Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNl 1975 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80 Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið Island — Svíþjóð Konungur Svíþjóðar kemur í dag í opinbera heimsókn til íslands. Hér er hann aufúsugestur, full- trúi frændþjóðar, sem við höfum um langan aldur haft náin og góð samskipti við. Það er ungur maóur, sem sækir ísland heim í dag i nafni gamals og rót- gróins embættis. Eðli kon- ungdómsins bæði í Svíþjóð og annars staðar hefur smám saman verið að breytast og pólitísk áhrif þessa háa embættis heyra nú sögunni til. En það sem máli skiptir er vitaskuld hitt, að konungurinn er þjóóhöfðingi, sameiningar- tákn ólíkra flokka og mis- munandi hagsmunahópa. Heimsókn þjóðhöfðingja Svíþjóðar til íslands nú er því ánægjulegur vottur um traust samskipti og vin- áttu, sem reist er á gömlum merg. Samstarf Norðurlanda- þjóðanna er einstætt í sinni röð meðal þjóða heims. Víst er, að sú nána samvinna, sem þessar þjóð- ir hafa sín á milli, hefur styrkt þær og eflt á al- þjóðavettvangi. Fulltrúa- samkoma þjóðþinganna á Norðurlöndum, Norður- landaráð, hefur verið mið- depill þessa samstarfs. Þar hafa nýmæli verið sett fram og þar hefur verið unnið að framgangi þeirra. Noröurlönd öll eru smáríki og samstarf þeirra byggist á jafnræðisgrundvelli. En eigi að síður er það svo, að í samanburði við ísland, er Sviþjóð stórveldi og það er vissulega svo, aó Svíar standa í fararbroddi í ýms- um efnum. Eðli máls samkvæmt þurfa smáþjóðir oftast nær að sækja til þeirra sem stærri eru og voldugri. í þeim efnum höfum við not- ið góðs af traustu samstarfi og vináttu Norðurlanda- þjóðanna, ekki sízt Svíþjóð- ar. Það er ekki einvörð- ungu, að Svíar séu fjöl- mennastir Norðurlanda- þjóða heldur fer enginn í grafgötur um, að þeir eru bezt efnum búnir og standa mjög framarlega í atvinnu- og félagsmálum. Víst er, að við höfum notið góðs af frumkvæði Svía í ýmsum efnum. Fjölmargir Islend- ingar hafa aflað sér mennt- unar f Svíþjóð og ýmsan annan lærdóm höfum við sótt í garð Svía. Þá verður því heldur ekki gleymt hversu stórmannlega Svíar brugðust við ásamt með öðrum Norðurlandaþjóð- um, þegar eldsumbrotin urðu í Vestmannaeyjum. Þar var rétt mikilsverð hjálp og ómetanleg við þær erfiðu aðstæður sem þess- ar hamfarir höfðu í för með sér. íslendingar nutu í verki þess trausta vináttu- anda, sem ríkir á milli þjóð- anna og ýmsir hafa haldið fram að lýsti sér eingöngu í orðskrúði á mannfundum. íslendingar þekkja nú af eigin raun, að vinátta Norðurlandaþjóðanna er ekki orðagjálfur, heldur veruleiki. Þegar hinn ungi konung- ur Svíþjóðar kemur í fyrsta sinn í opinbera heimsókn til íslands mæta honum hlýjar óskir, ekki sakir þess eins, að hann er þjóðhöfðingi áhrifamikill- ar þjóðar, heldur vegna þess, að hann er fulltrúi frændþjóðar, sem íslend- ingar meta mikils. Kon- ungskoman er tákn þessar- ar vináttu og hún á að vera hvati að öflugra samstarfi þessara tveggja þjóða. Forseti íslands hefur komið til Svíþjóðar í opin- bera heimsókn. Þær við- tökur sem hann fékk þar, voru tákn um velvilja sænsku þjóðarinnar í okk- ar garð. Nú þegar konung- ur Svíþjóðar kemur hingað til lands gefst enn tækifæri til þess að treysta þessi vin- áttubönd. íslendingar munu vissulega leggja sitt af mörkum til þess að svo megi verða. Opinberar heimsóknir þjóðhöfðingja hafa e.t.v. ekki mikil sýnileg áhrif. Þær eru ekki farnar til þess að ráða málum til lykta, enda er það í ann- arra verkahring í nútíma lýðræðisríkjum. En þó að svo sé, fer því fjarri, að heimsóknir af þessu tagi þjóni ekki tilgangi. Þvert á móti geta þær haft margs konar áhrif til góðs, eh það sem mestu máli skiptir er, að þessar heimsóknir treysti enn samskipti ríkj- anna og hvetji til nýrra athafna á þvi sviði. I raun réttri eru þjóðhöfðingja- heimsóknir ytri umgjörð alls þess mikla samstarfs á hinum ýmsu sviðum, sem þjóðirnar eiga með sér. Vf8a þarf að fara um mjóar rákir ( þverhniptu bjarginu. Þorsteinn og Már taka lagið á Albert Kemp virðir fyrir sér hluta heimfeiðinni. af feng dagsins. ■Gtmnar var f Skrúðnum f fyrsta sinn. Bjargið hægra megin er Þórðar bjarg, vinstra megin er Halasig og í miðjunni sár inn f Skrúðshellinn. Guðmundur átti afmæli Skrúðsferðardaginn og borðaði hann til hátfðarbrigða jólakökusneið máfsegg. Fremsti hluti Skrúðshellisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.