Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 34
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JUNÍ 1975
Hátíðisdagur Blikanna
— Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með, að nú skulum við vera
farnir að leika okkar heimaleiki á þessum nýja og glæsilega
grasvelli, sagði Guðni Stefánsson formaður knattspyrnudeiidar
Breiðabliks. — Það er bylting að fara af malarvellinum við Vallar-
gerði og á þennan völl. Það er allur annar andi hjá strákunum og ég
bind miklar vonir við að dvöl okkar f 2. deild verði ekki lengri en
þetta keppnistfmabil.
— Varandi þennan völl vona ég, að hér eigi f framtfðinni eftir að
fara fram margir stórleikir, þegar nauðsynleg aðstaða hefur
skapazt, sem að vfsu verður ekki f sumar.
— Það er hátfðisdagur hjá fþróttamönnum f Kópavogi í dag og við
erum þakklátir öllum þeim, sem unnið hafa að þvf að þessi
Iangþráði draumur okkar, að komast á eigin grasvöll, hefur rætzt,
sagði Guðni að lokum.
SEX VORU MEIDDIR
GYLFI Scheving, hinn kunni leikmaður Víkings frá Ólafsvík, gat ekki verið
með liði sinu gegn Blikunum. — Þetta gengur ekki of vel, sagði hann I
hálfleik, er staðan var 7—0 fyrir Blikana. Við erum 6 meiddir að þessu
sinni og við teflum ekki I neina tvísýnu með að iáta meidda menn vera I
þessum leik.
— Það verður allt annað og betra lið sem mætir Haukum um næstu
helgi og þá verður Ásgeir Elíasson með okkur.
Gylfi sagði að æfingarnar hefðu gengið vel að undanförnu og þeir væru
ánægðir með Ásgeir sem þjálfara, ,en hann kom til okkar um s.l.
mánaðamót.
— Við höfum ekki sagt okkar síðasta orð, þótt ekki gangi vel að þessu
sinni, sagði Gylfi að lokum.
Hart barizt í leik Ármanns og Völsunga
Slakur leikur Ármanns og Völsunga:
Fá tækifæri
ekkert mark
ÁRMANN og Völsungur frá
Húsavík gerðu jafntefli 0:0 á velli
Ármanns á laugardaginn. Leikur
þessara 2. deildarliða var með fá-
dæmum lélegur en það var þó
annað sem vakti enn meiri at-
hygli en lélegheitin, reyndar at-
riði þeim nátengt. Stór hluti leik-
manna, jafnvel meiri hluti þeirra
virtist vart kunna undirstöðuat-
riði knattspyrnunnar. Eftir þess-
um leik að dæma er um gífurlegt
bil að ræða milli lakari liða 2.
deildar og liða 1. deildar, mun
meira en mann óraði fyrir.
Ármanns en hættir til að einleika
um of. Mikil endurnýjun hefur
orðið í liði Völsunga og uppistað-
an þar er kornungir leikmenn
sem sumir hverjir virðast eiga
margt ólært. í þessum leik voru
þeir áberandi beztir Gfsli
Haraldsson miðvörður og Ölafur
Magnússon markvörður, en hann
var áður í Val og lék auk þess með
unglingalandsliðinu. Hreinn EIl-
iðason lék sem tengiliður en hefði
betur verið framar til að hressa
upp á bitlausa framlínu Völs-
unga.
Þó svo að Breiðabliksmennirnir séu helmingi færri á myndinni þá tókst þeim að koma knettinum rétta
boðleið í markið framhjá varnarmönnum Vfkings.
BUKARNIR VIGÐU VOLL SENN MEÐII
MARKA SIGRIYFIR ÓLAFSVÍKINGUM
Leikur Blikanna og Vfkings frá
Ólafsvfk I 2. deild á hinum nýja
grasvelli f Kópavogi var leikur
kattarins að músinni. Ekki voru
liðnar nema 4 mfn. þegar Blikarn-
ir höfðu skorað sitt fyrsta mark
og áður en yfir Iauk, hafnaði
knötturinn 10 sinnum til viðbótar
f marki Vfkings. Og eftir gangi
leiksins gátu mörkin hæglega orð-
ið fleiri, þvf oft var farið illa með
góð tækifæri.
Það var Hinrik Þórhallsson,
sem skoraði fyrsta markið f opin-
berum kappleik á nýja grasvellin-
um á 4. mín. Skallaði hann knött-
inn yfir Birgi Gunnarsson mark-
vörð Víkings, sem var ílla stað-
settur. Heiðar Breiðfjörð bætti
öðru við á 9. min. með hörkuskoti.
Á næstu mín. fóru Blikarnir illa
með nokkur góð tækifæri og það
var ekki fyrr en á 27. mín. að
Ólafur Friðriksson skoraði 3ja
markið.
Nú tók Hinrik Þórhallsson vel
við sér, því á þremur mfnútum
skoraði hann þrjú mörk, þannig
að staðan var 6—0 fyrir Blikana.
Á 35. mín. urðu markverði Vík-
ings þau slæmu mistök á að
spyrna knettinum til Hinriks, sem
þakkaði fyrir sig með því að
skora. Á 36. mín. skoraði hann af
stuttu færi, eftir fallegan samleik
og á 37. mín. skaut Þór Hreiðars-
son f þverslá, en þaðan hrökk
knötturinn til Hinriks , sem skor-
aði.
A markamínútunni, 44. mfn.,
skoraði svo Hörður Harðarson,
þannig að staðan var 7—0 í hálf-
leik.
Eins og i fyrri hálfleik, voru
ekki liðnar nema 4 mín. af síðari
hálfleik, þegar Þór Hreiðarsson
skoraði. 5. mín sfðar var dæmd
vítaspyrna á Víking. Það var
markvörðurinn, Ölafur Hákonar-
son, sem framkvæmdi spyrnuna
og skoraði örugglega.
Nokkurt hlé varð á markaregn-
inu því það var ekki fyrr en á 66.
mfn. að Þór Hreiðarsson skoraði
10. mark leiksins og gerði hann
það mjög laglega. Og 12. mín. síð-
ar skoraði svo Þór síðasta mark
leiksins, eftir að hafa leikið í
gegnum vörn Vfkings. Lokastað-
an varð því 11—0 fyrir Blikana.
Verður ekki annað sagt, en að
þeir hafi farið vel af stað á hinum
nýja velli, þar sem þeir munu
leika sína heimaleiki i sumar.
Kjartan Ólafsson dæmdi þenn-
an leik og gerði hann það með
miklum ágætum.
Ekki er hægt að leggja neitt
mat a einstaka leikmenn Blik-
anna eftir þennan leik, til þess
hann þeim alltof léttur og auð-
veldur. Hinsvegar verður að telja
þá Iíklegasta til sigurs í deildinni,
þótt ekki verði það átkalaust.
I lið Víkings vantaði nokkra
menn og munaði þar mestu um
Gylfa Scheving, sem er meiddur.
Þjálfari liðsins, hinn kunni knatt-
spyrnumaður úr Fram, Ásgeir
Elfasson, mun leika með liðinu
n^esta leik, en það verður gaman
að fylgjast með honum og félög-
um hans í næstu Ieikjum. I þess-
um leik var liðið hvorki fugl né
fiskur, eins og úrslit hans segja til
um. Það var aðeins Atli Alexand-
ersson sem eitthvað sýndi og var
langbezti maður liðsins. Leik-
menn eru óvanir grasi og hefur
það áreiðanlega haft áhrif á leik
þeirra. Ef ég þekki Ólafsvfking-
ana rétt, þá láta þeir ekki bugast
við þessi úrslit og ég trúi því, að
þeir verði ekki auðunnir á heima-
velli í sumar.
Fyrirliði Olafsvfkurvfkinganna afhenti Haraldi Erlendssyni fagran
blómvönd áður en leikur þeirra við UBK hófst. Skömmu sfðar byrjuðu
Víkingarnir á miðju og I 11 skipti I viðbót fengu þeir að byrja með
knöttinn.
Fyrri hálfleikur leiksins verður
afgreiddur í fljótheitum. Þá gerð-
ist aðeins eitt umtalsvert atvik,
Jens Jensson framherji Ármanns
stóð einn og óvaldaður á markteig
og markið blasti við en skot hans
fór máttlaust framhjá. Ármenn-
ingar sóttu mun meira enda komu
Húsvíkingarnir beint úr flugvél-
inni út á völlinn og því eflaust
ringlaðir fkollinumfyrstístað. í
seinni hálfleik sóttu Ármenning-
ar einnig af meiri þunga, einkum
undir lok leiksins en Völsungarn-
ir börðust vel og gerðu sig greini-
lega ánægða með annað stigið..Á
25. mínútu féll Jóni Hermanns-
syni í liði Armanns í skaut bezta
tækifæri leiksins er markið blasti
við honum mannlaust en gott skot
hans fór í þverslá. Þrír Armenn-
ingar voru bókaðir fyrir að brúka
munn við annars ágætan dómara
þessa leiks, Magnús Theódórsson.
Fáir leikmenn skáru sig veru-
lega úr í þessum leik. I liði Ár-
manns er helzt að nefna ögmund
markvörð, miðverðina Kristin og
Gunnar svo og Jón Hermannsson.
Hann er áberandi leikmaður f liði
Sumarliði bætti tveimur í safnið
er Selfyssingar unnu Reyni 4—0
Selfyssingar áttu ekki f erfið-
leikum með nýliðana í 2. deild-
inni, Reyni frá Árskógsströnd,
er liðin mættust á Selfossi á
laugardaginn. Fjögur mörk
gegn engu urðu úrslit Ieiksins,
en sigur Selfyssinga hefði allt
eins geta orðið stærri, þar sem
þeir fengu fjölmörg marktæki-
færi f seinni hálfleik leiksins,
sem ekki nýttust. Reynir lék
undan golunni f fyrri hálfleik,
og var þá leikurinn nokkuð
jafn, sérstaklega til að byrja
með. Selfyssingar áttu þó
hættulegri sóknir, sem ekki
báru þó árangur fyrr en á næst-
sfðustu mínútu hálfleiksins, er
Stefán Larsen skoraði með
skoti af stuttu færi. I hálfleikn-
um áttu Reynismenn nokkur
góð upphlaup, og hefði ekki
verið ósanngjarnt að þeir hefðu
skorað en að þessu sinni höfðu
þeir ekki heppnina með sér.
I seinni hálfleiknum var nán-
ast um einstefnu að ræða og
kom þá berlega í ljós höfuðgalli
norðanliðsins — leikmenn þess
eru hvergi nærri í nógu góðri
úthaldsæfingu. Fór leikurinn
að mestu fram á vallar
helmingi þeirra, og máttu þeir
teljast góðir að fá ekki fleiri
mörk á sig en þrjú í hálfleikn-
um.
Fyrsta mark hálfleiksins
skoraði hinn marksækni leik-
maður Selfossliðsins, Sumarliði
Guðbjartsson. Dæmd var horn-
spyrna á Reyni og úr fyrirgjöÞ
inni náði Sumarliði örugglega
að skalla í markið. Eftir rúm-
lega stundarfjórðung bætti svo
Guðjón Arngrímsson þriðja
markinu við með skoti af all-
löngu færi og var þetta
tvímælalaust fallegasta mark
leiksins. Fjórða markið gerði
svo Sumarliði þegar 10 mínútur
voru til leiksloka — skallaði
knöttinn í markið eftir fyrir-
gjöf.
Selfossliðið hefur því ekki
enn tapað stigi í annarrar deild-
ar keppninni og virðast leik-
menn þess hinir frískustu.
Kann svo að fara, að liðið nái að
blanda sér i baráttuna á toppn-
um í sumar. Beztu menn liðsins
í þessum leik voru þeir Sumar-
liði Guðbjartsson, Guðjón Arn-
grímsson sem er stórefnilegur
leikmaður og Gylfi Þ. Gislason,
sem er mjög traustur leikmað-
ur í vörninni.
Dómari í leiknum á Selfossi
var Valur Benediktsson og var
hann heldur afskiptalítill.
stjl.