Morgunblaðið - 30.05.1975, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAl 1975
25
fclk í
fréttum
Ferðin „út í bláinn ”
segja dönsku blöðin
+ I danska dagblaðinu AKTU-
ELT er skýrt frá einkennilegri
ferð hennar hátignar Margrétar
drottningar og manns hennar,
Hinriks prins, til Sovétríkj-
anna nú á dögunum. Þar segir
að þegar þau hafi lagt frá
bryggju um borð í „Dannebrog"
hafi verið með öllu óvfst um
tiihögun ferðarinnar. Burtséð
frá því að þau ætiuðu að heim-
sækja Leningrad — Moskvu og
Tbilisi var engin áætiun til yfir
ferðina sem dagblaðið nefnir
„ferðina út í bláinn“. Þar er
einnig talað um að yfirleitt sé
það venja að þegar látið sé nið-
ur í töskurnar fyrir svona ferð-
ir þá sé það gert með hliðsjón
af ferðaáætluninni — en hér
hafi hún ekki verið til svo að
um hafi verið að ræða hálf-
gerða handahófspökkun; sitt
lítið af hverju. Þegar „Danne-
brog“ lagði frá bryggju var
Hinrik prins í einkennisbún-
ingi sem yfirhöfuðsmaður
flotadeildar, en hann mætti
vera viðbúinn því að þurfa að
nota dökk föt mestallan tíma
heimsóknarinnar; þannig vildu
rússarnir hafa það. Kjóll og
hvítt væri ekki notað i Sovét-
ríkjunum eftir byltingu, og nú
væru einkennisbúningar ekki i
tízku_ þar heldur. Allavega
verða þau hjónin og þeirra
fylgdarlið reynslunni ríkari,
nefnilega að ferðast óundirbú-
ið til annarra landa.
+ Jóakim litli prins grét þegar mamma og pabbi fóru að heiman.
Meistari í póker
+ Það var sjómaðurinn Brian
Roberts sem sigraði í heims-
meistarakeppninni í póker sem
fram fór í Las Vegas nú fyrir
skömmu: 21 pókerspilari tók
þátt f keppninni, hver um sig
var með 10.000 dali sem sjóð, og
síðan var spilað þangað til einn
hafði unnið alla fúlguna. Eins
og við sjáum á meðfyigjandi
mynd þá er það Brian sem er að
sópa að sér peningunum og
áhorfendur horfa andaktugir á
þennan pókermcistara. Brian
sagði eftir keppnina að hann
hefði gaman af að spila flest
spil þar sem peningár væru í
boði, það eina sem máli skipti
væru hversu hár „potturinn"
væri.
Gefur tvíbura-
systur nýra . . .
+ Tvíburasysturnar Barbara og
Carol Searing (vinstra megin á
myndinni) eru mjög háðar
hvor annarri. Þær búa í Home
wood, Illinois í Bandaríkjun-
um, og þar gangast þær þann
23. júní undir aðgerð sem teng-
ir þær enn nánar. Barbara þjá-
ist af meðfæddum nýrnasjúk-
dómi og hefur verið í stöðugum
rannsóknum og læknismeðferö
sem vonandi verður ekki leng-
ur nauðsynlegt eftir aðgerðina
23. júní, því þá verður annað
nýra systur hennar, Carol,
grætt í hana. Læknar Barböru
halda því fram að þar sem þær
séu tvíburar eigi ekki að vera
nein hætta á að lfkami Barböru
hafni nýranu.
ölbreytt úrval
af buxum
í mörgum
efnum,
sniðum
og litum
^ÞIÐ TAKIÐ
RÉTT SPORo
c7WEÐ ÞVÍ
AÐ KAUPA
I VORo
Málarinn
á þakinu
velur alkydmdlningu með gott veðrunarþol.
Hann velur ÞOL fró Mólningu h.f. vegna endingar
og nýtni. Einn líter af ÞOLI þekur um það bil
10 fermetra.
Hann velur ÞOL fró Mólningu h.f. vegna þess að
ÞOL er framleitt í 10 fallegum staðallitum, — og
þegar kemur að mólningu á gluggunurn, girðingunni
og hliðunum, blandar hann litina samkvæmt
nýja ÞOL litakortinu.
Útkoman er: fallegt útlit, góð ending.
Mólarinn á þakinu veit hvað hann syngur.