Morgunblaðið - 14.06.1975, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.06.1975, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JUNl 1975 Piltur og stúlka Eftir Jón Thoroddsen Ójá, Guðrún mín, sagði Sigríður, maður veit oft, hverju maður sleppir, en ekki, hvað maður hreppir — en þei, þei, þarna úti ég sé barið; hann lætur ekki lengi bíða sín, sá sem að þér sækir. Það var kaupmaður Möller, sem þar var kominn, og heilsar hann þeim blíð- lega, en Guðrún verður fyrri til máls og segir: Nú, hvernig stendur á, að þér sneiðið yður hjá að taka þátt í gleðinni og glaumnum í kvöld? Og ég veit það ekki, sagði Möller, mér fannst, að ég hefði enga löngun til þess í kvöld; ég hélt, að mér mundi leiðast þar, og því var ég heima; en nú hefur það komið fram á mér, sem ég ætlaði að varast, mér tók að leiðast, og því kom ég hingað. Og hér voru sumir, sagði Guðrún, og leit brosandi til Sigríðar, að óska þess, að þér væruð komnir, svo að allt saman fer nú eftir óskum. Sigríður þagði og roðnaði við, því hún vissi, hvað Guðrún átti við; en kaupmað- ur sneri málinu til Sigríðar og segir: En einkum var það þó yður, bústýru- efnið mitt, sem ég þurfti að tala við i —COSPER--------------------------- Það cr ckki til neins nú, að þú scgir að cg hafi rétt fyrir mcr, þvl að ég cr orðin sammála þér nú. _____________________________________ kvöld; ég þarf að ráðgast um hitt og þetta við yður, áður en við flytjum saman; það er nú til að mynda eitt, húsakynnunum þarf að umbreyta, mig vantar bæði búrið og eldhúsið fyrir yður; smiðirnir koma til mín á morgun, og því þætti mér bezt að heyra, hvað þér leggið til um það, hvernig við eigum að haga því öllu saman; ætli þér vilduð ekki gjöra svo vel og bregða yður yfi,r um snöggvast núna? Ég hef lítið vit á því, kaupmaður góður, sagði Sigríður, og í kvöld er það orðið of seint. Það er nú satt, jómfrú góð, en skoðið þér til, ég vildi heyra, hvað yður litist, áður en farið er að hreyfa við nokkru, og nú flanaði ég til að segja þeim að koma undir eins á morgun, og því væri það, ef þér hefðuð tíma og tækifæri í kvöld. En þér viljið nú líklegast ekki hafa mig með, herra Möller, að leggja á ráðin með ykkur, sagði Guðrún og kinkaði kolli framan i kaupmann. Stúfur litli því í vasa sinn, því þegar enginn var í því, þá var það eins lítið og það var þegar kerlingin gaf Stúf það. Svo fína fólkið úr konungshöllinni sá ekki annað en lítinn tötradreng. Konungur spurði hvaðan hann væri, en það sagðist Stúfur ekki vita, og ekki kvaðst hann heldur vita, hvernig hann væri þangað kominn, en hann bað svo vel um að fá að vera i konungsgarði, og fá eitthvað að snúast þar. Var honum þá sagt, að hann gæti borið vatn og eldivið fyrir eldabuskuna. Þegar Stúfur kom heim í höllina, sá hann að hún var öll tjölduð svörtum tjöldum, bæði hátt og lágt, bæði utan og innan, bæði veggir og þak, hann spurði eldabuskuna, hversvegna þetta væri gert. „Jú, það skal ég segja þér“, sagði hún. „Það er fyrir löngu síðan búið að lofa að gefa þrem tröllum konungs- dótturina, — þau neyddu konunginn til þess, — og næsta föstudagskvöld kemur eitt þeirra og sækir hana. Að vísu hefir hann Rauður riddari, einn af hirðmönn- um konungsins, sagst geta frelsað hana, en menn eru nú ekki alveg vissir um það, og þessvegna er nú þessi sorg og sút“. Þegar föstudagskvöldið kom, fylgdi Rauður riddari prinsessunni niður í hvamm einn fyrir neðan höllina, en þangað átti hún að fara, til þess að hitta Aðeins aksturinn kemur í minn hlut — allt hitt í þinn. Nú hefur vatnsæðin Rétt dagsins fyrir tvo enn bilað hjá Gísla á og — taflmenn — takk. horninu! Maigret og guli hundurinn Eftir Georges Simenon Þýðandi Jóhanna Kristjónsdóttir 11 llvernig leizt yður á öll fútaförin f húsi læknisins. — Ég hef sent sýni af öllu til rannsóknar ... Ég tók lfka af- steypu af fótaförum mannsins og hundsins. Þaó var töluvert mikið vcrk skal cg segja yður. Hafið þér einhver frekari áform? 1 stað þess að svara tók Maigret minnisbók upp úr vasa sfnum og rétti hana að unga manninum, sem las hikandi röddu: Ernst Michoux (gengur undir nafninu Michoux læknir). Sonur verk- smiðjueiganda f Seine-et Oise sem var kosinn á þing eitt kjör- tfmahil. Féll næst. Varð síðar gjaldþrota. Faðirinn látinn. Móð- irin afskiptasöm og sérkennileg. Asamt syni sfnum hefur hún reynt að græða fé með þvf að selja lóðir í Juan Les Pins. Mistókst gersamlega. Reyndi að koma upp slíkri sölu f Concarneau og stofn- aði hlutafélag og notaði sér nafn látins eiginmanns sfns. Hefur ekki lagt fram fé sjálf. Reynir að fá bæjarfélagið til að greiða rekstrarkostnaðinn. Ernst Míchoux hefur verið gift- ur, er fráskilinn. Kona hans er gift aftur og býr f Lille. Urkynjunarleg manngerð. A í peningavandræðum. Leroy leit á yfirmann sinn, eins og hann vildi segja: — Og hvað með það? Maigret benti á næstu lfnur: — Yves Le Pommeret. Af ættinni Le Pommeret. Bróðir hans, Arthur er framkvæmda- stjóri stærstu niðursuðuverk- smiðjunnar f Concarneau. Yves Le Pommeret er glæsimenni f jöl- skyidunnar. Hefur aldrei unnið ærlegt handtak. Hefur fyrir löngu eytt sfnum hluta fjöl- skylduauðsins I óráðsfu f Parfs. Flutti til Concarneau, þegar hann var að kalla félaus. Kemur engu að síður virðulega fyrir og er sundurgerðarmaður í klæða- burði. A f stöðugum ástarævintýr- um með ungum stúlkum sem vinna f verksmiðju bróður hans. Stöku hneykslismál hefur verið þaggað niður. Stundar veiðar með fyrirmönnum og vegna góðra sambanda hefur hann verið skipaður danskur vararæðismað- ur. Verður iðulega að slá bróður sinn um peninga tíl að greiða skuldir sfnar. Jean Servieres (rétt eftirnafn er Goyard). Fæddur f Le Morbihan. Starfaði lengi að blaðamennsku f Parfs og fékkst þar við ýmis önnur störf, vann meðal annars við leikhús... Erfði dágóða peningaupphæð og settist að í Concarneau. Giftur. Lifir smáborgaralegu Iffi að flestu leyti, en fer stöku sinnum til Brest og Nantes til að ná sér f kvenfólk. Lifir á eftirlaunum og ekki af þvf sem hann fær fyrir blaðaskrif, sem hann er engu að sfður mjög hreykinn af. Háskóla- maður. — Ég er ekki alveg með á nótunum... stamaði Leroy. — Nú, ekki það... Látið mig sjá það sem þér hafið skrifað hjá yður? — Já, en... hver hefur sagt að ég... — Svona látið mig Ifta á það. Vasabók Maigrets var ódýr og með rúðustrikuðum pappfr. Minnishók Leroys var úr skinni. Með föðurlegan svip á andlitinu las Maigret: 1. Málið Mostaguen: kúlan sem hitti vfnkaupmanninn hefur senniiega verið ætluð öðrum. Þar sem ekki var vitað fyrir fram að hann myndi nema staðar við þess- ar dyr hefur morðinginn senni- lega sett fórnardýri sfnu stefnu- mót þar. Viðkomandi hefur annaðhvort ekki komið á vettvang eðaveriðof seinn. Ef tilgangurinn er ekki sá eini að trylla bæjarbúa? Morðinginn hefur staðgóða þekkingu á Con- carneau (Tekið skal fram að sfgarettuaska sem fannst á gólf- inu hefur ekki verið efna- greind). 2. Málið um eitraða vfnið: A veturna er veitingastofan f Hotel de l’Amirel ekki mikið sótt yfir daginn. Einhver sem cr kunnug- ur hefur þvf getað gengið óáreitt- ur inn og blandað eitrinu f flöskurnar tvær. Þvf liggur beint við að morðinginn hafi aðallega verið á höttunum eftir þeim sem vitað er að drekka Calvados og Pernod (Það skal þó tekið fram að læknirinn uppgötvaði hættuna í tæka tfð). 3. Málið um gula hundinn: Ljóst er að hann þekkir sig í kaffistofunni. Hundurinn á hús- bónda, en hvern? Lftur út fyrir að vera að minnsta kosti fimm ára gamall. 4. Málið um Servieres: við rann- sókn á skrift skal reyna að komast að þvi hver hefur sent greinina til Phare de Brest. Maigret brosti, rétti Leroy bók- ina aftur og sagði: — Agætt, ungi vinur. Og er hann hafði kastað gremjulegu augnaráði á forvitna vegfarendur, sem sumir hverjir lágu með andlitin upp að glugg- um veitingastofunnar sagði hann: — Og nú skulum við fá okkur að borða. Ef frá var tatinn sölumaðarinn sem hafði komið um morguninn voru þeir einir f veitingasalnum og Emma sagði þeim að Michoux hefði versnað og hefði beðið um að fá matinn sendan upp til sin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.