Morgunblaðið - 14.06.1975, Side 14

Morgunblaðið - 14.06.1975, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚNl 1975 Konungur Svíþjóðar heimsækir ísland „ Þetta hefur ver- iö stórkostlegt ’ ’ — sagöi Karl 16. Gústaf Svíakonung- ur viö lok íslandsheimsóknarinnar OPINBERRI heimsókn Karls 16. Gústafs Svíakonungs til íslands lauk síðdegis í gær, er þota konungs hóf sig á loft frá Reykjavíkurflugvelli. Kon- ungur var þá nýkominn úr ferð til Þingvalla og Hvera- gerðis, en í þeirri ferð hafði hann sko'ðað dælustöð Hita- veitunnar að Reykjum í Mos- fellssveit, gengið niður Almannagjá og komið á Lög- berg, skoðað Peningagjá og Þingvallabæinn, snætt hádegisverð í boði ríkis- stjórnarinnar í Hótel Valhöll, opnað borholu í Hveragerði og skoðað þar gróðurhús og goshver. 0 Dælustöð skoðuð f gærmorgun var ekiS til Þing- valla, en á leiðinni höfS viðkoma I dælustöð Hitaveitu Reykjavlkur að Reykjum I Mosfellssveit. Birgir fsl. Gunnarsson borgarstjóri, Ólafur B. Thors forseti borgar stjórnar og Jóhannes Zoéga hita veitustjóri tóku á móti gestum og sýndu þeim dælustöðina. Meðal annars var gengiS niður I kjallara og þóttf flestum nóg um hitann þar niðri, enda var hann svipaður og I gufubaði. Til Þingvalla var komið um kl. 10.30 og var staðnæmzt á barmi Almannagjár, þar sem séra Eirlkur Eirlksson þjóðgarðsvörður tók á móti gestunum. Virtu menn fyrir sér útsýnið yfir Þingvelli og dr. Sigurður Þórarinsson fræddi konunginn um jarðfræði og jarð- sögu svæðisins. Var slðan gengið niður gjána 1 átt að Lögbergi. £ Saga Þingvalla rakin Á Lögbergi var numið staðar um stund og Þór Magnússon þjóð- minjavörður flutti erindi um sögu- frægð Þingvalla. Lýsti hann starfs- háttum Alþingis til forna og minjum þinghaldsins á staðnum. Gekk hann slðan með konungi út eftir Almannagjá, yfir Öxarárbrú og niður á Flatirnar og ræddi við hann um Þingvelli. Þaðan héldu konungur, forseta- hjónin og örfáir aðrir niður að „Peningagjá" og skoðuðu hana, en gengu næst I Þingvallabæinn, þar sem Guðmundur Benedikts- son ráðuneytisstjóri og Hörður Bjarnason húsameistari tóku á móti þeim og sýndu þeim húsa- kynnin og kirkjuna. 0 Hádegisverðarboð ríkisstjórnarinnar Klukkan 12 á hádegi hófst hádegisverðarboð rlkisstjó, ar- innar til heiðurs konungi I Hótel Valhöll. Geir Hallgrlmsson forsæt- arsteiktur Þingvallasilungur. lambakótelettur, rjómarönd og kaffi. Forsætisráðherra hélt ræðu til heiðurs konungi og konungur flutti stutt þakkarávarp. Frá Þingvöllum var ekið I átt til Hveragerðis, niður með Þingvalla- vatni og Soginu, framhjá Sogs- virkjunum og niður með Ingólfs- fjalli. Er til Hveragerðis kom var fyrst haldið upp I Reykjadal, en þar átti að opna borholu og sýna gestum þann feikna gufukraft, sem þar hefur verið leystur úr læðingi. 0 Konungur skrúfaði sjálfur frá Ólafur Sigurjónsson var þar kominn til að skrúfa frá bor- holunni, en þetta var tilraunabor- hola til að kanna gufuaflið. Mátti sjá, að hýrnaði yfir konungi, er Karl Gústaf Svfakonungur kveður forsetahjónin, dr. Kristjárn Eldjárn og frú Halldóru, við brottförina frá Reykjavfkur- flugvelli I gær. Ljósm. Mbl. ÓI.K.Mag. Grétar Unnsteinsson skólastjóri Garðyrkjuskólans I Hveragerði sýnir konungi gróðurhús skólans, þar sem m.a. eru ræktaðir bananar, kaffibaunir, epli, appelsfnur, ffkjur o.fl. sem konungur heimsótti f Islands- heimsókninni, og er blaðamenn spurðu hann é þessari stund um heildaráhrifin af íslandsheimsókn- inni, svaraði hann: „Þetta hefur verið stórkost- legt." 0 Haldið heim á leið Frá Hveragerði var haldið beint til höfuðborgarinnar og hafði kon- ungur aðeins stutta viðkomu f Ráðherrabústaðnum.þar sem hann hefur gist undanfarnar nætur, áð- ur en hann hélt út á Reykjavfkur- flugvötl. Á flugvellinum kvöddu konungur og fylgdarmenn hans forsetahjónin, dr. Kristján Eldjárn og frú Halldóru. Geir Hallgrfmsson forsætisráðherra, borgarstjóra og ýmsa embættismenn. IMokkur mannfjöldi hafði safnazt saman á flugvellinum til að kveðja konung og var konungur léttur I spori, er hann hljóp upp I þotuna, sneri sér við og veifaði fólkinu, og hvarf svo inn f flugvélina. Biðu viðstaddir um stund, á meðan flugmennirnir bjuggu þot- una undir flugtak, en sfðan var henni ekið út á brautarenda og hún hóf sig á loft og stefndi til norðurs kl. 1 7:10. íslandsheimsókn Karls 16. Gústafs Svfakonungs var lokið. isráðherra og frú Erna Finnsdóttir tóku á móti konungi við komuna þangað. Á matseðlinum var glóð- Undír leiðsögn Jóhannesar Zoega hitaveitustjóra skoðaði konungur dælustöð Hitaveitunnar að Reykjum I Mosfellssveit. gufan tók að gjósa út úr rörinu, sem tengt var borholunni, og fyllt- ist hann brátt áhuga á að ná valdi yfir þessu mikla afli, ef svo má að orði komast. Tók hann að hjálpa Ólafi að skrúfa frá borholunni og hafði augljóslega gaman af. Gnýr- inn, sem fylgdi gufustróknum.var mun meiri en frá þotunni, sem flutti konung til landsins, og þótti gestunum mikið til koma. Næst var haldið f Garðyrkju- skóla rfkisins, þar sem skóla- stjórinn, Grétar Unnsteinsson, tók á móti gestunum. Leiddi hann konung um nokkur af gróður- húsum skólans og sýndi honum hinar ýmsu tegundir ávaxta og grænmetis, sem þar eru ræktaðar. Fékk konungur m.a að sjá hvernig íslendingar fara að þvf að rækta kaffibaunir, epti, appelsfnur, ffkjur og banana. Grétar tók einn banan- ann og gaf konungi að smakka. „Stórffnn," sagði konungur er hann hafði borðað fyrsta bitann, og tóku fylgdarmenn hans undir það, er þeir höfðu fengið að smakka.'Við lok heimsóknarinnar færði skóJastjórinn konungi að gjöf myndabók um island, þar sem m.a. var litmynd frá skólanum. Loks var komið við hjá hvernum Glæsi og hann „hvattur til dáða" með dálitlum skammti af karbfti. Gaus hann 15 metra háu gosi, tignarfegu eins og hæfði á þessari stund. Þetta var sfðasti staðurinn. Dr. Sigurður Þórarinsson útskýrir jarðfræði Þingvallasvæðisins fyrir Svfakon- ungi á barmi Almannagjár.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.