Morgunblaðið - 14.06.1975, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 14.06.1975, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚNl 1975 5 Ávarp forsætisráðherra í boði ríkisstjórnarinnar á Þingvöllum Heimsókn yðar hefur innsiglað vináttu þjóða okkar KARL Gústaf Svfakonungur ok Geir Hallgrfmsson forsætisráð- herra gangatil boðs rfkisstjórnar- innar í Hótel Valhöll. A eftir þeim koma forsetahjónin, dr. Kristján Eldjárn og frú Halldóra, og frú Erna Finnsdóttir. (Ljósm. Mbl. Ó. K. Mag.) Hér fer á eftir ávarp það, sem Geir Hallgrfmsson forsætisráð- herra flutti I boði ríkisstjórnarinnar til heiðurs Karli 16. Gústaf Svfakonungi í Hótel Valhöll á Þingvöllum í hádeginu f gær: Herra konungur yðar hátign. Herra forseti, virðulega for- setafrú Góðir gestir. Mér er það sérstök ánægja að bjóða yður velkominn til Þing- valla í nafni íslenzku ríkis- stjórnarinnar. Þér hafið nú, herra konung- ur, séð ólíkar hliðar lands vors, kynnzt náttúru þess, sem agað hefur og alið tslendinga í 1100 ár, litið mannvirki, sem flest eru gerð síðustu áratugina og dvalizt hér örlagaríka daga i samskiptum landsins barna, þegar tekizt hefur yerið á um kaup og kjör. Það er merkileg tilviljun, að þessa sömu daga er gengið frá víðtækum kjarasamningum bæði í Svíþjóð og tslandi. Við höfum dáðst að því, hvernig Svíum hefur tekizt að jafna óhjákvæmilegan hagsmuna- árekstur á þann veg, að það hefur orðið þjóðarheildinni til heilla. Við viljum gjarnan einmitt taka Svía okkur til fyrirmyndar í þessum efnum og vonum að í kjölfar kjarasamninga okkar skapist festa í þessum efnum eins og yður í Svíþjóð hefur auðnazt að ná. Samskipti þjóða vorra hafa um langan aldur verið á þann veg, að á þau hefur ekki borið neinn skugga. Erfitt er raunar að meta með algildri mælistiku, hvernig samskiptum ríkja skuli háttað, svo að þau verði talin þannig að ekki verði á betra kosið. Inn I slfkt mál blandast margir óskyldir þættir. I sam- búð þjóða eins og einstaklinga eru það oft viðbrögð á örlaga- tímum, sem sýna best vinarhug- inn. Við Islendingar minnumst í þessu sambandi hvernig sænska þjóðin brást við, þegar fréttirnar bárust um eldgosið í Vestmannaeyjum í ársbyrjun 1973. Það veitir öryggi að vita af góðum vinum og frændum, sem taka þannig þátt í áföllum. Ég leyfi mér að fullyrða, að við Norðurlandabúar höfum rétt fyrir okkur, þegar við höld- um þvf á loft, að samvinna okk- ar innbyrðis og friðsamlegt við- horf gagnvart öðrum sé til fyrirmyndar. Þessu hefur ekki ávallt verið þannig farið. Rifja má upp gamla sögu eftir franska sagnaritarann Dudo, kanúka. Hann dregur upp fremur óskemmtilega mynd af forfeðr- um okkar Norðurlandabúa, vik- ingunum, þegar þeir héldu til landvinninga í Frakklandi f upphafi niundu aldar. Dudo greinir frá orðaskiptum milli Franka og víkinga á þennan veg — Frankarnir hafa orðið fyrst: „Við erum riddarar sendir af Frankakonungi og krefjumst þess, að þið segið okkur, hverjir þið eruð, hvaðan þið komið og hvers þið óskið. — Við ætlum að leggja undir okkur Frankaríki. — Hvað heitir höfðin£i ykk- ar? — Ekkert, við erum allir jafnir. — Viljið þið ganga á vald Karli Frankakonungi, þjóna honum og hljóta fyrir ríkuleg laun? — Við munum aldrei lúta neinum. Þau laun þykja okkur bezt, sem við öflum með vopn- um og hreysti. — Hvað ætlizt þið þá fyrir? — Hypjið ykkur tafarlaust héðan! Við kærum okkur kollótta um orðaskak ykkar, því síður munum við skýra ykkur frá áformum okkar.“ Hér á Þingvöllum var reynt að leysa ekki úr ágreiningi á þann veg, sem að framan er lýst. Þvert á móti leituðust menn við að ná samkomulagi, svo að friður rikti í í litlu sam- félagi. Þetta tókst ekki alltaf og sundurlyndið varð raunar sjálf- stæði okkar á þjóðveldisöld að fjörtjóni. Sagt er, að þrátt fyrir allar tæknilegar og efnalegar framfarir, hafi maðurinn lítið breytzt að því leyti, að hann er oft tregur að láta stóryrðin víkja fyrir sáttfýsinni. En báðum þjóðum okkar er ljóst, að bæði inn á við og út á við er það ekki lengur markmiðið að neita viðræðum við þann, sem -er okkur ósammála. Þvert á móti hvetjum við til sem nán- astra viðræðna milli einstakl- inga og þjóða, svo að misskiln- ingur um fyrirætlanir valdi ekki óeiningu. Ferð yðar til Islands að þessu sinni er nú að ljúka. Við höfum dregið fram á slðasta dag að sýna yður þann stað, sem okkur er helgastur, Þingvöll. Hér eru jafn tignir gestir og þér auð- fúsugestir. Hér kemur þjóðin saman þegar hún minnist tíma- móta í sögu sinni. Hér lögðu forfeður okkar grundvöllinn að þjóðveldi sínu, þar sem vilji fólksins fékk að njóta sín og deilur voru settar niður. A Norðurlöndum hvort sem um er að ræða lýðveldi eða konungsveldi þarf hvorttveggja til, svo að lýðræðislegt stjórn- skipulag okkar fái þrifizt, þjóðarvilja (folkvilja) og kon- ungshugsjón (kungstanke). Þjóðarviljinn verður að vera borinn uppi af konungshug- sjón. Þegar við nú kveðjum yðar hátign, erum við þess fullviss, að heimsókn yðar hefur inn- siglað vináttu þjóða okkar og sannfæringu um að hvort- tveggja þjóðarvilji og konungs- hugsjón verði að njóta sín, svo að löndum okkar megi vel farnast. Ég vona, að ferð yðar hátign- ar til íslands hafi verið yður ánægjuleg. Ég veit að öll ís- lenzka þjóðin hefur fylgzt náið með komu yðar og hún kveður yður með ósk um, að móttökur hennar hafi verið virðingunni fyrir yður og þjóð yðar sam- boðnar. í von um að heimferð yðar gangi að óskum lyfti ég glasi mínu fyrir yður og allri sænsku þjóðinni. Norðursjórinn: SÖLUR UNDIR LÁG- MARKSVERÐI EBE SJÖ síldveiðiskip seldu sfidarafla í Danmörku í gær og hjá fimm skipanna reyndist meðalverð pr. kg. vera undir því lágmarksverði, scm framkvæmdastjórn Éfna- hagsbandalags Evrópu hefur krafizt að selt sé fyrir. Ekki er vitað hvernig þetta mál mun þró- ast, en Mbl. er kunnugt um, að framkvæmdast jórnin hefur a.m.k. tvisvar sinnum kvartað við viðskiptaráðuneytið vegna slldar- salanna. Um síðustu helgi voru islenzku síldveiðiskipin búin að veiða 3.311 lestir af sild í Norður- sjónum á þessu ári, en fram til 1. júlí mega þau veiða samtals 4500 lestir. Frá 1. júli fram til áramóta mega skipin veiða 6000 lestir rúmlega, en þessi kvóti var ákveð- inn á fundi Norðaustur- Atlantshafsnefndarinnar i Lon- don á dögunum, og Islend- ingar eru ekki skyldir til að hlíta honum, ef þeir mótmæla þessari samþykkt. Um þessar mundir eiga skipin aðeins eftir að veiða 800—900 lestir til að fylla kvótann fram til 1. júli og afla- brögð mega verða mjög treg ef það á ekki að takast fyrir þann tíma. Skipin. sem seidu i gær, eru þessi: Óskar Magnússon AK seldi 22.6 lestir fyrir 1.4 millj. kr. og var meðalverðið kr. 64.66, Fifill GK seldi 55.7 lestir fyrir 1.2 millj. kr., meðal- verð kr. 22.32, Jón Finnsson GK seldi 24.3 Framhald á bls. 18 Mjólkin ætti að duga eitthvað: Reykvíkingar drekka 100 þúsund lítra á dag — Mjólkurbirgðirnar ættu að endast eitthvað áfram, ef fólk hamstrar ekki mjólkurvörur, sagði Guðlaugur Björgvinsson hjá Mjólkursamsölunni 1 samtali við Morgunblaðið I gær. 1 fyrra- dag var allri mjólk ekið út I verzlanirnar, sem til var I Mjólkursamsölunni, en venjulega eru nokkrar birgðir geymdar yfir nóttina til að aka I verzlanir næsta morgun og — þvi ættu verzlanir að vera nokkuð vel sett- ar. Að sögn Guðlaugs fara um 100 þús. lítrar mjólkur á Reykjavíkur- svæðið dag hvern að meðaltali, stundum eru það 80 þús. lítrar og stundum 120 þús. lítrar en nokkur munur er á því hve mikið selzt á hverjum degi. Hann sagði að lokum, að hann þyrði ekkert að segja um fram- vindu mála i deilu mjólkurfræð- inga við vinnuveitendur sína. 107 farþegar og 32 bílar fara út með Smyrli í dag FÆREYSKA bíla- og farþega- ferjan Smyrill kemur í fyrsta skipti til Seyðisfjarðar kl. 16 í dag og með skipinu 12 farartæki fyrir utan hjólhýsi -og nokkur fjöldi farþega. Með þvi fara aftur 107 farþegar til Björgvinjar, 32 bilar og þó nokkur fjöldi hjól- hýsa, en ekki er vitað nákvæm- lega hve margir farþegar og bllar verða til Færeyja. Að sögn Sveins Guðmundsson- ar, Fréttaritara Morgunblaðsins á Seyðisfirði, er nú allt að verða tilbúið þar til að taka á móti Smyrli. Búið er að gera skarð i hafnarbakkann, þannig að hægt er að aka farartækjum rakleiðis frá borði eða um borð í skipið. Þá er búið að koma upp snyrti- aðstöðu á hafnarbakkanum en eftir er að ljúka við aðstöðu fyrir tollgæzluna, en unnið er að þvf þessa dagana. Ennfremur hefur verið reynt að snyrta hafnar- bakkann eftir föngum. Pétur Helgason hjá Ferðaskrif- stofunni Úrval sagði þegar Morgunblaðið ræddi við hann i dag, að búið væri að staðfesta að með skipinu kæmu 17 farþegar frá Bergen, 6 bílar og 1 mötorhjól. Frá Þórshöfn koma 30 farþegar, 5 bílar og 1 flutningavagn, sem fer með skipinu út aftur. En vagn þessi er útbúinn frysti og verður hann notaður undir islenzkt lambakjöt, sem fara á til Færeyja og er notaður þar sem engin frystigeymsla er í skipinu. Pétur sagði, að farþegar frá ísiandi yrðu færri að þessu sinni, vegna verkfallsóróans um þessar mundir, en reyndar hefði verið búið að fá undanþágu fyrir af- greiðslu á skipinu á Seyðisfirði. Engu að síður færu 107 farþegar út til Björgvinjar með skipinu, þá færu um borð 32 bílar og þó nokk- ur hjólhýsi. Þá fer eitthvað af farþegum með til Færeyja, en ekki er vitað hve margir þeir eru. Glímumenn styrktir í Kanadaferð ISLENZKIR glimumenn munu í ágústmánuði taka þátt i hátiða- höldum að Gimli í Manitoba i til- efni byggðaafmælis íslendinga þar. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að styrkja þá til fararinnar með 450 þúsund krónum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.