Morgunblaðið - 14.06.1975, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚNI 1975
Verðmætri
kápu stolið
VERÐMÆTRI leðurkápu var
stolið í veitingahúsinu Klúbbnum
s.l. fimmtudagskvölrt. Eigandi
kápunnar, ung stúlka, lagði hana
frá sér á stólbak og gekk frá ör-
skotsstund. Á meðan var kápan
tekin. Þetta er hálfsfð leðurkápa,
dökkbrún að lit en slíkar kápur
munu kosta nálægt 40 þúsund
krónum. Þeir sem einhverjar
upplýsingar geta gefið um
þennan kápustuld eru beðnir að
hafa samband við rannsóknarlög-
regluna f Reykjavfk.
Dagur rótfiskar
Siglufirði —12. júní
DAGUR var að landa hér rétt
einu sinni um 10 tonnum af nóta-
fiski. Má segja, að hann hafi rétt
skroppið hér út fyrir en mjög gott
fiskirí hefur verið hér á austur-
slóðunum sem við köllum svo. Þá
hef ég einnig heyrt, að núna sé
gott fiskirí við Hornið hjá Bretun-
um og íslenzku togurunum_mj
— Samningarnir
Framhald af bls. 32
launahækkun á þessu ári miðað
við 6. taxta Dagsbrúnar, svo sem
Morgunblaðið hefur skýrt frá.
Tvær hækkanir eiga að verða á
samningstímanum og er hinn
fyrri 11.6% en samtals nemur
hækkunin um 7.400 krónum sem
koma á f gegnum allan launastig-
ann. Þá eiga allir þeir, sem ekki
fengu launajöfnunarbætur í
haust samkvæmt bráðabirgðalög-
um kr. 3.500 og síðan 4.900 kr.
samkvæmt bráðabirgðasamkomu-
laginu i marz, að fá þær nú. I
samningnum er hins vegar ekki
ráð fyrir því gert að vísitala mæli
verðlag og verðlagsbætur
greiddar samkvæmt því en þó er
það ákvæði í samkomulaginu að
fari framfærsluvfsitalan fram
yfir 477 stig hinn 1. nóvember
nk., þá skuli það sem umfram
verður téð mörk bætt með verð-
lagsbótum.
SAMNINGARNIR
ALLSTAÐAR
SAMÞYKKTIR
Launþegafélögin innan ASl
sem aðild áttu að þessum samn-
ingum héldu mörg hver félags-
fundi þegar í gærmorgun, og báru
þá strax upp samningana. I mörg-
um tilfellum hafði verkfall hafizt
á miðnætti eins og boðað hafði
verið, og þar af leiðandi lögð
áherzla á að hraða fundum svo að
vinna yrði orðin með eðlilegum
hætti eftir hádegið.
Eftir þeim upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér hjá við-
komandi félögum var yfirleitt
fjölmenni á þessum fundum, og í
öllum þeim félögum sem Mbl.
hafði spurnir af voru samningarn-
ir samþykktir með meira en 2/3
atkvæða fundarmanna og vfða
samhljóða.
I tveimur verkamannafélögum
að minnsta kosti reyndu þó fél
agar úr Rauðri verkalýðseiningu
og KSML að hafa áhrif á fund
armenn með því að dreifa meðal
þeirra áskorun um að fella
samkomulagið. Annað þessara
félaga hélt fund sinn í Austur-
bæjarbíói og var þar húsfyllir —
milli 700 og 800 manns. Þar voru
samningarnir samþykktir með
miklum þorra atkvæða og voru
mótatkvæði aðeins 20—30 talsins.
I hinu félaginu, Iðju, fór allt á
sömu lund — samningarnir
samþykktir með miklum meiri-
hluta á um 300 manna fundi og
voru mótatkvæði þar innan við
40.
I verkakvennafélaginu Fram-
sókn voru samningarnir t.d. sam-
þykktir samhljóða og verkfallinu
aflýst eins og annars. I Trésmiða-
félagi Reykjavíkur voru þeir sam-
þykktir með þorra atkvæða gegn
13 en tæplega 190 manns sátu
fundinn. A fundi f Verkamanna-
félaginu Hlff f Hafnarfirði voru
samningarnar samþykktir með 71
atkvæði gegn 18 og í sex aðildar-
félögum Sambands málm- og
skipasmiða f Reykjavík voru
samningarnir samþykktir og á
sumum þeirra samhljóða. Þetta
voru félög skipasmiða, blikk-
smiða, bifvélavirkja, bifreiða-
smiða, bílamálara og járniðnaðar-
manna. Þá samþykktu afgreiðslu-
stúlkur í brauð- og mjólkurbúðum
samningana með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða.
Þegar Morgunblaðið hafði
samband við skrifstofu Vinnu-
veitendasambands Islands sfðla
dags f gær hafði ekki borizt
þangað tilkynning um að
samningarnir hefðu verið felldir í
neinu þeirra launþegafélaga, sem
aðild áttu að samningum ASt og
VSI. Vinnuveitendasambandið
efndi sjálft til fundar meðal
félaga sinna um samningana, og
voru þeir þar einnig samþykktir
samhljóða eftir þvf sem Morgun-
blaðið komst næst.
VERKFÖLL
NYRÐRA OG SYÐRA
I tveimur landshlutum hefur þó
komið til vinnustöðvunar, svo
sem að framan greindi, þ.e. á
Norðurlandi og í Rangárvalla-
sýslu.
Að vfsu átti stærsta verkalýðs-
félagið á Norðurlandi, Eining,
aðild að samkomulagi ASI og VSI
og frestaði þegar f fyrrakvöld
boðuðum verkföllum fram yfir
félagsfund, sem haldinn verður f
dag kl. 2. Hins vegar átti Alþýðu-
samband Norðurlands ekki aðild
að þessu samkomulagi og sex
verkalýðsfélög á Norðurlandi,
sem öll veittu ASN umboð til að
fara með samninga fyrir sína
hönd, hafa nú byrjað verkföll.
Þetta eru verkalýðsfélögin á
Raufarhöfn, Húsavik, Bflstjóra-
félag Akureyrar — launþega-
deild, Verkalýðsfélagið Vaka á
Siglufirði Verkalýðsfélagið
Ársæll á Hofsósi og Verkakvenna-
félagið Aldan á Sauðárkróki.
Að þvi er Jón Ásgeirsson, for-
maður ASN, tjáði Morgunblaðinu'
gærkvöldi hófust sáttaumleitanir
í gær og haldið var áfram fram
eftir kvöldi. Jón kvaðst eiga von á
þvf, að samningar ASI og VSl yrði
eðlilega lagðir til grundvallar en
ASN væri þó með fáeinar sérkröf-
ur, sem lögð væri megin áherzla
að fá fram. Ekki kvaðst Jón
treysta sér til að spá hversu
erfiður róður það yrði að fá þess-
um kröfum framgengt en kvað
viðbrögð viðsemjenda þeirra
hingað til hafa verið ákaflega nei-
kvæð.
I Rangárvallasýslu er hins vegar
hafið verkfall verkamannadeildar
og iðnaðarmannadeildar Verka-
lýðsfélagsins Rangæings og
Sveinafélags málmiðnaðarmanna.
Hefur það leitt til þess meðal
annars að öll vinna hefur lagzt
niður við Sigölduvirkjun og
einnig í þorpunum. Hilmar Jónas-
son, formaður fulltrúaráðs
stéttarfélaganna í Rangárvalla-
sýslu, kvaðst vænta þess að
samningar VSI og ASl frá þvf í
gærmorgun yrðu einnig þar
lagðir til grundvallar við
samningsgerðina, en kvað félögin
einnig hafa sett fram „innan-
héraðs“-kröfur sem mikilvægt
væri að ná fram. Hilmar sagði
hins vegar að í þessari lotu
samninganna yrði ekkert farið út
í ýmsa sérsamninga vegna Energo
project, verktakans við Sigöldu,
heldur tækju þær samningavið-
ræður við þegar að lokinni yfir-
standandi samningsgerð. Hjá
Vinnuveitendasambandinu var
hins vegar sagt að kröfur Rang-
æinga væru algjörlega óaðgengi-
legar.
— Kúadauði
Framhald af bls. 2
bæta, enda sýnist ábyrgðin f
þessu alvarlega máli vera hjá raf-
orkusala, en ekki kaupanda. Hvað
sem um það verður vona menn, að
tekizt hafi að girða fyrir frekari
kúadauða á Ljósalandi.
Séra Ágúst.
— Sex milljarðar
Framhald af bls. 2
svo og viðskiptakjörin það sem af
er árinu að minnsta kosti. Niður-
staða þessara samninga mun þar
af leiðandi að mfnu mati ekki
breyta að neinu ráði þeim for-
sendum, sem við vorum að reikna
með og voru auðvitað eingöngu
tilbúnar forsendur.“
Ólafur kvaðst að öðru leyti ekki
hafa skoðað samninginn nákvæm-
lega en benti á að útkoman hefði
að öðru leyti ekki verið svo ýkja
fjarri þvf sem fljótlega kom fram
f sáttatillögu sáttanefndarinnar.
Niðurstöður þjóðhagsspárinnar
voru annars í þá veru, að þjóðar-
framleiðslan drægist saman í ár
og að þjóðartekjur minnkuðu tals-
vert umfram framleiðslusam-
dráttinn vegna versandi við-
skiptakjara. Þar var einnig gert
ráð fyrir, að mestur samdráttur-
inn yrði í einkaneyzlunni, sem
Ólafur kvað eðlilega ráðast að
miklu leyti af kaupmættinum,
bæði skattabreytingunum frá í
vor og eins kauplagi og verðlagi,
sem nýgerðir samningar hafa auð-
vitað áhrif á. „En i aðalatriðum
þá virðist mér að sú spá sem við
settum fram um þjóðhaginn f ár,
geti staðið óbreytt I dag," sagði
Ólafur.
Morgunblaðið sneri sér einnig
til Brynjólfs Bjarnasonar, hag-
fræðings Vinnuveitendasam-
bands Islands, og leitaði álits
hans á áhrifum þessarar samn-
ingsgerðar á þjóðarbúskapinn.
Brynjólfur sagði, að hafa þyrfti f
huga að til væru atvinnugreinar,
sem stæðu mjög illa að vfgi til að
taka þær launahækkanir á sig, er
fælust i nýgerðum samningi ASI
og VSI. Ætti þetta sérstaklega við
um sjávarútvegsgreinarnar. Sagði
Brynjólfur að þannig mætti segja,
að með þessum samningum væri
verið að tefla á tæpasta vað að
ýmsu leyti en ekki mætti þó held-
ur gleyma því að mikilsvert væri
að atvinnutækjunum væri haldið
gangandi og það yrði að meta til
mótvægis.
Brynjólfur var einnig þeirrar
skoðunar, að á síðari stigum
þessarar samningagerðar hefði
gætt meiri raunhæfni varðandi
stöðuna en oft áður f samningum.
Mat manna á afleiðingum væri að
sjálfsögðu ákaflega mismunandi
en hann kvað sitt mat vera að
bæði þjóðarbúið og svo einstakir
atvinnuvegir væru ákaflega illa
undir það búin að mæta þeirri
útgjaldahækkun sem fælist f fyrr-
greindu samkomulagi. „Hvernig
þessu reiðir af er annars ekki svo
gott að segja á þessu stigi, en
endurtek að ég tel að með samn-
ingunum sé teflt á tæpasta vað.“
— Sölur
Framhald af bfs. 5
lestir fyrir 143 þús. kr. og meóalverðið var
þar kr. 5.91 en allur aflinn fór I bræðslu,
Helga 2. RE seldi 44.2 lestir fyrir 1 millj. kr.
meðalverð kr. 23.76, Hilmir SU seldi 3.2
lestir fyrir 18 þús. kr., meðalverð kr. 5,67, en
allur aflinn fór f bræðslu, Faxaborg GK seldi
29,8 lestír fyrir 264 þús. kr., meðalverð kr.
8.88 og Börkur NK seldi 19.2 lestir fyrir 506
þús. kr., meðalverð kr. 26.39.
— Rabin
Framhald af bls. 1
Rabin hefur þó látið ótvirætt i
ljós í yfirlýsingu, sem hann gaf
eftir fundinn með Ford, að úti-
lokað sé að ná friði nema Egyptar
„gefi verulega eftir."
Hefur þessi yfirlýsing vakið
mikla gagnrýni Araba, og tals-
maður Arababandalagsins sagði
að Rabin væri aðeins að reyna að
tefja fyrir samkomulagi.
Sagði hann ennfremur að Arab-
ar féllust ekki á flutning fsra-
elskra hermanna frá Sinai nema
þeir yrðu líka fluttir frá öðrum
víglínum fyrir lok þessa árs.
— Ráðstefna
Framhald af bls. 2
son, framkvæmdastjóri, Neskaup-
stað, Pétur Blöndal, fram-
kvæmdastjóri á Seyðisfirði,
Sveinn Björnsson, framkvæmda-
stjóri Iðnþróunarstofnunar Is-
Iands, Þorleifur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
iðnaðarmanna.
Þegar framsögu er lokið fjalla
umræðuhópar um hina ýmsu
þætti dagskrárefnis og á sunnu-
dag fara fram almennar umræður
og fyrirspurnir sem framsögu-
menn svara. Þá verður fyrri hluti
Austurlandsáætlunar lagður fram
og kynntur á ráðstefnunni ásamt
drögum að umræðugrundvelli um
þróunarleiðir, sem verða sfðari
hluti Austurlandsáætlunar.
Áætlun þessi er unnin á vegum
Framkvæmdastofnunar ríkisins
og hefur ráðgjafafyrirtækið Hag-
vangur h.f. séð um meginhluta
verksins.
Af hálfu Sambands sveitar-
félaga í Austurlandskjördæmi er
ráðstefnan á Hallormsstað hugsuð
sem upphaf að gagngerðum um-
ræðum um þróun iðnaðar á
Austurlandi, sem ætlazt er til að
fari fram áþessu ári.
— Hvað segja
þeir
Framhald af bls. 3
verðhækkanir, því að atvinnu-
vegirnir þurfa að velta hluta
þessara hækkana af sér. Ég
vona bara að þessir samningar
auki kaupmátt í landinu," sagði
Skúli að lokum.
FAGNA SAMKOMU-
LAGINU
„Ég get endurtekið það sem
ég sagði á baknefndarfundi
ASI f gær, að ég fagna því að
þetta samkomulag skyldi nást
með þessum hætti," sagði Jón
Helgason, formaður Einingar á
Akureyri, þegar hann var
spurður álits á samningunum.
„Og þótt ég hafi áður látið f ljós
að ég hefði vænzt þess að meira
tillit yrði tekið til láglaunahóp-
anna, þá verður maður samt að
lýsa yfir ánægju með að það
skyldi nást samstaða um að
standa að samningunum með
þessum hætti. Ég tel einnig að
meta verði töluvert þessa yfir-
lýsingu sem við fengum hjá
ríkisstjórninni um að halda
búvöruverðinu óbreyttu, þar eð
við getum þá vænzt þess að
halda eitthvað betur í þessa
kjarabót."
ÓANÆGÐIR —
EN KANNSKI EINA
LAUSNIN
Hjörtur Hjartarson, for-
maður Kjararáðs verzlunar-
innar, sagði um samkomulagið
við Verzlunarmannafélag
Reykjavfkur, að auðvitað yrði
að viðurkenna að gott væri að
þessi samningagerð skyldi
afstaðin. „Við urðum þó ekki
sérlega ánægðir með niður-
stöðu þessara samninga, sér-
staklega ekki það atriði að vfsi-
talan skuli tekin inn í þá aftur.
Við buðumst til að greiða hærri
krónutölu, ef þetta atriði yrði
látið bfða til 1. janúar en því
var hafnað. En þetta hefur i för
með sér gífurleg útgjöld fyrir
rfkissjóð, svo að við getum
varla verið ánægðir með þessa
samninga. En okkur var á sama
tíma alveg Ijóst, að vandi laun-
þeganna var mikill f þessari
samningagerð, svo að eftir at-
vikum má kannski segja að
þetta hafi verið sú eina lausn
sem mátti fá undir núverandi
kringumstæðum.”
ÓMETANLEGUR
STUÐNINGUR
RÍKISSTJÓRNAR
Guðmundur Garðarson, for-
maður Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur, sagði: „Það sem
mér þykir mest um vert í sam-
bandi við þessa samninga er að
með þeim er vinnufriður
tryggður, I öðru lagi eru fólki
tryggðar allgóðar kjarabætur
miðað við allar aðstæður. Allir
fá sömu kauphækkanir f krónu-
tölu, og fyrri láglaunabætur
koma nú til allra. Loks verður
að hafa i huga, að búvöruverðið
hækkar ekki.
Rikisstjórnin veitti ómetan-
legan stuðning við lausn kjara-
deilunnar með fyrirheiti um að
20% hækkanir, sem koma áttu
á landbúnaðarvöru 1. júnf,
skuli niðurgreiddar. Þetta ætti
að vera óhætt að meta til jafns
við 3% hækkun á kaupi hið
minnsta.
Almenningur fagnar því, að
samningar skuli hafa tekizt.“
— Að vera með
Framhald af bls. 2
Bragi. Hinu er þó varía að neita
að það verður að teljast gott að
geta yfirleitt komið í verð hlut-
um sem voru í sumum tilfellum
gleymdir og grafnir. Annað
mun aldrei sjá dagsins ljós, og
Bragi segir frá þvi, að þegar
fjölskylda hans flutti af
Rauðarárstíg á Dyngjuveginn
þá glataðist f flutningnum ein
mappa full af myndum. „Sfðan
hefur hvorki sézt tangur né tet-
ur af þessum myndum, en ég sé
mikið eftir þeim,“ segir Bragi.
— Indira
Framhald af bls. 1
áfrýja til hæstaréttar úrskurðin-
um, sem felldur var í héraðsdómi
á fimmtudag. Eru lögfræðingar
þegar farnir að undirbúa mál-
flutning fyrir hæstarétti.
Héraðsdómur fann Gandhi seka
um að hafa notað opinbera starfs-
menn og misnotað aðra aðstöðu
sína hjá ríkinu i kosningunum
1971, og því væri kosning hennar
ógild og henni bæri að segja af
sér.
Ýmsir hópar hafa lýst stuðningi
sfnum við Indíru Gandhi. Strætis-
vagnastjórar vöktu þó litla hrifn-
ingu meðal þúsunda íbúa Nýju
Delhi, sem urðu að ganga til
vinnu sinnar, þar sem vagn-
stjórarnir höfðu í trássi við yfir-
menn sína ekið vögnunum heim
að húsi Gandhi til að sýna stuðn-
ing sinn við hana.
— Verðbólga
Framhald af bls. 1
bólgan væri alvarlegasta vanda-
málið, sem Bretar ættu við að
glíma. Lofaði hann ráðstöfunum
innan fárra vikna, sem miðuðu að
því að minnka verðbólgu um
helming.
Margir álíta að stjórnin verði að
banna eða takmarka mjög launa-
hækkanir, en slik ráðstöfun mun
eflaust mæta mikilli andstöðu
verkalýðsfélaga. Síðustu 12
mánuði hækkuðu laun verka-
manna um 31,7%
— Þynnka
Framhald af bls. 1
mónastarfsemi lfkamans,
meðan menn eru þunnir eftir
drykkju. Eykst þá mjög starf-
semi svokallaðra „stresshor-
móna“ en aftur á móti dregur
úr þeirri starfsemi sem stýrir
kynhormónum, sérstaklega
hjá karlmönnum. Hvernig
þetta gerist og hversu mikil
Iffeðlisfræðileg áhrif þetta
hefur er enn óljóst.
— CIA
Framhald af bls. 1
við Castro árið 1969. Hafi hann
verið ásjáandi þegar kúbanskur
hermaður skaut að forsætisráð-
hercanum, en missti marks. Sagði
Lamb að læknir Castros hefði tjáð
sér að við yfirheyrslur hefði her-
maðurinn viðurkennt að hafa
unnið fyrir CIA.
Church sagði að nefnd hans
væri að reyna að komast að því
hverjir gæfu skipanir um starf-
semi CIA, og hvort einhver hinna
þriggja forseta, Kennedy, John-
son eða Nixon, hefðu sjálfir gefið
fyrirskipanir um eða hafi vitað
um samsæri eða morðtilraunir.
— Liinamaa
Framhald af bls. 1
því yrði slitið en Miðflokkurinn
vildi tafarlaus þingslit.
Ráðherrar f hinni nýju stjórn
eru aðallega úr röðum embættis-
manna, en stjórnmálamenn eiga
þó sfna fulltrúa. Utanríkis-
ráðherra er Olavi J. Mattila, sem
eitt sinn var viðskiptaráðherra og
stjórnaði m.a. samningaviðræðum
Finna við Efnahagsbandalagið.
Mattila er nú aðalforstjóri
rfkisiðnfyrirtækisins Valmet.
Liinamaa er ráðuneytisstjóri f
innanrfkisráðuneytinu.