Morgunblaðið - 30.05.1975, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAl 1975
15
U-2 njósnavél hrap
ar við járntjaldið
Washington 29. mai — Reuter
BANDARtSK njósnavél af gerð-
inni U-2 hrapaði til jarðar f Vest-
ur-Þýzkalandi í dag, aðeins um
135 km frá austur-þýzku landa-
mærunum. Var vélin að reyna
nýjan rafeindaútbúnað, að því er
heimildir innan bandarfska
varnarmálaráðuneytisins hermdu
í kvöld. Flugmaðurinn komst
heilu og höldnu til jarðar í fall-
hlff. Bandaríski flugherinn lagði
áherzlu á, að vélin, sem er ein af
Meiri olía finnst á svæði
Dana í Norðursjó
Kaupmannahöfn 29. maí
Reuter
DANSKT fyrirtæki hefur kunn-
gert um nýjan olíufund á yfir-
ráðasvæði Dana á olíuleitarsvæð-
unum í Norðursjó. A.P. Möller,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
sagði að rannsóknir á stað þessum
sem er kallalur N-2 væru mjög
örvandi og mætti framleiða um
500 þúsund til milljón tunnur af
olíu á ári. Rannsóknir fóru fram á
2.289 m dýpi.
fimm slfkum sem bækistöð hafa í
Bretlandi, hefði aðeins verið f til-
raunaferð, hefði ekki haft ljós-
myndaútbúnað og engin vopn.
Talsmaður neitaði því að hún
hefði verið í njósnaferð til
Austur-Þýzkalands. Orsök slyss-
ins er ókunn.
Kosið í
Finnlandi
í september
Helsingfors 29. maí — NTB
FULLTRUAR flokkanna
fjögurra í finnsku samsteypu-
stjórninni lögðu í dag til að
Kekkonen, forseti, boðaði til
kosninga f haust, og telja flest-
ir að þær verði 21. eða 22.
september. Rfkisstjórnin
hefur lýst sig reiðubúna til að
segja af sér, en líkur benda til,
að nokkrir dagar muni a.m.k.
líða áður en hún lætur form-
lega af völdum, þar eð Kekkon-
en telji að þingið þurfi að
vinna áfram að mikilvægum
málum. Því mun stjórnin ekki
segja af sér fyrr en þinglausn-
ir fara fram, og þá fyrst mun
skýrt opinberlega frá kjördegi.
Miklar ör-
yggisráð-
stafanir
— vegna komu
Fords til Madrid
Madrid 29. maí — AP
ÖRYGGISRÁÐSTAFANIR í Mad-
rid vegna komu Fords Banda-
ríkjaforseta til Spánar á laugar-
dag eru umfangsmeiri en nokkur
dæmi eru til um þar i landi, og er
Iögreglan sögð hafa handtekið
marga menn f öryggisskyni.
Hundruð fbúða og verzlunar-
húsnæðis á leið þeirri sem Ford
og Franco einræðisherra munu
aka hafa verið grandskoðuð, og
lögreglan hefur beðið eigendur að
tæma hús sín og láta húsvörðum í
té lyklana. Ýmis stjórnmálasam-
tök hafa lýst mikilli andstöðu við
komu Fords, og falangísk æsku-
lýðssamtök hafa hvatt til mót-
mælaaðgerða.
Ný fóstureyðing-
arlöggiöf í Noregi
— og einn biskup hefur þegar
sagt af sér í mótmœlaskyni
0 NORSKA stórþingið sam-
þykkti f kvöld umdeilt fóstur-
eyðingarfrumvarp sem lög og
skömmu eftir að frétt barst um
samþykkt þess sagði Ler
Lönning, einn af tfu Noregs-
biskupum, af sér f mótmæla-
skyni og segir AP- fréttastofan
að til fleiri ámóta tfðinda
kunni að draga, þar sem flestir
forystumenn kirkjunnar hafa
lýst sig andvfga nýju löggjöf-
inni.
Norska löggjöfin gerir ekki
ráð fyrir, að fóstureýðing sé
heimil óskoruð að ósk konu,
heldur eru tveir læknar sem
hafa úrslitavald um hvort leyfi
er veitt. Nýju lögin eiga þó að
tryggja konum meira öryggi í
þessum málum en verið hefur
og einfalda framgang málsins
frá þvf að kona óskar eftir
þungunarrofi. Kona sem fær
neitun getur sfðan áfrýjað til
nefndar og á að sitja f henni að
minnsta kosti einn félagsráð-
gjafi.
Þá er gert ráð fyrir að nú
megi taka með í reikninginn
félagslegar aðstæður konu sem
forsendu leyfis til fóstureyðing-
ar en samkvæmt fyrri lögunum
var aðeins tekið mið af læknis-
fræðilegum ástæðum. Enda
þótt þarna hafi nokkur rýmkun
verið gerð segir AP-
fréttastofan að eftir sem áður
muni verða mjög erfitt að fá
löglega fóstureyðingu í Noregi.
Mjög miklar deilur haf a verið
um frumvarpið og mörgum þótt
það ganga of langt i „frjáls-
ræðisátt."
Jafnaðarmanna mannaflokk-
ur Trygve Bratteli, sem lagði
fram frumvarpið, leggur á-
herzlu á, að með þessu verði
fóstureyðingar svo til frjáls-
ar, en um það eru skiptar
skoðanir.
Lönnig biskup, sem sagði af
sér f mótmælaskyni við sam-
þykkt frumvarpsins, hvatti í út-
varpsviðtali prestastétt lands-
ins til að sýna samstöðu og
þjóna áfram guði en ekki
rfkinu.
Herinn sker upp herör gegn öfgahópum í Portúgal:
Mörg hundruð Maó-
istar handteknir
Rebublica komið út á ný
Lissabon 29. mai AP —
VELVOPNAÐAR
Reuter
herlögreglu-
Grechko gagnrýn-
irVesturlönd
Moskva 29. maí AP.
VARNARMALARAÐHERRA
Sovétrfkjanna Andrei Grechko
bar Vesturlöndum það á brýn f
dag að þau gerðu ekKert til að
draga úr spennu I Suðaustur-
Asfu, Miðausturlöndum og á
Portúgal skarst úr
leik á OECD-fundi
PORTUGAL skarst úr leik í dag á
ráðherrafundi Efnahags- og fram-
farastofnunar Evrópu, OECD, í
Brtissel, er efnahagsmálaráð-
herra landsins, Mario Mureira,
tilkynnti, að Portúgalar myndu
ekki taka þátt f endurnýjun sam-
komulags um að draga úr við-
skiptahömlum. Sagði ráðherrann,
að Portúgalar yrðu að draga mjög
úr innflutningi vegna minnkandi
gjaldeyrisforða, sem lækkaði um
440 milljónir dollara á fyrstu fjór-
um mánuðum ársins. Hann bað
um skilning OECD-landa á þess-
um aðgerðum Portúgala, og kvað
áhrif þeirra ekki skipta miklu
máli þar eð aðeins 0,5% viðskipta
á OECD-svæðinu færu um Portú-
gal. Hins vegar samþykktu öll hin
aðildarlöndin að endurnýja þetta
samkomulag, og lýstu þau í yfir-
lýsingu fundarins fullvissu um að
stefna þeirra myndi leiða til
batnandi atvinnu- og efnahags-
ástands í Evrópu.
eystri hluta Miðjarðarhafsins.
Sagði hann að fhlutunar- og yfir-
gangsstefnan hefði hvergi látið á
sjá og segja mætti að þau reyndu
þvert á móti að viðhalda og jafn-
vel auka á erfiðleika og spennu f
þessum heimshlutum.
Grechko sagði að Vesturlönd
væru á kafi í vfgbúnaðarkapp-
hlaupi og ekkert benti til að þau
væru að draga úr vopnabúnaði
sfnum né uppbyggingu þungra og
langdrægra vopna. Er talið að
með þessum orðum sfnum hafi
Grechko átt við þau orð sem
James Schlesinger, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, lét falla
nýlega um liðsafla Atlantshafs-
bandalagsins í Mið-Evrópu. Þá
hafa Sovétmenn einnig gagnrýnt
tilraunir Schlesingers til að fá
Evrópuríki til að verja meira fé
en áður til varnarmála. Þá sagði
Grechko það lfka augljósa ætlun
„heimsvaldasinna" að koma upp
breiðfylkingu sem væri andsnúin
Sovétríkjunum og fá Kínverja á
einhvern hátt inn f þá fylkingu.
sveitir réðust I dag til atlögu við
öfgasinnaðan maóistaflokk,
Hreyfinguna fyrir endurskipu-
lagningu öreigafiokksins, MRPP,
gerðu húsleit I skrifstofum hans
allt frá Coimbra í Mið-Portúgal til
hafnarborgarinnar Setubal á
suðurströndinni, handtóku
200—500 manns og gerðu mörg
bflhlöss af bæklingum og búnaði
upptæk. Það var herlögreglan,
Copcon, sem gerði áhlaupin, og í
Lissabon réðst hún með skothríð
inn i aðalstöðvar flokksins undir
forystu Jaimc Neves, ofursta, sem
MRPP sakaði nýlega um að vera
fasista og þátttakanda í mis-
heppnuðu byltingartilrauninni f
marz s.I. Þá gáfu hlaðamcnn úr
hópi jafnaðarmanna I kvöhl út
fyrsta tölublaðið af málgagni
flokksins, Republica, eftir lokun-
ina 20. maí.
Hinir handteknu voru fluttir til
Caxiasfangelsisins utan við Lissa-
bon, sem eitt sinn var notað af
einræðisstjórninni sem steypt var
í byltingunni í fyrra. Að sögn
Copcon er tala hinna handteknu
200, en talsmenn flokksins sögðu
að talan væri fremur 5—600, þ.á
m. aðalritari flokksins, Arnaldo
Matos. Atti siðar að flytja fangana
til Berlengaseyja undan strönd
Mið-Portúgals, að sögn talsmann-
anna. Copcon sagði að með þessu
væri verið að hegna þeim sem
báru ábyrgð á töku og mis-
þyrmingum þriggja hermanna
sem MRPP kvað vera fasista, og
virtust handtökurnar vera eins
konar hefnd eftir að fregnir
bárust um það f gær, að einn
mannanna þriggja hefði verið al-
varlega pyndaður af flokksmönn-
um MRPP.
Flokkur þessi hefur haft sig mjög
í frammi i Portúgal, og sagði
Copcon, að hann hefði sifellt
ögrað yfirvöldum. Flokkurinn
hefur ráðizt bæði á kommúnista
og herforingjahreyfinguna, og
gert aðsúg að bandaríska sendi-
ráðinu. Honum var bannað að
taka þátt í kosningunum i fyrra
mánuði, og kommúnistar eru
sagðir hafa lagt hart að hernum
að banna flokkinn með öllu. I
gærkvöldi hylltu 10.000
kommúnistar herforingjastjörn-
ina á svölum forsetahallarinnar.
Við byggjum
Gamanleikurinn góðkunni sýndur í
Austurbæjarbíói til ágóða fyrir
Húsbyggingarsjóð Leikfélagsins.
Skemmtið ykkur og hjálpið okkur
að byggja leikhús.
M iðnætursýning
í Austurbæjarbíói
laugardagskvöld kl. 23.30.
Aðgöngumiðasalan í Austurbæjarbiói
er opin frá kl. 16.00 í dag. Sími 11384.
Við byggjum leikhús