Morgunblaðið - 14.06.1975, Side 10
10
MORG UNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚNl 1975
Ford Escort Rs 1 600.
NOKKUR ORÐ
UM RALLIÐ....
MeSan bílaþátturinn tók sér
hvíld, hefur einn atburður öðrum
merkari átt sér stað I islenzka
bilaþjóðfélaginu, sem sjálft er heil
saga út af fyrir sig, en það var
rallið, sem svo hefur verið kallað
og fram fór 24. mai sl.
Rally hefur hingað til verið not-
að erlendis um þá tegund bila-
keppni er venjulega kallast kapp
akstur á islenzku. Kappakstur er
keppni um hraða og þol og þó hin
islenzka keppni hafi verið um
hvorugt þá átti hún að heita fyrsta
menn þyrftu að uppfylla svo og
bilar þeirra.
Þegar keppnisbilunum hafði
verið safnað saman á Reykjavikur-
flugvelli var greinilegt að ekki
voru ströng skilyrði um ástand
bilanna. Sumir þeirra hefðu a.m.k.
fengið grænan miða i bifreiðaeftir-
litinu ef mér leyfist að miða við
eigin reynslu í þeim efnum. —
Skílyrði var að mennhefðuslökkvi-
tæki i bilum sínum og öryggis-
hjálma meðferðis, hvort sem þeir
voru settir upp eða ekki. Menn
Stöðvað á fyrstu tímavarðstöð víð
Úlfarsfellsveg
,,rally " keppni á fslandi. Ég bendi
á að keppni sú er hér fór fram var
eingöngu góðaksturskeppni fyrir
menn með nákvæmar klukkur en
alls enginn kappakstur. Það tiðk-
ast raunar i rally-keppnum að á
vissum hluta leiðarinnar þurfa
menn að fara eftir almennum um-
ferðarlögum en aðalhlutar keppn-
innar eru lokaðar „sérleiðir"
(special stages) þar sem fljótasti
ökumaðurinn sigrar. Almenn um-
ferðarlög gera heldur ekki viða um
heim ráð fyrir aðeins 70 km/klst.
hámarkshraða á sveitavegum.
Mér skilst að eins og lögin eru
hér i dag sé undanþága til hraða-
aksturs óhugsandi. I 50. grein um-
ferðarlaga frá 1968 segir m.a.: „f
þéttbýli má eigi aka hraðar en 45
km/klst. Utan þéttbýlis má eigi
aka hraðar en 70 km/klst." Þá
getur dómsmálaráðherra ákveðið
hærri hámarkshraða allt að 90
km/klst. á hraðbrautum. Ýmsar
raddir hafa verið uppi um breyt-
ingar á umferðarlögum eða algjöra
endurskoðun, sem hlýtur að vera
nauðsyn i þjóðfélagi þar sem lög-
regla jafnt sem aðrir leyfa sér að
aka langt fyrir ofan hámarkshraða
í venjulegum akstri.
En nú skal aftur vikið að keppn-
inni. Greinilega var mikill áhugi á
þessari keppni enda hljóta nýjar
tómstundagreinar ávallt að vekja
mikla athygli i litlu þjóðfélagi. For-
ráðamenn keppninnar sömdu
langa rullu um skilyrði, sem öku-
Eini kvenökumaðurinn ekur hér af stað á Toyota Corolla
Einn af fáum bilum i keppninni með
veltigrind þó gamall sé.
verða kannski bráðum skyldaðir
til að bera öryggishjálm i sunnu-
dagabiltúrnum upp á Geitháls^til
Hveragerðis eða annað, sem hug
urinn kann að draga mann.
Það gat þó að lita einn glæsileg-
an rally-bíl innan um alla hina en
það er Ford Escort RS 1600 hörku
tæki á JO-númeri.
Keppnin var i þvi fólgin að keyra
um 150 km á rúml. 2'/2 klst.
Bilarnir fóru af stað með stuttu
miltibili og tíminn, sem skammt-
aður var, var svo rúmur að menn
urðu að biða úti um allar trissur
eða keyra svo hægt að öll önnur
umferð þaut framúr. Það gleymd-
ist nefnilega að láta kunnáttu-
mann aka leiðina fyrir keppnina.
Sá fslendingur, sem mest kynni
hefur haft af bilakeppnum erlend-
is, er vafalitið Sverrir Þóroddsson,
en hann var ekki einn þeirra, sem
siðast óku leiðina fyrir keppnina.
Fyrsta rallinu er lokið. Það er
vafasamt að nefna það „rally" en
það getur hugsanlega orðið vísir
að einhverju sliku.
— Þegar er byrjað að ræða um
aðra keppni í haust og verður hún
vonandi öllu erfiðari.
brynjólfur helgason
AFHENTI VERÐLAUN — A kappreiðum Gusts nýverið afhenti Kristján Vilhelmsson,
eigandi verzlunarinnar Goðaborgar, verðlaun í firmakeppni Gusts. Þessi verðlaun voru
ábreiður fyrir hross ásamt fylgihiutum. Vöktu þessar ábreiður atbyglí viðstaddra en
verzlunin Goðaborg hefur á undanförnum árum sýnt hestvörum vaxandi áhuga og er svo
með aðrar sportvöruverzlanir. Það er Svanborg Danfelsdóttir, sem veitir verðlaununum
viðtöku.
Fjórðungsmót að
Faxaborg í sumar
Eins og áður hefur verið
skýrt frá hér f þættinum halda
hestamannafélögin á Vestur-
landi fjórðungsmót að Faxa-
borg dagana 4.—6. júlí n.k.
þátturinn ræddi fyrir skömmu
við Braga Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóra mótsins og
leitaði frétta af undirbúningi.
Bragi- kvað forráðamenn
mótsins vonast eftir góðri þátt-
töku i einstöku greinum móts-
ins. Þorkell Bjarnason, hrossa-
ræktarráðunautur hefur að
undanförnu gert forskoðun á
kynbótahrossum á svæðinu og
hafa ráðunautarnir Guðmund-
ur Pétursson og Leifur Jó-
hannesson unnið að þessu með
Þorkatli. Verðlaun fyrir beztu
kynbótahrossin í Öllum flokk-
um verða bikarar og verðlauna-
peningar. A kappreiðum móts-
ins verður keppt í fimm grein-
um og verða verðlaun og
keppnisgreinar sem hér segir:
lega mót í Vindheimamelum í
fyrra miði menn allt við aðstöð-
unaþar.
Beit fyrir hross mótsgeta
verður á bæjum í nágrenninu
en bændur hafa verið mjög vin-
samlegir við alla útvegun á
beitilandi. A Beigalda i Borgar-
hreppi verður beit fyrir þau
hross, sem koma vestan af Mýr-
um og Snæfellsnesi. I Svigna-
skarði verður tekið á móti
hrossum vestan úr Dölum og að
norðan. Á Hvitárvöllum verður
beit fyrir hross að sunnan og
austan. Allar þessar girðingar
liggja skammt frá mótsstaðn-
um, þannig að menn, sem koma
langt að, ættu aðeins að þurfa
umsjón: TRYGGVI
GUNNARSSON
star
Keppnisgrein I. verðl. II. verðl. III. verðl.
250 m skeið 40.000,00 30.000,00 20.000,00
250 m unghrossahlaup 15.000,00 10.000,00 5.000,00
300 m stökk 20.000,00 15.000,00 10.000,00
800 m stökk 40.000,00 30.000,00 20.000,00
1500 m brokk 30.000,00 20.000,00 10.000,00
Skráningu kappreiðahrossa
lýkur á morgun, 15. júni og fer
hún fram hjá Þorsteini Vaidi-
marssyni í Borgarnesi, sími
7194.
Við skráningu kappreiða
hrossa ber eigendum að greiða
kr. 1.000,00 í skráningargjald
og sagði Bragi, að þessi ráðstöf-
un hefði orðið fyrir nokkurri
gagnrýni en ástæðu skráningar-
gjaldsins kvað Bragi vera, að
mótsstjórnin vildi með þessu
setja hemil á menn að skrá í
hlaup hross, sem þeir hefðu
ekki sérstakan áhuga á að láta
hlaupa og mættu ef til viil ekki
til leiks með á mótinu. Það set-
ur leiðinlegan svip á hlaupin og
dregur þau mjög i langinn ef
aðeins mæta 2 til 3 hestar af 6 I
riðli. Að sögn Braga ætla þeir,
sem fyrir mótinu standa að
vanda eins og kostur er á að-
stöðu fyrir mótsgesti. En hann
sagði að þeim væri vandi á
höndum, því að eftir hið glæsi-
að taka fá hross inn á móts-
svæðið. A kvöldin veróa kvöld-
vökur og dansleikir þannig að
eitthvað ætti að vera fyrir alla.
Að lokum skal vakin sérstök
athygli á því, að Hestamanna-
félagið Geysir í Rangárvalla-
sýslu, sem búið var að auglýsa
kappreiðar sunnudaginn 6. júli,
hefur ákveðið að færa þær
aftur um eina viku, eða til
sunnudagsins 13. júlí. Vildi
Bragi koma á framfæri þakk-
læti til Geysismanna.
Fóðurkostnaður hækkar
Allt bendir nú til þess að
fóðurkostnaður hækki stórlega
á þessu ári. Fyrst er það að
kjarnfóður handa hrossum sem
öðrum skepnum hefur stór-
hækkað i verði. Þetta varð til
þess að margir drógu úr kjarn-
fóðurgjöf á s.l. vetri og gáfu í
þess stað meira af heyi.
Áburðarverð hefur einnig
hækkað stórlega og kemur sú
hækkun fram með tvennu móti.
Annars vegar verður nú dýrara
að bera tilbúinn áburð á beiti-
lönd, en slíkt hefur farið mjög I
vöxt á síðustu árum vegna
minnkandi framboðs á beiti-
löndum og hækkaðrar land-
leigu. Hins vegar hefur
áburðarverðshækkunin mikil
áhrif á heyverð, þó þar komi
einnig til önnur atriði s.s. veðr-
átta. I fyrra sumar fór heyverð
hækkandi eftir því sem leið á
sumarið og er því ráðlegt að
hvetja alla til að festa kaup á
heyi i tima.