Morgunblaðið - 14.06.1975, Page 31

Morgunblaðið - 14.06.1975, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JUNl 1975 31 Greiðslur til dóm ara meðal mála KKÍ-þings ÁRSÞING Körfuknattleikssam- bands íslands verður haldið I dag og hefst kl. 10 f.h. að Hðtel Esju. Ekki liggja nein stórmál fyrir þinginu svo vitað sé um, en þó má nefna að lagðar verða fram lagabreytingar vegna Mótanefndar — tillaga um greiðslur til dómara sem dæma f deildarkeppni o.fl. Eitt mál, sem vitað er að koma mun til umræðu, er hvort æskilegt væri að fá erlenda leikmenn til keppni með 1. deildarliðum. Að vísu er ekki auðvelt við þetta að eiga eins og afstaða ÍSÍ til málsins er í dag, en vitað er að mikill áhugi er meðal margra félaga á þvi að fá þetta mál í gegn. Einkum og sér f lagi mun hér átt við banda- ríska leikmenn, en þeir leika nú með liðum í nær öllum lönd- um Evrópu og hafa drifið körfuknattleikinn upp þar sem þeir hafa komið. Um önnur mál sem koma til umræðu og afgreiðslu þingsins er ekki vitað. Tillögur sem þar eru bornar upp eru sjaldnast birtar fyrir þingið, þótt slíkt væri æskilegt. Fjármálin mun að sjálfsögðu bera á góma, enda eru þau áhyggjuefni KKÍ eins og ann- arra sérsambanda. Velta Körfu- knattleikssambandsins hefur aukizt gífurlega á stuttum tíma, og segja má að allar klær hafi verið hafðar úti til að ná endum saman fjárhagslega. Ekki er búizt við miklum breytingum á stjórninni; Einar Bollason formaður gefur kost á sér til endurkjörs, og ekki er vitað um mótframboð. Hljómplötufyrir- tækið vann smjörlíkisgerðina SG-hljómplötur báru sigur úr být- um I Firmakeppni KKI sem er nýlokið, en fyrir það fyrirtæki keppti hinn kunni körfuknatt- leiksmaður úr Val Þórir Magnús- son. Keppnin fór þannig fram, að allir leikmenn sem skipuðu Iands- liðshópinn urðu sér úti um fyrir- tæki til að keppa fyrir, og léku einn gegn einum. Sá sem tapaði tvívegis var úr keppni. Urslitaleikurinn f keppninni var leikinn fyrir stuttu, og léku til úrslita Jón Sigurðsson (Smjörlíki h.f.) og Þórir Magnússon (SG- hljómplötur) en báðir höfðu tapað einum leik fyrir lokaviður- eignina. Urslitaleikurinn var mjög spennandi og lauk með sigri Þóris sem skoraði 15 stig gegn 13 stigum Jóns. gk. SVAVAR Gests tekur við sigur- launum ( firmakeppni KKl úr hendi Einars Boilasonar. Gilroy fékk sekt VALSMENN hafa komið sér upp sinni eigin aganefnd f knatt- spyrnu og verða þeir sem gerast brotlegir við þær reglur sem settar hafa verið að gjöra svo vel að greiða fjársektir. I lok keppnistfmabilsins verða reikn- ingarnir svo gerðir upp. Sektir eru fyrir að koma of seint á æfingar, að mæta til leiks f óburstuðum skóm, og fleira mætti nefna í svipuðum dúr. Þá verða þeir sem fá rauð spjöld eða gul að greiða sektir, en hugmyndin að þessari aganefnd er komin frá þjálfara Valsmanna, Joe Gilroy. A þriðjudaginn var Gilroy þó einn af þeim fyrstu til að fá sekt, er hann stóð á linunni í 1. flokksleik Vfkings og Vals og leiðbeindi sín- um mönnum. Hafði dómarinn eitthvað við það að athuga, og þegar Gilroy neitaði að fara af lfnunni fékk hann gula spjaldið. Dómarinn lét þar við sitja og áfram stóð þjálfarinn á línunni; en hann verður væntanlega að greiða sektina. Þjóðhátíðar- sundmót SUNDKEPPNI fer fram f Laugar- dalslauginni f tilefni 17. júnf há- tfðahaldanna og hefst keppnin klukkan 15.30 á þjóðhátfðardag- inn. Keppt verður í eftirtöldum greinum: 100 m skriðsundi karla 200 m fjórsundi karla 100 m bringusundi karla 100 m skriðsundi kvenna 4x100 m fjórsundi karla. Sundknattleikur verður milli tveggja úrvalsliða úr öllum Reykjavikurfélögunum. Meistaramótið í sundi hefst í dag SUNDMEISTARAMÖT Reykja- vfkur hefst f Laugardalslauginni í dag klukkan 16 og verður fram haldið á morgun klukkan 15. Góð þátttaka er í mótinu, og hið unga og efnilega sundfólk, sem er f miklum meirihluta á mótinu, er líklegt til góðra afreka. Fyrir bezta afrekið á mótinu er veittur farandbikar sem gefinn var árið 1971 til minningar um forsætis- ráðherrahjónin Bjarna Bene- diktsson og Sigríði Björnsdóttur. SLEGIÐ af teig á sjöttu braut á Grafarholtsvelli. Mikið hefur áunnizt, en verkefnin framundan virðast alltaf óendanleg. Við þröngan kost Hjá fámennri þjóð eins og okk- ur Islendingum verður I mörgum tilvikum útilokað að koma upp viðunandi aðstöðu fyrir einstakar fþróttagreinar, nema til komi að- stoð úr sameiginlegum sjóði okk- ar allra, eða byggðanna. Gagnvart slíkri fyrirgreiðslu ættu allar íþróttagreinar að vera jafnar, en það er eins og gengur, að „sumir eru jafnari en aðrir“. Nýlega var greint frá því f frétt- um, að raunverulegur kostnaður á hvern sundgest f sundlaugum Reykjavíkurborgar væri um 100 krónur — þrátt fyrir mjög góða aðsókn. Hinsvegar hefur aðgangs- eyrir að sundstöðum nýlega verið hækkaður úr 50 krónum í 60. Borgarsjóður greiðir það sem á vantar, 40 krónur á hvert manns- barn f hvert skipti. Annað dæmi: Það er vitaskuld bölvað að Frans- menn hlæi að grasinu á Laugar- dalsvellinum, enda er nú farið að tala um að klæða hann gervigrasi. Pjatla, sem er 4x4 fet, eða liðlega fermetri, kostar 30 þúsund krón- ur fyrir utan tolia. Kannski ein- hver vilji skemmta sér við að reikna út, hvað slíkt mundi kosta á allan völlinn? Samt hefur ekki verið talað um svo ég muni, að framkvæmdin sé fjárhagslega of- viða. Gott, en hver skyldi borga? Enda þótt Golfklúbbur Reykja- víkur sé liðlega fertugur að aldri, og Golfsamband Islands elzta sér- samband innan fþróttahreyf- ingarinnar, hefur hann búið við þröngan kost að hálfu borgarinn- ar og mætt ótrúlegu skilnings- leysi. Ég kann ekkert svívirði- legra dæmi um opinber afskipti af iþróttamálum en það, þegar gamli golfvöllurinn var tekinn og GR úthlutað í staðinn grýttu óræktarsvæði. Ég get ímyndað mér, að heyrast mundi hljóð úr horni, ef þannig ætti að fara með eitthvert knattspyrnufélagið, enda er með ólíkindum, hvernig golfklúbburinn lét troða af sér skóinn í þessu máli. Allt um það er mikið afrek, hvað búið er að gera í Grafarholti. Tæpast hefði nokkur maður trúað því, þegar ýturnar voru fyrst sett- ar á grjótið, að völlurinn yrði eftir árabil kominn i það horf, sem raun bervitni um nú. Það er athyglisvert, að golf- klúbbarnir mæta miklu meiri skilningi og stuðningi í smærri bæjarfélögunum. Akureyrarbær hefur gert vel við sinn golfklúbb og lét hann hafa gott, ræktað land að Jaðri fyrir 18 holu völl, þegar GA varð að vfkja með sinn gamla 9 holu völl. Ekki skiptir þó minna máli, að Akureyrarbær lætur golfklúbbinn hafa ríflegan fjár- styrk til uppbyggingar og ræktun- ar á ári hverju. Á siðastliðnu ári nám sá styrkur 750 þúsund krón- um. Akranesbær hefur átt góð sam- skipti við golfklúbbinn Leyni, sem þar starfar. Leynir hefur fengið frambúðarland og völlur- inn þar er kominn í gott horf, vegna þess að bæjarfélagið kemur fram við Leyni á sama hátt og önnur iþróttafélög. Framlag bæjarins nam á síðasta ári 170 þúsund krónum, en þar að auki greiddi bærinn áburðarkostnað, og áburður á 9 holu völl kostar vart minna en 150 þúsund núna. Ölafsvík er aðeins 1100 manna bæjarfélag og mætti þvf ætla, að félagsmenn f golfklúbbnum þar yrðu að kosta framkvæmdir sjálf- ir. En svo rausnarlega ferst Ólafs- víkurbæ við hinn nýstofnaða golf- klúbb, að framlag bæjarins nam á síðasta ári 120 þúsundum. I réttu hlutfalli við það ætti framlag Hafnarfjarðarbæjar til Keilis að nema 1200 þúsundum. Sjálfsagt yrðu Keilismenn harla ánægðir, efþeimáskotnaðist helm- ingur þeirar upphæðar. Hin sorg- lega staðreynd er nefnilega sú, að Keilir hefur undanfarin ár fengið 25 þúsund frá Iþróttabandalagi Hafnarfjarðar, sem mér skilst að hafi verið ágóði af einhverri sölu 17. júní — en ekki krónu úr bæjarsjóði. Félagssvæðið næryfir Garðahrepp og Kópavog einnig. Framlag Garðahrepps var 40 þús- und krónur árið 1967, en í fyrra, sjö árum sfðar, var sú upphæð komin i 25 þúsund. Og þótt Kópa- vogur sé. tíu sinnum stærri en Ólafsvik, var framlag Kópavogs- bæjar til golfsins kr. 25 þúsund á síðasta ári. Eins og sakir standa eru árs- gjöld fullorðin.na karlmanna kr. 15 þúsund f golfklúbbnum á Reykjavíkursvæðinu. Þar er þó svo naumt reiknað, að sú upphæð hrekkur aðeins fyrir fasta- kostnaði við rekstur, svo sem vinnulaunum, áburði og viðhaldi véla. Allir golfklúbbar landsins eru með velli f uppbyggingu; þar er enn víðast leikið af bráðabirgða- teigum, bunkera vantar og flat- irnar hafa ekki verið byggðar upp eins og þarf. Naumast er til króna í þessa uppbyggingu; menn bíða og vona að skilningur bæjarfélag- anna vakni.. Allt hefur setið við það sama f langan tíma. Rekstur- inn einn er svo umfangsmikill og dýr, að árgjöld þyrftu helzt að hækka verulega frá því sem nú er. Við fjarlægjumst þá um leið það markmið, að golf geti orðið almenningsfþrótt og það er mið- ur. Þannig hlýtur þróunin að verða á þeim stöðum, þar sem stuðningur og skilningur bæjar- félaga er lítill eða enginn. g- ÍBR heiðrar ald- inn íþróttamann IÞRÓTTABANDALAG Reykja- víkur heiðraði nýiega hinn aldna heiðursmann Þórarin Magnússon. Var hann sæmdur æðsta heiðursmerki IBR, lBR- stjörnunni. Fór afhendingin. fram á nýafstöðúum formanna- fundi IBR. Þórarinn sat f stjórn Ármanns um árabil og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir íþróttahreyfinguna. Hefur Þórarinn hlotið öll æðstu heiðursmerki félags sfns auk heiðursmerkis sérráða og landssambanda. I fjölda ára þótti ótækt að halda iþróttamót, nema fá Þór- arin sem yfirtímavörð, enda ná- kvæmni hans og samvizkusemi orðlögð meðal fþróttamanna. I sambandi við sundið hefur Þór- arinn verið stoð og stytta sund- manna, því þótt hann væri störfum hlaðinn, átti hann allt- af tíma aflögu fyrir íþróttirnar. Þórarinn liefur alltaf verið algjör bindindismaður og mjög áhugasamur um að hvetja menn til bindindis og almennra íþrótta og þá aðallega sundsins. En þá íþrótt stundar hann enn af fullum krafti. A meðfylgjandi mynd sést Ulfar Þórðarson formaður IBR afhenda 'Þórarni IBR- stjörnuna, og með þeim á er Sigurgeir Guð- framkvæmdastjóri myndinni mannsson IBR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.