Morgunblaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAl 1975 Piltur og stúlka Eftir Jón Thoroddsen Ég held við verðum það líka líkt báðar, sagði Sigríður; en það var auðséð, að Guðrúnu líkaði ekki þetta svar, því hún fann, að í því lá, að Sigríður vantreysti því, að hún gæti líka náð í kaupmann, og svaraði heldur þurrlega: Það er þá ekki fyrir það, þó þeim þyki það sumum ólíklegt núna, þá getur drott- inn minn á einhvern hátt séð fyrir mér; þeir eru ekki allir farnir burtu héðan, sem nú eru hérna í Víkinni. Að svo mæltu felldu þær Guðrún talið; en svo fór, að spár Guðrúnar áttu sér ekki langan aldur, því daginn eftir að þær stallsystur ræddust þetta við, kom Möller þar og bar það upp fyrir Sigríði, að hann hefði ásett sér að bjóða henni að fara með sér, eður, sem hann komst að orði, biðja hana að gjöra sér þá ánægju að lofa sér að hafa hana fyrir fylgistúlku á dansleiknum. Sigríður svarar tilmælum hans hæversklega, en bar það þó fyrir, að hún væri harla fákunnandi í þess háttar efnum og óvön að koma á slíka gleði- fundi. Möller sagði um það, að hinum —COSPER------------------------ Rólegur — rólegur. — Pabbi er hjá þér v fallegu stúlkunum fyrirgæfist mikið í því efni, þó þær bæri ekki ævinlega sem kunnáttulegast fótinn í dansinum. Nú þótt að Sigríði væri um og ó að fara með Möller, þótti henni það réttast að neita ekki svo siðsömum tilmælum orsaka- laust, og bar hún þetta mál undir mad- dömu Á., og sagði hún, að raunar hefðu þau hjónin verið búin að ásetja sér að láta hana fara með sér til dansleiksins, en þar eð Möller hefði boðið henni, gæti og farið vel á því, að hún tæki því boði, og skyldi hún þó engu að síður vera þeim hjónum mest fylgisöm. Er þetta því næst afráðið, og leið nú svo fram eftir vikunni, að ekki er Guðrúnu boðið, en engu að síður hafði hún mikinn starfa alla þá Kvennagullið þá skal hún fá dúkinn minn,“ sagði pilt- ur. „Ekki skal ég gera henni neitt, en ef hún er hrædd, getur hún gjarna haft fjóra varðmenn inni.“ Að þessu gekk konungsdóttir. Piltur- inn svaf á gólfinu fyrir framan rekkju prinsessunnar og fjórir hermenn voru á verði, heldur vígalegir, en þótt konungs- dóttir hefði ekki sofið mikið fyrri nótt- ina, þá svaf hún enn minna þessa nótt, henni kom ekki dúr á auga, hún varð að horfa á piltinn allan tímann, svo laglegur fannst henni hann, og samt fannst henni nóttin allt of stutt. Um morguninn var farið með piltinn út í hólmann, en það var víst ekki gert að vilja konungsdóttur, svo hrifin sem hún þegar var orðin af honum. Og þegar verðirnir komu með grautinn og mysuna til lýðsins úti á hólmanum, þá leit enginn við því fremur en daginn áður, og á því voru konungsmenn heldur ekkert hissa, en hitt fannst þeim undarlegt, að enginn skyldi vera þyrstur. En svo komst einn af mönnum konungsins á snoðir um það, að pilturinn hafði í fórum sfnum krana, er hafði þá náttúru, að ekki þurfti annað en að skrúfa frá honum, þá fékk hann bestu drykkjarföng, sem hugs- ast gat, öl, mjöð, og vín. Þegar hann kom aftur heim til hallarinnar, var honum jafn liðugt um mál- beinið og í fyrri skiptin. Hann sagði miklar sögur af ferðinni út í hólmann, og hve auðvelt væri að fá þar hin ágætustu drykkjarföng. „Slíkur mjöður og öl hefir MEí> MORö-JN- KAfnnu Nei, hann pabbi er ekki heima. Heyrðu, viltu ekki reyna að skýra það fyrir frænda þínum í Ástralíu, að það sé mið nótt hér um slóðir. Líkiö ö grasfletinum ___________________ Eftir: Maríu Lang ÞýSandi: Jóhanna Kristjónsdóttir _______________________________________/ 63 bet til máls. Róleg og stillileg röddin harst til okkar úr rökkrinu og við lögðum við hlustirnar af ósvikinni athygli. — Ég býst við að Margit hafi á réttu að standa . . . við erum loks kornin að þeim púnkti að sann- lcikurinn verður að fá að koma í Ijós. Og nú þegar ég sit hér og hugsa til baka, freistast ég til að spyrja mig hvers vegna ég reyndi að leyna þvi. En . . . það er langt síðan . . . allt var öðruvísi þá. Ég var það líka. — Ja, ég verð að búa ykkur undir það, að þetta er heillöng saga og hún er í sjálfu sér hvers- dagsleg, en ég býst þó við að ykkur þyki hún sérstæð á köflum. Kannski jaðrar hún við að vera giæpsamleg, ég hef velt vöngum óspart yfir þessu, en mér hefur aldrei tekizt að komast að niður- stöðu. Ég minnist þess ekki að sem barn hafi égorðið hrifin af öðrum piltum en Wilheim. Ég hef sjálf- sagt varla verið eldri en níu ára, þegar hann var lautenant og það var ekki aðeins draumlyndum augum mlnum, sem fannst hann óvcnjulega glæsilegur og aðlað- andi. Fjölskyldur okkar beggja bjuggu i Dalnum og hittust oft . . . faðir minn og móðir Wil- helms voru systkini, eins og þið kannski vitið. Siðan kom striðið 1914 og Wilhelm kom sjaldan heim i frí. Þegar styrjöldinni var að Ijúka fór hann sem sjálfboða- liði til Finnlands og kvöld hvert bað ég fyrir honum f bænum mínum, ég hef á tiifinningunni að það hafi verið aðalinntak í bænum mínum um það leyti. En hann hafði ekki uppgötvað að hann ætti renglulega og rómantíska frænku, sem hafði kjörið hann sína miklu ást. Það gerði hann ekki fyrr en sumarið sem ég varð átján ára. Þá fór hann að hafa mikinn áhuga á mér og við vorum alls staðar saman. Næstu ár leit hann Ifklega á mig sem fast og skemmtilegt sumar- ævintýri sitt og ég held ekki að honum hafi orðið ljóst, hversu heitar tiifinningar mínar voru, fyrr en fjölskyldur okkar fóru að skipta sér af sambandi okkar. Við vorum systkinabörn og nú var sagt á báðar hliðar að ekkí kæmi hjónaband til greina með svona náinn skyldlcika, auk þess taldi faðir minn, að aldursmunurinn, sem var fimmtán ár, væri alltof mikill! Ég var miður min af harmi yfir þessu og varð veik upp úr öllu saman, en ég var vægðar- laus send til útlanda og þegar ég kom heim vorið 1926 hafði mér að þvf er ég taldi, tekist að komast yfir þetta allt saman. Þegar ég frétti að Wilhelm væri trúlofaður tók ég það satt að segja hreint ekkert mjög nærri mér. Um Jónsmessuna kom Will óvænt heim. Ilann vildi segja mér sjálfur að brúðkaup hans ætti að standa um sumarið, og það fannst mér mjög hugulsamt og heiðar- legt af honum — en það var einnig ákaflega heimskulegt. Þetta var okkur báðum meira mál en við vildum vera láta og nú vöknuðu allar okkar tilfinningar til lffsins aftur . . . minningarn- ar, öll okkar heita þrá. Þetta var nótt töfranna og fullnunarinnar. Og ég varð ófrisk . . . Þegar ég gerði mér grein fyrir ástandi mínu var Wilhelm giftur Margit. 1 nokkra mánuði var mér efst i huga að svipta mig lifi, en loks tók ég á mig rögg og fékk þvf til leiðar komið að ég fengi að fara til Stokkhólms og reyna hæfni mfna sem blaðamaður. Og nú er komið að þessum fáránlega kafla i sögu minni. Fáránlegur er hann vegna þess að maður getur ekki imyndað sér að til séu mann- eskjur eins og mfn góða og kæru- lausa vinkona frá skólaárunum. Hún heitir Sara Britt Anders- son . . . ég sé að Christer hefur heyrt nafnið ... og þá veiztu sennilega hvernig sagan endar. Hún annaðist mig af nærfa-rni og neyddi mig fyrst til að skrifa Wil- helm og segja honum, hvernig fyrir mér væri komið. Hann kom auðvitað eins og kólfi væri skotið til Stokkhólms og var alveg miður sfn, vildi skilja við konuna sína og ég veit ekki hvað, en ég fékk talið hann ofan af því. Svo kom Sara Britt mér inn á mæðra- heimili fyrir harnshafandi konur og þegar ég hikaði og óttaðist að foreldrar mínir fréttu þetta eftir einhverjum leiðum svaraði hún eins og ekkert væri: „Þú getur dvalið þarna undir mínu nafni. Það eru svo margir sem heita Andersson að fornafni. Og ég á hvorki foreidra né nána ættingja, sem fengju siðgæðisflog ef þeir fréttu af þvf að ég væri ófrísk.“ Og þar sem hún er þannig gerð, að hún lætur aldrei sítja við orðin tóm útvegaði hún mér snarlega skírnarvottorð, sem hún stakk niður I töskuna mína, áður en ég fór af stað. Og svo fæddist Tommy og meðan ég var enn alltof veik- burða til að hugleiða afleið- ingarnar af þessu sendi ljós- móðirin sem var forstöðukona heimilisins tilkynningu til réttra yfirvalda á grundvelli þessarar fölsunar okkar. Það hljómar satt að segja ótrúlega að svo auðvelt hafi verið að fæða barn f nafni annarrar konu á fæðingarheimili og ég geri ekki ráð fyrir að slfkt gæti komið fyrir nú, en þetta var sem sagt svona árið 1927 og Sara Britt sem hafði ærna ástæðu til að hafa áhyggjur af þessu öllu gerði gaman að heila klabbinu. Sfðan kom ég Tommy fyrir á barnaheimili og fór tii útlanda. Svo fór ég að skrifa og sem stundir liðu fram græddi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.