Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 18
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JUNl 1975 + Hjartkær móðir okkar, ELÍN EGGERTSDÓTTIR. Hjálmholti 10, Reykjavik, andaðist að heimili sínu þann 8. júní Jarðarförin auglýst síðar. Unnur Atladóttir Kendall, Eggert Atlason. t sigrIður guðmundsdóttir, Viðimel 19, andaðist á Landspítalanum, að morgni 9. þ m. Útförin verður auglýst síðar F h vina og vandamanna, Sveinn Benediktsson, Helga Ingimundardóttir, Benedikt Sveinsson, Ingimundur Sveinsson, Guðrún Sveinsdóttir, Einar Sveinsson. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR PÉTURSSON, kaupmaðurfré isafirði. Brávallagötu 16, Reykjavík, andaðist i Landakotsspitala að morgni þess 7 júni. Þorgerður Bogadóttir, Erlingur Guðmundsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Kristján Ágústsson, Magnús Guðmundsson, Guðriður Jónasdóttir, barnabörn og aðrir vandamenn. Móðir okkar og fósturmóðir SIGURBJÖRG ÁSBJÖRNSDÓTTIR frá Álafossi lést í Landakotsspítala 8. þ.m Sigriður Sigurjónsdóttir, Sæunn B. Jónsdóttir, Pétur Sigurjónsson, Ásbjörn Sigurjónsson. + Faðir okkar ÓLAFUR HÁKON HÁKONARSON, Brekkustig 14, andaðist 7. júní á Landakotsspitala Ástriður Ólafsdóttir, Hákon Ólafsson, Magnússína Ólafsdóttir, Katrín Ófafsdóttir. + Bróðir okkar og mágur, GUNNAR KARLSSON, Kleppsvegi 48. andaðist í Borgarspítalanum sunnudaginn 8 júní, Garðar Karlsson, Hrafnhildur Þorbergsdóttir, Adolf Karlsson, Lárus Karlsson, Hrefna Karlsdóttir, Sigríður Karlsdóttir, + Maðurinn minn, faðir og tengdafaðir BJARNIBJARNASON andaðist á Landspítalanum að morgni laugardags 7. júní Sigríður M. Jónsdóttir, Unnur Bjarnadóttir, Sigurður Sigurjónsson. + Konan min, móðir okkar, tengdamóðir og amma, MAGNEA INGIBJORG GÍSLADÓTTIR, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 1 2. júní kl 1 3.30. Guðmundur Kr. Símonarson. Hulda Guðmundsdóttir, Kristján Benjaminsson, Gyða Guðmundsdóttir. Haraldur Baldursson, Adolf Guðmundsson, Erla Þórðardóttir, og barnabörn. VALURPÉTURS- SON— KVEÐJA Fæddur 10. júní 1917 Dáinn 30. mal 1975. Valur Pétursson var fæddur i Reykjavík 10. júni 1917, og lést hann á heimili sinu, Bauganesi 6, 30. maí síðastl. Foreldrar hans voru heiðurshjónin Ingibjörg Sigríður Möller og 'Pétur Gunn- laugsson, bátasmiður, kominn af mjög gamalli reykvískri ætt. Ölst hann upp á heimili foreldra sinna ásamt Marinó bróður sínum í mjög góðu yfirlæti. Mesti gæfudagur í hans lifi var óefað, þegar hann 5. febrúar 1943 gekk að eiga eftirlifandi konu sina Ingibjörgu Malmquist. Eign- uðust þau 6 börn. Margrét, gift Sigvalda Kaldalóns, eiga þau 3 börn, Pétur, kvæntur Steinunni Viðarsdóttir, eiga þau 2 börn, Karl, sem lést aðeins 24 ára gamall, öllum harmdauði, kvænt- ur Aslaugu Haraldsdóttur, eign- uðust þau 2 börn, Hallgrímur, Davíð og Erla öll í heimahúsum. Hafa öll börnin átt mjög ástúðlegt uppeldi foreldra sinna, og sjá nú á bak elskulegum föður, sem þau ásamt tengdabörnum og barna- börnum syrgja af heilum hug. Valur vann við ýmis störf um dagana, en lengst hjá Skeljungi h.f. og Loftleiðum h.f. Var hann sérlega trúr og samviskusamur starfsmaður, virtur af yfirboður- um sinum og starfsfélögum. Ég hefi þekkt Val í yfir 30 ár, því atvikin höguðu því svo, að Ingibjörg systir konu minnar var hjá okkur hjónum þegar þau kynntust. Hefur verið mjög kært með okkur alia tið síðan, og aldrei fallið skuggi á. Valur hafði mjög mikið yndi af hverskonar veiðiskap, enda mátti hann til mikilla veiðimanna telj- ast. Fór hann oft i veiðiferðir í lax- og silungaár, og varð oft vel til fanga. Annars var hann hlé- drægur maður og sérlega heima- kær, hugsaði ávallt fyrst og fremst um fjölskyldu sína, og að henni mætti líðasem best. Fyrir 2 árum gekk hann undir mikinn uppskurð, og frá þeim tíma hafði hann verið sjúkur þótt hann reyndi af veikum mætti að mæta til vinnu sinnar, oft sárþjáð- ur, en trúmennskan kallaði, þann- ig var Valur. Þótt ég vissi að hann ætti við heilsuleysi að stríða, er það svo að maður á bágt með að skilja, að þeir, sem manni þykir vænt um, séu horfnir sjónum manns fyrir fullt og allt, og þá ekki síður elsku Inga mín og aliur hópurinn henn- ar, sem missir eiginmann^föður og afa á besta aldursskeiði, en þeirra sterka trúartraust hjálpar, þegar sorgin steðjar að. Og svo eru eftir minningarnar um hinn látna vin, já, minningarnar, sem allar eru á einn veg, sem fylla upp tómleikann. Óllum vinum og vandafólki Vals, færi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Stefán A. Pálsson. Minning: Kristjana Ólafsdóttir frá Litlu-Brekku Fædd 8. júní 1937 Iláin 2,8. marz 1975. Þann 28. marz síðastliðinn lézt á Fjörðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri Kristjana Ólafsdóttir frá Litlu-Brekku, Arnarneshreppi. Kiistjana var fædd að Stærra- Arskógi, Árskógsströnd, dóttir hjónanna Sigrúnar Jensdöltur frá Stærra-Arskógi og Ólafs Eiríks- sonar, er var ættaður frá Langa- nesi. Einn albróður átti Kristjana, Jens, verzlunarmann á Eskifirði. Foreldrar þeirra slitu samvistum, og var móðir þeirra með börnin að Stærra-Árskógi. Arið 1940 fer Kristjana svo meö móöur sinni að Hallfreöarstööum í Hörgárdal, þar sem móðir hennar gekk að eiga Rósant Sig- valdason. Og árið 1944 flytja þau að Asi á Þelamörk. Kristjana var ekki giimul þegar hún varð skörungur til verka, og strax fermingarvoriö sitt fór hún sem kaupakona á bæina þar í sveit, og haustið 1954 að Litlu- Brekku, sem vetrarstúlka, og þar kynntist hún eftirlifandi manni sínum, Geirfinni Ilermannssyni, en þeim varð 11 barna auðið. Móðir Ki istjiinu sagði, að það eina + GUÐRÚN GUNNSTEINSDÓTTIR, Reynishólum, Mýrdal, andaðist i Landspítalanum 8 júní. Börn og tengdabörn. + INGIBJÖRG SIGUROARDÓTTIR, frá Sauðárkróki, Engimýri 10, Akureyri, andaðist 5. júnl. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju 12. júní kl, 1.30. Börnin. sem hún hefði veriö heima í Asi frá fermingu, hefði verið um ára- mótin 1955 — 1956, en heima í Ási ól hún fyrsta barniö sitt. Af þessum fríða barnahópi eru nú 10 á lifi. Þau hjónin urðu fyrir því hörmulega slysi að missa dreng af slysförum þann 1. oklóber 1968, aðeins 7 ára að aldri. Kristjana átti oft langan og strangan vinnudag, eins og gefur að skilja meö þetta stóra heimili, en lét aldrei neinn bilbug á sér finna. Oft fórúm við hjónin út í Brekku, og alltaf hafði Kristjana Mælifellskirkju berst stórgjöf Mælifelli, 4. júní. Á SUNNUDAGINN kemur verð- ur þess minnst með hátiðarguðs- þjónustu á Mælifelli, að 50 ár eru liðin frá vígslu kirkjunnar, en séra Hálfdán Guðjónsson prófast- ur vígði hana hinn 7. júní 1925. Gamlir og nýir velunnarar kirkj- unnar og sóknarbörn eru aufúsu- gestir á hátíðinni. Séra Bjartmar Kristjánsson prédikar, kór kirkj- unnar syngur hátíðarsöngva, við undirleik Björns Ólafssonar organista á Kriphóli og sóknar- presturinn flytur erindi úr sögu kirkjunnar. Hinn 24. maí afhenti frú Margrét H. Magnúsdóttlr á Nauta- búi kirkjunni stórgjöf, kr. 100 þús. í orgelsjóð. Er hér um að ræða minningargjöf um mann hennar Sigurjón Helgason er lézt á sl. sumri, en hefði orðið átt- ræður þann dag. Bjuggu þau hjón allan sinn búskap, í meira en 50 ár, í Mælifellssókn og var Sigur- jón lengi formaður og gjaldkeri sóknarnefndarinnar. Séra Agúst. + Móðir min, VALGEROUR J. GÍSLADÓTTIR frá Sölvabakka, verður jarðsungin trá Fossvogskirkju fimmtudaginn 12. júnl kl 13.30. Fyrir hönd vandamanna. Haraldur V. Haraldsson. að þvi er virtist tíma til þess að ræða viö gesti. I fyrra vor vorum við inni á heimilinu á Brekku með dætur okkar tvær í þrjár vikur, og þótti mér aðdáunarvert, hve Kristjana var rösk til allra verka, utan dyra sem innan. Svo var það hauslið 1972, að Kristjana fór til vinnu f slátur- húsi K.E.A. á Ákureyri, og varð þá fyrst vör við veikindi sín, en fór eigi til læknis fyrr en sláturtíð var úli, og mun engum, er starfaði með henni, hafa dottið í hug, að sjúkdómur hennar væri svo alvar- legur sem síðar átti eftir að koma i ljós, þvi af þvilíkum dugnaöi vann hún sín störf sem endranær. Eftir læknisrannsóknir á Akur- eyri lá leið hennar suður til Reykjavíkur á sjúkrahús, þar sem hún dvaldist fram yfir síðustu áramót, en þá kom hún norður aftur og lágðist inn á Sjúkrahúsið á Akureyri, þar sem liún andaðist hinn 28. marz s.l. Við hjónin sendum eftirlifandi eiginmanni Kristjönu, barna- hópnum stóra og öðrum ættingj- um hennar innilegar samúðar- kveöjur, um leið og við þökkum þær ánægjulegu samverustundir setn viö höfum átt með Kristjönu á liönum árum. Atli V. Jóliannesson. S. Holgason hf. STEINIDJA llnholll 4 Slmar 24477 og 14254

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.