Morgunblaðið - 14.06.1975, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.06.1975, Blaðsíða 32
TROPICANA sólargeislinn frá Florida iLYSINGASIMINN ER: 22480 JW*r0»nbI«bií> LAUGARDAGUR 14. JtJNl 1975 frá síðasta ári VEGNA hækkana á oliu á þessu ári hefur olíustyrkur ríkisins yerið hækkaður nokkuð frá síðasta ári. Þá var hann kr. 7800 á hvern einstakling í íbúð, en er nú kr. 8200. Þessar upp- lýsingar fékk Mbl. í gær hjá Yngva Ólafssyni, deildarstjóra í viðskipta- ráðuneytinu, en það ráðu- neyti sér um greiðslu styrksins. Að sögn Yngva er ekki vitað hver heildargreiðslan verður á þessu ári, en styrkurinn er greiddur ársfjórðungslega, fyrstu þrjá ársfjórðungana kr. 2000, en þann sfðasta kr. 2.200. Þá spurð- um við Yngva, hve mikið þær tafir, sem orðið hefðu á hitaveitu- framkvæmdum í Hafnarfirði og vfðar, hefðu kostað ríkið. Hann sagði, að þvf væri ekki hægt að svara að svo komnu. Ljósm. Mbl. Br.H. NYIR KJARASAMNINGAR — Klukkan 06.45 í gærmorgun settust fulltrúar Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins að langborði í húsakynnum rfkissáttasemjara og undirrituðu nýjan samning um kaup og kjör eftir langt og strangt samningaþóf. Vinnufriður var tryggður f landinu til ársloka. Samninaamir voru sambukkt- ir i öllum félöaunum í gær Verkföll hafin á nokkrum stöðum norðanlands og í Rangárvallasýslu □-----------------------------□ , pSjá frásdgn af samningafundinum bls. 3. ^ , 0 NYJU kjarasamningarnir miili Alþýðusambands Islands og Vinnuveitendasambands Islands og Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna voru hvarvetna samþykktir af yfirgnæfandi meirihluta félagsmanna þessara samtaka. Fulltrúar ASl og VSt undirrituðu samninginn kl. 06.45 f gærmorgun og strax á eftir undirrituðu fulltrúar Verzlunar- mannafélags Reykjavfkur og Kjararáðs verzlunarinnar sam- komulag hliðstæðs eðlis. Hafði lokagerð samninganna reynzt taf- samari en flestir hugðu, þvf að flestir áttu von á þvf á fimmtudag að hægt yrði að undirrita samn- ingana þá um miðnættið. • Þrátt fyrir að með þessum samningum hafi verkföllum verið afstýrt um mestan hluta landsins, hefur þó komið til vinnustöðv- unar f tveimur landshiutum — á Norðurlandi og f Rangárvalla- sýslu, þar eð nokkur verkalýðsfé- lög á þessum slóðum áttu ekki aðild að samkomulagi ASl og VSl. Vinnustöðvun verkalýðsfé- laganna f Rangárvallasýslu hefur leitt til þess að öll vinna við Sig- ölduvirkjun hefur lagzt niður. 1 báðum tilfellum hafa launþegafé- Lítið miðar í deilum flugmanna og sjómanna á stóru skuttogurunum Sláttur hafínn á Þorvaldseyri Borgareyri 13. júní VORIÐ hefur verið l^alt hér, yfir- Ieitt sólarlítið og þurrkasamt og oft frost um nætur. Sem sagt tlðarfar óhagstætt. Fénaðurhefur orðið að vera of lengi á túnum vegna þess að úthagi hefur ekki sprottið. Verkfall hjá Áburðar- verksmiðju ríkisins hefur valdið miklu tjóni. Dæmi eru til að bílstjórar hafi orðið að biða í 40 kist. eftir afgreiðslu. Margir eru nýbúnir að fá áburðinn og því ekki að fullu lokíð að dreifa honum, svo sláttur er ekki al- mennt á næsta leiti. Þó eru til undantekningar. Eggert Olafsson á Þorvaldseyri hóf slátt i dag og flytur hann grasið til vinnslu i graskökuverk- smiðju sem nokkrir bæhdur þar í sveit stofnuðu og starfræktu i fyrrasumar. Fréttir eru engar af storkinuir, þessa dagana, þó er vonandi að hann lifi góðu lífi. Fréttaritari Sáitasemjarar ríkisins þeir Torfi Hjartarson og Logi Einarsson, voru með tvo sáttafundi í gærkvöldi. Torfi sat fund með flug- mönnum og vinnuveit- endum þeirra og Logi með sjómönnum á stóru skut- togurunum og útgerðar- mönnum. Fundur flugmanna og vinnu- veitenda hófst kl. 14 i gær og stóð fram til kl. 20 er matarhlé var gert fram til kl. 21, en þá hófst fundur á ný. Að sögn Torfa bjóst hann við, að fundi yrði haldið áfram eitthvað fram eftir nótt- unni, en sagði að litið hefði miðað í samkomulagsátt. Fundur deiluaðila f togara- deilunni hófst kl. 17 og milli kl. 20 og 21 var gert matarhlé. Þegar Morgunblaðið hafði samband við Loga Einarsson um kl. 23 hafði ekkert sérstakt gerzt á fundinum, en hugmyndin var að halda fund- inum áfram. lögin sett fram til viðbótar grund- vallarsamningi ASl og VSl kröfur um nokkur staðbundin atriði, að þvf er forráðamenn þeirra segja, og þeir leggja mikla áherzlu á. Fulltrúar vinnuveit- enda munu hins vegar vera ákaf- lega tregir til nokkurra frávika frá grundvallarsamningum ASl og VSI. EFNI SAMNINGANNA Hinir nýju kjarasamningar VSl og ASÍ gera ráð fyrir um 15,9% Framhald á bls. 18 Orðukaupun- um var rift að ósk Svía MIKIL reiði greip um sig meðal fylgdarmanna Svía- konungs f gærmorgun er Morgunblaðið birti frétt um söluna á þjónustuorðu konungs. Var háttsettur maður úr lögregluliði borgarinnar sendur á fund Guðmundar Axefssonar kaupmanns f Klausturhólum og óskaði hann eftir því, að Guðmundur freist- aði þess að fá orðukaupunum rift. Guðmundur tók þeirri mála- leitan vel og hafði samband við seljanda og kaupanda orðunnar. Voru þeir sam- þykkir því að kaupin gengju til baka og er orðan komin I hendur þess manns sem upphaflega fékk hana frá kon- ungi. Endurgreiddi hann Guð- mundi fé það sem hann fékk fyrir orðuna og siðan endur- greiddi Guðmundur kaupanda orðunnar umsamið kaupverð, 20 þúsund krónur. Aðspurður kvaðst Guð- mundur ekki hafa neinar orður né fálkakrossa á boðstól- um núna, en hins vegar væri hann nýbúinn að fá til sölu æðstu heiðursmerki Iþrótta- sambands Islands og íþrótta- bandalags Reykjavíkur. Risagrásleppa á Akranesi: 58 sm að lengd og 10 kíló að þyngd STÆRSTA grásleppa, sem vitað er til að hafi veiðzt hér við land, barst á land á Akranesi á fimmtu- Undirbjóða Fœreyingar ís- lenzkan saltfisk í Portúgal? MORGUNBLAÐIÐ hefur fregn- að, að fslenzkur saltfiskur væri undirboðinn á portúgölskum markaði með fiski sem kallaður væri Islandssaltfískur. Eftir þeim upplýsingum, sem blaðið hefur aflað sér, þá er vart um annan fisk að ræða en frá Fær- eyjum, þar sem færeyskir togarar hafa veitt þorsk við tsland og saltað um borð, en til þess hafa þeir leyfi samkvæmt landhelgis- samningi landanna, og skömmu fyrir mánaðamót aprfl—maf fóru t.d. tveir færeyskir togarar með hálffermi af saltfiski af Islandsmiðum til Fær- eyja, þar sem koma þurfti fisk- inum f land fyrir 1. maf, en hann átti að afgreiða til útflutnings um mánaðamótin. Vegna þessa máls hafði Morgunblaðið samband við Tómas Þorvaldsson, stjórnarfor- mann Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda og spurði hann hvort hann hefði heyrt þessa getið. Tómas sagði, að hann gæti ekki neitað þvf og þegar hann og Helgi Þórarinsson hefðu verið að semja um saltfisksölur til Portú- gals um mánaðamótin apríl—maí s.l. hefðu portúgölsku kaup- endurnir sagt þeim, að þeim væri boðinn saitfiskur af Islandsmið- um á lægra verði en íslendingar vildu selja á. Og eftir því sem bezt væri vitað væru Færeyingar þeir einu, sem veiddu í salt hér við land. daginn. Grásleppan reyndist vera 58 sm á lengd og hefur að Ifkind um verið 8—10 kfló að þyngd. — Ég hefi ekki heyrt um að stærri grásleppa hafi veiðzt Hér við land, sagði Sigfús Schopka, fiskifræðingur, i samtali yið Morgunblaðið I gær, en hann fékk haus grásleppunnar til rannsókn- ar í gærmorgun. Hann sagði að við athugun hefði grásleppan reynzt vera 7 ára gömul, en yfir- leitt verður þessi fiskur ekki eldri en 5 ára. Hrogn í þessari grá- sleppu hafa sennilega verið hátt f 3 kg að þyngd, en þau vigta venju- lega um ‘á af heildarþyngd skepn- unnar. Annars getur verið, að þau hafi verið orðin léttari þegar þessi risa grásleppa veiddist, þar sem fiskurinn hrygnir í slumpum, venjulega þrisvar sinnum á mánaðartimabili. Sigfús sagði, að fyrir nokkrum árum hefði veiðzt mjög stór rauð- magi vestur á Ströndum og við mælingu hefði hann mælzt 59 sm langur og aldursgreining sýndi að hann var 6 ára gamall. Olíustyrkur hækk- ar um 400 krónur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.