Morgunblaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25, MAl 1975 13 Uvað er „kreppa '? Eru kjör okkar orðin „kröpp" þegar við höfum ekki bolmagn til þess að endurnýja tveggja ára gamlan, milljón króna bíl . . . eða þegar við verðum að taka á honum stóra okkar til þess að standa i skilum með afborganirnar af ibúðinni . . . eða þegar við verðum jafnvel (aldrei þessu vant) að velta þvi fyrir okkur tvisvar, hvort við höfum efni á því að fljúga i sumarfri til sólarlanda eða i vetrarfri til Sviss, þegar skammdegið byrjar að þrúga okkur? Rosknir Islendingar muna þó annarskonar kreppu? Hér segir nokkuð frá árunum þeim — i þegar það var „helsta stöðutáknið að getaj tekið vel á móti gesti, sem að garði bar, ehdal var hann oft svangur eftir langa göngu". » „Þetta voru alveg ótrú- legir erfiöleikar, sem ég þarf ekki að taka fram að ég vona að eigi aldrei eftir að endurtaka sig.“ Þetta sagði Gfsli Sigur- björnsson forstjóri á Elliheimilinu Grund er við ræddum við hann um almenYiingseldhúsið í Reykjavík, Mötuneyti safnaðanna, eins og það var nefnt, sem stofnað var haustið 1932 til að reyna að sjá bágstöddum atvinnuleysingjum borg- arinnar fyrir brýnustu lffsnauðsynjum. Gísli var þá gjaldkeri og fram- kvæmdastjóri fram- kvæmdanefndar Mötu- neytisins, en í nefndinni áttu sæti alls 17 manns, fulltrúar safnaðanna tveggja, Fríkirkjunnar og Dómkirkjunnar, auk þess sem borgin átti þar einnig fulltrúa. ^ Mötuneytið hóf starf- semi sína 8. október 1932, og það starfaði þennan erfiða vetur fram f mafmánuð 1933, en næsta vetur var svip- aðri starfsemi haldið áfram í nafni Vetrar- hjálparinnar. „Upp úr því fór svo að rofa til, að mig minnir,“ sagði Gísli. Þessi góðgerðarstarf- semi fór fram í Franska spftalanum, svonefnda, við Lindargötu, þar sem nú er gagnfræðaskólinn. „Þetta hús átti bærinn,“ sagði Gísli, „og þennan vetur lagði bæjarsjóður til einar 16000 krónur til starfseminnar, og ríkið 4000 krónur. En aðallega var þetta nú drifið áfram með gjöfum sem við lýst- um eftir f blöðum og í útvarpinu.“ „Þarna komu fjölskyldur at- vinnuleysingjanna. Fólkið kom með börnin sfn og beið í biðröð- um eftir máltíðunum. Við sendum lika út mat heim til þeirra sem voru lasburða og veikir, og til þeirra heimila sem voru barnmörg, og mæðurnar gátu ekki tekið börnin með sér í mötuneytið. Þetta var alveg óskaplegt ástand. Við gáfum t.d. lika út mjólkurseðla, og fólkið fékk kannski 1 eða l'A litra af mjólk fyrir tiu daga, eftir því hversu barnmörg heimilin voru. Þá reyndum við að útvega fólkinu kol til að hita upp húsin og útbýttum kola- seðlum, þvi engin var þá hita- veitan. Við söfnuðum skóm og stígvélum og höfðum mann til að reyna að laga þau til. Sauma- stofu höfðum við sem saumaði föt upp úr gömlum görmum og safnað var út um bæinn með góðri hjálp bæjarbúa. Og á prjónastofu mötuneytisins voru prjónaðar sem hlýjastar flíkur handa fólkinu þennan vetur, en ullina gáfu ýmsir velunnarar." Til dæmis voru prjónaðar á þriðja hundrað flíkur fyrstu tvo mánuðina. sem mötuneytið starfaði, en stöðugt var einnig safnað fatnaði meðal almenn- ings sem brást afar vel við. Fyrsta gjöfin sem mötuneytinu barst utan af landi var t.d. pakki með fallegum telpukjól og kertapakki frá ónafngreind- um sjö ára gömlum dreng á Bolungarvík. En aðalstarfið fólst samt í matargjöfunum. Fyrsta daginn sem mötuneytið starfaði voru gestir aðeins 32. Annan daginn 64. Attunda daginn 110. Og strax tveimur mánuðum slðar fengu milli 250 og 360 manns spítalanum við Lindargötu. Auk sjálfboðaliða við starfsemina unnu 5 stúlkur í eldhúsinu, og ráðskona var Helga Marteinsdóttir veit- ingakona. „Hún ( stóð sig alveg eins og ljón,“ sagði Gísli. „Ég hef sjaldan haft duglegri konu I vinnu.“ Þess má geta til fróðleiks að mánaðarkaup ráðskonunnar var þá krónur 80, stúlkurnar fengu 270 krónur til samans. „Fólkið var yfirleitt mjög prútt og þakklátt sem kom til okkar,“ sagði hann ennfremur, „og ég tek það fram að þetta hefur verið erfiður gangur fyrir marga. Það hefur ekki verið sársaukalaust fyrir móður að senda barnið sitt til að biðja Gísli Sigurbjörnsson: „Þetta þjóöfélag þarf lik- lega að fara á husinn..." (Ljósm. Mbl. E.B.B.) að svara einni slíkri ásökun i Morgunblaðinu og þar segir m.a.: „Starfsemi Mötuneytis safnaðanna er að sjálfsögðu upp yfir allar stjórnmáladeilur hafin og ekkert tillit tekið til hvaða stjórnmálaflokka menn teljast. Kemur því ekki til mála að vísa mönnum frá af þeim ástæðum, heldur er það einungis gert þegar um einhverja þá er að ræða, sem geta fætt sig sjálfir og þurfa enga hjálp að fá. Er oss ekki kunnugt um að neinir „hálaunaðir æsingamenn" borði I Mötuneytinu . . . Það skal og tekið fram að sumir þessara manna, sem „Þ“ á við greiða við og við fyrir mat sinn þegar þeir eiga nokkra peninga. Einnig er vert að geta þess aðæinn þessara manna fór að tilhlutan eins af undirrituðum nokkra daga uppí sveit til þess að taka upp kartöflur og kom að afloknu verki með það sem hann hafði fengið I kaup — einn poka af kartöflum — og gaf til mötuneytisins. Erum vér fullvissir að bæjarbúar munu vera á voru máli um að hættulegt og skaðlegt sé fyrir starf það, sem nú hefur verið hafið til þess að bæta hag þeirra sem við erfiðust kjör eiga að búa, að »Ekki sársaukalaust að þurfa að biðia um matff mat dag hvern í mötuneytinu eða heim til sín, þar af allt að helmingurinn börn. I jólamánuðinum þetta ár komu þannig 4846 fullorðnir og fengu mat hjá mötuneytinu og 2692 börn. Fyrir jólin útbjó mötuneytið sérstaka jólapakka sem sendir voru til heimila sem við örðug kjör áttu að búa. „Við gáfum um 40.000 máltíðir þennán vetur,“ sagði Gísli, „og í þvl sambandi er rétt að benda á að íbúar Reykjavíkur voru um 30.000 talsins um þetta leyti." Það hefur því oft verið ös og mikið að gera I þessu líknarstarfi I Franska um mjólk eða fyrir unga stúlku að þurfa að smeygja sér I gamla, slitna notaða skó.“ Framkvæmdanefnd mötu- neytisins reyndi að afla sér sem gleggstra upplýsinga um hagi þeirra sem báðu um hjálp, bæði með því að spyrja þá sem komu til að biðja um mat eða annað, og með því að senda mann inn á heimili þeirra til að kynna sér heimilisástæður. „Eg var þarna meira og minna I öllu,“ sagði Gísli, „og ég kom inn á mörg af þessum heimilum. Manni ofbauð neyðin auðvitað. Þarna var kuldi. Fólkið hafði ekki efni á að kynda. Það var heldur ekki beinlínis bústið. Og það var klæðlítið. En verst var þetta vitaskuld með börnin.“ „Auðvitað gat vel komið fyrir að einhver naut hjálpar sem hennar þurfti ekki með,“ sagði Gísli er hann var spurður um hvort brögð hefðu verið á misnotkun þessarar aðstoðar. „Það er aldrei hægt að útiloka slíkt með öllu. En að þetta fólk sem þarna kom hafi yfirleitt verið slæpingjar er al- veg fráleitt. Þetta var fyrst og fremst fólk sem var atvinnulaust og átti ekkert nema mikið af börnum.“ Samt kom fyrir að gagnrýni birtist I blöðunum á starf framkvæmdanefndarinnar. ' Einu sinni var nefndin tilneydd Rætt við Gísla Sigurbjörnsson forstjóra um starfsemi Mötuneytis safnaðanna í Reykjavík veturinn 1932—3 Franski spltalinn við Lindargötu — þar fór starfsemi almenningseldhússins fram. blanda því á einn eða annan hátt I stjórnmáladeilur og mun- um vér því starfa á sama hátt og hingað til að því leyti.“ I framhaldi af þessu má geta þess að þeir sem vildu pg gátu borgað fyrir mat sinn i mötuneytinu gerðu það, t.d. gerðu slfkt alls um 60 manns á einu tveggja vikna tímabili — kr. 0,50 hver. „En það er alveg ljóst,“ sagði Gísli, „að það er enginn sem gerir sér leik að því að biðja um mat. Síðan hef ég heyrt frá mörgum þessum mönnum sem til okkar urðu að koma, en eru nú komnir I fremstu röð og forríkir, að þeim fannst erfitt að þurfa að gera þetta.“ „Eg var ungur maður, 25 ára á þessum tíma,“ sagði Gísli Sigurbjörnsson, „og, ég bafði ánægju af þessu starfi. Ég þekkti líka vel ýnn á þetta því að báðir foreldrar mínir höfðu unnið að sIJIcu hjálparstarfi. Ég get nefnUsem annað dæmi um viðbrögð manna hérlendis við yfirvofandi kreppu, — islenzku vikuna sem við stóðum fyrir, llelgi Bergs og fleiri árið 1931. Þar hvöttum við þjóðina til að kaupa islenzka vöru fremur en útlenda, alveg eins og nú er farið að gera. Og það bar árang- ur.“ „Fólk heldur núna að þessi tlmi komi aldrei aftur,“ sagði Gísli að lokum, „og auðvitað vonar maður svo verði ekki. En það er hættuleg uppreisn í þjóðfélaginu, mikið stjórnleysi á flestum sviðum islenzks þjóð- lífs. Islendingar vilja allir skipa fyrir, en enginn hlýða. Þetta þjóðfélág þarf líklega að fara á hausinn. Þá kynni að koma fram þau gömlu sannindi, að neyðin kennir naktri konu að spinna. Unga fólkíð skilur til dæmis ekki hvað peningaleysi er, og í þvi felst hættan." — a.þ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.