Morgunblaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 16
JSSS MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAl 1975 16 Miósvæöjs, sarmgfarnt ver6, tslenska tölu6. Umboósmaður okkar í Reykiavík tekur á móti herbergjapöntunum í síma 83404, kl. 10~16. HOre- FAL.COM VESTERBROGADE 79 1620 K0BENHAVN V (eíex 16600 fotex dk att Danfalkhotel Þakkarávarp Hjartans þakkir sendi ég öllum vinum og vandamönnum, sem heiðruðu mig með gjöfum, skeytum og kveðjum á áttræðisafmæli mínu, þann 9. maí s.l. Elísabet Bjarnadóttir Boiungarvík. MALAÐUR BRUNI OG STABILGRÚS í bílastæði, plön og vegagerð. STEYPUSTÖÐ/N HF. SÍMI 33600. • SL. FIMMTUDAG, 22. maf voru Iidnir réttir tveir áratugir frá því er Skymasterflugvél Loft- leiða, Edda, lenti á flugvellinum I Luxemborg í fyrsta sinn og markaði þar með upphaf áætlunarflugs milli Bandaríkj- anna, Islands og Luxemborgar. I fyrstu voru aðeins vikulegar ferð- ir milli landanna en jafnt og þétt jókst ferðatíðnin, og eru nú þrjár ferðir á dag milli Reykjavíkur og Luxemborgar, fram og til baka, þegar flest er. A þessum 20 árum sem Loftleiðir hafa flogið til Luxemborgar hafa farþegar á þessari leið verið um 1,8 milljón- ir alls. Og starfsemi Loftleiða f Luxemborg gers æ umsvifameiri og fjölbreyttari. Luxemborgarflug Loftleiða 20 ára: PLÖTUJARN Höfum fyrirliggjandi plötujárn i þykktunum 3,4,5og6mm. Klippum ni<Jur eftir máli ef óskad er. Sendum um allt land STÁLVER HF FUNHÖFÐA17 REYKJAVÍK SÍMI 83444. LAWN-BOY * Létt, sterk,ryðfrí * Stillanleg sláttuhæð tý- Slær upp að húsveggjumog út fyrir kanta ■%. Sjálfsmurð, gangsetning auðveld * Fæst með grassafnara Garðsláttuvél hQD UC hinna vandlátu jMA,múl.rs9öll.Lalulll25 V j 1,8 milljónir farþega og stóraukin starfsemi Aðdragandi þessa áætlunar- flugs er í stórum dráttum sá, að snemma árs 1952 fengu forráða- menn Loftleiða augastað á Luxemborg sem ákjósanlegum viðkomustað í millilandaflugi. At- huganir leiddu í ljós að unnt myndi reynast að fá loftferða- samning við Luxemborg sam- kvæmt Chieago sáttmálánum frá 1944. Mikill kostur Luxemborgar sem viðkomustaðar var land- fræðileg lega. Landið er i hjarta Evrópu og þaðan eru greiðar sam- göngur við næstu lönd, og þétt- býliskjarna Mið-Evrópu. Árið 1952 hófust viðræður milli Islands og Luxemborgar um loft- ferðasamning og var hann undir- ritaður 23. október það ár. Þá þegar var ákveðið að hefja flug til Luxemborgar vorið 1955. Tekið var að þrengja að starfsemi Loft- leiða á öðrum mörkuðum, ekki sízt á Norðurlöndum og Bretlandi eftir að Loftleiðir auglýstu lágu fargjöldin yfir Atlantshaf árið 1953, en þau giltu frá þessum löndum. Á þessum árum höfðu Lóftleiðir náið samstarf við flug- félagið Braathens SAFE í Noregi, og varð það að ráði að ungur starfsmaður Braathens, Einar Aakrann flyttist til Luxemborgar til aó veíta forstöðú riýríi skrif- stofu Loftleiða. Var skrifstofan ópnuð 1. maí 1955. Undirbúningur og kynning á htnu nýja áætlunarflugi var þá í fullum gangi, og laugardagsmofg- uninn 21. maí lagði Edda upp frá Reýkjavík með friðu föruneyti, þ.á m. Ingólfi Jónssyni samgöngu- ráðherra, Agnar Kofoed-Hansen ★ Aætlunarflug LoftleiAa til Luxemborgar hefst fyrir 20 árum. Myndin er tekin við komuna (il Luxemborgar 22. maí 1955: fremsl er Ingólfur Jónsson ráðherra, þá Kristinn Olsen, flugstjóri ferðarinnar, Agnar Kofoed-Hánsen, Sigurður Magnússon blaðafulltrúi, Sígurður Helgason, Kristján Guðlaugsson og Alfreð EHasson. flugmálastjóra og forráðamönn- um Loftleiða, Alfreð Elíassyni, Kristjáni Guðlaugssyni og Sigurði Helgasyni, auk blaðamanna, bæði frá Islandi ög Luxemborg. í fyrsta áfanga var flogið til Hamborgar, en daginn eftir var haldið til Luxemborgar, þar sem múgur og margmenni tók á móti vélinni. Við komuna sagði Victor Bodson, flugmálaráðherra Luxemborgar, m.a. að þessi dagur væri eft- irminnilegur í sögu sámbúðar tveggja smáþjóða. Þá töldu Luxemborgarar aðeins 300.000 ög Islendingar voru innan við 200.000. Sumarið 1955 var þessi nýja flugleið flogin einu sinni í viku, og fyrsta árið urðu farþegar milli Reykjavikur og Luxemborgar fram og aftur 246, en milli Lux- emborgar og New York fram og aftur 343. Farþegafjöldinn óx stöðugt, og árið 1961 tóku Loft- leiðir upp lág fargjöld milli Lux- emborgar og Bandaríkjanna, og það ár fjölgaði farþegum á þess- ari leið úr 539 1960 í 8558. Stór- stíg breyting verður einnig árið 1962 er farþegafjöldinn er um 30.000. Árið 1964 keyptu Loftleið- ir fyrstu Rolls Royce 400 skrúfu- þotuna, og fylgdu fleiri slíkar á eftir. Árið 1970 tók félagið svo DC-8-63 þotur í sína þjónustu og farþegaaukningin hélt áfram. Sem fyrr segir Hafa nú verið flutt- ar samtals um 1,8 milljónir far- þega á þessari flugleið. Umsvif Loftleiða hafa að sama skapi aukizt í Luxemborg. Árið 1969 keypti félagið International Air Bahama, sem flýgur áætlun- arflug milli Luxemborgar og Bahamaeyja, og í márs 1970 var vöruflugfélagið Cargolux stofnað með þátttöku Loftleiða að einum þriðja hluta. Hefur starfsemi þess félags aukizt svo á fáum árum að það er nú hiðstærstasinnar teg undar í Evrópu. Framkvæmda- stjóri er Ejnar Ölafsson. I april s.l. flutti Cargolux skrifstofur sín- ar og viðhaldsdeild í nýtt stórt húsnæði, og rúmar hið nýja flug- §kýji tvær Douglas DC-8 vélar samhliða. Þá'eiga Loftleiðir 20% í nýju hóteli i Luxemborg, Hotel Aerogolf, sem er skammt frá Findelflugvelli og var opnað sriemma árs 1973. ★ Hið n> Ja. risastóra flugskýli Cargolux eins af dótturfyrirtækjum LoftleiAa f Luxemborg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.