Morgunblaðið - 25.05.1975, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAI 1975
41
fclk í
fréttum
+ Þessi myndarlegi hópur
stúdenta útskrifaðist frá
Menntaskólanum við Lækjar-
götu á föstudaginn. Að vanda
stillti hópurinn sér upp til
myndatöku og var ijósm. Mbl.
Ól. K. Mag. einnig viðbúinn
með myndavélina sína og
smellti mynd af hópnum.
Glennimeist-
ari hinn mesti
+ Þessi glennumeistari
sem við sjáum hér á
myndinni, er búsettur i
Bandaríkjunum; — rétt-
ar sagt í Kolumbus í
Ohio, og þar glennir
hann sig og geiflar og
segist um leið komast
þannig næst því að
líkjast vinum okkar
Skotum .. . hvað sem það
á nú að þíða?
Eins' gott að Skotar
kunni að taka svona
gríni. Ekki satt?
Agatha Christie grófupp gamalt
handrit og fékk 925.000$ fgrir
+ Þegar Háskólabíó er að hefja
sýningar á „Morðinu í Austur-
landahraðlcstinni“ (Murder
On The Orient Express), sem
farið hefur fram úr aðsóknar-
mctum á nær öllum myndum
undanfarna mánuði, er gaman
að rifja upp litla sögu í þessu
sambandi.
Framleiðendur „Morðsins"
höfðu gert sér góðar vonir um,
að myndin yrði vinsæl, enda
sagan ein mest lesna leynilög-
reglusaga, sem út hefur verið
gefin, en auk þess er valinn
maður í hverju rúmi eða öllu
heldur hlutverki í myndinni.
En svo hefur farið, að hún hef-
ur bókstaflega farið sigurför
um heiminn. I Brctlandi hefur
hún slcgið öll aðsóknarmet og
sama er að segja um flest önn-
ur lönd, þar sem myndin hefur
verið sýnd til þessa.
Þegar þetta varð ljóst, fóru
bókaútgefendur á stúfana og
spurðu frú Christie, hvort hún
lumaði ekki á einhverju hand-
riti, sem þeir gætu ge'fið út og
grætt vel á vegna vinsælda
myndarinnar. Agátha Christie
er orðin 84 ára gömul og nær
hætt að skrifa, en þegar hún
var um þetta spurð, tók hún
gamalt handrit, sem hún átti
niðri í skúffu, dustaði af því
rykið og spurði:
„Hvað vilja menn borga?“
Einn af pappírskiljuútgef-
endum Bandaríkjanna varð
hlutskarpastur. Hann bauð
henni 925.000 dali — um 140
milljónir króna — á borðið fyr-
ir pappírskiljurétlinn. Réttur
til að gefa bókina út í „hard
cover“ fylgdi þessu ekki, enda
verður sú útgáfa ekki sett á
markaðinn fyrr en 15. október f
haust — þegar 50 ár eru liðin
frá þvf að fyrsta bók höfundar-
ins kom út.
Og hvaða bók var það þá, sem
Agatha Christie bauð upp á frá
svo gamalli tfð? Þegar hún var
um það spurð, kvað hún þetta
30 ára gamla sögu, sem hún
hefði skrifað, þegar hún var
einu sinni orðin svo leið á
Hercule Poirot — aðalhetjunni
í flestum sögum hennar og
einnig í „Morðinu í Austur-
landahraðlestinni" — að hún
ætlaði að „kála“ honum. Sagan,
sem nú er að koma út, fjallar
þvf um „andlát“ Poirots, sem
höfundurinn ákvað en hætti
svo við, þegar hún athugaði
málið nánar. \
Stór
augu...
+ Allir ráku
upp stór augu
þcgar afrfski
þingmaðurinn
Godfrey Chidy-
ausiku mætti f
þingsalinn i
Salisbury
Rhodesiu, og
það var kannski
ekki furða, þeg-
ar maður Iftur á
fötin sem hann
er í. Myndin af
Godfrey Chidy
ausiku var tekir
fyrir utan þing
húsið.
Útvarp Reykfavik O
mAnudagur
26. maf
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05: Valdimar Örnólfsson
leikfimikennari og Magnús
Pétursson pfanóleikari (alla
virka daga vikunnar). Frétt-
ir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
landsmálabl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl 7.55: Séra
Þorbergur Kristjánsson flyt-
ur.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigrfður Eyþórsdóttir
les „Kára litla f sveit“ eftir
Stefán Júlfusson (6).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Morgunpopp kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Fílharmónfusveitin f New
York leikur Sinfónfu nr. 1 f
C-dúr eftir Georges Bizet/-
Aimée van de Wiele og
hljómsveit Tónlistarskólans f
París leika „Sveitalffskon-
sert“ eftir Francis Pulenc.
12.00 Dagskráin. Tónlcikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „A vfga-
slóð“ eftir James Hilton
Axel Thorsteinsson les þýð-
ingu sfna (5).
15.00 Miðdegistónleikar
Sjatoslav Rikhter leikur
Pfanósónötu op. 9 nr. 103 eft-
ir Prokof jeff. Margaret Price
syngur lagaflokkinn „1
barnaherberginu" eftir
Mússorgský; James Lockhart
leikur á pfanó./Ernest
Háfliger syngur „Fjögur kfn-
versk ástarljóð" eftir Rolf
Liebermann; Urs Voegelin
leikur á pfanó/Borgarhljóm-
sveitin f Winterhur leikur
Tokkötu, arfósó og gfgu fyrir
Strengjasveit eftir Peter
Mieg; Clemens Dahinden
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir)
16.25 Popphorn
17.10 Tónleikar
17.30 Sagan: „Prakkarinn"
eftir Sterling North
Hannes Sigfússon þýddi. Þor-
björn Sigurðsson les (3).
18.00 Sfðdegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Mælt mál
Bjarni Emilsson á Eskifirði
talar.
20.00 Mánudagsiögin
20.25 A ártíð Jónasar Hall-
grfmssonar
Halldór Laxness les ritgerð
sfna um skáldið frá 1928.
20.55 Astarljóð
lagaflokkur eftir Skúla Hall-
dórsson við Ijóð Jónasar
Hallgrfmssonar. Kristinn
Hallsson og Þuríður Pálsdótt-
ir syngja með hljómsveit
Ríkisútvarpsins; Hans
Antolits stjórnar.
21.15 A vettvangi dómsmál-
anna
Björn Helgason hæstaréttar-
ritari flytur þáttinn.
21.30 (Jtvarpssagan:
„Móðirin" eftir Maxim Gorkf
Halldór Stefánsson þýddi.
Sigurður Skúlason leikari les
(3).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Búnaðarþáttur
Dr. Sturla Friðriksson talar
um jarðræktartilraunir.
22.35 Hljómplötusafnið
f umsjá Gunnars Guðmunds-
sonar
23.30 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok.
A
skjánum
MANUDAGUR
26. maf
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og
auglýsingar
20.35 Onedin skipafélagið
Bresk framhaldsmynd.
32. þáttur. Bergmál úr
fjarska.
Þýðandi Oskar
Ingimarsson.
Efni 31. þáttar:
A heimleið frá Suður-
Amerfku finna James og
skipshöfn hans bát á reki
við ósa Amasonfljóts. t
bátnum er kona, meðvit-
undarlftil og illa til reika.
Hún hressist þó brátt við
góða hjúkrun, en minni
hennar er ærið gloppótt
fyrst f stað. Heima f
Liverpool eru að skapast
vandræði vegna verkfalls
kolanámumanna, og kola-
flutningar leggjast niður
að sinni. En James leitar á
önnur mið og ræður á skip
sfn nokkra verkfalls-
menn, þótt ekki verði það
til að auka honum
vinsældir.
21.30 Iþróttir
Myndir og fréttir frá
viðburðum helgarinnar.
Umsjónarmaður Ómar
Ragnarsson.
22.20 Stærsta borg
heimsins
Sæns mynd um höfuðborg
Japans, Tókýó, daglegt Iff
þar og vandamálin, sem
skapast við hina miklu
umferð og feiknalegar
vegalengdir.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir. Þulur ásamt henni,
Ellert Sigurbjörnsson.
(Nordvision — Sænska
sjónvarpið).
22.55 Dagskrárlok.
Veiðileyfi
í Úlfarsá
(Korpu) eru seld
í Verzluninni
Veiðimaðurinn
Áburðarverksmiðja
ríkisins.