sinni að tilteknum viðfartgs- efnum og í flestum tilfellum með mjög umtalsverðum árangri. Þar hafa og komið til hin ýmsu líknar- félög og félagssamtök karla og kvenná er hafa látið sig varða einstaka þætti slikra mannúðar- og líknarmála og mætti um það nefna ótal dæmi, sem sýna og sanna hvern hug íslenskt fólk getur borið til slikrar hjálpar- starfsemi. Varla verður með sanni sagt að þjóðin bregðist nema vel við þá er kvatt er dyra hjá einstaklingum og fjölskyld- um, ef fólk sér fram á að einhver umtalsverður árangur hafi náðst eða sé að vænta af viðkomandi starfi. I þeim þáttum, sem ekki hefir þegar verið sinnt af einstaklingum eða samtökum mun því fremur vera um að ræða skort á samtökum er myndað gætu almenna samstöðu til að sinna viðkomandi málefnum, fremur en að hér sé beinlínis um áhugaleysi fólks að ræða. Mér kemur þetta í hug er ég hugsa til þess hve sárt það tekur margan einstaklinginn, fjölskyld- ur, heimili og heilar ættir að þurfa ár eftir ár að horfa upp á allar þær hörmungar, er stöðugt drífa yfir af völdum ofneyslu áfengis. Það má telja til hreinna undantekninga að hitta fyrir fjöl- skyldu þar sem þetta stóra vanda- mál hefir ekki þegar sett sínar rúnir og mörk á heimilis- og fjöl- skyldulíf viðkomenda. Bölið er að mínu mati ómælanlegt hvað áhrærir uppeldis- og félagslegar hliðar þó ekki sé þá tekinn með sá skattur er menn greiða dýrastan með eigin lífi vegna áfengisins. Hér er þó ótalin fjármálalega hliðin og allar þær hliðarverkan- ir, er af þessu bölu steðja, fyrir einstaklinginn heimilin og þjóð- ina í heild. Um þetta þarf ekki mörg orð. Þétta eru staðreyndir, sem margir hafa mikið skrifað um og allir þekkja að einhverju. I þessu máli vantar þvi ekki orð heldur athafn- ir. Það vænti ég að við séum öll sammála um. Fyrirmyndirnar bæði til góðs og ills eru til staðar. Eflaust má með sanni segja að meira fari fyrir þeim dæmum er við höfum um það sem miður fer í þessum efnum en hinum, en hafa ber þá í huga að við erum gjarnan mjög kröfuhörð og gagnrýnin á athafnir og gjörðir þeirra tiltölu- lega fáu einstaklinga, er láta sig þessi mál einhverju varða. Við erum oft dómhörð á þá aðila er við sjálf ætlum að láta leysa þetta verkefni fyrir okkur vitandi það að hér er þó á ferðinni sameigin- legt viðfangsefni og vandamál, sem allir ættu að geta sameinast um að snúast gegn. Alrangt væri að segja að hér á landi væri ekkert gert í þessum málum. Margir hafa hér lagt hönd á plóginn og sumir af mikilli at- orku. Flest er það starf, sem hér er átt við, byggt á fyrirbyggjandi starfi, sem erfitt er að meta hver árangur hefir orðið af, en í ein- hverju hefir okkur enn mistekist og það næstum með öllu. Sú var tíðin að störf góðtemplara voru veigamestu þættir í áfengisvörn- um hérlendis. Einhverra hluta vegna hafa þessi samtök ekki náð í dag þeim árangri er forvígis- og baráttumenn þessara samtaka væntu frá upphafi. Eflaust gætu þessi samtök náó miklum mun lengra með nútímalegri vinnu- brögðum og á ég þá við nánari tengingu við vandamálið í raun. I sjálfu félags- og atvinnulífinu. Eg fullyrði þetta vegna þess að ég þekki af eigin raun störf annarra samtaka, þar á ég við A.A.- samtakanna, sem í dag eru mun virkari á almennum vettvangi. Einmitt þar hafa augu margra opnast fyrir því að hér væri á ferðinni sjúkdómur, sem hægt væri að halda niðri og jafnvel að lapkna með því fyrst og fremst að byggja meðferðina á sjúklingnum á þeim grunni er samtökin byggja á þ.e. hinn trúræni grunnur ásamt stöðugri sjálfsrannsókn samhliða viðurkenningu á að einstaklingurinn sjálfur finni að hann á hér við vandamál að etja og hafi sjálfur vilja til að leysa. Tugir, jafnvel hundruð manna eru talandi dæmi um árangur af þessari leið. Margir þessara manna hafa um margra ára skeið bent á þá miklu þörf, sem ávallt er til staðar fyrir að veita mönn- um og konum athvarf og stuðning á erfiðustu augnablikunum, ein- mitt þegar sjúklingurinn fær löngun til að losna úr viðjum Bakkusar, sem oft kemur í kjölfar sárrar reynslu, glataðra vona og fjölskyldumissi, svo ekki sé talað um alla þá einstaklinga er koma vinasnauðir, peningalausir og ráðvilltir úr fangelsum eða vist- heimilum þar sem ekki hefir tek- ist að sjá þeim fyrir húsnæði, viðurværi eða atvinnu að afplán- un lokinni. Ef einhversstaðar skortir verulega á til góðra átaka í þessum málum, þá er það einmitt i slíkum tilfellum, sem því miður eru langtum og mörg. Fyrir rúmlega þrem árum hóf ungur maður starf hér í borg við þetta viðfangsefni. Þessi ungi maður hafði orðið fyrir miklum trúarlegum áhrifum af starfi hvitasunnumanna. Þetta var maður með mikla og bitra lifs- reynslu að baki. Hann hafði gengið gegnum hinn dýra skóla reynslunnar sem sýnt hafði honum botn þess lífs er hér á jörðu er Iifað. Hann hafði á stuttri ævi í kjölfar langrar drykkju i áratug komist í kynni við og ánetjast ofnotkun Iyfja í ýmsum myndum. Hverskonar fíkniefni og deyfilyf voru honum orðin ómótstæðilegur þáttur lífsins. Samhliða þessu og i kjölfarið fylgdu svo hin margvíslegu af- brot. Þessi maður náði að losna úr öllum þeim fjötrum er hann var í flæktur. Hann þakkaði Guði einum og hóf að framkvæma þakkargjörð sína með því að aðstoða þá er hann kallaði utan- garðsmenn þjóðfélagsins, einmitt þá er orðið höfðu að ganga í gegn- um raunir svipaðar og hann sjálfur. Hann ástundaði samkom- ur hvítasunnumanna og leigói sér bílskúr við Sogaveginn þar sem hann gat hýst þessa utangarðs- menn og veitt þeim viðtal og skjól. Hér gátu ræðst við jafn- ingjar. Hér varð vandamál hinna hans. Ótrúlegur árangur náðist hjá fjölda manna á skömmum tíma. Til þess að leyfa þér lesandi góður að kynnast öðru en mínu sjónarmiði til framhalds þessa máls afréð ég að hitta að máli nokkra af þeim mönnum er þarna og síðar hafa átt kynni af þessu starfi sem nú í dag er flutt úr bílskúrnum við Sogaveginn i góð húsakynni í Hlaðgerðarkoti í Mos- fellssveit, sem Samhjálp hvíta- sunnumanna réðst í kaup á fyrir þessa starfsemi. Með þeim kaup- um var stigið gagnmerkt spor sem mjög er þakkarvert öllum er að stóðu. XXX Við erum komin í Hlaðgerðar- kot. Hluti vistmanna situr við borð. Óræðir hugir þessara manna stefna fyrir mér allir í eina átt. Hér ætla þeir að kljást við höfuð vandamál lífs síns og vinna sigur. Tökum þá tali. Það er svo mikil gleði og rósemd yfir heimilinu Ég er 35 ára. Hér er ég búinn að dvelja í hálfan mánuð. Hvað varð til þess að ég kom hingað? Nú, ég var búinn að drekka mikið, sóa öllu mínu, vinnu, félögum, eigin- konu og börnum, öllu vegna víns- ins. Ég sá ekkert nema svart. Ég var hættur að stunda mína iðn en fór á sjóinn nokkra túra í senn. Ég aflaði oft mikilla peninga á tiltölulega stuttum tíma en þeim var svo öllum sóað á þeim eina eða tveimur sólarhringum er i landi var stoppað. Allt fór i brennivín, sukk og vitleysu. Þegar peningarnir voru þrotnir átti ég hvergi höfði minu að halla. Fólkið mitt, bræður mínir og vin- ir voru hættir að tala við mig og vildu hvorki sjá mig né heyra. Ég svaf þá oft á hitastokkunum í Öskjuhlíðinni. Bókstaflega ail- staðar þar sem skjól var að fá fyrir veðri og vindum. Þetta voru gististaðirnir, ef maður fann þá ekki einhvern sem hægt var að drekka með og njóta þá um leið húsaskjóls. Raunverulega hélt Bakkus mér þannig í klemmu til áframhaldandi drykkju. Félags- skapurinn var oft miður góður upp úr þessu öllu. Ég fór að ger- ast brotlegur við lögin. Ég hlaut því að lenda á Litla-Hrauni. Þaðan fór ég, að ég taldi, á núlli við þjóðfélagið. Kom þaðan út dómalaus og kvittur við sam- félagið. Fullur ásetnings um að nú skyldi Bakkus ekki taka mig aftur leit ég tiltölulega björtum augum til framtíðarinnar. Þó var ég bæði peningalaus, húsnæðis- laus og vinnulaus. Ég lenti þó strax á hálfs mánaðar fylliríi. Skömmu síðar var ég búinn að kalla alla ógæfuna yfir mig aftur og orðinn á ný brotlegur við lögin. Þá fór ég í alvöru að hugsa til þeirra manna, sem frelsast höfðu frá þessu gegnum Flladelfiu. Þar á meðal til Georgs Viðar, því ég hafði þekkt hann frá fornu fari. Eitt kvöldið, þegar ég eigraði um göturnar sníkjandi peninga eða sígarettur í miklum kulda, hugsaði ég með mér að gera nú upp sakirnar. Binda endi á þetta líf, eða snúa blaðinu við. Ég var mjög illa fyrirkallaður. Þunnur og þráði brennivín. Samt fór ég á samkomu í Fíladelfíu. Fyrsta samkoman fannst mér öfgakennd. Ég hugsaði: Þetta fólk er allt stór- bilað. Eftir samkomuna fékk ég eftir miklar fortölur inni á Farsótt þessa nótt. Svo er það viku seinna að ég var á leiðinni niður Laugaveginn. Þá með nokkrar krónur, sem ég fékk að láni hjá vinum mínum, og ferð- inni var heitið á vínsöluhús. Mér snerist hugur. Ég ákvað á fara á samkomu og hlusta á Einar Gisla- son. Hugur minn opnaðist og ég sá að þarna voru útréttar hendur mér til hjálpar. Hálfum mánuði síðar hitti ég einn vina minna, sem ég hafði áður drukkið mikið með. Ég gat varla trúað mínum eigin augum. Svo mikil breyting var á honum orðin. Hann sagði mér að hann hefði verið i Hlað- gerðarkoti og væri nú steinhættur að drekka. Þá sneri ég mér til Georgs Viðar. Hann vildi allt fyrir mig gera. Það er satt, svo satt sem ég sit hér hjá þér að það henti mig, sem ég hélt að aldrei ætti eftir að henda mig, að ég neitaði víni. En þennan tima hefi ég margsinnis neitað því. Ég hefi verið í bænum að selja happdrættismiða Sam- hjálpar og þá hitt marga af kunn- ingjum minum sem boðið hafa mér vín. Ekkert slíkt hvarflar að mér. Tíminn hér uppfrá hefir liðið vel. Ég ræði mikið við Georg. Ég hefi verið tekinn inn í sam- félagið og ég reyni að aðstoða eftir föngum. M.a. með því að vinna við að koma saman rútubíl, sem heimilið hefir eignast. Það er svo mikil gleði og rpsemd yfir heimilinu. Jú, ég hafði áður reynt önnur heimili. Einu sinni reyndi ég að komast inn á Klepp. Ég fór þangað. Ég átti þá fyrst að tala við þennan og hinn. Það var ekkert pláss fyrir mig fyrr en eftir svo og svo langan tima. En yrði ég þá tilbúinn að fara þar inn? Við því fékk ég aldrei svar. Það reyndi aldrei á það. Jú, ég hefi sannarlega misst allt. Konuna mína og fjögur börn. Konan skildi við mig. Einbýlis- húsið mitt missti ég einnig. Og að lokum drakk ég út fyrirtæki mitt, sem var nýtt 300 fermetra verk- stæði. En hér er eitthvað að gerast Georg Viðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.