Morgunblaðið - 14.06.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚNl 1975
Samningur ASÍ og VSÍ:
Um sex milljarðar í
auknar launagreiðslur
Breytir þó ekki for-
sendum þjóðhagsspár-
innar í meginatriðum
NIÐURSTOÐUR nýgerðra kjara-
samninga milli Alþýðusambands-
ins og Vinnuveitendasambands-
ins munu ekki raska að neinu
ráði þeim áætlunum eða spá sem
Þjóðhagsstofnunin hefur gert um
verðlags- og kaupgjaldsþróunina
hér innanlands og afkomu þjóðar-
búsins á þessu ári samkvæmt
þeim upplýsingum sem Morgun-
blaðið aflaði sér hjá Þjóðhags-
stofnuninni. Vinnuveitendur
áætla hins vegar að þessi nýi
kjarasamningur muni auka
launagreiðslurnar f landinu sem
nemur um 6 milljörðum króna og
með honum sé teflt á tæpasta vað
hvað snertir afkomu sumra at-
vinnugreina, sérstaklega þó
sjávarútvegsgreinanna.
Að sögn Olafs Davíðssonar, hag-
fræðings hjá þjóðhagsstofnun-
inni, var í febrúarmánuði sl. gerð
þjóðhagsspá fyrir þetta ár, sem
byggð var á ákveðnum forsendum
um kaupmáttinn i landinu og lik-
lega þróun kaupgjalds og verð-
lags, fiskframleiðslu og afla-
bragða, innflutnings og út-
flutnings og viðskiptakjara, svo
eitthvað sé nefnt.
„Niðurstöður þessara samninga
eru í aðalatriðum ekkert verulega
frábrugðnar þeim forsendum,
sem við gáfum okkur þar,“ sagði
Ólafur. „Svo að ég held að miðað
við að allt annað haldist óbreytt i
likingu við þróunina til þessa,
hafi ekkert komið fram sem bein-
linis breyti spám þjóðhagsstofn-
unar fyrir þetta ár I meginatrið-
um. Framleiðsla og aflabrögð
virðast t.d. ekki ætla að verða
langt frá því sem við vorum að
reikna með, og útflutningur og
innflutningur siðustu mánuðina
virðast líka þróast svona nokkuð I
þá átt sem við gérðum ráð fyrir,
Framhald á bls. 18
GOD SALA: Fékk 94 kr.
fyrír kílóið í Bretlandi
SKUTTOGARINN Ljósafell seldi
77 tonn af kassafiski f Grimsby f
gær fyrir alls 7,3 millj. kr. og var
meðalverð pr. kg. kr. 94.20. Þetta
þykir mjög góð sala, þar sem
mjög mikið framboð af fiski er
nú á markaði f Englandi.
Afla Ljósafells var ekið frá
Granton í Skotiandi til Grimsby,
þar sem ekki var talið þorandi að
senda skipið þangað vegna and-
spyrnu sjómanna i Grimsby gegn
sölum ísl. skipa um þessar
mundir. Ekki var hægt að selja
nema kassafiskinn í morgun og
50—70 lestir af lausum fiski, sem
skipið landaði, voru látnar bíða
þar til markaðurinn opnar á ný á
mánudag. Þá er hætt við, að verð-
ið fyrir fiskinn verði ekki hátt,
Leiðrétting við
frímerkjafrétt
MORGUNBLAÐIÐ hefur
sannfrétt, að merki Jóns Sigurðs-
sonar frá 1911 voru prentuð hjá
H. H. Thiele í Kaupmannahöfn,
svo sem öll Islenzk frimerki fram
að 1930. Þess vegna getur frásögn
heimildarmanns blaðsins 12. þ.m.
um tilraunaprent þessara frí-
merkja hjá Thomas de La Rue i
Englandi ekki staðizt.
þar sem hann verður þá orðinn
gamall, en ef tekizt hefði að selja
þann fisk einnig i gær, má búast
við að heildarsalan hefði orðið
einstaklega góð.
Gamall mað-
ur í lífshættu
MJÖG harður árekstur varð milli
tveggja fólksbifreiða á mótum
Skúlagötu og Barónsstfgs
skömmu eftir hádegi f gær. 1
árekstrinum slasaðist 79 ára
gamall maður illa á höfði og
liggur hann nú meðvitundarlaus
og f Iffshættu á gjörgæzludeild
Borgarsjúkrahússins.
Áreksturinn varð laust eftir
klukkan 13,30. Gamli maðurinn
ók Austin-mini bifreið vestur
Skúlagötu og hugðist svo beygja
til vinstri upp Barónsstfg. Ók
hann I veg fyrir Mazda bifreið og
varð áreksturinn mjög harður.
ökumaður Mazda bifreiðarinnar
slasaðist aðeins lítilsháttar en
gamli maðurinn klemmdist inni f
bifreið sinni og varð honum ekki
náð út úr henni nema með kú-
beini. Var hann þá meðvitundar-
laus. Hann var fluttur á Borgar-
sjúkrahúsið þar sem hann gekkst
undir höfuðaðgerð og að henni
Iokinni var hann fluttur á gjör-
gæzludeild sömu stofnunar.
Bragi Ásgeirsson við eina mynda sinna.
(Ljósm. Mbl. Sv.Þorm).
Að vera með á nótunum
Bragi Asgeirsson dregur 40 mgndir
r
fram í dagsljósið og sgnir „A loftinu ”
BRAGI Asgeirsson opnar sýn-
ingu á fjörutfu myndum „A
loftinu" í húsi Helga Einars-
sonar við Skólavörðustfg f dag
klukkan tvö. Verður sýningin
opin næsta hálfa mánuðinn —
virka daga á venjulegum verzl-
unartfma og laugardaga frá kl.
9—12 og aftur frá kl. 2—6.
„Þessi sýning spannar heilan
aldarfjórðung — allt frá því að
ég var 18 ára nemi f handiða-
skólanum og fram til þessa
dags,“ sagði Bragi þegar hann
var inntur eftir þvi af hvaða
toga myndirnar fjörutiu væru.
„Samt sem áður er þetta ekkert
úrval eða þaulhugsuð yfirlits-
sýning heldur eru hér á ferð-
inni myndir sem ég hef verið að
tína til og jafnvel finna, setja á
karton og innramma nú I
vetur."
1 fremsta sýningarherberg-
inu á loftinu eru tilrauna-
kenndar myndir frá þvi að
Bragi var i handiðaskólanum
hér heima, “sem ég vona að
sýni að ég hef verið með á nót-
unum frá . fyrstu tíð,“ segir
Bragi, „tréristur frá 1953 og
módelmyndir sem ég gerði í
Róm árið 1954. Hér I næsta her-
bergi er lika konumynd sem er
mér sérlega kær. Hún átti að
vera á fyrstu sjálfstæðu sýning-
unni minni en konan sem
myndin er af bannaði mér það
þvi að henni fannst hún svo
ljót. En síðan hafa tfmarnir
breytzt og ég get varla ímyndað
mér að nokkur fetti fingur út I
hana.“
I innsta herberginu eru svo
sfðustu myndir Braga, sem
hann hefur verið að vinna að á
þessu ári og næstu árum á und-
an, og þær munu ekki koma á
óvart þeim er fylgzt hafa með
myndlistarferli Braga á sl. ár-
um nema hvað þær eru minni.
„Það var gott að fá þennan sýn-
ingarsal hér á loftinu," segir
Bragi, „gaman að geta boðið
upp á „intíma“ sýningu í svona
lókali. Það býður upp á litlar
myndir, en t.d. í Norræna
húsinu, þar sem ég sýni I haust,
mun ég ekki sýna nema stórar
myndir i framtíðinni. Smáar
myndir njóta sin þar ekki.“
Flestar myndirnar á sýning-
unni eru til sölu enda þótt
Bragi segist geta tekið undir
það með Valtý Péturssyni sem
sýndi á loftinu á undan Braga,
að það sé nánast heimskulegt
að vera að selja gamlar myndir
á verðbólgutimum. „A sýning-
unni I Norræna húsinu t.d. át
verðbólgan líklega um
þriðjunginn af þeim hagnaði
sem ég hafði af sölunni vegna
þess hversu mikið af greiðslun-
um var í formi afborgana til
mismunandi langs tima,“ segir
Framhald á bls. 18
Ráðstefna um iðnað á
Austurlandi um helgina
Samband sveitarfélaga f
Austurlandskjördæmi gengst
fyrir ráðstefnu um iðnað á
Austurlandi um þessa helgi.
Verður hún haldin á Hallorms-
stað og stendur f tvo daga. Ráð-
stefnan er liður f þvf að afla og
miðla þekkingu um iðnþróun hér
á Iandi almennt og Austurlandl
56% kjarabœtur á lœgstu
laun frá því í september
Framfærduvísitalan hefur hækkað um 43,4%
ÞEGAR litið er áþróun lægstu
launa frá sl. hausti, kemur f
ljós, að kjarabætur á lægstu
laun hafa numið allt að 56%,
þegar tekið hefur verið tillit til
skattalækkana og áhrifa auk-
inna niðurgreiðslna á land-
búnaðarafurðum. Á sama tíma
hefur vfsitala framfærslukostn-
aðar hækkað um 43,4%. Ef
tekið er mið af launum, sem
námu 60 þúsund kr. sl. haust,
kemur f ljós að þau hafa miðað
við sömu forsendur hækkað um
36%.
Kjarasamningarnir, sem
undirritaðir hafa verið, hafa í
för með sér 5300 kr. hækkun
allra launa nú þegar. Þeir sem
ekki fengu 3.500 kr. launajöfn-
unarbætur samkvæmt bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar
fá þær nú. Þá hækka iaun
þeirra, sem ekki fengu 4.900 kr.
launajöfnunarbætur I marz, um
þá upphæð. Allir launahópar fá
siðan 2.300 kr. hækkun 1. októ-
ber n.k.
Lægstu laun, sem námu kr.
33.000 í september 1974, hækk-
uðií 1. október það ár um 3.500.
kr. Fyrsta desember kom til
framkvæmda 3% grunnkaups-
hækkun, og í marz sl. var samið
um 4.900 kr. hækkun launa-
jöfnunarbóta. Nú hafa launin
hækkað um 5.300 kr. og hækka
síðan aftur um 2.300 kr. 1.
október n.k. Þessi laun munu
þvi hækka á einu ári upp I
49.800 kr. eða um 51%. Þegar
tekið hefur verið tillit til þeirra
kjarabóta, sem skattalækkanir
hafa i för með sér og metnar
eru til jafns við 5% hækkun
peningatekna og áhrifa
aukinna niðurgreiðslna á land-
búnaðarvörum, sem metnar eru
til 3% launahækkunar, munu
kjör samkvæmt þessum launa-
taxta samtals hafa batnað um
61% 1. október n.k. Þau hafa
því fyllilega fylgt verðlags-
hækkunum áþessu tímabili.
Laun, sem námu kr. 60.000 I
september 1974, hækkuðu um
3% 1. desember og síðan um
4.900 kr. í marz. Nú kemur til
framkvæmda 5.300 kr. hækkun
og hækkun um 3.500 kr. vegna
launajöfnunarbóta frá 1.
október í fyrra og þá komu ekki
á þetta há laun. Loks bætast svo
við 2.300 kr. 1. október n.k. Þá
hafa þessi laun hækkað um
17.600 kr. eða um tæp 30%.
Þegar tekið hefur verið tillit til
kjaraáhrifa skattalækkana og
aukinna niðurgreiðslna, munu
þessi laun hafa hækkað um
38,1% 1. október n.k. miðað við
sama tíma árið áður.
sérstaklega, með hliðsjón af þró-
uninni á helztu viðskiptamörkuð-
um okkar.
Þátttakendur í ráðstefnunni
eru um 50 talsins. Það eru for-
stöðumenn fyrirtækja á Austur-
landi og sveitarstjórnarmenn. Á
laugardag flytja þessir
menn framsöguerindi um ýmsar
hliðar dagskrárefnisins: Bragi
Hannesson, bankastjóri Iðnaðar-
bandans, Haukur Björnsson,
framkvæmdastjóri Félags ísl. iðn-
rekenda, Kjartan Kristjánsson.
verkfræðingur hjá iðnaðardeild
Sambandsins, Ölafur Gunnars-
Framhald á bls. 18
Sáttafundur á Flateyri
VERKALVÐSFÉLAGIÐ á
Flateyri hélt fund I gær vegna
sjómannadeilunnar þar á staðn-
um, sem snýst aö verulegu leyti
um dagróðrarbáta. Ekkert nýtt
kom fram á fundinum, en menn
gerðu sér vonir um að einhver
árangur næðist á sáttafundi um
helgina.
va mm ‘bMÁWLt á
M V/9 %'ÍóGm AFÍíjR
Óhugnanlegur kúadauði
Mælifelli 13. júnf.
HJÖNIN Felix Antonsson og
Monika Erla Sveinsdóttir hafa
búið á Ljósalandi í Neðribyggð
hálft annað ár. A þessum tíma
hafa drepizt hjá þeim 4 kýr með
undarlegum og óskýraniegum
hætti, en fyrri ábúandi missti og 4
kýr á Ljósalandi. Þegar ein kýrin
drapst fyrir skemmstu áleit dýra-
læknir, að um rafstraumsút-
leiðslu væri að ræða og við nánari
rannsókn kom fram, að svo var.
Ekki er vitað hvort úr hefur tek-
izt að bæta, en menn frá raf-
veitunum hafa verið nokkra daga
á Ljósalandi. Tjón búenda er
mikið og tilfinnanlegt, en álitið að
Rafmagnsveitur ríkisins munu
Framhald á bls. 18