Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 33
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JUNI 1975 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNl 1975 19 Baráttuviliinn fundinn! ^ . tW bjargaði veL Þá skall hurð nærri Vafalaust á bað eftir að n Og hann fœröi Frömurum tvö mikilsverð stig í leik við daufa Eyjamenn Eftir mjög góða byrjun í æfingaleikjum vorsins virðist svo sem Vestmannaeyingar hafi feng- ið bakslag I segiin. 1 leik þeirra við Fram á Laugardalsvellinum á sunnudaginn sást lítið af þvf sem Iiðinu var hrósað fyrir í vor, held- ur þvert á móti var um hreina háloftaknattspyrnu að ræða frá þess hendi, og árangurinn eftir því. Dugmikið og baráttuglatt Framlið gekk af hólmi með bæði stigin, og var það stjarna liðsins, Marteinn Geirsson, sem færði því þau með skallamarki á 28. mín- útu. Verður því ekki annað sagt en að uppskera Framliðsins f þeim þremur leikjum sem það hefur leikið f deildinni til þessa hafi orðið miklu meiri en flestir áttu von á, og jafnvel þeir sjálfir, eða fjögur stig. Með svolftið meiri festu og yfirvegun, og aukinni leikreynslu þeirra manna sem komu f stað aðalstjarnanna f Framliðinu, er óhætt að taka Framliðið alvarlega með í reikn- inginn í mótinu í sumar. Framliðið varð fyrir nýju áfalli í leiknum í Keflavík, er hinn efni- legi leikmaður þeirra, Trausti Haraldsson, meiddist, en svo virð- ist sem félagið hafi yfir að ráða mörgum mjög efnilegum knatt- spyrnupiltum, og því hefur ótrú- lega vel tekizt að fylla upp f þau skörð, sem flestir ætluðu að yrðu f því f sumar. Sú staðreynd stendur þó óhögg- uð, að það eru tveir menn f Fram- Iiðinu sem halda þvf saman öðr- um fremur — landsliðsmennirnir Marteinn Geirsson og Jón Péturs- son, sem eru nú greinilega betri en nokkru sinni fyrr, og þá sér- staklega Marteinn sem var kóngur f rfki sínu á vallarmiðj- unni í þessum leik, og skoraði auk þess markið sem gerði út um leikinn. Hreyfing Marteins á vell- inum var mjög mikil, sérstaklega Texti: Steinar J. Lúðvíksson. Myndir: Friðþjófur Helgason. fram að þvf að hann skoraði, en eftir það lagði hann greinilega ekki eins mikla áherzlu á að fylgjafram í sóknunum. Þótt aðeins eitt mark væri skor- að f þessum leik, bauð hann upp á allmörg góð marktækifæri. Væri of langt mál að telja þau öll upp, en nefna má að Tómas Pálsson, atkvæðamesti maður Eyjaliðsins f sókninni, átti gott skot á 30. mínútu, sem Árni Stefánsson bjargaði meistaralega í horn, og upp úr þeirri hornspyrnu varð töluverð hætta við Frammarkið. Fimm mfnútum sfðar voru sömu menn aftur í sviðsljósinu. Tómas komst í gott skallafæri, en Árni KI1L\VÍKI IÍS1(/I RI>II\ FÆRÐI LDMNU TRÍNA Á SJÁLÍT SIG FRAMARAR voru að vonum hressir er þeir komu inn I búningsklefa sinn eftir leikinn við Vestmannaeyjar á Laugardalsvellinum á sunnudaginn. Annar sigurinn i röð. og liðið sem flestir töldu að myndi ekki safna digrum stigasjóðum I sumar er við toppinn eftir þrjár umferðir. — Við vorum þremur mörkum betri i þessum leik. sagði Jóhannes Atlason, þjálfari, — við erum loksins búnir að ná upp kraftinum i liðinu, vörnin er þétt hjá okkur, og það eina sem verulega á skortir er að nýta betur tækifærin sem bjóðast. en það kemur einnig hjá okkur. Það er ekkert vafamál að sigurinn í Keflavik var okkur stórkostlega mikilvægur. Það hefur varla verið um annað talað en skakkaföllin í Framliðinu og það var farið að virka mjög neikvætt á leikmennina. Sigurinn f Keflavfk færði þeim hins vegar heim sanninn um að maður kemur í manns stað, og þeir geta staðið ekki einungis jafnfætis hinum liðunum. heldur verið betri en þau. Ég hef trú á þvf að okkur takist að halda okkur við toppinn i deildinni í -umar, og ná meiru út úr þessu sumri en i fyrra, jafnvel þótt stjörnurnar i liðinu séu nú til muna færri. vel. Þá skall hurð nærri hælum við Frammarkið á 5. mfn- útu seinni hálfleiks, er Örn Oskarsson komst inn í sendingu til markvarðar, en honum brást bogalistin og skaut yfir markið. Þegar langt var um liðið á seinni hálfleikinn komst Kristinn Jör- undsson inn fyrir Eyjavörnina, en skot hans fór yfir. markið og á næst sfðustu mfnútu leiksins átti Kristinn gott skot, sem Ársæll bjargaði með því að sláyfir. Áf þessari upptalningu má sjá að bæði liðin áttu sín tækifæri f þessum leik, en yfirleitt voru Framarar fljótari á knöttinn og meira með hann. Knattspyrnan var á tíðum ekki áferðarfalleg, en það helzta sem sást á þvf sviði kom allt frá Framliðinu. Nokkrum sinnum náði liðið ágæt- lega útfærðum samleiksköflum, þar sem allir voru með á nótun- um, en oft var endi bundinn á þær á þann hátt að einstakir leik- menn ætluðu sér um of, og varnarmönnum Vestmannaeyja tókst að krækja knettinum frá þeim. Þegar talað er um breytingar á Framliðinu, er ekki sfður unnt að tala um breytingar á Vestmanna- eyjaliðinu. 1 þvf eru margir leik- menn sem hafa tiltölulega litla leikreynslu, og var það eitt út af fyrir sig þeim stundum greini- lega fjötur um fót f þessum leik. Ekki vantar að þeir piltar sem eru að koma f liðið séu efnilegir, en þeir voru stundum of óná- kvæmir og gildir það raunar um alla leikmenn IBV f þessum leik. Markið sem Marteinn skoraði hefðu þeir t.d. átt að geta komið f veg fyrir með meiri árvekni. Haraldur Júlíusson, sem um árabil hefur verið einn skæðasti sóknarleikmaður Vestmanna- eyjaliðsins, leikur nú f stöðu tengiliðar, og kom hann ágætlega frá þvf hlutverki. I framlfnunni bar mest á Tómasi Pálssyni, sem jafnan er hættulegur og sparkviss leikmaður, greinilega í betra formi nú en hann var í fyrra, en hreyfir sig of Iftið eftir kncttin- um. Vörn Eyjaliðsins var hins vegar ekki traustvekjandi f þess- um leik, nema þá helzt Ársæll Sveinsson, markvörður, sem varði oft með miklum ágætum. Bak- verðirnir voru oftsinnis of seinir á sér og misstu menn inn fyrir sig, og á miðjunni var Friðfinnur Finnbogason, sem oftast hefur verið máttarstólpi liðsins, óvenju- lega daufur f dálkinn, og virkaði þungur og óöruggur. Vestmannaeyjaliðið er á þess- ari stundu algjörlega óráðin gáta. Vafalaust á það eftir að ná sér mun betur á strik en f þessum leik, og komi Öskar Valtýsson til með að ná sér eftir meiðslin og leika með liðinu þegar lfður á sumarið, er varla vafi á þvf að Eyjólfur hressist. Það sem liðið skorti f leiknum á sunnudaginn var einhver baráttujaxl á borð við Óskar, til þess að rffa félaga sína upp og knýja þá áfram. Áhugaleysi varð okkur að falli — Þa8 var fyrst og fremst áhugaleysi sem varð okkur að falli I þessum leik, sagði Friðfinn- ur Finnbogason Vestmannaeying- ur eftir leikinn á sunnudaginn, og Haraldur Júlíusson, „gullskalli" sem nú lék stöðu tengiliðar tók i sama streng. — Það var hrein- lega ekkert vit t spilinu hjá okkur, sögðu þeir, — hverju svo sem það var um að kenna. Það náðist aldrei upp stemming hjá okkur, deyfðin var allsráðandi, og liðinu tókst ekki að skapa sér nægjan- leg tækifæri. Um markið sem Marteinn Geirsson skoraði sögðu þeir Frið- finnur og Haraldur: — Þetta var dæmigert heppn- ismark frá þeirra hendi og aula- mark að fá á sig. Þurfti bara að nikka í netið Við þurfum að vinna betur úr tækifærunum sem bjóðast, sagði Marteinn Geirsson, leikmaðurinn sem bar höfuð og herðar yfir aðra leikmenn vallarins I leik Fram og ÍBV á Laugardalsvellinum á sunnudaginn. Var ekki að sjá að þreyta sæti I Marteini, eftir hinn erfiða landslei': á fimmtudags- kvöldið. Þeir sem spáðu þvi fyrir mót að við yrðum á botninum i mótslok koma til með að hafa rangt fyrir sér svo um munar, sagði Marteinn, — við verðum á toppnum. Um markið sem Marteinn skor- aði i leiknum, sagði hann. — Þetta var fremur auðvelt mark fyrir mig. Ég fékk sendinguna svo beint á kollinn, að ég þurfti ekkert annað að gera en að nikka knettinum í netið. Marteinn Geirsson notar sinn mikla stökkkraft og sendir knöttinn af krafti I mark Eyjamanna I leiknum á sunnudaginn. Varnarmenn ÍBV reyna ekki við knöttinn og Ársæll á ekki möguleika á að verja. 1 Nýtt gullaldarlið Skagamanna Það er nýtt gullaldarlið, sem Skagamennirnir eru að eignast og má mikið vera ef liðið hýsir ekki íslandsmeistarabikarinn aftur að þessu keppnistímabili loknu. I liðinu eru leikmenn með mjög mikla reynslu og kjarni liðsins er skipaður leikmönnum á bezta aldri. Inn í liðið eru svo komnir snillingar í íþróttinni sem enn eiga eftir að bæta við sig þó svo að þeir séu þegar komnir í fremstu röð. Lltum á lið Akurnesinganna. I markinu stendur Davið Kristjánsson. Hann virkar ef til vill ekki sérlega sterkur, en enginn skyldi þó van- meta hann. Davlð hefur örsjaldan brugðizt I leikjum slnum og oftar, eins og t.d. I fyrrasumar, hefur hann varið ótrúlega vel. Bakverðirnir Björn Lárusson og Benedikt Valtýs- son eru báðir ódrepandi baráttu- menn. Benedikt ætlar sér að vlsu á stundum um of og á oft I erfiðleikum með útherja sem hafa yfir mikilli tækni að ráða, en bætir það upp með hörkunni, sem hann vantar á öðrum vigstöðvum. Björn Lárusson er einn sterkasti bakvörðurinn I Islenzkri knattspyrnu (ef ekki sá sterkasti). Samleikur hans og Karls Þórðarson- ar er rómaður og þær eru ófáar sóknarloturnar sem hann byggir upp. Miðverðirnir Jón Gunnlaugsson og Þröstur Stefánsson eru báðir mjög reyndir leikmenn og báðir hafa þeir leikið I landsliði. Þau eru mörg sterk miðvarðapörin I 1. deildinni, en þeir Jón og Þröstur gefa þeim beztu ekkert eftir. Á miðjunni hafa Skagamenn yfir leikmönnum eins og Jóni Alfreðssyni að ráða. Jón er stór, sterkur og útsjónarsamur leikmaður, sem vinn- ur fyrir liðsheildina en ekki sjálfan sig. Með sér hefur hann svo Árna Sveinsson, sem er eitt mesta efni Islenzkrar knattspyrnu. Jóhannes Guðjónsson er að nýju kominn I Skagaliðið og vantar enn nokkuð á að verða eins sterkur og hann var fyrir tveimur árum. Hann vex þó án efa með næstu ieikjum og á vara- mannabekknum I tveimur slðustu leikjum hefur setið Haraldur Stur- laugsson og hafa ekki öll lið efni á að láta leikmenn sem hann sitja meðal varamanna. Þrlr af snjöllustu framllnuleik- mönnum knattspyrnunnar eru helztu sóknarmenn ÍA-liðsins, þeir Karl, Matthlas og Teitur. Karl ótrúlega leikinn með knöttinn, Matthias lag- inn og með auga fyrir marktækifær- um og Teitur markakóngur frá I fyrra er sterkur og duglegur leikmaður, skotfastur og markheppinn. Hörður Jóhannesson lék meginhluta leiksins gegn FH vegna þess að Teitur hafði sleppt slðustu æfingu fyrir leik og Hörður sýndi það I leiknum að hann getur hvenær sem er gengið inn I liðið. Það sem hér að framan er skrifað um Skagaliðið er mikið lof. Ef til vill leika Skagamennirnir ekki alltaf jafn vel I leikjum slnum I sumar og þeir gerðu á laugardaginn, en I liðinu eru frábærir einstaklingar, sem ættu að geta, og ætla sér að verja þann islandsmeistaratitil, sem þeir unnu I fyrra. Mikið er þó enn eftir af mótinu og margt getur gerzt á skemmri tlma en einu knattspyrnusumri. „Vonandi framhald á þessu” FH-ingar koma engum vörnum viö og enn eitt mark lA-liðsins verður að veruleika. — Við skulum vona að það verði framhald á þessu hjá okkur og okkur takist að sýna í fleiri Ieikjum hvað í okkur býr, sagði Þröstur Stefánsson miðvörður Akranessliðsins að leiknum við FH loknum. — Ef okkur hefði tekizt að skora mörk f fyrri hálf- leiknum gegn Víkingi þá hefði sá leikur allt eins getað endað á þennan veg. Þess ber þó að gæta að Víkingsliðið er baráttulið, sem aldrei gefst upp, en FH-ingarnir eru fljótir að brotna, sagði Þröst- ur. — Það er engin ástæða til að dæma FH-ingana eftir þessum leik, sagði Matthías Hall- grímsson. — Þeir fengu aldrei tima til að sýna sinn netta samleik og gáfust upp við mótlætið. Um mörk sín sagði Matthías að hann hefði í bæði skiptin fengið góðar sendingar og neglt á hvíta trérammann. Hon- um hefði tekizt vel upp því bæði skotin hefðu verið uppi undir slá og úti við stöng. Jón Gunnlaugsson sagði að liðið væri mun lakara en bæði-KR og Víkingur, eða hefði að minnsta kosti ekkert sýnt í leiknum á laug- ardaginn. Um mark sitt, sem var fyrsta mark leiksins, sagði Jón að varnarmenn FH og markvörður hefðu reiknað með knettinum komnum afturfyrir. Sjálfur hefði hann séð góða möguleika á að skora, sem og varð raunin, — ég sá að ég næði boltanum þó utar- lega væri og eftirleikurinn var auðveldur, þar sem FH-ingarnir voru búnir að afskrifa sending- una. Texti: Ágúst I. Jónsson. Myndir: Friðþjófur Helgason. Sjö sinnum fögnuðu Akurnesingar marki og sjö sinnum hristu FH-ingar höfuðið vonsviknir á svip. Það eru þeir Hörður Jóhannesson, Matthfas Hallgrfmsson og Karl Þórðarson sem fagna, en Ómar Karlsson og Janus Guðlaugsson eru ekki alveg eins ánægðir Meistgrgrnir fáru tétt með nýliðgna á Igugardgginn Munurínn gat orðið enn meiri Með marki Jóns Gunnlaugssonar strax á 2. mlnútu ÍA og FH á laugardaginn voru FH-ingarnir brotnir niður. Eftir það var um einstefnu að ræða af hálfu heimamanna á Skaganum, nýliðar FH, sem höfðu staðið sig mjög vel gegn Fram og ÍBV, áttu aldrei möguleika og voru eins og áhorfendur I þessum markaleik, sem endaði 7:1. Enginn hefði getað sagt neitt við þvl þó fA-liðið hefði skorað enn fleiri mörk, slíkir voru yfirburðir íslands- meistaranna gegn nýliðunum. Skagamennirnir fengu góðan tlma til að undirbúa laglegar leikfléttur slnar og spiluðu áhugalausa FH- ingana sundur og saman. Aðall FH-liðsins, nettur sam- leikur, varð að engu I þessum leik og þeir voru eins og börn I höndum Skaga- manna. Það var ekki sérlega mikill hraði I þessum leik eða barátta. Skagamenn gerðu það sem þeir vildu I rólegheitum, yfirvegað og af öryggi. Mótstaðan var ekki mikil, en þeir sýndu I leiknum hvað þeir geta og hvað þeir gera ef ekki er barizt af grimmd og hörku á móti þeim. Jón Gunnlaugsson gerði fyrsta markið þegar á 2. mfnútu eins og áður sagði og á 20. mfnútu skoraði Matthlas Hall- grlmsson laglegt mark með skoti I slá og inn af stuttu færi. Karl Þórðarson átti sendinguna til Matthfasar er hann skor- aði og á 34. mlnútu var Karl sjálfur að verki er ÍA breytti stöðunni I 3:0. Eftir þunga sókn hrökk knötturinn út I teiginn og Karl skaut hnitmiðuðu skoti I markið úti við stöng. Hörður Jóhannesson breytti stöðunni svo I 4:0 á 37. minútu. Hann hafði betur I kapphlaupi við varnar- menn FH og átti ekki i erfiðleikum með að skora. Í seinni hálfleiknum höfðu FH-ingar goluna með sér, en allt kom fyrir ekki. Skagamenn héldu uppteknum hætti og skoruðu þrjú mörk I hálfleiknum gegn einu marki FH. Þeir skiptu mörkunum nokkuð bróðurlega á milli sln Skaga- mennirnir, nema hvað Matthfas skoraði tvlvegis og það var hann sem skoraði 5. markið. Eftir sendingu Karls sendi Matthlas knöttinn I netið uppi undir slá, úti við stöng á 55. mlnútunni. Hörður lét vita af sér á 62. mfnútunni eftir stórlag- legt samspil hans og Árna og skot Harðar var óverjandi fyrir Ómar. Nú var komið að FH-ingum að skora, en heldur var það klaufalegt. Ólafur Danivalsson skaut að ÍA-markinu af um 30 metra færi, Davið misreiknaði skotið og innfyrir línuna fór knötturinn, 6:1. Sfðasta orðið I leiknum átti Teitur Þórðarson sem lék aðeins með siðustu mfnútur leiksins. Hörður gaf góða stungusendingu inn á hann, Ómar sem aðeins var skugginn af sjálfum sér I leiknum, missti knöttinn frá sér og Teitur sýndi það að hann kann sitt fag með þvi að renna kenttinum I netið. Beztu menn Skagaliðsins að þessu sinni voru þeir Karl Þórðarson og Matth- fas Hallgrlmsson, sem léku báðir mjög vel. Enginn leikmanna í A-liðsins stóð sig illa, menn stóðu sig aðeins mismunandi vel. Um FH-liðið er óþarfi að hafa mörg orð, þeir vilja sjálfsagt gleyma þessum leik sem fyrst og það af skiljanlegum ástæðum. Um einstaka leikmenn vísast nánar til einkunnagjafarinnar á slðustu slðu iþróttablaðsins. Þar sést munurinn á leikmönnum liðanna bezt, ÍA-liðið með 30 samanlagt, FH-ingarnir með 1 5. ÞAÐ ERU EKKI ALLTAF JÓLIN FH-INGAR ÞEIR voru eðlilega óhressir með frammistöðu sfna FH-ingarnir eftir stúrtapið í leiknum gegn IA. Hinir ungu, en mjög leikreyndu FH-ingar báru sig þó furðulega vel. Það var helzt þjálfari þeirra, Skotinn Bill Hodgson, sem var argur. Fyrst í stað leyfði hann ekki fréttamönnum að ræða við leikmenn sfna, en eftir að honum var runnin mesta reiðin voru þeir velkomnir í búningsklefa FH- liðsins. Sjálfur sagði Hodgson á IA- liðiö væri langsterkasta knatt- spyrnuliðið sem hann hefði séð leika hér á Iandi. Sigur IA gegn FH hefði verið óþarflega stór, hans menn hefðu ekki þurft að fá á sig svo mörg mörk og einnig hefðu þeir átt möguleika á að skora fleiri. Það var margt skrafað um þennan leik meðal FH- leikmannanna og glefsur úr þeim umræðum fara hér á eftir. Þórir Jónsson: — Þeir sýndu sitt bezta, en við vorum hinsvegar alveg í lágmarki. Veðrið átti vel við þá, sömuleiðis háll völlurinn, sem er gjörsamlega ólfkur þeim aðstæðum sem við erum vanir á mölinni f Kaplakrika. Helgi Ragnarsson: — lA-liðið er sennilega bezta liðið f 1. deild- inni um þessar mundir. Logi Ólafsson: — Það má vera gott lið sem vinnur FH 7:1 og það verðskuldað. Þórir Jónsson: — Við gengum til þessa leiks með það í huga að skora mörk og sigra, en hefðum auðvitað getað dregið okkur aftur og iegið f vörn, en það er bara ekki okkar leikaðferð. Ómar Karlsson: — Sóknarleik- ur á alltaf rétt á sér, en það eru ekki alltaf jólin og aðstæðurnar voru okkur mjög óhagstæðar. Ólafur Danfvalsson: — Þetta var bara einn af þessum leikjum, þar sem ekkert heppnaðist hjá okkur... (löng þögn)... mötið er rétt að byrja, við spyrjum að leikslokum. Næsti leikur FH-inganna verð- ur gegn Val f Kaplakrika og voru FH-ingar óbangnir fyrir þann leik. Sögðust þeir þar myndu sýna sitt rétta andlit og sanna fólki að í leiknum í Eyjum kom fram þeirra raunverulega geta og að leikurinn á Skaganum á laug- ardaginn var leiðinleg undan- tekning. Teitur skorar sjöunda og sfðasta mark Akurnesinga, framhjá Omari Karlssyni, sem var eins og skugginn af sjálfum sér f þessum leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.