Morgunblaðið - 14.06.1975, Page 19

Morgunblaðið - 14.06.1975, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JUNl 1975 Ottarr Möller: Flutningaaðilar búi við sömu aðstöðu Hér á eftir fer ræða, sem Óttar Mölier forstjóri Eimskipafélags Islands fiutti á viðskiptaþingi Verzlunarráðs Islands fyrir skömmu: Ég þakka Verzlunarráði Islands fyrir það lofsverða framtak að halda þessa ráðstefnu. Ég hef aðeins fáar minútur til umráða og mun stikla á stóru varðandi frelsi og höft i samgöng- um Islendinga. Ég hef ávallt verið fylgjandi sem víðtækustu frelsi í verzlun og viðskiptum. Þó er öllu frelsi tak- mörk sett. Arið 1947 gaf ég Verzlunarráði Islands „Interstate Commerce Act“, sem eru bandarisk lög hér að lútandi. Þá var ég i nefnd, sem skipuð var af ríkisstjórninni og skilaði áliti í október 1969 um löggjöf sem mið- ar að auknu frelsi í verðlagsmál- um og til að fyrirbyggja einokun, hringámyndun og óeðlilega við- skiptahætti. Til að opna umræður mun ég minnast á nokkur atriði í sam- bandi við samgöngumál og úrbæt- ur sem ég tel nauðsynlegt að gera. Erlendis eru sérleyfi algeng, sérstaklega í sambandi við far- þegaflutninga. En sérleyfunum fylgja kvaðir og skyldur fyrir sér- leyfishafa. Sérleyfishafa ber að halda uppi samgöngum jafnt á annatímum sem öðrum, þegar minni flutningar eru. A Islandi má benda á Strætisvagna Reykja- Hér fer á eftir erindi Jóns Magnússonar formanns Félags ís- lenzkra stórkaupmanna, er flutt var á viðskiptaþingi Verzlunar- ráðs tslands fyrir skömmu: A þeim fáu minútum, sem mér eru ætlaðar til að lýsa vandamál- um, sem heildverzlunin á við að stríða vegna afskipta rikisvalds- ins af verðlagsmálum, verður að- eins hægt að stikla á því helzta og því margt látið ósagt, sem gjarnan ætti erindi hér. En áður en ég vík máli minu að verðlagsmálunum þá þykir mér rétt að vekja athygli fundar- manna á því vandamáli, sem hin frjálsa verzlun á við að stríða i dag, en það er hinn skefjalausi áróður vissra pólitfskra afla, sem markvisst vinna að þvi að gera þessa atvinnugrein sem tortryggi- legasta í aogum almennings. Áróður þessi beinist að því, að hér sé um stétt manna að ræða, sem stundi fjárplógsstarfsemi, stétt braskara og auðvaldssinna, svo nokkur orð í áróðri þessum séu nefnd. En þeir menn er þennan áróður stunda vita betur. Þeir vita að stór hluti verzlun- arinnar er í höndum ríkisins, sam- vinnuhreyfingarinnar og annarra félagsforma. Sjálfir ráða þeir yfir KRON hér á höfuðborgarsvæðinu — En þetta er þeim ekki nóg. Takmark þessara afla er að grafa undan hinu frjálsa fram- taki. Þeim er það full ljóst að þegar því marki er náð, þá er þeim léttur eftirleikurinn til al- gjörra yfirráða. Hjá þessum öfl- um er það tilgangurinn, sem helg- ar meðalið, og hann er óspart not- aður. Stöðugur áróður — sem ekki er mótmælt — seytlar smátt og smátt inn í vitund manna, þar til þeir fara að trúa. Það að ég vek athygli ykkar á víkur, sérleyfishafa i farþega- flutningum með bifreiðum og í lofti milli staða innanlands, og sérleyfi Flugleiða í flugi milli landa. Slík sérleyfi eru fyrst og fremst miðuð við nauðsyn þjónustuþega. Tilraunir eru gerð- ar í áróðursskyni til að gera starf- semi slíkra fyrirtækja tortryggi- lega og má þar sérstaklega minna á umræður, jafnvel á hinu háa Alþingi Islendinga, í sambandi við starfsemi Flugleiða. Strætis- vagnar Reykjavíkur eru reknir með tapi. Það væri ábatasamt fyrir einstakling, sem fengi leyfi til að reka strætisvagn á morgn- ana, í hádeginu og á kvöldin, en léti Strætisvagna Reykjavíkur um rekstur á öðrum tímum dagsins. Stjórnvöld beittu sér fyrir sameiningu Flugfélags tslands og Loftleiða til að bæta samgöngur í lofti og til aukinnar hagkvæmni í rekstri og til að styrkja sam- keppnisaðstöðu íslenzkra flug- félaga gagnvart erlendum keppi- nautum. Það ber að harma, að nokkrum dögum eftir að Flugleið- ir var stofnað, var nýjum aðila leyfð kaup á tveimur þotum og mér er spurn, til hvers var verið að sameina Flugfélag Islands og Loftleiðir? Margsinnis hafa verið færð rök fyrir þvi, að álögur ríkis og bæjar- félaga séu margfaldar á skip í innanlandsflutningum, miðað við vörubíla og flugvélar. Eimskipa- félag Islands hefur óskað eftir því við ríkisstjórnina, að hún skipi þessu máli hér, er fyrst og fremst til að vara við hættunni og jafn- framt hvetja verzlunarstéttina til að koma af stað öflugri upplýs- ingastarfsemi, er sanni neytend- um að hagstæðasta vöruverð og vörugæði fást aðeins I frjálsri samkeppnj og frjálsu markaðs- kerfi. Það væri því verðugt verkefni þessa Viðskiptaþings að hrinda af stokkunum slíkri upplýsingaþjón- ustu. Því að áróðri á frjálsa verzlun verður aðeins hrundið með rök- um. Lögmann er ekki hægt að sann- færa með hjartnæmum orðum — Hann lætur aðeins sannfærast, ef honum er mætt með öðrum laga- fyrirmælum, sem ganga gegn þeim, sem hann styðst við. Þetta verðum við að gera okkur ljóst og sigur okkar vinnst aðeins með öflugu upplýsingastarfi. Við verðum að kynna fyrir neytandanum hvað vöruverð er — Efla verðskyn hans — Efla þekkingu hans á vörugæðum og hvert gildi frjáls verzlun hefur fyrir hann. Skýrgreina hvað álagning á kostnaðarverð vöru er. Er það hreinn gróði, sem renn- ur óskertur í vasa heildsalans eða kaupmannsins eða gegnir álagn- ing einhverju öðru hlutverki — og þá hverju? Og þá kem ég að verðlagsmálun- um. Samkvæmt tilkynningu verð- lagsnefndar nr. 14 — 1975 frá 30. apríl, er tilkynnt hámarksálagn- ing á vörur í heildsölu frá 5,3% til 13,5%. Við skulum nú lita á ársreikn- ing velrekins fyrirtækis i heild- verzlun og kanna hvaða hlutverki þessi álagning þjónar. Þá kemur i ljós að 60% af álagn ingunni fóru í laun og launatengd gjöld, en samkvæmt skilgreiningu þrjá óvilhalla menn i nefnd til að rannsaka þessar álögur og til að gera tillögur um að þær verði samræmdar. Flugvélin, bíllinn og skipið eru öll nauðsynlég flutningatæki og hagsmunum al- mennings er bezt þjónað með þvi að þau búi við sama rétt og greiði sambærileg gjöld til hins opin- bera og þá mundu samgöngur á sjö innanlands batnatil muna. Undanfarin ár hefur viðgengizt að íslenzkt flugfélag, sem annast vöruflutninga, fái beinan styrk úr ríkissjóði, þegar flogið er til Evrópulanda. Hálfur tollur er greiddur af flugfragt i áætlunar- flugi. Eimskipafélagið hefur farið þess á leit, að hálfur tollur verði einnig greiddur af flutningsgjöld- um með skipum. Hér er að minu áliti um óréttlæti að ræða. Eim- skipafélag íslands hafði skatt- frelsi til ársins 1952. Það reyndist illa fyrir félagið og tafði upp- byggingu skipastólsins. Allskonar kvaðir voru settar á félagið vegna skattfrelsisins og það notað I áróðri gegn því. Ég tel að þessi friðindi munu reynast illa fyrir Flugleiðir. Undanfarna áratugi hafa flutningsgjöld til landsins með skipum verið meira og minna háð verðlagsákvæðum. Nú munu um 70% af heildargreiðslum lands- manna fyrir farmgjöld vera frjáls og er hér um að ræða útflutning og svokallaðan stórflutning. 30% er háð verðlagsákvæðum. Það eru Iaunþega eru um 90% af þessu fólkilágtekjufólk. I húsaleigu, ljós og hita fóru 12% í aðstöðugjöld 7,2% sölu- og ferðakostnað 8,5—sími, telex og burðargjöld 7,5% vextir 7% — Þetta gerir samtals 102,2% — En þá er eftir ýmis annar rekstrar kostnaður uppá 14,6% en það er rekstur bifreiða, prentun, ritföng, umbúðir, auglýsingar, félags- gjöld, viðhald áhalda, vátrygging- ar o.fl. Sem sagt, þessu velrekna fyrir- tæki vantaði 16,8% til að álagn- ingin nægði fyrir reksturskostn- aðinum. Af þessari upptalningu má launþegum I verzlunarstétt vera ljóst að þegar nú stjórnvöld lækka álagningu um 25% á réttum 5 mánuðum, með því að beita hinni frægu 30% reglu sem þeir rök- styðja með aðeins einu orði — hefð — þá er með slíkum aðgerð- um verið að ráðast beint að laun- þegum og atvinnuöryggi þeirra. Nýlegagat forsætisráðherra þess í ræðu varðandi efnahags- vandann að mestu máli skipti, að við lærðum af reynslunni og lét- um okkur hana að kenningu verða. Höfum við þá nokkuð lært af reynslunni? Erum við ekki alltaf að grípa til sömu gömlu úrræð- anna? Erum við ekki I þessu efni þræl- ar fortiðarinnar i stað þess að vera fyrirheit ókomins tima? Þið kannist eflaust við söguna um manninn, sem keypti herta þorskhausa á sjö aura stykkið, og endurseldi þá á sex aura. Og þeg- ar hann var spurður hvernig hann færi að þessu, þá svaraði hann: ,,Ég næ þessu upp á velt- unni.“ Hvernig snýr dæmi þetta gagn- vart verzluninni i dag, þegar gengi krónunnar er fellt og verzl- uninni fyrilskipað með lagaboði flutningsgjöld fyrir svokallaða stykkjavöru. Eimskipafélagið, Hafskip og Skipadeild S.I.S. flytja stykkjavöruna, sem háð er verð- lagsákvæðum. Aðrir skipaeigend- ur sigla með varning sem er ekki háður verðlagsákvæðum. Vonir standa til að þessi mál fái réttláta afgreiðslu hjá stjórnvöld- um. Stundum heyrist sagt, að Eim- skipafélagið hafi einokun á flutningum á sjó til landsins. Þetta er mikill misskilningur. öll- um erlendum skipafélögum er heimilt að reka siglingar til Is- lands. Þau gera það ekki vegna fyrirsjáanlegs tapreksturs. Hörð samkeppni er milli Eimskipa- félagsins og annarra islenzkra skipafélaga. Að tölu til á Eimskip um helming af islenzkum skipum, sem annast vöruflutninga. Höft og ranglát verðlagsákvæði hafa tafið uppbyggingu skipastóls félagsins. Ég tel að bezta leiðin til bættra lífskjara sé aukið athafnafrelsi, með vissu aðhaldi stjórnvalda með stærri viðskiptaeiningum, að öllum sem annast almenna þjónustu sé skylt að birta reikninga sína, eins og Eimskipa- félag Islands, Islenzka Alfélagið og Samband ísl. samvinnufélaga gera í dag. Þá tel ég að almennt eigi fyrirtæki, sem ekki eru sam- keppnisfær, að fá að heltast úr lestinni og að bankar og fjármála- stofnanir eigi að beina fjármagn- Jón Magnússon. að afhenda vörubirgðir sinar langt undir verðmæti þess gjald- miðils, sem í gildi var, þá vöru- kaup voru gerð? Og síðan sagt: „Þetta er allt í stakasta lagi — þið náið þessu upp á aukinni veltu.“ Með sliku lagaboði er verið að afhenda gjaldeyrisvarasjóð — i formi vörubirgða — langt undir skráðu gengi. — Hér á sér stað eignaupptaka, sem nemur mörg- um milljörðum króna. Þetta útaf fyrir sig er undrun- arefni og með öllu óþekkt fyrir- bæri í öðrum löndum, enda gildir þessi regla ekki þegar rikið á i hlut. Það lætur loka sinum verzl- unum samdægurs og gengið er fellt og fyrirskipar endurmat á vörubirgðum sínum til samræmis við hið nýja gengi. Sama gildir um aðflutningsgjöld. Grundvallarstaðreynd þess að komast að sannleika og kjarna einhvers máls, er að það sé rann- sakað frá réttu og heilbrigðu sjón- armiði. Það má segja að sjónar- mið skapi fyrirbærið. Og nú langar mig til þess að sýna ykkur þetta fyrirbæri i formi verðlagsákvæða i heildsölu. Fyrir vöru, sem kostar í smá- sölu með söluskatti kr. 2502.00 fær heildverzlunin kr. 102.00 mið- að við 6,6% hámarksálagningu eða um 4% af vöruverðinu. Þessi 6,6% álagning á að standa undir öllum tilkostnaði heildverzlunar- innar vegna vörukaupanna, Ottar MöIIer. inu til fyrirtækja sem eru vel rekin og geta lagt fram tryggingar fyrir lánum og sýnt fram á starfs- grundvöll. Það er min skoðun, að Verzlunarráð Islands eigi að vera útvörður frjálsrar samkeppni og stuðla að þvi að öll rekstrarform búi við sömu aðstöðu af opinberri hálfu. Ég skora á forráðamenn Verzlunarráðs íslands að styðja þær sjálfsögðu réttlætiskröfur, sem hér hafa verið færðar fram og rökstuddar. Samgöngur milli landa hafa aldrei verið betri en í dag. Innan- landssamgöngur á sjó þarf að bæta og hefi ég bent á leiðir til þess. Samgöngur eru lífæð verzlunar og viðskipta. Samgöngutæki í eigu Islendinga eru máttarstólpi i sjálfstæðisbaráttu Islendinga. þ.e.a.s. vinnulaunum, húsaleigu, fjármögnun, dreifingarkostnaði, aðstöðugjaldi o.fl. En söluskatturinn einn sem er 20% á lokastigi vöruverðsins og ekki kallaður álagning, er í þessu dæmi tæplega helmingur af inn- kaupsverði vörunnar. Og ef við bætum við tolli (35%) þá er hlut- ur hins opinbera orðinn 80% af innkaupsverði vörunnar. Ætli hinn almenni neytandi geri sér fyllilega ljóst hve gifur- lega stór þáttur ríkisins er í vöru- verðinu, sem hann greiðir dags daglega? Væri ekki þörf á ströngu verð- lagseftirliti með þætti rikisins í verði innfluttra vara og upplýsa hinn almenna neytanda hve stór hlutur rikisins er i vöruverðinu? Annað dæmi um hámarksálagn- ingu langar mig til að skýraykkur frá, en það fjallar um tvö verðtil- boð, sem heildverzlun fékk i vöru af sama gæðaflokki. Hámarks- álagning var hér 8%. Tilboð A hljóðaði upp á kr. 200 per vörueiningu komin I vöru- geymslu innflytjandans og með 8% álagningu átti hann þvi að fá kr. 16,— Tilboð B hljóðaði hinsvegar uppá kr. 100. Einnig komið í vöru- geymslu, en nú átti innflytjand- inn aðeins að fá krónur 8.—. — Sem sagt, hámarksákvæðin refsa fyrir að gera hagstæð innkaup. Og að lokum þetta. — Það er engin þjóð eins háð út- og inn- flutningi sínum og við Islending- ar og þvi skiptir það höfuðmáli fyrir afkomu okkar að vel sé vandað til þessara atvinnuvega og leitað beztu og hagkvæmustu kjara. Á s.l. ári nam heildarinnflutn- ingur okkar 52,5 milljörðum og skiptist hann i þrjá aðalflokka þ.e. neyzluvörur 16 milljarða, rekstrarvörur 17 milljarða og fjárfestingarvörur 19 milljarða. I hlut heildsöludreifingarinnar kom um 31 milljarður. Fjárhæð þessi sýnir hve þýðingarmikill at- vinnuvegur innflutningsverzlun- in er, og hve mikilvægu hlutverki hún gegnir í þjóðarbúinu. Og þar sem nú stór hluti þessa innflutnings er í eigu fólksins þ.e. rikisins, samvinnuhreyfingarinn- ar og annarra félagsforma, sem telja sig bezta verðlagseftirlitið. Erum við þá ekki að kasta á glæ miklum fjármunum í rándýra Framhald á bls. 23 _ r Jón Magnússon formaður F.I.S.: Þegar ríkið tekur 80% af innkaupsverði vöru

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.