Morgunblaðið - 25.05.1975, Page 25

Morgunblaðið - 25.05.1975, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAl 1975 25 Við lifum ef við tölum Glof Lagercrantz lætur af störfum sem ritstjóri Dagens Nyheter, stærsta og áhrifa- mesta dagblaðs Svíþjóðar, við lok þessa árs. Við tekur Per Wástberg, sem á það sameigin- legt með Lagercrantz að vera líka ljóðskáld. En þekktastur er Wástberg fyrir skáldsögur sín- ar, kynningar sínar á verkum og frelsisbaráttu afriskra rit- höfunda og starf sitt i PEN, alþjóðasamtökum rithöfunda, en þar hefur hann lengi verið i fararbroddi. Sú vinstri sveifla, sem hefur í æ ríkari mæli sett svip sinn á Dagens Nyheter síðasta áratug- inn, er af mörgum talin runnin frá Lagercrantz og hafa af þeim sökum spunnist harðar deilur milli ritstjórnar Dagens Nyhet- er og eigenda blaðsins, en meðal þeirra er Bonniersættin atkvæðamest. Oft hefur komið til tals að láta Lagercrantz víkja úr starfi, en honum hefur auðn- ast a.ð sitja i ritstjórnarstólnum áfram og fara sínu fram. Nú er svo komið að aldurinn ákvarðar að hann hirði hatt sínn. Lager- crantz verður eftirlaunamaður, en ólíklegt er að greinar eftir hann birtist ekki öðru hverju i Dagens Nyheter. Kannski snýr hann sér að skáldskapnum, sem alla tíð hefur verið köllun hans? Skáldið Olof Lagercrantz hef- ur um of horfið i skugga rit- stjórans og greinahöfundarins með sama nafni. Ég hef verið að fletta að undanförnu dálitilli bók með úrvali úr ljóðum Lagercrantz og nokkrum hug- leiðingum af sjálfsævisöguleg- um toga: Tröst för min álskling heitir bókin, útg. Svalans Lyrikklubb, Bonniers 1971. Flest ljóðin kveðst Lagercrantz hafa ort í janúar og febrúar 1962. Hann gegndi störfum sín- um á Dagens Nyheter og las daglega Gleðileikinn guðlega eftir Dante. Sá lestur varð til Olof Lagercrantz. þess að Lagercrantz samdi bók um Dante: Frán helvetet till paradiset og fyrir þessa bók fékk hann bökmenntaverðlaun Norðurlandaráðs ásamt William Heinesen. Fáir þekkja kvölina betur en Dante, segir Lagercrantz, en i lýsingum á hamingjunni er hann líka meistari. Vítishlutinn í verki Dantes er ferðasaga úr þjáningaheimi. Hann veitir huggun vegna þess að skáldinu tekst að opinbera sársauka, sem hefur ekki áður verið komið orðum að. Gleðileik Dantes er Lagercrantz m.a. að rifja upp í formálanum vegna þess að meðan hann orti Ijóðin í Tröst för min álskling kynntist hann fólki, sem þjáðist og honum varð tiðhugsað um vanda þess. Ljóðin voru ort eftir nær tuttugu ára biðtíma. Lager- crantz hafði ekki ort síðan á æskuárum sínum og hann varð bæði hissa og glaður þegar and- inn kom skyndilega yfir hann. En þegar ég les þessi ljóð aftur, segir Lagercrantz, er mér ljóst að þau eru kveðja mín til ljóða- gerðarinnar. Mér virðist líkt og lif mitt hafi stefnt að því, sem stendur á þessum blöðum. Flest ljóðin í Tröst för min álskling, heldur Lagercrantz áfram, fjalla um einkaheim, um hvern- ig unnt sé að lifa lifinu, stand- ast kröfur þess, haldinn von- lausum sársauka og andspænis honum. Er ekki til önnur huggun, spyr Lagercrantz að lokum, en orð ofin saman? Ég held að huggun sé einnig að finna í því að vinna saman að háleitu markmiði. Undir slíkum kringumstæðum getur vonleys- ið og dauðabeygurinn ef til vill hvarflað frá okkur. Nokkur þeirra ljóða, sem birtast i Tröst för min álskling, hefur Jón úr Vör þýtt og birtust þýðingarnar í Maurildaskógi (1965). Einkennandi fyrir þessi ljóð er Ónei, sem er þann- ig i þýðingu Jóns úr Vör: Önei, orð sorgar drepur engan, það er orðleysið sem deyðir. Við lifum ef við tölum, þegjandi deyjum við. Hlustaðu því á raust mína, þetta dapra ljós, . sem lýsir veggi hellisins. Enginn er hér, engan þarf að óttast meðan orðið er til og ljósið lifir. Orðleysið deyðir; við lifum ef við tölum; þegjandi deyjum við. Hér er stefnuskrá skáldsins komin. 1 öðru ljóði, Miðja vegu, lýsir skáldið því að það hafi gengið við hlið Meistarans, þessi meistari er Dante, og minnist gasofna síðari heims- styrjaldar. Faðir segir við barn sitt; ,,Dragðu djúpt andann, hjartað mitt,/ og bæði hnigu til jarðar.“ Skáldið er enn á ferð með Dante. Jón úr Vör þýðir- En í hvert sinn, sem Hann leiddi mig í þessi undirdjúp sársaukans, en timarnir lögðu okkur oft upp í hendur slik tækifæri, — snerum við aftur upp til jarðarinnar, og virtum fyrir okkur dýrð hennar... og stjörnur himinsins tindruðu yfir okkur. Myndskreyting eftir Martin Lamm úr Tröst för min álskiing. I hugleiðingunum í lok Tröst för min álskling lýsir Lager- crantz bernsku sinni, ástum, ör- væntingu. Hann var berkla- veikur og þurfti oft að dveljast á hælum sér til heilsubótar. Það er geðveila i ættinni og sjálfsmorðhugleiðingar ekki langt undan. En ljóðið hjálpar honum, skáldskapurinn og sam- kenndin með öðrum, sem líka þjást. Mig hefur alltaf dreymt um breytingu, um nýtt og betra líf. Að þessu leyti líkist ég öll- um öðrum, segir Lagercrantz. Honum verður hugsað til skáld- bræðra sinna og vina, sem allir eru horfnir, sumir hafa átt við þunglyndi að stríða eins og frænka hans Agnes von Krus- Framhald á bls. 33 grundvelli). Á móti þessum skattívilnunum og útgjaldaáuka vegna láglauna- bóta kemur verulegur niður- skurður ríkisútgjalda (heimildar- ákvæði um niðurskurð allt að 3500 milljónum), skyldusparnað- ur á hærri tekjur, sem lagður verður á með tekjuskatti, og veru- legar lántökur til að styrkja fram- kvæmda- og fjárfestingarlána- sjóði, til að tryggja fulla atvinnu og nauðsynlegar framkvæmdir í vatnsafls- og iarðvarmavirkjun- um sjávarútvegsins o.fl., voru fjármögnun opinberra fram- kvæmda. Frumkvæðið hjá fyrri stjórn Tvennar gengislækkanir, ráð- stafanir i sjávarútvegi, þ. á m. ráðstöfun gengismunar í þágu sjávarútvegs, aðgerðir i lánamál- um, sem hafa algjöran forgang I fyrst og fremst við það miðaðar, að hjól atvinnulifsins gætu áfram snúizt og full atvinna væri áfram tryggð. Þessum ráðstöfunum fylgdi nokkur hækkun á verðlagi opinberra þjónustufyrirtækja, sem höfðu verið fjárhagslega svelt lengi og vóru komin i skuldafen og algert getuleysi um nauðsynlega þjónustu við al- menning, Þessum aðgerðum hlaut að fylgja og fylgdi nokkur dýrtíð- araukning og kaupmáttarskerð- ing. Óánægja með þessa þróun er bæði eðlileg og skiljanleg, þó hún væri óhjákvæmileg og rökrétt af- leiðing kringumstæðna og ætti rætur í forsendum, sem fyrri rik- isstjórn ber alla ábyrgð á. 1 þessu sambandi verður ekki komizt hjá að minna á þá stað- reynd, að það var vinstri stjórnin, sem rauf tengsl kaupgjalds og vísitölu. Það var hennar svana- söngur i lok sins valdaferils. I viðræðum um myndun nýrrar vinstri stjórnar varð fullt sam- komulag um nauðsyn gengislækk- unar og sambærilegar hliðarráð- stafanir við þær, sem nú hefur verið gripið til. I þeim viðræðum varð og fullt samkomulag um söluskattshækkun, hækkun bens- ingjalds og verðjöfnunargjald á raforku, sem nú er 13% álag á raforkuverð. Magnús Kjartansson var raunar höfundur þessara lagafrumvarpa um verðjöfnunar- gjaldið og járnblendiverksmiðj- una f Hvalfirði. Þannig átti vinstri stjórnin frumkvæðið að öllum þeim ráðstöfunum i efna- hagsmálum, sem aðilar hennar saka núverandi rikisstjórn um. Eini munurinn er sá að núverandi ríkisstjórn hefur gengið miklum mun lengra í að verja kaupmátt láglauna en vinstri stjórnin áformaði. Þegar þessa er gætt, verða öll gagnrýnisorð vinstri flokkanna nú marklaust hjal, sem aðeins þeir grunnhyggnustu leggja eyru við. r Astand og horfur á vinnumarkaði Því verður naumast á móti mælt að dökkar blikur eru nú á lofti á íslenzkum vinnumarkaði. Viðbrögð launþega eru heldur ekki óskiljanleg við ríkjandi aðstæður. Vissulega er um umtalsverða kaupmáttarrýrnun að ræða frá þeim tíma er við- skiptakjör þjóðarinnar voru sem hagstæðust og verð útflutnings- afurða okkar i hámarki. Þess verður þó að vænta, ef ekki á illa að fara, að væntanlegir kjara- samningar á almennum vinnu- markaði taki mið af viðblasandi staðreyndum efnahagslífsins, þ.e. viðskiptakjörum þjóðarinnar og þeim raunverulegu verðmætum, sem til skiptanna eru. Hugsanleg- ar launahækkanir, hvort sem þær verða i formi nýrrar, raunhæfari vísitölu eða með öðrum hætti, verða að vera innan þeirra marka, sem viðskiptakjör þjóðarinnar og raunverulegar þjóðartekjur leyfa. Ef út af verður brugðið hljóta í kjölfarið að fylgja annað tveggja, ný kollsteypa og atvinnuleysi, svo sem reyndin hefur víða orðið, nema hvort tveggja verði. Þeir, sem kalla vilja atvinnuleysi yfir þjóðina í von um pólitiskt öng- þveiti, sem er eini jarðvegur öfga- stefna, mega undir engum kring- umstæðum fá að ráða ferðinni. Smærri krónur og atvinnuleysi leysa engan vanda. Þess verður að vænta að allir málsaðilar, launþegar, vinnuveit- endur og rikisvald leggist af öll- um krafti á þá sveifina, að sóma- samleg samningsle;ð finnist, sem taki í senn mið af viðskiptakjör- um þjóðarinnar — og lifskjörum þeirra lægst launuðu. Þeir, sem betur mega sín bæði verða og þola að bíða öllu lengur. Að reka hund með halla Það bregður fyrir kankvísum brosum í augum tilverunnar, jafnvel á erfiðleikatímum. Þeim veldur á stundum Ragnar nokkur Arnalds, sem hvorki ekur norður- né niðurveg i kenningum sinum. Hann hefur nú fundið og kunn- gjört „pottþétta patentlaUsn" á öllum vanda íslenzkrar útgerðar, hvorki meira né minna. Margra ára rekstrarhalli útgerðar í kjör- dæmi hans skiptir engu máli leng- ur, honum sé lof. Og djúpstæðir greiðsluerfiðleikar hennar hverfa eins og dögg fyrir sólu, verða jafnvel gulls ígildi. Lausnin er svo einföld að jafnvel kornabörn skilja, máski öðrum fremur. Ef útgerðin einfaldlega selur þessi atvinnutæki byggðarlagsins, þrjá skuttogara og aðrar eignir sínar, á hún handbærar 600 milljónir króna umfram skuldir (ef borgað er út í hönd), eða smíðaverð eins nýs skuttogara af sömu gerð og þeir þrír, sem hún er nú að burðast með í taprekstri.! Þar með er komin sönnun fyrir, svo ekki verður á móti mælt, svo- nefndum verðbólgugróða. Og ekki nóg með það. A þennan hrikalega gróða skal leggja verð- bólguskatt (sem ekki er nema sanngjarnt á horngrýtis útgerðar- auðvaldið). Þennan gullvæga tekjupóst á svo að nýta til að styrkja þessa sömu útgerð (sem nú er skyndilega orðin undirstaða afkomu almennings i sjávar- plássunum). Það skiptir hins- vegar engu máli, þö að þessi fá- sýna snilli sé fengin að láni hjá dönskum skopteiknara, sem fyrst- ur setti hana fram i nokkrum blýantsdráttum. Hann lét fróman mann, sem rak hund með halla, skera skottið af hvutta sinum og stinga upp i hann glorsoltinn! Og nú er spurningin: Er ekki fundið nýtt fjármálaráðherraefni á Is- landi? Og siðan kemur betri tið með blóm í haga, bjarta langa sumardaga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.