Morgunblaðið - 30.05.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAI 1975
5
Við afhendingu Barnabókaverðlauna Fræðsluráðs Reykjavíkurborgar
að Höfða í gærdag, — Birgir Isl. Gunnarsson, Guðrún Helgadóttir,
Jenna Jensdóttir og Solveig Thorarensen.
„Jón Oddur og Jón
Bjarni” og „Prinsinn
hamingjusami”
— hlutu Barnabókaverðlaun
Fræðsluráðs Reykjavíkurborgar
1 GÆR voru Barnabókaverðlaun
Fræðsluráðs Reykjavíkurborgar
veitt í þriðja sinn, en þau hlutu
að þessu sinni Guðrún Helgadótt-
ir fyrir bókina Jón Oddur og Jón
Bjarni, og Solveig Thorarensen
fyrir þýðingu sögu Oscars Wilde,
Prinsinn hamingjusami.
Jenna Jensdóttir, formaður
dómnefndar þeirrar, sem ákveður
veitinguna, gerði grein fyrir
störfum nefndarinnar, en Birgir
Isl. Gunnarsson borgarstjóri af-
henti verðlaunin.
Jenna Jensdóttir sagði: „Ég
mæli hér fyrir hönd nefndar
Magni dró Reykja-
foss til Gufuness
REYKJAFOSS var dreginn úr
Sundahöfn að Gufunesi í gær af
dráttarbátnum Magna og um leið
og skipið var komið að bryggju
þar var hafizt handa við að losa
áburð úr lestum skipsins, en það
var með fullfermi af áburði.
Nauðsynlegt reyndist að draga
skipið, þar sem vélstjórar á kaup-
skipunum eru i samúðarverkfalli
með starfsbræðrum sinum á stóru
skuttogurunum.
þeirrar er kvödd var til að meta
barnabækur, er komu út á síðasta
ári og gera tillögur um verðlaun.
Vona ég, að okkur hafi vel til
tekizt í þeim vanda, þar sem
niðurstaða okkar varð einróma.
Það leggur alltaf nokkurn
ljóma af vel unnum verkum sé á
þau bent, og sá ljómi örvar þann,
sem öðlast.
Ég held það vaki í okkur öllum
þrá til þess að vera fullskyggn á
okkur sjálf. Sú þrá fær svölun
þegar eitthvað, sem hefur verð-
leikagildi ljær vitund okkar lit.
Hlutverk allra lista hlýtur að
vera að vekja hug okkar til sam-
skynjunar, sem hvetur
ímyndunaraflið til átaka. I þessu
ljósi tel ég, að verðlaun séu mjög
jákvæð.
Verðlaunahafar eru að þessu
sinni þær Guðrún Helgadóttir og
Solveig Thorarensen. Guðrún
hlýtur verðlaunin fyrir frum-
samda barnabók sina, Jón Oddur
og Jón Bjarni. I bókinni fer
saman vandað mál, léttleiki í frá-
sögn, auðugt ímyndunarafl og
hlýtt viðhorf tií lífsins. Solveig
hlýtur verðlaun fyrir þýðingu
sína á ævintýrinu Prinsinn
Málverk Svavars á
rösklega 250 þús. kr.
Kaupmannahöfn 29. maí.
Frá fréttam. Mbl.
Braga Kristjónssyni
RÉTT í þessu var að ljúka hér í
Kaupmannahöfn uppboði hjá
Listamunauppboðurn „Kunst-
hallens auktioner" í Köbmager-
gade. Þar voru boðin upp tvö
íslenzk málverk, eitt eftir Svavar
Guðnason var slegið á 7000 kr.
danskar. Þar við bætast kr. 2100 í
þóknun og skatta þannig að sam-
tals er kaupverðið 9100 kr.
danskar eða sem svarar 254.800.-
íslenzkum.
Auk þess var slegið málverk
eftir Þorvald Skúlason, sem fór á
danskar krónur 2800 en þar við
bætist kostnaður og skattar d. kr.
840 eða samtals 3640 d. kr, sem
samsvara 101.920.- ísl. kr. Þykir
þetta mjög ódýrt. Ekki var hægt
að fá uppgefið hjá uppboðs-
firmanu hverjir hefðu keypt lista-
verkin.
hamingjusami eftir Oscar Wilde.
Þýðing hennar er mjög vönduð og
frásögnin leikandi fær. Frágang-
ur bókarinnar er óvenju vandað-
ur.“
Guðrún Helgadóttir þakkaði
verðlaunin fyrir hönd þeirra
Solveigar, og sagði m.a. að enda
þótt þær kynnu báðar vel að meta
verðlaunin, þá væri þó mest um
vert, að Fræðsluráð viðurkenndi
og mæti barnabækur. í ár var
verðlaunaupphæð fyrir frum-
samda barnabók 75 þús. krónur,
en þýðingarverðlaunin 40 þús. kr.
Við afhendinguna sagði Birgir
Isl. Gunnarsson, að veiting verð-
launa fyrir beztu frumsömdu og
bezt þýddu barnabókina hefði á
sínum tíma verið hugsað sem svar
við þeirri gagnrýni, að barnabæk-
ur væru síður metnar og siður til
þeirra vandað en bóka, sem ritað-
ar eru fyrir fullorðna, og sem
hvatning til höfunda og þýðenda
til að vanda verk sín.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al GLYSINGA-
SÍMINN RR:
22480
VEITIDITHYGLI
• • •
STÓRKOSTLEGU ÚRVALIAF
NÝJUM VÖRUM, SEM TEKNAR VORU
UPPÍDAG TD.:
í\ *r •—
Wí Pjtí I % i i Ú
p-f l
□ BLÚSSUR OG BOLIR í OFSALEGU ÚRVALI BÆÐI STUTTERMA
OG LANGERMA □ RÚLLUKRAGABOLIR ÞUNNIR — MJÖG FAL-
LEGIR LITIR □ SJÖL OG PRJÓNASILKITREFLAR □ ÞUNNIR
SPORTJAKKAR DÖMU OG HERRA ÚR KAKHI. □ KÁPUR □
HERRAFRAKKAR □ STAKIR TERYLENE & ULLARBUXUR í MJÖG
FALLEGUM LJÓSUM LITUM □ FLAUELSFÖT DÖMU OG HERRA
□ MJÖG FALLEGIR BLAZER JAKKAR HERRA □ GALLABUXUR
UFO □ LJÓS FÖT M/VESTI □ EINLITAR HERRASKYRTUR □
DÖMU OG HERRASKÓR □ NÝ PLÖTUSENDING Þ. Á M. ELTON
JOHN □ OMFL.