Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNI 1975 3 Hvað stöðvast vegna verkfallanna? Mjólkurbúðir loka — Ekkert bensín — Samgöngustöðvun innanlands A MIÐNÆTTI I nótt kemur allsherjarverkfalls, hafi samn- ingar ekki tekizt fyrir þann tfma. Bensínafgreiðslur stöðv- ast og ekki verður unnt að fá mjólk, þar sem mjólk- urbúðir lokast. Verzlunar- mannafélag Reykjavfkur hef- ur ekki boðað verkfall fyrr en 18. júní og verður því unnt að fá allflestar nauðsynjar nema mjólkurvörur fram til þess tíma. Innanlandsflug frá Reykjavík stöðvast I nótt, en millilandaflug ekki fyrr en á fimmtudagsnótt, þar sem félög- in á Suðurnesjum hafa ekki boðað verkfall fyrr en 13. júní. Samgöngur lamast Allt innanlandsflug frá Reykjavík leggst niður á mið- nætti í kvöld, en millilandaflug heldur áfram til föstudags þar sem verkalýðsfélög á Suður- nesjum hafa ekki boðað verk- fall fyrr en frá og með þeim degi, samkvæmt upplýsingum blaðafulltrúa Flugleiða, Sveins Sæmundssonar. Það eru þeir starfsmenn, sem annast áfyll- ingu eldsneytis, hleðslu og af- hleðslu flugvéla og þess háttar, sem þá fara væntanlega í verk- fall. Verkfallið mun ekki hafa áhrif á þjónustu hótela og veit- ingastaða. Þegar hefur verið samið við starfsfólk á hótelum Flugleiða, að undanskildum þeim, sem starfa við gestamót- töku, en þeir hafa ekki boðað til verkfalls. Sveinn sagði að töluvert hafi verið um afpantanir á Hótel Loftleiðum og Esju vegna verk- fallanna og nokkrum ráðstefn- um hefur verið aflýst. Mjólkurbúðir loka Allt starfsfólk Mjólkursam- sölunnar i Reykjavík og mjólk- ursamlaga leggur væntanlega niður vinnu á morgun. Mjólkur- búðir verða því lokaðar og dreifing á mjólk leggst niður. Kaupmenn, fá því enga mjólk eftir daginn i dag og geta þvi aðeins selt á meðan birgðir end- ast. Strœtisvagnar ígangi um sinn Strætisvagnar Reykjavíkur eiga eldsneytisbirgðir til hálfs mánaðar miðað við fullt álag og ættu strætisvagnaferðir því ekki að truflast, að minnsta kosti fyrst um sinn vegna elds- ne.vtisskorts. Aftur á móti leggst væntanléga niður vinna að mestu á verkstæði SVR, og getur það leitt til þess að ekki verði hægt að halda uppi öllum áætlunum. Sömu sögu er að segja af Strætisvögnum Kópavogs og Landleiðum. Þar munu bílstjór- ar halda áfram akstri en vagn- arnir fá ekkert viðhald. þar sem bifvélavirkjar leggja niður vinnu. Akstur sérleyfishafa frá BSl mun halda áfram þrátt fyrir verkfallið. Afgreiðslufólk leggur að vísu niður vinnu 18. júní en bifreiðastjórar geta þá sjálfir selt farseðla. Flestir sér- leyfishafar eiga eigin eldsneyt- isbirgðir eða hafa aðgang að birgðum úti á landi. Vöruflutningar leggjastniður Vöruflutningar frá Reykja- vik út á land leggjast að ein- hverju leyti niður vcgna verk- fallsins. Engin vörumóttaka verður hjá Landflutningum og Vöruleiðum frá miðvikudegi. en starfsmenn Vöruflutninga- miðstöðvarinnar fara ekki i verkfall fyrr en 18. júní. Útivinnahjá borginni hœttir Öll útivinna hjá Reykjavikur- borg fellur niður frá miðna'tli i kvöld. Er þar meðtalin sorp- hreinsun. gatnagerð og gatna- hreinsu n. Gífurleg eftirspurn eftir áburði og sementi MIKLAR annir hafa veriö í af- greiðslu bæði hjá Áburðarverk- smiðjunni og Sementsverksmiðj- unni frá því að lausn fékkst á vinnudeilu starfsmanna við rfkis- vcrksmiðjurnar, þar eð viðskipta- vinir verksmiðjanna leggja nú höfuðkapp á að birgja sig upp fyrir yfirvofandi allsherjarverk- fall. Að því er Grétar Ingvason hjá Áburðarverksmiðju ríkisins tjáði Morgunblaðinu var i sl. viku — eða frá mánudeginum 2. fram til sunnudagsins 8. þ.m. — búið að afgreiða um 6.400 tonn af áburði, þar af um 530 á skip en nær 6 þúsund tonn höfðu verið flutt með bifreiðum. Er þetta vafalaust eitt mesta magn sem afgreitt hefur verið á svo skömmum tima, enda hafa daglega verið afgreidd milli 700 og 1100 tonn af áburði frá verksmiðjunni. Unnið var alla helgina við afgreiðslu áburðar og þá afgreidd um 1600 tonn. I gær biðu milli 30 og 40 bílar eftir afgreiðslu, en Grétar taldi þó að eftir morgundaginn yrði mesta álagið afstaðið. Fram til þessa hefur verksmiðjan ekki haft und- an að sekkja áburðinn. Að sögn Guðmundar Guð- mundssonar verksmiðjustjóra Sementsverksmiðju ríkisins er framleiðslan þar komin í eðlilegt horf eftir verkfallið en geysileg eftirspurn er eftir sementi frá verksmiðjunni, þar eð menn reyna aö ná því rnagni út sem unnt er fyrir verkfallið. Undan- þága hefur fengizt hjá Vélstjóra- félaginu fyrir einum farmi á skip, Kominn með 4,5 lestir af humri HUMARAFLI Hornafjarðarbáta hefur verið góður þegar gefið hef- ur, það sem af er þessari humar- vertíð. Agætis afli var framan af síðustu viku og þá komu bátarnir inn með 10—14 tunnur, en komust síðan ekki út á ný fyrr en á laugardag vegná brælu. Hæsti báturinn er kominn með 4,5 lestir af humri og er það Ölafur Tryggvason, Síðan koma nokkrir bátar með um 4 lestir. sem mun væntanlega fara á Vest- firði en að öðru leyti hafa flutn- ingarnir eingöngu farið fram á bflum, sem sumir hverjir hafa verið langt að komnir, norðan úr landi og allt austan frá Vfk. Evensen vænt- anlegur í dag NORSKI hafréttarráðherrann Jens Evensen er væntanlegur hingað til lands f dag til viðræðna við fslenzka ráðamenn um haf- réttar- og landhelgismál. Evensen er sem kunnugt er formaður sér- stakrar nefndar sem starfar á vegum hafréttarráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna og hefur það hlutverk að skilgreina og þrengja ákvörðunarsviö ráðstefnunnar, auk þess sem hann fer með haf- réttarmál þjóðar sinnar innan norsku rfkisstjórnarinnar. Hér mun Evensen væntanlega ræða við íslenzka ráðherra og þess er að vænta að útfærsla íslenzku fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur beri þar á góma og Evensen muni einnig lýsa sjönar- miðum sínum í þeim efnum. Evensen hefur undanfarið verið í Moskvu og í London, en þaðan kemur hann hingað til lands. Faxaborgin hæst íNorðursjónum ISLENZKU síldveiðiskipin seldu alls 28 sinnum í Danmörku i síð- ustu viku. Alls seldu þau 601 lest af síld fyrir 12,6 millj. kr. og var meðalverðið kr. 20,96 og hefur ekki verið lægra á þessu vori. F'rá þvi að síldveiöarnar f Norðursjó hófust i apríl s.l. hafa skipin selt alls 3.311,9 lestir af síld fyrir alls 105,8 millj. kr. og meðalverðið fyrir kilóið er kr. 31,97. Á sama tíma í fyrra höfðu skipin selt 3.365,4 lestir af sild fyrir 82.7 millj. kr. og þá var meðalverðið kr. 24,60. Þrjú aflahæstu síldveiðiskipin frá 18. april — 7. júní s.l. eru Faxaborg GK, sem hefur tekið forystuna af Fifli og hefur selt 492,5 lestir fyrir 13,9 ntillj. kr. og meðalverðið er kr. 28,27, Fifill GK, sem hefur selt 318,9 lestir fyrir 12,9 millj. kr. og meðal- verðið er kr. 40,71 og Súlan EA sem hefur selt 213,5 lestir fyrir 10,4 millj. kr. og meðalverðiö er þar kr. 48,99. «1111111111 Oskar Jakohsson. r Islandsmet í spjótkasti ÖSKAR Jakobsson IR setti gla'si- legt Islandsniet í spjótkasti á a*f- ingamóti sem FRl gekkst fyrir á Laugardalsvellinum í ga'ikvöldi. Kastaði hann 75,80 inetra. en eldra nietið sem hann átti sjálfur var 73.72 metrar. I keppninni í gær kastaöi Óskar fyrst 70,36 metra, síðan kom metkastið. og auk þessara kasta átti hann gilt kast 68,90 metrar. Smgglið ílsborgu: 350 lítrar í eigu þrigg;a yfirmanna R.VNNSÓKN smyglmálsins f m.s. Isborgu. sem upp komst um á fiistudaginn er skipið var í Eski- fjarðarhöfn. er að mestu lokið. Reyndist smyglið vera 350 lítrar af 96"<, spíra sem gcymt var í 5 og 10 lítra blikk- og plasthrúsum og 30 Iftrar af léttum vfnum. 1. og 2. stýrimaður og 2. vélstjóri skips- ins hafa viðurkennt að hafa átt þetta áfengi. Morgunblaðið hafði i ga'r sam- band við Friðjón Guðröðarson lögreglustjóra á Hornafirði en hann var setudómari i málinu. Hann sagði. að þessi þrír yfir- menn hefðu við yfirheyrslur bor- ið. að hafa keypt 380 lítra af spíra er skipiö var í höfninni i Leixoes í Poj túgal. Hefðu viðskiptin gengið fljótt fyrir sig og því mögulegt að þeir hafi verið sviknir um þá 30 lítra sem upp á vantaði. Við leit- ina á Eskifirði fannst spírinn á þremúr stöðum í tveimur bílum yfirmannanna sem voru á bryggjunni og sérstökum felustað sem útbúinn var í vatnstanki og tollverðir úr Reykjavík fundu við leit s.l. laugardag. Um 20 lítrum hafði veriö hellt í sjóinn, Toll- verðirnir héldu áfram með skip- inu til Vestmannaeyja en ekkert fannst við frekari leit. Eins og fram kom I Mbl s.l. sunnudag má telja söluvérðma'ti áfengisins vera á þriðju milljön króna. Framhald á bls. 35 „Skemm tiferð” u tan bœjar- manns endar með ósköpum I BYRJUN síðustu viku kom utanbæjarmaöur til höfuðborg- arinnar, aðallega í þeim hug- leiðin^um að skemmta sér ær- lega. Hafði hann meðferðis ferðatösku með fatnaði og ýms- um persónulegum munum, handtösku fulla af gæsaeggjum og 100 þúsund krónur í pening- um. Maðurinn hóf að stunda skemmtanalífið strax á þriðju- degi og hélt sleitulaust áfram fram á föstudag. Undir hádegi á föstudag er maðurinn tölu- vert ölvaður og hittir þá einn af svonefndum kunningjunt lög- reglunnar og vinkonu hans. Slást þau í för með manninum frá Hótel Borg en hann ætlaði út á flugvöll og þaðan með flug- vél út á land. Voru töskur mannsins settar i skottiö á leigubilnum. Lengra na>r minni mannsins ekki og na'st man hann eftir sér á Hótel Borg undir kvöld á föstudeginum og var hann þá búinn að týna tösk- unum og var að leita þeirra á Borginni. Auk þess vantaði hann 60 þúsund krónur sem hann var með á sér. Lögreglan náði tali af þessum „kunn- ingja" sínum og sagði hann. að frá Borginni hefði Icigubillinn ekið upp í Öskjuhlíð. þó með viðkomu i verzlun ATVR og hefðu liann og vinkona hans farið út á Öskjuhlíðinni en leigubillinn haldið áfram með utanbiejarmanninn og töskur hans. Ilefur rannsóknarli>g- reglan hug á að ná tali af leigu- bílstjóranum ef það gæti skýrl hvarlið á töskum mannsins og peningum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.