Morgunblaðið - 14.06.1975, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.06.1975, Blaðsíða 12
Cohen rnhen hemur rnhen kenniu^. jnuia’l «alío3 inwáy U3U°:> MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚNl 1975 0 I>að væri synd aA segja að hljðmsveitin JtJDAS sæti auð- um höndum þessa dagana. Á hinum almenna dansleikja- markaði, þar sem hljómsveitin er f hópi hinna eftirsóttustu, styðst hún mikið við tónlist sem kalla mætti „svart rokk“ en sú tónlist er runnin undan rifjum blökkumanna f Banda- rfkjunum og er eins konar framhald af gömlu soul- tónlistinni eða blanda af rokki og soul. Þessi tónlist nýtur mikilla og sfvaxandi vinsælda á diskótekum og dansstöðum erlendis enda dúndurgóð dans- músík. t rauninni eru Júdas boðberar þessarar tónlistar hér á landi þótt fleiri hljóm- sveitir séu nú farnar að til- einka sér hana f sívaxandi mæli. En Júdas hafa f mörgu öðru að snúast en spila á böll- um. Að undanförnu hafa þeir félagar svo að segja haldið til í húsakynnum Hljóðritunar s/f í Hafnarfirði og nú nýverið unnu þeir að gerð sjónvarps- þáttar sem væntanlega verður tekinn til sýninga í júlí. — „Þetta er paradís, — þetta er lífið," sagði Maggi Kjartans þegar Stuttsíðan hafði sam- band við hann í stúdíóinu. — „Sfðan hljómsveitin varð at- vinnugrúppa núna 1. júni höf- um við verið að frá þvi kl. 9 á morgnana og til 10 á kvöldin, og lengur um helgar. Það er gaman að detta út af á kvöldin og vakna aftur á morgnana án þess að vera vakinn, bara af tilhlökkun til að halda vinn- unni áfram. Núna loksins er maður kominn i draumaaðstöð- una, — þ.e. áð geta unnið við músíkina frá morgni til kvölds." • SJÓNVARPSÞATTURINN er byggður upp á einum degi í lífi hljómsveitarfélaga. Hann hefst um morguninn þegar þeir vakna og fara í bað og síðan er þeim fylgt eftir í stú- díóið, veizlu í Grindavík og að lokum á dansleik f Festi. Þetta er 100. sjónvarpsþátturinn sem Egill Eðvarðsson sér um og verður hann væntanlega sýndur rétt fyrir verzlunar- mannahelgina. • Þá hefur BJARKI TRYGGVASON iokið við gerð tveggja laga plötu með aðstoð Júdasar. Lögin á plötunni eru „Wild Night“ sem Van Morris- son gerði frægt á sfnum tíma og „Tequila Sunrise" sem á íslenzku ber nafnið „Hver ert þú“. — „Hugmyndin að gerð þessarar plötu kom norður á Akureyri einn daginn þegar við vorum að leika okkur í stúdíói Pálma Stefánssonar," sagði Maggi. „Þetta er þrælgóð plata og hún er væntanleg á markaðinn innan mánaðar.“ 0 Um þessar mundir eru Júdas að vinna að tveggja laga plötu með SIGRCNU HARÐARDÓTTUR en bæði lög og textar eru eftir hana sjálfa. Um þá plötu sagði Maggi: „Sigrún er með þetta allt á hreinu og lögin hennar eru í einu orði sagt frábær.“ • Þá skal frægan telja MEGAS, en hann vinnur nú að gerð breiðplötu þar sem Júdas sér um undirleikinn. Megas er við sama heygarðshornið hvað texta snertir og kvaðst Maggi þess fullviss að platan mundi hrista upp í mörgum og jafnvel hneyksla menn. Fyrir þá sem þekkja til Megasar kemur það ekki á óvart. Tónlistarlega mun þessi plata vera töluvert öðruvisi en fyrsta plata Megas- ar, þ.e. að rokkið hefur nú náð tökum á Megasi og minnir það nokkuð á feril Dylans á sínum tíma. 0 Að lokum skal þess getið að Júdas sjálfir eru nú að fara út í gerð breiðplötu sem þeir munu taka upp hjá Hljóðritun s/f. Bjóst Maggi við að eyða u.þ.b. tveimur mánuðum í stúdíóinu og má því segja að þetta sumar verði sannkallað ,,stúdíósumar“ hjá þeim félög- um og þeir komi vart út úr því nema þá rétt til að spila á böllum... sv.g. MIKLAR tröllasögur hafa gengið um hljóm- sveitina CHANGE að undanförnu og ber ekki öllum saman í þeim efn- um. M.a. gekk það fjöll- unum hærra að mikil upplausn ríkti í herbúð- um þeirra og að hljóm- sveitin væri í þann veg- inn að leysast upp enda hefðu mál ekki þróazt eins og búizt hafði verið við. Það er að vísu rétt, að einhver bið hefur orðið á heimsfrægðinni, sem Barnum (upptöku- meistarinn sem hingað kom um jólaleytið) lofaði okkur, en Barnum þessi mun nú vera úr sögunni, a.m.k. hvað í/arðar framtíðarvonir Change, enda sam- skiptum hans og hljóm- sveitarinnar að fullu lokið. En ekki er öll nótt úti enn. Nýjustu heimildir herma að allt sé í lukk- unnar velstandi, — breiðpiata langt á veg komin og að þeir séu nú komnir á samning hjá út- gáfufyrirtækinu Chappel Klúbbur gngnara stóríram- KvætuAtmuiu Ekkert verður úr þvl, að Leonard Cohen og fleiri heimsþekktir lista- menn. auk nokkurra danskra hljóm- sveita, komi hingað til lands I bráð á vegum Klúbbs 32. Þá hefur klúbbur- inn og hætt við mikið auglýsta ferð slna á Wembley-hljómleika Elton Johns og fleiri I Lundúnum siðar I þessum mánuði. Ástæðan fyrir þvl, að hætt var við að fá Leonard Cohen hingað til lands, er sú, að sögn Sigurjóns Sighvatssonar, eins stjórnarmanna Klúbbs 32, að kostnaður hefði verið óviðráðanlegur. — Það var I raun- inni ekkert vandamál að fá manninn hingað, sagði Sigurjón I spjalli við Stuttslðuna, — en kostnaður hefði orðið svo mikill, að ég sá ekki fræði- legan möguleika á að það væri hægt. Hætt var við förina á Elton John- hljómleikana vegna slæmrar þátt- töku — en áður hafði kvisazt, að ekki nema um það bil helmingur þeirra, er klúbburinn hafði auglýst að kæmu fram á hljómleikunum, myndu troða upp — þar á meðal stórnúmer eins og Stevie Wonder, Doobie Brothers og fleiri. Þykir ekki laust við, að einstakir stjórnarmenn Klúbbs 32 hafi verið full málglaðir I upphafi. Sigurjón sagðist gjarnan vilja það láta koma fram, að það væri hægara sagt en gert að fá hingað erlenda skemmtikrafta til skemmtanahalds. Upphaflega hefði t.d. Leonard Cohen átt að kosta 1200 sterlingspund, eða rúmlega 420.000 Isl. krónur. Auk þess átti að greiða ferða- og uppihaldskostnað fyrir listamanninn og fylgdarlið hans. En svo gerist það, að Sögn Sigur- jóns, að haft er samband við um-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.